Stelpuna vantar vinnu

Allt utan efnis

Höfundur
elri99
has spoken...
Póstar: 168
Skráði sig: Þri 05. Apr 2011 16:45
Reputation: 18
Staða: Ótengdur

Stelpuna vantar vinnu

Pósturaf elri99 » Þri 01. Maí 2018 13:48

22. ára, er að útskrifast sem viðskiptfræðingur frá HR, áhuga á markaðsmálum, góð í textagerð bæði á íslensku og ensku. Traust, samviskusöm og áreiðanleg.
Síðast breytt af elri99 á Þri 01. Maí 2018 17:43, breytt samtals 1 sinni.



Skjámynd

worghal
Kóngur
Póstar: 6300
Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
Reputation: 442
Staðsetning: fyrir aftan þig
Staða: Ótengdur

Re: Stelpuna vantar vinnu

Pósturaf worghal » Þri 01. Maí 2018 13:53

fyrsta sem mér datt í hug eru tryggingarfélögin.


CPU: Intel Core i7 12700KF MB: Gigabyte Z690 Gaming X GPU: EVGA RTX 3080 FTW3 ULTRA 12Gb RAM: Corsair Vengeance RGB Pro 2x16Gb 3600Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Topping DX7s - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Corsair 4000D Airflow

Skjámynd

kiddi
Stjórnandi
Póstar: 1198
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 03:55
Reputation: 255
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Stelpuna vantar vinnu

Pósturaf kiddi » Þri 01. Maí 2018 15:22

Auglýsingastofurnar gætu átt eitthvað spennandi líka, bara senda ferilskrá á allar helstu stofurnar, hægt að finna lista yfir nokkrar þeirra hér:
http://www.sia.is/



Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6774
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 935
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Stelpuna vantar vinnu

Pósturaf Viktor » Þri 01. Maí 2018 17:07

Hægt að reiða á = áreiðanleg* :-$

Sæktu app sem heitir Alfreð.

Heyra svo í stærstu fyrirtækjunum, líklegast að þau séu að ráða í störf.

http://www.vb.is/frettir/10-staerstu-fy ... di/143896/


I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things


Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7064
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1005
Staða: Tengdur

Re: Stelpuna vantar vinnu

Pósturaf rapport » Þri 01. Maí 2018 18:13

Það vantar alla gott starfsafólk í dag, bara spurning um að finna í vaða geira þú vilt vinna og setja sig í samband við fyrirtækin sem eru þar.

Það sem er mikið litið til er að sjálfsgöðu reynsla og ef þig vantar reynslu þá er alltaf spurning hversu praktískt lokaverkefnið þitt var, hvort það tengist einhverju sem þú vilt gera og getur notað til að koma þér á framfæri.

En vel gert að vera kominn með gráðu bara 22ára, þetta þekktist varla á mínum skólaárum að fólk væri komið með BS/BA 22 ára.




Dr3dinn
Tölvutryllir
Póstar: 613
Skráði sig: Mán 13. Ágú 2007 21:44
Reputation: 95
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Stelpuna vantar vinnu

Pósturaf Dr3dinn » Fim 03. Maí 2018 14:40

Bankarnir ráða svakalega mikið af ungum viðskiptafræðingum (þarf að byrja neðarlega og vinna þig upp)

Annars eru næstum 200 atvinnulausir hagfræði/viðskiptafræðingar þannig tengslanetið reddar vinnu í þessum geira frekar en umsóknir.


Vélar
Leikja:Corsair Carbide 400C Clear - AMD 7800X3D - ASROCK b650 lightning - Samsung 990 1tb, Sabrent m.2 1TB, s 32GB(2x16 GB) 6000 MHz - ASRock Radeon RX 6900XT Phantom Gaming D 16GB -1x Odyssey G7 32, 240hz, 1ms, QHD 1440p

Vinnuvélin:Corsair Carbide 275R White - AMX 3900x -Samsung 1TB Pro-32GB (2x16 GB) 3400 MHz Corsair -2060 MSI Ventus 6 GB

Skjámynd

worghal
Kóngur
Póstar: 6300
Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
Reputation: 442
Staðsetning: fyrir aftan þig
Staða: Ótengdur

Re: Stelpuna vantar vinnu

Pósturaf worghal » Fim 03. Maí 2018 14:56

Dr3dinn skrifaði:...tengslanetið reddar vinnu í þessum geira frekar en umsóknir.

þetta er svo satt og sama leiti mjög slæmur hlutur :(


CPU: Intel Core i7 12700KF MB: Gigabyte Z690 Gaming X GPU: EVGA RTX 3080 FTW3 ULTRA 12Gb RAM: Corsair Vengeance RGB Pro 2x16Gb 3600Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Topping DX7s - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Corsair 4000D Airflow


GeneralNuke
Nýliði
Póstar: 5
Skráði sig: Mið 02. Maí 2018 00:55
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Re: Stelpuna vantar vinnu

Pósturaf GeneralNuke » Fös 04. Maí 2018 15:08

þetta er rosalega mikið happ og glapp. Ég útskrifaðist nýlega með BS gráðu í viðskiptafræði og var atvinnulaus í sirka 4 mánuði eftir útskrift. ég sótti um vinnu nánast hvar sem er. gallinn var sá að ég hafði ekki mikla reynslu á því sviði sem ég var menntaður í, en heppnin var með mér og ég fékk loks vinnu.

Ég mæli með að sækja um allstaðar! sem tengist viðskiptasviðinu að einhverju leiti. (bókhald, markaðsfræði, mannauð o.s.frv.) mæli einnig með að fylgjast vel með alfreð.is, starfatorg.is og öðrum opinberum stofnunum, eins og sendiráðum o.fl.



Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7064
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1005
Staða: Tengdur

Re: Stelpuna vantar vinnu

Pósturaf rapport » Fös 04. Maí 2018 17:40

Ekki fara í starf sem þig langar ekki í...

Þú ert nýútskrifuð og ef þú ferð ekki í starf sem þú brennur fyrir þá verður miklu erfiðara fyrir þig að vaxa í starfi og sýna hvað í þér býr.

Spilaðu á styrkleika þína, finndu starf, skaraðu frammúr og láttu taka eftir þér.

Þannig skapar þú þér starfsframa.

Hugsaðu sjálfa þig sem nýja vöru á markaði sem þú þarft að markaðssetja.

Það getur vel verið að þú þurfir að selja þig ódýrt í upphafi til að fá kaupendur til að bíta á agnið en þegar gæðin koma í ljós og vinsældir aukast þá hækkar verðið að sjálfsögðu.

En til að þú sért besta varan sem þú getur orðið, þá þarftu að finna fyrir hverju þú brennur "niche" marketing.

Það er oft betra að vera langbest á þröngu sviði en ágæt á mörgum sviðum.