Síða 1 af 1

Vape þráður

Sent: Mið 20. Mar 2019 21:38
af Theraiden
Langaði að forvitnast um hvaða græjur my fellow vapers hérna inni væru að nota dags-daglega

Sjálfur er ég að nota Smoant Naboo

Mynd

með Sense Screen Mesh Tank með triple mesh coili

Mynd

Er mjög ánægður með Sense tankinn, miklu meira og betra bragð en ég var að fá úr Falcon'inum (enda búinn að leggja honum í bili)

Búinn að vera reyklaus í 2 ár og 3 mánuði núna :)

Endilega postið setupi og hvað er að virka fyrir ykkur

Re: Vape þráður

Sent: Mið 20. Mar 2019 23:31
af ChopTheDoggie
Ég var að pikka upp Innokin MVP4 með Crown 3 og það er alveg ótrulegt hvernig Innokin er einnig powerbank sem heldur 4500mAh batterí :wtf
Svo er ég með svartan Crown 4 með Snowwolf Mfeng svart og gullitaðan & Zeltu X pod system sem ég nota sjaldan því að ég nenni ekki að eyða 5k í salt ník. vökva [-(

Svo er ééég með nokkra aðra í viðbót en eru ekki nógu worth it að mention-a þá :guy

Re: Vape þráður

Sent: Fim 21. Mar 2019 13:36
af Theraiden
ChopTheDoggie skrifaði:Ég var að pikka upp Innokin MVP4 með Crown 3 og það er alveg ótrulegt hvernig Innokin er einnig powerbank sem heldur 4500mAh batterí


Sniðug pæling að vera með powerbank í vape'inu, er einhver að selja þetta hér á íslandi?

Hvernig er með Snowwolf'inn, kemur alveg instant ramp up þegar þú ýtir á skot takkann hjá þér? vinur minn var með eins græju og var alltaf að kvarta yfir því hvað hann væri lengi að hita coilið þegar hann fékk sér puff.

Og svo önnur pæling, veit einhver um einhvern sem er með þrívíddarprentara hér á landi, langaði að smíða nýtt box utan um Hohmwrecker G2 moddið mitt, hann fellur ekki beint vel í hendi en FSK chipið í honum er snilld, getur temp controlað kanthal.

Re: Vape þráður

Sent: Fim 21. Mar 2019 14:24
af urban
Smá forvitni, þar sem að ég var nú reykingamaður og er orðinn reyklaus núna í rétt rúma 3 mánuði.

Hvað er þetta að kosta ykkur ?
Er einhver sparnaður á vape í staðin fyrir að reykja ?

Þar sem að það var nú (hin) stóra ástæðan fyrir því að ég hætti að reykja, ég tímdi þessu bara ekki lengur.

Re: Vape þráður

Sent: Fim 21. Mar 2019 15:18
af Theraiden
urban skrifaði:Smá forvitni, þar sem að ég var nú reykingamaður og er orðinn reyklaus núna í rétt rúma 3 mánuði.

Hvað er þetta að kosta ykkur ?
Er einhver sparnaður á vape í staðin fyrir að reykja ?

Þar sem að það var nú (hin) stóra ástæðan fyrir því að ég hætti að reykja, ég tímdi þessu bara ekki lengur.


Fyrir utan startkostnað (ca 15-25 þúsund fyrir Box, batterí, Tank, nokkur coil og hleðslutæki) þá er þetta að kosta svona 3000 til 4000 krónur á viku fyrir vökvann sjálfann og ný coil. Þannig að já það er töluverður sparnaður miðað við tóbak.

Re: Vape þráður

Sent: Fim 21. Mar 2019 15:38
af urban
Theraiden skrifaði:
urban skrifaði:Smá forvitni, þar sem að ég var nú reykingamaður og er orðinn reyklaus núna í rétt rúma 3 mánuði.

Hvað er þetta að kosta ykkur ?
Er einhver sparnaður á vape í staðin fyrir að reykja ?

Þar sem að það var nú (hin) stóra ástæðan fyrir því að ég hætti að reykja, ég tímdi þessu bara ekki lengur.


Fyrir utan startkostnað (ca 15-25 þúsund fyrir Box, batterí, Tank, nokkur coil og hleðslutæki) þá er þetta að kosta svona 3000 til 4000 krónur á viku fyrir vökvann sjálfann og ný coil. Þannig að já það er töluverður sparnaður miðað við tóbak.


Já en þegar að heildarkostnaður er tekinn samann. :)

semsagt, það sem að ég á við er að t.d.
ChopTheDoggie skrifaði:Svo er ééég með nokkra aðra í viðbót en eru ekki nógu worth it að mention-a þá :guy


Þarna eru 3 stykki og aðrir taldir með sem að ekki tekur því að nefna.
Ég man nefnilega hreinlega ekki eftir neinum sem að vapear sem að ekki hefur skipt um græju til þess mjög reglulega eða á fjölmargar.

Annars persónulega valdi ég að nota þessa leið ekki, einfaldlega vegna þess að ég þekki sjálfan mig, til þess að hætta að reykja þá þurfti ég að hætta tvennu, ávananum að reykja og hætta að nota nikótín, ég treysti mér einfaldlega ekki til þess að vera hættur að reykja með vape.

finnst þetta samt brilljant að fólk geti notað þetta til að hætta, versta sem ég sé við vapeið er að allt í einu langar manni í candyfloss eða smákörkur eða eitthvað þegar að það er einhver að vapea nálægt manni.

Re: Vape þráður

Sent: Fim 21. Mar 2019 15:40
af Viktor

Re: Vape þráður

Sent: Fim 21. Mar 2019 15:42
af Gorgeir
Það þarf ekki að kosta svona mikið. Þetta sem Theraiden nefnir er hinsvegar flottur pakki og mæla flestallir sem eru að vape-a með svona pakka.
En það er hægt að fara aðra leið.
Kaupa Penna (verð frá 8k-15k). Sum eru með innbyggðu batterí og þarf því ekki að kaupa batterí og hleðslutæki.
Svo er hægt að kaupa vökvann frá Boss-Shots og þá færðu 500ml af vökva á ca 6k. (en virðist ansi lítið vera til hjá honum í augnablikinu)
Ég er enginn strompur en ég fer með svona 200ml á mánuði.
Svo það er líka hægt að borga ekki mikið fyrir þetta en miðað við Meniga þá er ég að borga tæp 8k á mánuði með öllu.

Re: Vape þráður

Sent: Fim 21. Mar 2019 16:33
af ZiRiuS
Djöfull er ég glaður að geta eytt 96-192þús á ári í tölvuspreð (meira ef ég tek áfengisleysi með :guy )

Re: Vape þráður

Sent: Fim 21. Mar 2019 16:46
af kizi86
það sem ég er að nota mest þessa dagana er GhostShip 20700 mech mod með unholy RDA v2 https://carrackvape.com/products/ghosts ... hwish-modz
eeeeeeeeeelska þennan mekka! er með ca 0.1ohm build í núna sem er algjört dúndur! (já ég veit hvað ég er að gera)
og yfirleitt með 5-8mg/ml salt nic vökva í græjunni

svo er ég með on the side Suorin Drop með salt nic 50mg/ml

svo bý ég mér til mína eigin vökva, oftast nær nota ég samt bara svona boss shots sem ég kaupi beint frá
https://flavour-boss.co.uk/ kaupi bragðefnin og pg og vg af þeim, redda nicotíni annarstaðar, nota bara salt nic í dag, bæði í mekkan og litlu græjuna, svo allt annað satisfaction að veipa salt nic en venjulegt freebase nicotine, þar sem salt nic hefur miklu hraðari upptöku í blóðinu, þe mettast fyrr, og rífur blood-brain barrierinn miklu fyrr. svona svipað og reykja bara sígo, vs freebase sem tekur allt að 30 mínútur að gera slíkt hið sama

btw þá er mjög auðvelt að "converta" freebase nicotine yfir í salt nic :D

Mynd

Re: Vape þráður

Sent: Fim 21. Mar 2019 16:49
af HalistaX
Æj ég veit ekki...

Ég á Aspire PockeX Mouth-Hit græju sem er í rauninni all-in-one því það er hægt að nota hana sem Lung-Hit líka. Keypti hana á einhvern 6-7k með afslætti því ég þekkti gæjann sem var að selja mér þetta. Svo á ég eina sem ég fékk gefins að nafni Smok V8 Stick sem er náttúrulega purely Lung-Hit en nota hvoruga í dag því ég kláraði vökvana mína í þær. Það er að vísu Veip búð á Selfossi þar sem ég bý núna, en ég bara nenni ekki að labba þangað og tékka á þessu þegar ég á 4 sígarettupakka og munntóbak eins og núna....

Hef notað hvoruga græju í einhverja mánuði núna...