Síða 1 af 1

nýtt öryggi í rafmagnstöflu

Sent: Fim 10. Maí 2018 11:15
af einarbjorn
ég er í smá vandæðum sem ég veit lausnina en þantar samt smá ráð.
þannig er mál með vexti að ég bý í blokk sem er byggð milli 1970-1975 og ég var að kaupa nýjan örbylgjuofn sem á það til að slá út öryggi annars lagið og það litla sem ég veit um rafmagn er að sennilegast þolir öryggið ekki þennan straumhnykk (spike), er leyfilegt að setja annað öryggi í gamla rafmagnstöflu og hver er áhættan við að setja nýrra öryggi í gamla töflu.

Með fyrirfram þökk
Einar

Re: nýtt öryggi í rafmagnstöflu

Sent: Fim 10. Maí 2018 11:46
af Viktor
Ef þú þarft að spyrja, þá áttu ekki að koma nálægt þessu.

Hættu að pæla í þessu og fáðu rafvirkja(með réttindi á Íslandi) í þetta, vilt ekki kveikja í húsinu til þess að spara 10.000 kr.

Rafmagn og pípulagnir er eitthvað sem Jói á bolnum á ekki að koma nálægt.

http://rafis.is/sveinalisti
https://www.facebook.com/groups/1657230901247804/

Re: nýtt öryggi í rafmagnstöflu

Sent: Fim 10. Maí 2018 12:09
af arons4
Rétt sem Sallarólegur segir, annars getur gamla öryggið verið orðið lélegt líka eða örbylgjuofninn bilaður. Að bæta við öryggi gæti þá verið lausn á einkennunum en ekki á vandamálinu sjálfu.

Re: nýtt öryggi í rafmagnstöflu

Sent: Fim 10. Maí 2018 12:29
af einarbjorn
Ef þú þarft að spyrja, þá áttu ekki að koma nálægt þessu.

Hættu að pæla í þessu og fáðu rafvirkja(með réttindi á Íslandi) í þetta, vilt ekki kveikja í húsinu til þess að spara 10.000 kr.

Rafmagn og pípulagnir er eitthvað sem Jói á bolnum á ekki að koma nálægt.


ég hafði ekki hugsað um að skipta um þetta sjálfur, ég var eiginlega bara að athuga hvort að það sé leyfilegt að setja öryggi sem þolir straumhnykk í svona gamla töflu.

Rétt sem Sallarólegur segir, annars getur gamla öryggið verið orðið lélegt líka eða örbylgjuofninn bilaður. Að bæta við öryggi gæti þá verið lausn á einkennunum en ekki á vandamálinu sjálfu.


ég er með nýjan örbylgjuofn sem er aðeins öflugri en gamli sem var ca 12 ára gamall og þetta kemur ekki alltaf fram, t.d. í gær þá hitaði konan sér mat og hann virkaði en svo þurfti hún að hita matinn aðeins betur þá var ekki séns að fá hann til að virka sama þótt að allt annað sem var inná sömu lögn var aftengt, svo rétt áðan þá virkaði allt eins og ekkert var.

Re: nýtt öryggi í rafmagnstöflu

Sent: Fim 10. Maí 2018 12:35
af arons4
Ef það eru 10A öryggi máttu sétja 13A, getur verið talsverð vinna að bæta við auka öryggi ef lagnaleiðirnar eru ekki til staðar(mátt ekki vera með 2 greinar í sömu dósinni/rörinu).

Re: nýtt öryggi í rafmagnstöflu

Sent: Fim 10. Maí 2018 12:40
af GuðjónR
einarbjorn skrifaði:ég er í smá vandæðum sem ég veit lausnina en þantar samt smá ráð.
þannig er mál með vexti að ég bý í blokk sem er byggð milli 1970-1975 og ég var að kaupa nýjan örbylgjuofn sem á það til að slá út öryggi annars lagið og það litla sem ég veit um rafmagn er að sennilegast þolir öryggið ekki þennan straumhnykk (spike), er leyfilegt að setja annað öryggi í gamla rafmagnstöflu og hver er áhættan við að setja nýrra öryggi í gamla töflu.

Með fyrirfram þökk
Einar


Ég lenti í því sama í Arahólunum á sínum tíma þegar ég fékk mér spanhelluborð.
Fékk rafvirkja til að aðstoða mig, endaði með því að setja nýtt öryggi í töfluna og draga nýja víra í rörið að helluborðinu.
Það var ekki nóg að fá nýtt örgyggi það þurfti líka nýja víra. Blokkin sem ég bjó í var byggð 1973.

Re: nýtt öryggi í rafmagnstöflu

Sent: Fim 10. Maí 2018 19:46
af jonsig
Öryggið hjá þér gæti verið orðið stressað, þar að segja ef þú ert með sjálfvar. Þau verða oft næmari með tímanum. Það getur verið nóg að setja í alveg eins öryggi án þess að vera stækka eitt né neitt. En ef þú þarft að kalla til rafvirkja þá sakar ekki að setja 13A sjálfvar.

Vírarnir eru venjulega ekki vandamál.

p.s. það er venjulega talað um ræsistraum í þessu tilviki. Spikar eru oftast nær tengdir veitunni og á ekki alveg við þarna.

Re: nýtt öryggi í rafmagnstöflu

Sent: Fim 10. Maí 2018 20:02
af Tbot
GuðjónR skrifaði:
einarbjorn skrifaði:ég er í smá vandæðum sem ég veit lausnina en þantar samt smá ráð.
þannig er mál með vexti að ég bý í blokk sem er byggð milli 1970-1975 og ég var að kaupa nýjan örbylgjuofn sem á það til að slá út öryggi annars lagið og það litla sem ég veit um rafmagn er að sennilegast þolir öryggið ekki þennan straumhnykk (spike), er leyfilegt að setja annað öryggi í gamla rafmagnstöflu og hver er áhættan við að setja nýrra öryggi í gamla töflu.

Með fyrirfram þökk
Einar


Ég lenti í því sama í Arahólunum á sínum tíma þegar ég fékk mér spanhelluborð.
Fékk rafvirkja til að aðstoða mig, endaði með því að setja nýtt öryggi í töfluna og draga nýja víra í rörið að helluborðinu.
Það var ekki nóg að fá nýtt örgyggi það þurfti líka nýja víra. Blokkin sem ég bjó í var byggð 1973.


Þetta er ekki alveg það sama.
Almennt þá þurfa spanhelluborð meira afl en keramíkborðin, þannig að ansi oft þarf að stækka frá 20A upp í 25-32A var.

Re: nýtt öryggi í rafmagnstöflu

Sent: Fim 10. Maí 2018 20:07
af Tbot
einarbjorn skrifaði:
Ef þú þarft að spyrja, þá áttu ekki að koma nálægt þessu.

Hættu að pæla í þessu og fáðu rafvirkja(með réttindi á Íslandi) í þetta, vilt ekki kveikja í húsinu til þess að spara 10.000 kr.

Rafmagn og pípulagnir er eitthvað sem Jói á bolnum á ekki að koma nálægt.


ég hafði ekki hugsað um að skipta um þetta sjálfur, ég var eiginlega bara að athuga hvort að það sé leyfilegt að setja öryggi sem þolir straumhnykk í svona gamla töflu.

Rétt sem Sallarólegur segir, annars getur gamla öryggið verið orðið lélegt líka eða örbylgjuofninn bilaður. Að bæta við öryggi gæti þá verið lausn á einkennunum en ekki á vandamálinu sjálfu.


ég er með nýjan örbylgjuofn sem er aðeins öflugri en gamli sem var ca 12 ára gamall og þetta kemur ekki alltaf fram, t.d. í gær þá hitaði konan sér mat og hann virkaði en svo þurfti hún að hita matinn aðeins betur þá var ekki séns að fá hann til að virka sama þótt að allt annað sem var inná sömu lögn var aftengt, svo rétt áðan þá virkaði allt eins og ekkert var.


Það er að gerast er að magnitronan dregur mikinn straum í starti (ræsistraumur) og eftir því sem ofninn er stærri, meiri straumur.
Leyst annað hvort með því að setja 13A í stað 10A eða skipta frá gerð B í C.

Eftir því sem meiri straumur fer um varið og víra þá hitnar hvort tveggja, og eftir því sem vörin eru eldri og af lélegri gerð þá verða/eru þau viðkvæmari.

Re: nýtt öryggi í rafmagnstöflu

Sent: Fös 11. Maí 2018 13:28
af k0fuz
Ég var með sama vandamál um daginn með 10A en það var með örbylgjuofn sem sló svona út í startinu á 2 mismunandi heimilum (því nokkuð ljóst að 10A var ekki að duga). Fór í ískraft og keypti 13A sömu tegundar (Legrand) og það nægir. Hvort sem það er lélegt öryggi eða ekki nógu stórt þá borgar sig að setja bara 13A (hæsta leyfilega f. 1,5q vír). Mæli alltaf með að hafa einhvern með sem kann að skipta út öryggjum ef þú kannt það ekki.

Re: nýtt öryggi í rafmagnstöflu

Sent: Fös 11. Maí 2018 18:31
af jonsig
Nóg að setja tregara 10A öryggi í stað þess að breyta upprunalegri hönnun á töflunni, allar breytingar á töflu er tilkynningarskyld. Eina sem þú gerir er að rýra verðmæti fasteignarinnar með að innleiða "nógu stórt öryggi" pælinguna. Hinsvegar pælingin með að hafa mátulega stórt öryggi er til að lágmarka skaða ef eitthvað kemur uppá.

10A yfir í 13A gæti líka nýst tryggingafélögum sem "jail free card" ef eitthvað gerist.

Re: nýtt öryggi í rafmagnstöflu

Sent: Fös 11. Maí 2018 19:46
af k0fuz
jonsig skrifaði:10A yfir í 13A gæti líka nýst tryggingafélögum sem "jail free card" ef eitthvað gerist.


Eg spurði nú mann í ískraft útí þetta og hann kannaðist ekki við að þetta gæti skapað vandamál þar sem þetta er innan reglugerðarinnar.. s.s. 13A er leyfilegt f. 1.5q vír

Re: nýtt öryggi í rafmagnstöflu

Sent: Fös 11. Maí 2018 21:39
af jonsig
k0fuz skrifaði:
jonsig skrifaði:10A yfir í 13A gæti líka nýst tryggingafélögum sem "jail free card" ef eitthvað gerist.


Eg spurði nú mann í ískraft útí þetta og hann kannaðist ekki við að þetta gæti skapað vandamál þar sem þetta er innan reglugerðarinnar.. s.s. 13A er leyfilegt f. 1.5q vír


Breytingar á rafmagnstöflu eru tilkynningaskyldar.. Ég hef rafvirkja menntun meðal annars, svo ég er ekki beint hobbýisti sem er að reyna vera gáfaðari en sölumaður í raflagnabúð. Ég er að vitna í kröfu mannvirkjastofnunnar.

Þú getur litið á þetta sem svo að þú kaupir aflgjafa í tölvutek og skiptir um þéttir, aðeins stærri kannski. Common sense segir warranty void.

Hönnuður ber ábyrgð á hönnunarhluta töflunnar, verktaki ber ábyrgð á að hún sé unnin samkv.stöðlum. Núna breytir einhver töflunni, þá er hún ekki lengur þeirra hausverkur ef það sannast að átt hafi verið við töfluna.

Ég er að reyna segja að skipta út 10A B týpu yfir í 10A F er ekki eins áberandi fix heldur en að eiga við málstraum varsins.

Re: nýtt öryggi í rafmagnstöflu

Sent: Fös 11. Maí 2018 23:06
af loner
Rétt hjá Jónsig, réttara er að setja tregðu-öryggi en stækka það.
Það gæti líka vel verið að tregðan hafi minnkað í örygginu sem er fyrir ef það er orðið gamalt.

En fyrir utan þetta mál, það er ekkert betra að vera með öflugri örbylgjuofn, bara meiri hætta á skyndisuðu, sem getur verið stórvarasöm.

Re: nýtt öryggi í rafmagnstöflu

Sent: Lau 12. Maí 2018 01:32
af Minuz1
loner skrifaði:Rétt hjá Jónsig, réttara er að setja tregðu-öryggi en stækka það.
Það gæti líka vel verið að tregðan hafi minnkað í örygginu sem er fyrir ef það er orðið gamalt.

En fyrir utan þetta mál, það er ekkert betra að vera með öflugri örbylgjuofn, bara meiri hætta á skyndisuðu, sem getur verið stórvarasöm.


Skyndisuðu? ö_Ö er það heitara en hægsjóðandi?

Re: nýtt öryggi í rafmagnstöflu

Sent: Lau 12. Maí 2018 01:52
af loner
Pósturaf Minuz1 » Lau 12. Maí 2018 01:32
loner skrifaði:
Rétt hjá Jónsig, réttara er að setja tregðu-öryggi en stækka það.
Það gæti líka vel verið að tregðan hafi minnkað í örygginu sem er fyrir ef það er orðið gamalt.

En fyrir utan þetta mál, það er ekkert betra að vera með öflugri örbylgjuofn, bara meiri hætta á skyndisuðu, sem getur verið stórvarasöm.


Skyndisuðu? ö_Ö er það heitara en hægsjóðandi?


Skyndisuða er þekkt fyrirbæri og ég hef sjálfur lent í því nokkrum sinnum.
kemur helst fyrir í öflugum örbylgjuofnum og getur verið stórvarasamt, og hefur valdið mörgum slysum.

Ef t.d. vatn er sett í bolla, hitað á mesta afli í öflugum örbylgjuofni, t.d. 1. mín.
vatnið sýður ekki og er alveg kyrrt, tekið úr ofni sett á borð 1. skeið af skyndikaffi sett út í, hvað gerist næst.
FÚMM. Á sekúndubroti er næstum allt vatn horfið úr bollanum og restin á borðinu, á þessu hafa menn hlotið brunasár og er þess vegna varasamt.