Síða 4 af 4

Re: MX518

Sent: Lau 28. Des 2019 20:56
af pepsico
Ég mæli sterklega gegn þessum músum, því miður. Ég elska skelina og staðsetninguna á öllu á þessari mús en það er ekki boðlegt að það séu mismunandi eintök öll að byrja að tvíklikka og það á örfáum vikum og á bæði hægri og vinstri tökkunum. Fylgist endilega vel með þessu ef þið eigið svona mús því mig grunar að þetta muni byrja að gerast á þeim öllum með notkun og þá er um að gera að skila þeim meðan þær eru ennþá í ábyrgð. Verð að gefa ELKO credit fyrir góða og skilvirka þjónustu þó Logitech séu með allt niðrum sig.