Síða 1 af 1

Símafélagið < Nova

Sent: Fim 12. Júl 2018 10:06
af nidur
Sælir,

Mig langaði bara að forvitnast hversu margir hérna voru hjá símafélaginu og hafa færst yfir til Nova.

Einnig hvort að þeir hafi fært sig til eftir skiptin.

Get ekki sagt að netið hafi versnað hjá mér en mig grunar að gagnamagnið sé reiknað á annan hátt.

Ég er með mikla traffík innanlands en nánast enga utanlands, þannig að ég hef ekki verið í ótakmörkuðum pökkum hingað til.

Re: Símafélagið < Nova

Sent: Fim 12. Júl 2018 11:37
af worghal
Hringdu, Hringdu, Über alles!

Re: Símafélagið < Nova

Sent: Fim 12. Júl 2018 11:50
af russi
nidur skrifaði:Sælir,

Mig langaði bara að forvitnast hversu margir hérna voru hjá símafélaginu og hafa færst yfir til Nova.

Einnig hvort að þeir hafi fært sig til eftir skiptin.

Get ekki sagt að netið hafi versnað hjá mér en mig grunar að gagnamagnið sé reiknað á annan hátt.

Ég er með mikla traffík innanlands en nánast enga utanlands, þannig að ég hef ekki verið í ótakmörkuðum pökkum hingað til.



Hef ekki tekið eftir breytingu á netinu, það er allavega mjög fínt ef ekki bara mjög gott. Aftur á móti þá er ég í ótakmörkuðum pakka hjá þeim sem er ekki ótakmarkaði en það að hann telur upp að 4TB, samt sem áður er nánast öll mín trafíkk innanlands, líklega um 80-85% af henni.
Nova mælir allt gagnamagn, til og frá þér sem ætti að vera ókostur þegar þú ert með fyrirframgefna stærð á pökkum.

Ég lenti í því að fara yfir þessu 4TB(takk Plex og backup-starfsemi) og þá var semsagt plottið hjá þeim að hægja á mér niður í 10Mbit eða 100Mbit, það tókst ekki betur til en svo að tenging mín lokaðist hjá þeim og ég fékk engin skýr svör fyrr en ég talaði við gamala Símafélagsgengið sem hafði ekki hugmynd um þetta og þeir redduðu málinu. Annar félagi lenti í þessu en þá tókst betur til að tengin hægðist bara en ekki lokaðist.

Það ljóta sem Nova gerir þegar kemur að þessum takmörkunum er að þær fara í gang klukkan 18:00, sem er einmitt tíminn sem þjónustuveri og öllum símum er lokað hjá þeim, þeir svo aflétta þessum takmörkunum kl 9:00 þegar allt opnar hjá þér og þá er auðvitað "allt í lagi" þegar þú prófar þig áfram með þjónustufulltrúa.

Sá sem ég talaði við, talaði um að Nova væri að endurskoða þetta, ég hef ekki náð aftur 4TB til sjá þetta í virkni, en það verður gaman að sjá hvað gerist hjá þeim ef það kemur aftur fyrir.

Re: Símafélagið < Nova

Sent: Fim 12. Júl 2018 13:45
af nidur
worghal skrifaði:Hringdu, Hringdu, Über alles!


Það er spurning um að prufa eitthvað nýtt.

Re: Símafélagið < Nova

Sent: Fim 12. Júl 2018 16:00
af Dr3dinn
Ég fór strax yfir í Hringdu, leist ekkert á niðurhalshraða og pakkanna sem voru í boði.

Ég er í sama pakka og þú, þar sem mest af mínu niðurhali er hérlendis og þetta var eina vitið.

Fyrir menn sem spila mikið tölvuleiki sá ég mikinn mun í lægra pingi sem kom skemmtilega á óvart :)
(Símafélagið var skárra en Nova en Hringdu með betra ping en báðir aðilar)