Síða 2 af 2

Re: Fyrstu íbúðarkaup - Góð ráð?

Sent: Fim 06. Sep 2018 12:27
af urban
Aukaíbúð til útleigu er eitthvað sem að ég myndi klárlega athuga hvort að sé option.
https://www.mbl.is/fasteignir/fasteign/816695/photos/ t.d. einsog hér.

Re: Fyrstu íbúðarkaup - Góð ráð?

Sent: Fim 06. Sep 2018 20:09
af Vaktari
Ég hugsaði þetta bara út frá því hvað væri næst manni og hversu stutt væri í allt saman fyrir barnið og okkur til að fara t.d. til vinnu.
Endaði á því að versla í álfheimunum í 104. Gæti ekki verið sáttari með þau kaup.

Re: Fyrstu íbúðarkaup - Góð ráð?

Sent: Fös 07. Sep 2018 13:14
af Dr3dinn
KristinnK skrifaði:
Dr3dinn skrifaði:
KristinnK skrifaði:
Dr3dinn skrifaði:Getur verið sniðugt að taka kort af höfuðborgarsvæðinu og gera svo lista með hlutum sem þú/þið viljið eins og t.d. geta labbað í búð, labba í sund, labba í bakarí, hafa einhverja veitingastaði í hverifnu osfr. Svo bara merkja hverfi útaf kortinu sem hafa ekki nauðsynlegar þjónustur. Ég missti t.d. algjörlega áhuga á [b]Fossvoginum[\b], Grafarholtinu, Úlfarsfelli, Norðlingaholtinu, hluta af laugardalnum, hluta af grafarvoginum og hluta af Árbænum með svona pælingum.


Fyrir forvitnis sakir, hvað varð til þess að þér líkaði ekki við Fossvoginn?


Ekki hægt að labba í sund, ekki hægt að labba í búð, engin rækt og bauð ekki upp á að leggja bílnum til hliðar um helgar (verður alltaf að keyra mikið)


Hvaða einbýlishúsahverfi myndir þú mæla með í Reykjavík fyrir einhvern sem hjólar í vinnu í 101 Reykjavík og vill því ekki vera í t.d. Garðabæ?


Fer náttúrulega eftir budget-i. Vilt helst vera nálægt fossvogs stígnum upp á snöggar hjólaleiðir. Bakkarnir eru by far ódýrara "hjólahverfið"

Mjög margir hjóla úr garðabænum :) - en ég skil þig

Viltu sem fæstar brekkur eða ertu á rafmagnshjóli?

Re: Fyrstu íbúðarkaup - Góð ráð?

Sent: Fös 07. Sep 2018 13:21
af blitz
Grafarvogur er með góða hjólatengingu inn í 101, t.d. Hamrahverfið. Sama með mikið af Breiðholtinu (Bakkar, Sel), Árbæ og Ártúnsholt.

Helsta sem ég myndi hafa í huga við fyrstu kaup er að tryggja að það sé amk eitt aukaherbergi. Þannig myndast ekki pressa á að flytja ef barn kemur (eða annað) og fjárhagur etv. þröngur.

Re: Fyrstu íbúðarkaup - Góð ráð?

Sent: Fös 07. Sep 2018 13:55
af KristinnK
Dr3dinn skrifaði:Fer náttúrulega eftir budget-i. Vilt helst vera nálægt fossvogs stígnum upp á snöggar hjólaleiðir. Bakkarnir eru by far ódýrara "hjólahverfið"

Mjög margir hjóla úr garðabænum :) - en ég skil þig

Viltu sem fæstar brekkur eða ertu á rafmagnshjóli?


Þetta er nú allt saman framtíðarspurningar hjá mér, ég er í Bökkunum eins og er. En ég myndi vilja einhverntíman eignast einbýlishús, og leist vel á Fossvoginn einmitt vegna hjólastígsins sem liggur og þar, og svo að grunnskólinn þar hafi gott orðspor. Ég er á venjulegu hjóli en hef samt hugsað um möguleikann á rafmagnshjóli.

Re: Fyrstu íbúðarkaup - Góð ráð?

Sent: Mán 10. Sep 2018 20:50
af KermitTheFrog
appel skrifaði:
KristinnK skrifaði:
Dr3dinn skrifaði:Getur verið sniðugt að taka kort af höfuðborgarsvæðinu og gera svo lista með hlutum sem þú/þið viljið eins og t.d. geta labbað í búð, labba í sund, labba í bakarí, hafa einhverja veitingastaði í hverifnu osfr. Svo bara merkja hverfi útaf kortinu sem hafa ekki nauðsynlegar þjónustur. Ég missti t.d. algjörlega áhuga á [b]Fossvoginum[\b], Grafarholtinu, Úlfarsfelli, Norðlingaholtinu, hluta af laugardalnum, hluta af grafarvoginum og hluta af Árbænum með svona pælingum.


Fyrir forvitnis sakir, hvað varð til þess að þér líkaði ekki við Fossvoginn?


Oh, ég er sammála þessu með Fossvoginn. Það er nákvæmlega engin þjónusta þar, hvorki reykjavíkur né kópavogs megin. Þarna er jú Grímsbær, en frekar leiðinlegar verslanir.
Ef það kæmi sundlaug þarna í fossvognum þá myndi það breyta mörgu.

Ef þú vilt bíllausan lífstíl þá myndi ég skoða þá þjónustu sem er næst í nágrenni, innan við 10 mín göngufæri, sem þýðir innan við 1 km, æskilegast að það sé innan við 500 metra!


Fer auðvitað eftir því hvar þú ert í Fossvoginum, en Skeifan er á stórum hluta í góðu göngufæri (10-20 mín). Og Kópavogsmegin ertu allavega með Bónus (og Hamraborgina). Og svo hefurðu strætó beint niður á Hlemm.

Ég myndi segja að Fossvogurinn væri alveg fínn kandídat fyrir bíllausan lífsstíl. En já, sundlaug vantar...