Síða 1 af 1

Kaupa erlend hlutabréf á netinu

Sent: Lau 09. Feb 2019 22:03
af falcon1
Ég ætla að setja smá pening í hlutabréfakaup erlendis en vil ekki fara í gegnum íslensku bankana með það. Hvar er best að gera slíkt með litlum tilkostnaði? :)

Re: Kaupa erlend hlutabréf á netinu

Sent: Lau 09. Feb 2019 23:11
af KristinnK
Þú getur auðveldlega fundið samanburð á erlendum verðbréfamiðlunum með því að gúgla ,,online stock broker comparison", og svo reynt að finna einhvern sem leyfir viðskiptavini hvaðan af sem er úr heiminum, eða sem lista Ísland, og eru með sem lægst gjöld. Sjálfur nota ég Tradestation og hef bara verið ánægður. Hver kaup og sala kostar 5 Bandaríkjadali sem er tiltölulega algengt verð.

Re: Kaupa erlend hlutabréf á netinu

Sent: Sun 10. Feb 2019 12:18
af Semboy
erum við að tala um high risk?

ég held mig á 3/7 og er sáttur þar

Re: Kaupa erlend hlutabréf á netinu

Sent: Sun 10. Feb 2019 15:58
af falcon1
Semboy skrifaði:erum við að tala um high risk?

ég held mig á 3/7 og er sáttur þar

Nei, ég verð frekar í low/medium áhættu myndi ég segja. :) Hvað er 3/7?

Re: Kaupa erlend hlutabréf á netinu

Sent: Sun 10. Feb 2019 20:13
af netkaffi
Semboy skrifaði:ég held mig á 3/7 og er sáttur þar

Ratio á milli mögulegs taps og gróða? Ég veit það ekki.

Re: Kaupa erlend hlutabréf á netinu

Sent: Sun 10. Feb 2019 23:30
af rapport
https://www.huddlestock.com/

Þetta er eitthvað sem var kynnt fyrir mér einhverntíman en þá var þetta í prófunum. Fannst kostnaður of hár, veit ekki hvernig þetta erí dag en þetta var svona kickstarter v.s. stockmarket blanda ef ég man rétt...

Re: Kaupa erlend hlutabréf á netinu

Sent: Þri 12. Feb 2019 16:23
af Semboy
falcon1 skrifaði:
Semboy skrifaði:erum við að tala um high risk?

ég held mig á 3/7 og er sáttur þar

Nei, ég verð frekar í low/medium áhættu myndi ég segja. :) Hvað er 3/7?



það er áhættuflokkun, ég er meira í því að lána rikinu peninga.

og þeir hafa staðið sig vel, jafnvel 2008-2010 komu þeir út í + :baby

Re: Kaupa erlend hlutabréf á netinu

Sent: Fim 14. Feb 2019 12:28
af netkaffi
Semboy skrifaði:það er áhættuflokkun

Ratio á milli mögulegs taps og gróða?

Re: Kaupa erlend hlutabréf á netinu

Sent: Mið 25. Mar 2020 17:19
af eplakongur
Þetta virðist vera svakalega mikið vesen. Veit einhver hér hvar ég gæti t.d. keypt hlutabréf hjá Alphabet inc (google)?