Síða 1 af 1

Cyber monday/Black friday tilboð

Sent: Mán 19. Nóv 2018 12:04
af Hjaltiatla
Sælir/Sælar

Ákvað að setja upp þráð er varðar Cyber monday/Black friday tilboð. Ef þið spottið eitthvað djúsí tilboð þá endilega henda því inná þráðinn ;)
Skiptir ekki máli ef það er í boði hérlendis eða erlendis (ef fyrirtæki shippar hingað).

Re: Cyber monday/Black friday tilboð

Sent: Mán 19. Nóv 2018 15:47
af Dr3dinn
Eitthvað komið hjá tölvutek, sá ekkert spennandi.

Re: Cyber monday/Black friday tilboð

Sent: Mán 19. Nóv 2018 16:05
af russi
Dr3dinn skrifaði:Eitthvað komið hjá tölvutek, sá ekkert spennandi.


Kemur nú fátt spennandi hér heima, þetta er ágæt tækifæri fyrir flestar verslanir að vera með falda lagerhreinsun

Re: Cyber monday/Black friday tilboð

Sent: Mán 19. Nóv 2018 21:42
af bigggan
Er að leita eftir letta fartölvu til að burðast með svo vonandi kemur eikvað svoleiðis.

Re: Cyber monday/Black friday tilboð

Sent: Þri 20. Nóv 2018 05:10
af ChopTheDoggie
Er þessi BenQ 27" tölvuskjár ekkert spennandi? Flottur fyrir verðið ;)

Re: Cyber monday/Black friday tilboð

Sent: Þri 20. Nóv 2018 08:14
af worghal
það eru tilboð hjá Origo

Re: Cyber monday/Black friday tilboð

Sent: Þri 20. Nóv 2018 09:31
af Hjaltiatla
ChopTheDoggie skrifaði:Er þessi BenQ 27" tölvuskjár ekkert spennandi? Flottur fyrir verðið ;)


Þessi?
https://tolvutek.is/vara/benq-gw2780-27-ips-fhd-16-9-skjar-svartur

Ég myndi allavegana skoða hann ef ég væri að leita mér að skjá

Edit: það kemur fram á auglýsinga bannernum á tolvutek.is að skjárinn sé á 19.995 kr en á linknum sem ég setti inn kemur fram 23.994 kr. :-k

Re: Cyber monday/Black friday tilboð

Sent: Þri 20. Nóv 2018 09:41
af Njall_L
Hjaltiatla skrifaði:
ChopTheDoggie skrifaði:Er þessi BenQ 27" tölvuskjár ekkert spennandi? Flottur fyrir verðið ;)


Þessi?
https://tolvutek.is/vara/benq-gw2780-27-ips-fhd-16-9-skjar-svartur

Ég myndi allavegana skoða hann ef ég væri að leita mér að skjá

Edit: það kemur fram á auglýsinga bannernum á tolvutek.is að skjárinn sé á 19.995 kr en á linknum sem ég setti inn kemur fram 23.994 kr. :-k

Ég skil þetta þannig að það séu 100stk í boði á dagstilboði í dag á 19.995kr en almennt tilboð alla vikuna er 23.994kr. Verðin á heimasíðunni hjá þeim uppfærast síðan við opnun.

Re: Cyber monday/Black friday tilboð

Sent: Þri 20. Nóv 2018 09:53
af ChopTheDoggie
Akkurat að bíða fyrir utan að skella mér í eitt eintak :D

Re: Cyber monday/Black friday tilboð

Sent: Þri 20. Nóv 2018 11:24
af zetor
Er engin íslensk síða sem ber saman verð og tekur einnig saman verðþróun á vörum? Svona svipað eins og idealo.de

Re: Cyber monday/Black friday tilboð

Sent: Þri 20. Nóv 2018 12:11
af jericho
zetor skrifaði:Er engin íslensk síða sem ber saman verð og tekur einnig saman verðþróun á vörum? Svona svipað eins og idealo.de


einmitt... prisjakt.no í Noregi er svo mikil snilld

Re: Cyber monday/Black friday tilboð

Sent: Þri 20. Nóv 2018 12:19
af elight82
Elko sá ég að var með Raspberry Pi 3 B+ kit á 11990.

Re: Cyber monday/Black friday tilboð

Sent: Þri 20. Nóv 2018 12:41
af Hjaltiatla
EGLOBAL mini pc á fínu verði hjá Aliexpress

Þetta er fín budget vél ef þér finnst Intel nuc of dýr, sjálfur á ég aðra mini-pc týpu frá Eglobal sem keyrir pfsense router heima og hún virkar þrusu vel.

Re: Cyber monday/Black friday tilboð

Sent: Fim 22. Nóv 2018 15:38
af Hjaltiatla