Ákvað að setja upp þráð er varðar Cyber monday/Black friday tilboð. Ef þið spottið eitthvað djúsí tilboð þá endilega henda því inná þráðinn

Skiptir ekki máli ef það er í boði hérlendis eða erlendis (ef fyrirtæki shippar hingað).
Dr3dinn skrifaði:Eitthvað komið hjá tölvutek, sá ekkert spennandi.
ChopTheDoggie skrifaði:Er þessi BenQ 27" tölvuskjár ekkert spennandi? Flottur fyrir verðið
Hjaltiatla skrifaði:ChopTheDoggie skrifaði:Er þessi BenQ 27" tölvuskjár ekkert spennandi? Flottur fyrir verðið
Þessi?
https://tolvutek.is/vara/benq-gw2780-27-ips-fhd-16-9-skjar-svartur
Ég myndi allavegana skoða hann ef ég væri að leita mér að skjá
Edit: það kemur fram á auglýsinga bannernum á tolvutek.is að skjárinn sé á 19.995 kr en á linknum sem ég setti inn kemur fram 23.994 kr.
zetor skrifaði:Er engin íslensk síða sem ber saman verð og tekur einnig saman verðþróun á vörum? Svona svipað eins og idealo.de