Síða 1 af 2

Þetta veður... pfff

Sent: Mán 02. Júl 2018 19:31
af appel
Maður er alveg að vera geðveikur á þessu... það er pollagalli og stígvél alla daga, eiginlega... þetta er einsog veðurfarið í nóvember.

Re: Þetta veður... pfff

Sent: Mán 02. Júl 2018 19:41
af Viggi
Nákvæmlega. Djöfull er gott að eiga 2 vikur á tene í lok mánaðarins. Nota bara sumerið í málningarvinnu. Ef maður kemst þar að seigja. Svo miklar druslur þessar primera vélar

Re: Þetta veður... pfff

Sent: Mán 02. Júl 2018 19:43
af gorkur
Viggi skrifaði:Nota bara sumerið í málningarvinnu


Ætlaði einmitt að gera það sjálfur.


Úti :mad

Re: Þetta veður... pfff

Sent: Mán 02. Júl 2018 19:44
af Viggi
gorkur skrifaði:
Viggi skrifaði:Nota bara sumerið í málningarvinnu


Ætlaði einmitt að gera það sjálfur.


Úti :mad
sem betur fer er ég inni :sleezyjoe

Re: Þetta veður... pfff

Sent: Mán 02. Júl 2018 20:18
af Nariur
Það er nú gaman að vera ekki með ykkur í þessu.

Re: Þetta veður... pfff

Sent: Mán 02. Júl 2018 20:23
af ljoskar
Já, ég er að verða brjálaður á þessu. Maður þarf að hanga hérna inni í vinnnunni á meðan sólin skín úti hérna fyrir austan.

Held það verði gott að komast suður í sumarbústaðinn og rigninguna í næstu viku....

Re: Þetta veður... pfff

Sent: Mán 02. Júl 2018 20:40
af Viktor
Maður er farinn að hata Ísland innilega frá dýpstu hjartans rótum.

Sorglegt.

Re: Þetta veður... pfff

Sent: Mán 02. Júl 2018 22:09
af appel
Hitatölurnar fáránlegar. 6-8°C. Maður þarf að vera í húfu og vettlingum Í JÚLÍ!

Re: Þetta veður... pfff

Sent: Þri 03. Júl 2018 07:53
af ColdIce
Gafst upp um daginn og keypti flug út...3 vikur í ferðina og tel niður mínúturnar!

Langaði ekkert út en bara verð að fá sól!

Re: Þetta veður... pfff

Sent: Þri 03. Júl 2018 09:36
af rapport
Gekk inn í Bónus í Skútuvogi um daginn og það vara bara til D vítamín bætt nýmjólk og léttmjólk.

Ég hugsaði strax að þetta væri úrræði til að koma D vítamíni í fólkið til að slá á þetta þunglyndi, að banna sölu á venjulegri mjólk.

En það er helgarferð til París núna í kortunum + ég á reyndar hugsanlega auka miða sem ég þarf að selja :fly

Re: Þetta veður... pfff

Sent: Þri 03. Júl 2018 10:12
af appel
rapport skrifaði:Gekk inn í Bónus í Skútuvogi um daginn og það vara bara til D vítamín bætt nýmjólk og léttmjólk.

Ég hugsaði strax að þetta væri úrræði til að koma D vítamíni í fólkið til að slá á þetta þunglyndi, að banna sölu á venjulegri mjólk.

En það er helgarferð til París núna í kortunum + ég á reyndar hugsanlega auka miða sem ég þarf að selja :fly


Já, maður þyrfti kannski að kíkja niður á heilsugæslustöð og fá D-vítamínsprautu í æð.

Re: Þetta veður... pfff

Sent: Þri 03. Júl 2018 11:05
af Baldurmar
Eitt um þetta veður að segja:

:pjuke :pjuke :pjuke :pjuke :pjuke :pjuke :pjuke :pjuke :pjuke :pjuke :pjuke :pjuke :pjuke :pjuke :pjuke :pjuke :pjuke

Re: Þetta veður... pfff

Sent: Þri 03. Júl 2018 15:15
af GuðjónR
Ekki örvænta, þá spáir þurru næstu 3-4 klukkutímana!!
Fréttnæmt!
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2018 ... ldfrettum/

Re: Þetta veður... pfff

Sent: Þri 03. Júl 2018 16:03
af olihar
GuðjónR skrifaði:Ekki örvænta, þá spáir þurru næstu 3-4 klukkutímana!!
Fréttnæmt!
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2018 ... ldfrettum/


Hérna rignir bara og rignir.... og mun örugglega gera næstu 3-4 klukkutímana.

Re: Þetta veður... pfff

Sent: Þri 03. Júl 2018 16:23
af GuðjónR
olihar skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Ekki örvænta, þá spáir þurru næstu 3-4 klukkutímana!!
Fréttnæmt!
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2018 ... ldfrettum/


Hérna rignir bara og rignir.... og mun örugglega gera næstu 3-4 klukkutímana.

Já .... rignir sem aldrei fyrr. :crying
Leið ekki klukkustund frá þessum pósti þangað til skýfallið kom....

Re: Þetta veður... pfff

Sent: Þri 03. Júl 2018 17:55
af hagur
Það verður þurrt og sólarglæta á fim og fös hér í Rvk ef fer sem horfir. Ég mun taka forskot á sumarfríið ef þetta rætist!

Re: Þetta veður... pfff

Sent: Þri 03. Júl 2018 23:20
af kizi86
Sáttur við veðrið hérna í Memphis TN, jú búið að rigna smá síðustu daga, en alltaf bara í ca klukkutíma í max.. Fór upp í 37 gráður fyrr í dag. Mynd

Re: Þetta veður... pfff

Sent: Mið 04. Júl 2018 07:34
af gnarr
Ertu í skiptinámi í Fraunhofer CESE? :)

Nariur skrifaði:Það er nú gaman að vera ekki með ykkur í þessu.

Re: Þetta veður... pfff

Sent: Mið 04. Júl 2018 08:35
af KristinnK
Ég er ekkert hrifinn af þessu rigningarsumri frekar en næsti maður, en mikið ósköp finnst mér það nú skárra en 30+ gráðu hiti!

Re: Þetta veður... pfff

Sent: Fim 05. Júl 2018 14:59
af Nariur
gnarr skrifaði:Ertu í skiptinámi í Fraunhofer CESE? :)

Nariur skrifaði:Það er nú gaman að vera ekki með ykkur í þessu.


Haha. Mikið rétt. Vel gert. Þú hefur sem sagt gert það sama.

KristinnK skrifaði:Ég er ekkert hrifinn af þessu rigningarsumri frekar en næsti maður, en mikið ósköp finnst mér það nú skárra en 30+ gráðu hiti!


Þessar 36° var að vísu óvenju heitur dagur, en það er bara mjög fínn hiti til að sleikja sólina á sundlaugarbakka, en full mikið ef maður ætlar að hreyfa sig eitthvað, en maður venst hitanum líka. Svo er loftkæling himnesk uppfinning.

Re: Þetta veður... pfff

Sent: Fös 06. Júl 2018 01:20
af gnarr
Nariur skrifaði:
gnarr skrifaði:Ertu í skiptinámi í Fraunhofer CESE? :)

Nariur skrifaði:Það er nú gaman að vera ekki með ykkur í þessu.


Haha. Mikið rétt. Vel gert. Þú hefur sem sagt gert það sama.


:) var þarna vorið 2011 :megasmile

Re: Þetta veður... pfff

Sent: Mán 09. Júl 2018 02:36
af einarn
Er sáttur. Meika ekki Þessa glampandi sól allan daginn, varð að vera inni mest allt síðasta sumar útaf veðri.

Re: Þetta veður... pfff

Sent: Mán 09. Júl 2018 19:39
af DaRKSTaR
já þetta er skelfilegt.. glampandi sól, hálfpartinn að kafna úr hita í dag meðann ég var að þrífa bílana hjá mér.. varð bara að skella loftkælingunni á í botn.... spurning um að fara að selja sunnlendingum sólarferðir norður :D

Re: Þetta veður... pfff

Sent: Mán 09. Júl 2018 23:27
af rapport
Var að lenda eftir stutta ferð til Parísar að taka á móti Team Rynkeby Ísland, algjörar hetjur þar á ferð.

En þessi ferð frá flugstöðinni að bílnum í stuttbuxsum í rignigningu og 9 gráðum var skelfileg, alveg mergsaug úr manni afslöppunina eftir ferð í Ástríksgarðinn, kaffihúsin og siglingu um Signu...

Ferðamenn sem voru að koma til landsisn fannst mér ekki að þora úr flugstöðinni.

Eins og Ísland getur verið yndislegt þá er það hreint út sagt hrollvekjandi þegar þetta veður er.

Re: Þetta veður... pfff

Sent: Þri 10. Júl 2018 16:19
af appel
úff, tilhugsunin að fara inn í haustið án þess að fá neitt sólskin á líkamann er óbærileg.
Örfáar vikur í að fyrstu haustlægðirnar byrja að koma.
Manni er að verða flökurt.