Síða 1 af 2

Reynslusögur af hampolíu CBD

Sent: Sun 27. Jan 2019 13:58
af GuðjónR
Ég er með frekar leiðinlegt exem á höndunum og búinn að prófa flest og ekkert virkað. Eitt á ég þó eftir að prófa en það er hampolía unnin úr cannabis plöntunni en það kallast CBD, (ekki THC vímuefnið), ég hef heyrt margar sögur um hversu græðandi þetta sé en hef ekki fengið tækifæri að að prófa á eiginn skinni, so to speak. :)

Hefur einhver hérna prófað þetta og er þetta ólöglegt á Íslandi? Ef ekki er hægt að kaupa einhversstaðar?
Og annað, ef þetta er ólöglegt, veit þá einhver á hvaða forsendum og hvaða viðurlög eru þá við að flytja þetta inn?

Ég veit að þetta er selt meðal annars í matvöruverslunnum í Bretlandi, enda meiri líkur á því að komast í vímu með því að kaupa 2.25% léttöl.

Hérna eru dæmi um það sem ég er að tala um:
https://www.trythecbd.com/product/500-mg-cbd-tincture/
https://theoriginalalternative.com/prod ... ct-sativa/

Re: Reynslusögur af hampolíu CBD

Sent: Sun 27. Jan 2019 14:13
af worghal
þetta var nýlega gert ólöglegt vegna þess að þetta er unnið úr cannabis plöntunni og því pottþétt dóp samkvæmt ríkisstjórninni.
Ein sem ég var að vinna með er með slæmt sár vegna sjálfsofnæmis og þetta var að gera meira fyrir hana en nokkuð annað lyf sem læknar gátu gefið henni og svo var þetta gert ólöglegt.

Re: Reynslusögur af hampolíu CBD

Sent: Sun 27. Jan 2019 14:36
af ZiRiuS
Finn ekkert um að hampur sé ólöglegur á Íslandi? Pabbi allavega kaupir eitthvað hampaolíusjampó út í búð (man ekki hvaða búð samt).

Re: Reynslusögur af hampolíu CBD

Sent: Sun 27. Jan 2019 14:44
af kizi86
https://www.thebodyshop.is/is/3-l%C3%AD ... -protector << mamma er með SKELFILEGT exem á höndunum, og ekkert var að virka, fyrr en konan mín gaf henni svona túpu. Alveg svínvirkar!

Re: Reynslusögur af hampolíu CBD

Sent: Sun 27. Jan 2019 15:00
af Viktor
Læknar geta skrifað út lyfseðla fyrir THC og CBD.

Hef ekki hugmynd um þetta húðkrem, en það sakar ekki að panta tíma á heilsugæslu og fara yfir þetta.

Til dæmis, ótengt þessum þræði, en THC lyf:

https://www.lyfja.is/lyfjabokin/lyf/Sativex

Re: Reynslusögur af hampolíu CBD

Sent: Sun 27. Jan 2019 16:22
af demaNtur
Ég hef verið að gefa ömmu minni CBD olíu, hún er verkjaminni og sefur töluvert betur, hinsvegar finnur afi engan mun á sér.

Einnig hef ég græjað svona olíu fyrir foreldra vina minna með góðum árángri, mun hressari, verkjaminni og meiri hlutin af þeim sefur betur.

Re: Reynslusögur af hampolíu CBD

Sent: Sun 27. Jan 2019 16:32
af HalistaX
Djöfulsins dópistar eruði :guy :guy :guy

Re: Reynslusögur af hampolíu CBD

Sent: Sun 27. Jan 2019 18:36
af GuðjónR
demaNtur skrifaði:Ég hef verið að gefa ömmu minni CBD olíu, hún er verkjaminni og sefur töluvert betur, hinsvegar finnur afi engan mun á sér.

Einnig hef ég græjað svona olíu fyrir foreldra vina minna með góðum árángri, mun hressari, verkjaminni og meiri hlutin af þeim sefur betur.

Heldurðu að olían myndi virka á þetta?

Re: Reynslusögur af hampolíu CBD

Sent: Sun 27. Jan 2019 18:37
af Moldvarpan
Virkar ekki e45 kremið á þetta?

Re: Reynslusögur af hampolíu CBD

Sent: Sun 27. Jan 2019 18:51
af GuðjónR
Moldvarpan skrifaði:Virkar ekki e45 kremið á þetta?

Nei því miður, nota það samt mikið þar sem það er fínt við þurrki.
Er búinn að prófa allt sem hægt er að prófa nema CBD, er búin prófa UV-B og PUWA ljós, laser, Dermovat sterakrem og smyrsl, Methotrexate Pfizer sem er krabbameinslyf, hef prófað að sleppa sykri, ger og mjólkurvörum í nokkra mánuði og rétt áður en Hallgrímur heitinn læknir dó þá fór ég margar ferðir austur fyrir fjall og fékk Magnesíum dripp í æð. Þannig að ég er til í að prófa allt.

Re: Reynslusögur af hampolíu CBD

Sent: Sun 27. Jan 2019 18:55
af worghal
GuðjónR skrifaði:
demaNtur skrifaði:Ég hef verið að gefa ömmu minni CBD olíu, hún er verkjaminni og sefur töluvert betur, hinsvegar finnur afi engan mun á sér.

Einnig hef ég græjað svona olíu fyrir foreldra vina minna með góðum árángri, mun hressari, verkjaminni og meiri hlutin af þeim sefur betur.

Heldurðu að olían myndi virka á þetta?

ég held það þurfi því miður að aflyma við háls :klessa

en án djóks, þetta er rosalegt, er ekki bara hægt að skera þetta í burt og láta nýja húð vaxa aftur? :fly

Re: Reynslusögur af hampolíu CBD

Sent: Sun 27. Jan 2019 19:14
af GuðjónR
worghal skrifaði:

Þetta er ekki það versta, ég hef oft sett á mig Dermovat sem er sterkasta sterakremið, sett svo nitril hanska yfir og sofið þannig.
Ég er ekkert að grínast þegar mig langar að prófa eitthvað sem mögulega hjálpar og að heyra að það sé "bannað" út af fáfræði er alveg skelfilega pirrandi.

Hérna var ég mun verri:

Re: Reynslusögur af hampolíu CBD

Sent: Sun 27. Jan 2019 22:13
af demaNtur
Það er um að gera að prufa það bara, virkar á ótrúlega margt!

Re: Reynslusögur af hampolíu CBD

Sent: Mán 28. Jan 2019 09:41
af Moldvarpan
http://www.mast.is/matvaeli/faedubotarefni/onnur-efni/#Innflutningur

Veit ekki hvort þú munt finna þetta til sölu hérlendis, en þú getur keypt þetta í flestum nágrannalöndum ef þú ferð erlendis á næstunni.

Og bara smygla þessu með þér, ef þetta yrði tekið, þá væri það brot á lyfjalögum. Mesta lagi sekt.

Re: Reynslusögur af hampolíu CBD

Sent: Mán 28. Jan 2019 09:52
af Sultukrukka
Gætir prófað lyf sem inniheldur Tacrolimus, t.d Protopic.

Ég var eiginlega búinn að gefast upp á öllum kremum og sterum eftir að hafa prófað allan fjandann. Fékk svo Protopic krem hjá einhverjum lækni og ég mun héðan í frá alltaf eiga túbu, hef aldrei verið eins góður í húðinni.

Ég er hinsvegar ekki eins slæmur og þú með þetta exem. Vildi allavega láta þig vita af þessu. Gamechanger við mínu exemi.

Re: Reynslusögur af hampolíu CBD

Sent: Mán 28. Jan 2019 10:16
af GuðjónR
Moldvarpan skrifaði:http://www.mast.is/matvaeli/faedubotarefni/onnur-efni/#Innflutningur

Veit ekki hvort þú munt finna þetta til sölu hérlendis, en þú getur keypt þetta í flestum nágrannalöndum ef þú ferð erlendis á næstunni.

Og bara smygla þessu með þér, ef þetta yrði tekið, þá væri það brot á lyfjalögum. Mesta lagi sekt.

Mun örugglega gera það, var að lesa linkinn en þar stendur m.a.:
Innflutningur á CBD extract sem framleitt er sem matvæli/fæðubótarefni, er því bannaður á grundvelli ofangreindra matvælalaga.

Fæðubótarefni? Ég ætla ekki að éta þetta hehehe ... er ekki reiknað með því að fólk beri þetta á sig.
Þetta bann er farið að minna mann á bjórbannið um árið.

Sultukrukka skrifaði:Gætir prófað lyf sem inniheldur Tacrolimus, t.d Protopic.

Ég var eiginlega búinn að gefast upp á öllum kremum og sterum eftir að hafa prófað allan fjandann. Fékk svo Protopic krem hjá einhverjum lækni og ég mun héðan í frá alltaf eiga túbu, hef aldrei verið eins góður í húðinni.

Ég er hinsvegar ekki eins slæmur og þú með þetta exem. Vildi allavega láta þig vita af þessu. Gamechanger við mínu exemi.

Punkta þetta hjá mér, gott að vita af þessu næst þegar ég fer til læknis.

Re: Reynslusögur af hampolíu CBD

Sent: Mán 28. Jan 2019 15:10
af kizi86
Mamma var svipuð, ef ekki verri, og hampkremið virkaði á hana, ef hefur ekki prufað það, þá mæli ég eindregið með því að gera það

Re: Reynslusögur af hampolíu CBD

Sent: Mán 28. Jan 2019 15:57
af GuðjónR
kizi86 skrifaði:Mamma var svipuð, ef ekki verri, og hampkremið virkaði á hana, ef hefur ekki prufað það, þá mæli ég eindregið með því að gera það

Ætla að gera það ekki spurning, geri allt sem ég get til að losna við þennan ferlega handþurrk,

Re: Reynslusögur af hampolíu CBD

Sent: Mán 28. Jan 2019 16:59
af Moldvarpan
Vissulega er CBD olían oftast notuð til inntöku, en gagnast á húð líka.

En svo eru til sér hemp handáburður sem fær góða dóma, búinn að prófa þá?

https://www.thebodyshop.is/is/178-v%C3%B6rul%C3%ADnur/147-hemp/338-hemp-hand-protector

Re: Reynslusögur af hampolíu CBD

Sent: Mán 28. Jan 2019 16:59
af Nitruz
þetta er svakalegt :shock: ég myndi setja heroin krem á þetta ef það væri einhver séns að það gæti virkað... :lol:

Re: Reynslusögur af hampolíu CBD

Sent: Mán 28. Jan 2019 20:32
af GuðjónR
Nitruz skrifaði:þetta er svakalegt :shock: ég myndi setja heroin krem á þetta ef það væri einhver séns að það gæti virkað... :lol:

Ég myndi borða heróinkrem ef það myndi virka!

Re: Reynslusögur af hampolíu CBD

Sent: Mán 28. Jan 2019 22:27
af Hj0llz
Var búinn að berjast við exem frá barnæsku, prufaði þessa sápu og í fyrsta skipti á ævinni er ég laus við allt exem.
Þarf að nota mjög lítið af þessu þar sem þetta freyðir vel þegar maður er í sturtu (best að setja þetta hausinn og nudda vel þá kemur góð froða sem maður setur á líkamann).

https://heilsuhusid.is/product/drbronn- ... trus-237ml

Re: Reynslusögur af hampolíu CBD

Sent: Þri 29. Jan 2019 10:56
af svavaroe
Eru einhverjir að nota CBD vörur vegna Flösuexem's ?
Any reynslu sögur ?

Er að missa vitið af þessu helvíti. kláði og viðbjóður í hársverði, og svo poppa rauðir flekkir mis stórir í kringum nef/augu og allveg við augntottur.
Algjörlega random. Allveg sama hversu oft ég hef farið til læknis, alltaf sama djöfulsins sagan. Keyptu þér "fungeral" sjámpó í apóteki.
Gerir bara ekki rassgat og þetta kemur alltaf upp aftur.

Þessir læknar gera ekkert annað en að vísa mann í apótek til að kaupa vörur sem þarf ekki lyfseðill....

Re: Reynslusögur af hampolíu CBD

Sent: Þri 29. Jan 2019 11:23
af GuðjónR
svavaroe skrifaði:Eru einhverjir að nota CBD vörur vegna Flösuexem's ?

Þú gætir verið að nota sjampó sem inniheldur eitthvað sem þú hefur óþol fyrir, spurning að prófa sápuna sem Hj0llz bendir á hér að ofan, ég ætla alla vega að prófa: https://heilsuhusid.is/product/drbronn- ... trus-237ml

Annars er eitt sem virkar á svona, það heitir Betnovat og er fljótandi alcohol upplausn með stera, það fitar ekki hárið en virkar á svona óþægindi í hársverði og skeggrót. Þarft lyfseðil fyrir því.

Re: Reynslusögur af hampolíu CBD

Sent: Þri 29. Jan 2019 11:56

Takk fyrir þetta. Gleymdi að nefna þetta Betnovat. Ég hef verið að nota það jamms í þó nokkurn tíma. Finnast það allt í lagi, en ekkert eithvað heavy.
Ég ætla að prufa þetta sjampó hér fyrir ofan og athuga hvort að það skili einhverju.

Verst hvað þetta Betnovat er helvíti dýrt og dugar ekki lengi.