Síða 1 af 1

Hringtorg og innri akrein vs. ytri..

Sent: Þri 24. Júl 2018 21:25
af appel
http://www.visir.is/g/2018180729518/seg ... ringtorgum

Ég man greinilega vel eftir því í ökunámi að ökukennarinn sagði mér að sá sem er á innri akrein eigi réttinn. Hef keyrt í alltof mörg ár trúandi því að innri akrein væri óskeikul í rétti. Hef svínað fyrir helvíti mörgum, og oft verið tæpt.

Svo kemur það bara í ljós að þetta er "óskráð regla", sem þýðir einfaldlega að það eru engin lög sem gilda um þetta.

WTF :-k

Re: Hringtorg og innri akrein vs. ytri..

Sent: Þri 24. Júl 2018 21:35
af loner
Við höfum reglugerðir og lög að auki.

Re: Hringtorg og innri akrein vs. ytri..

Sent: Þri 24. Júl 2018 21:51
af pepsico
Þar sem að akreinar eru tvær á hringtorgi en einungis ein þar sem keyrt er út af því er það vanalega gert mjög skýrt með vegamálningunni að akrein þess sem er á ytri "endar" þar meðan innri akreinin liggur beint út úr hringtorginu. Þarft því ekki að stressa þig á því að þú hafir verið að svína á neinn. Frábært ef þetta verður formlega skrásett í stað þess að treysta á vegamálningu.

Re: Hringtorg og innri akrein vs. ytri..

Sent: Þri 24. Júl 2018 22:07
af loner
Það skiptir máli, hvernig veglínum er háttað sambandi við hægri rétt.
Það eru ekki allir sem átta sig á því.
T.d. munurinn á rétt, milli stutta eða löngu brotalínu.

Re: Hringtorg og innri akrein vs. ytri..

Sent: Þri 24. Júl 2018 23:31
af olihar
Gaman að keyra á Spáni, þar hefur ytri hringur alltaf réttinn, sem þýðir að nánast enginn notar innri hring og eru því 2 akgreina hringtorg tóm á meðan það er röð í ytri hring.

Þetta er svo tryllt að hafa þetta þannig og lætur hringtorg ekki virka.

Re: Hringtorg og innri akrein vs. ytri..

Sent: Þri 24. Júl 2018 23:37
af loner
Munurinn úti er oftast, stærri hringtorg, og minni umferðar-hraði.
En skilvirknin = ?

Re: Hringtorg og innri akrein vs. ytri..

Sent: Þri 24. Júl 2018 23:45
af urban
pepsico skrifaði:Þar sem að akreinar eru tvær á hringtorgi en einungis ein þar sem keyrt er út af því er það vanalega gert mjög skýrt með vegamálningunni að akrein þess sem er á ytri "endar" þar meðan innri akreinin liggur beint út úr hringtorginu. Þarft því ekki að stressa þig á því að þú hafir verið að svína á neinn. Frábært ef þetta verður formlega skrásett í stað þess að treysta á vegamálningu.


Vegamálning getur aldrei haft ráðandi áhrif.
Það verða að vera merki með.

Re: Hringtorg og innri akrein vs. ytri..

Sent: Þri 24. Júl 2018 23:53
af g0tlife
Mun hjóla í vinnuna ef þessu verður breytt, ytri eigi réttinn. Munu vera umferðaslys á öllum hringtorgum í eina til tvær vikur (einnig glötuð regla sem lætur innri hring vera tilgangslausan)

Re: Hringtorg og innri akrein vs. ytri..

Sent: Mið 25. Júl 2018 00:01
af loner
Mun hjóla í vinnuna ef þessu verður breytt, ytri eigi réttinn. Munu vera umferðaslys á öllum hringtorgum í eina til tvær vikur (einnig glötuð regla sem lætur innri hring vera tilgangslausan)

https://en.wikipedia.org/wiki/Natural_selection :D