Ný lög frá ESB um millilandasímtöl og vefverslun milli landa

Allt utan efnis

einarn
Gúrú
Póstar: 538
Skráði sig: Mán 15. Mar 2010 06:06
Reputation: 25
Staða: Ótengdur

Re: Ný lög frá ESB um millilandasímtöl og vefverslun milli landa

Pósturaf einarn » Mán 06. Maí 2019 18:35

Tbot skrifaði:
jonfr1900 skrifaði:
Tbot skrifaði:
jonfr1900 skrifaði:
Hauxon skrifaði:Ísland er auðvitað ekki í ESB. Veit ekki hvort að þetta skilar sér hingað í gegnm EES samninginn. Líklega verður þetta nefnt 3. viðskiptapakki ESB og Íslenskt samfélag mun hrynja ef við samþykkjum "pakkann". :twisted:


Þetta er hluti af EES samningum. Þannig að þessi lög taka gildi á Íslandi. Annað hvort á sama tíma og innan ESB eða nokkrum mánuðum seinna. Það veltur á afgreiðsluhraða Alþingis og EFTA-ESB nefndarinnar.

Orkupakki 3 mun litlu breyta fyrir íslendinga. Þetta snýst að mestu leiti um að styrkja lagaheimildir Orkustofnunar. Það er fullt í þessum lögum sem íslendingar fengu undanþágu frá eða á ekki við á Íslandi (sala á rafmagni yfir landamæri). Þar er helst að aðskilja þarf Landsvirkjun (framleiðandi) og Landsvirkjun (dreifaðili). Það er ekki heimilt í Orkupakka 3. Ísland fékk undanþágu frá því í þessum lögum en mér sýnist að það eigi samt að skilja þetta að og það sé í undirbúningi núna hjá ríkisstjórninni að gera það. Frétt Rúv um þann undirbúning er hérna.


Ef þetta skiptir engu máli fyrir Íslendinga, þá hvers vegna samþykkja þetta.
Því miður er þetta ekki nándar nærri svona einfalt.

Aðskilnaður er nú þegar á milli Landsvirkjunar og Landsnets.

Í grunninn gengur þetta meðal annars út á að markaðsvæða raforku og að yfirvaldið yfir auðlindinni sé úti í Brussel.
En ekki í viðkomandi landi.


Þetta er kjaftæði. Þá ekki nema vegna þeirrar staðreyndar að Evrópusambandið stjórnar ekki auðlindum aðildarríkja sinna. Það er ekki lagaheimild fyrir þessu sem þú heldur fram í lögum Evrópusambandsins. Þessi fullyrðing sem þú setur fram er skáldskapur andstæðinga Evrópusambandsins og ég er orðin afskaplega þreyttur á að sjá þetta kjaftæði endurtekið eins og þetta sé staðreynd. Vegna þess að þetta er ekki staðreynd, þetta er lygi samin af andstæðingum Evrópusambandsins á Íslandi.

Það er ekki aðskilnaður milli Landsvirkjunar og Landsnets. Það var ein af þeim undanþágum sem Ísland fékk í Orkupakka 3. Ísland má halda núverandi fyrirkomulagi áfram.

Síðan er Ísland búið að innleiða meirihluta af lögum Orkupakka 3 nú þegar. Það var Sigmundur Davíð sem gerði það. Þessi sami sem er á móti Orkupakka 3 í dag.

Ríkisstjórn Sigmundar Davíðs innleiddi reglur úr þriðja orkupakkanum áður en EES-nefndin samþykkti þær (Stundin)


Stjórnun auðlinda frá ESB er ekkert kjaftæði. Sem segir að þú veist ansi takmarkað um þessi mál.

Það er ESB sem gefur út kvóta í fiskveiðum.
Þetta er eitt að þeim málum sem var hampað í britexit málinu, að þeir næðu aftur stjórn á fiskimiðum sínum í kringum Bretland.


Ég sel það ekki dýrara enn ég keypti það, enn nátturufræðikennarinn minn fullyrti það í tíma fyrir nokkrum árum að samkvæmt reglum esb þá um leið og við byrjum að selja raforku erlendis þa erum við skyldug að selja hana á sama verði allstaðar. Hann fullyrti t.d að ef að við myndum selja til landa sem raforkuverð væri 3x dýrara heldur enn hér þá er eina sem myndi gerast að raforkuverðið myndi hækka hér sbr því sem það kostar erlendis.



Skjámynd

Hauxon
spjallið.is
Póstar: 405
Skráði sig: Fös 10. Júl 2009 12:32
Reputation: 119
Staða: Ótengdur

Re: Ný lög frá ESB um millilandasímtöl og vefverslun milli landa

Pósturaf Hauxon » Mið 08. Maí 2019 10:49

Ég sel það ekki dýrara enn ég keypti það, enn nátturufræðikennarinn minn fullyrti það í tíma fyrir nokkrum árum að samkvæmt reglum esb þá um leið og við byrjum að selja raforku erlendis þa erum við skyldug að selja hana á sama verði allstaðar. Hann fullyrti t.d að ef að við myndum selja til landa sem raforkuverð væri 3x dýrara heldur enn hér þá er eina sem myndi gerast að raforkuverðið myndi hækka hér sbr því sem það kostar erlendis.


Það er ekki sama raforkuverð í allri Evrópu og ekkert sem skyldar einn eða neinn til neins. Það sem menn geta haft áhyggjur af er að ef að sæstrengur yrði lagður t.d. til Bretlands þar sem rafmagnsverð er 19% hærra en hér að orkusalarnir hér heima myndu segja "Við getum selt fyrir 19% hærra verð í UK þ.a. við hækkum verðið!". Ég veit ekki hvað það tapast mikil orka á leiðinni í sæstrengnum en það tap minnkar þennan 19% mun enn meira. ..og jú líklega verður UK ekki einu sinni í ESB þegar sæstrengur yrði kominn þarna yfir.

Hér fyrir neðan er graf sem sýnir kostnað við að hafa ískáp í sambandi í eitt ár í flestum Evrópulöndum. Fjölmörg lönd í Evrópusambandinu eru með lægri rafmagnskostnað en hér heima, Pólland, Lettland, Litháen, Eistland, Rúmenía, Króatía, Malta, Ungverjaland, Búlgaría. Önnur lönd sem eru nær okkur, Finnland, Holland, Frakkland ofl eru ekki með mikið hærra verð en hér heima og stundum er munurinn fyrst og fremst skattar þ.a. orkusalinn getur ekki tekið það með í hugsanlegan "gróða".

Það sem "græðist" við sæstreng er ekki sala á rafmagni til einstaklinga. Hins vegar ættum við möguleika á að selja orkuna sem fer í stóriðjuna á hærra verði. ...nema auðvitað að búið er að semja um það áratugi fram í tímann.

Mynd
Sjá:https://ec.europa.eu/eurostat/news/themes-in-the-spotlight/energy-prices-2018/



Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6773
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 934
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Ný lög frá ESB um millilandasímtöl og vefverslun milli landa

Pósturaf Viktor » Mið 08. Maí 2019 15:30



I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things


Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB