Síða 1 af 1

Lítil fyrirtæki og Tímaskráning starfsmanna

Sent: Þri 15. Jan 2019 18:01
af vesi
Sæl/ll

Er að byrja skoða hvaða leið menn eru að fara í tímaskráningum starfsmanna hjá litlum fyrirtækjum (3-10 starfsmenn).

Þetta var allt í góðu þegar það unnu 1-2, þá var þetta skrifað í excel töflu, en nú hefur þetta stækkað og komnir fleirri í vinnu, fara á mismunandi tímum,veikindi og allt það.

Er að leita að lausn sem gæti helst sent þetta beint í Excel, og væri sem mest sjálfvirk. T.d. að þegar starfsmaður kæmi í samband við router á vinnustað með location í símanum,

Öll hjálp vel þegin.

kv. Vesi .

Re: Lítil fyrirtæki og Tímaskráning starfsmanna

Sent: Þri 15. Jan 2019 19:35
af Revenant
Þar sem ég vinn notum við Bakvörð fyrir tímaskráningar

Re: Lítil fyrirtæki og Tímaskráning starfsmanna

Sent: Þri 15. Jan 2019 23:05
af Baldurmar
(ATH Ég vinn hjá Trackwell)
Þú getur skoðað Tímon, frá Trackwell.
Ég veit að það er mörg smærri fyrirtæki sem nýta sér það fyrir timaskraningu, skrá tíma fyrir einstök verk og launaútreikninga.

Þetta með wifi skráningu er reyndar skemmtileg pæling..

Svo er Alþýðusambandi Íslands með app fyrir starfsmenn sem geta svo deilt því með þér ef að þig vantar eitthvað alveg basic, asi.is/klukk