Greiðslur í útlöndum?
-
Höfundur - Of mikill frítími
- Póstar: 1973
- Skráði sig: Sun 06. Sep 2009 18:19
- Reputation: 28
- Staðsetning: Árbærinn
- Staða: Ótengdur
Greiðslur í útlöndum?
Er að fara út eftir nokkrar vikur og fór að spá. Er það þess virði að standa í að vera með gjaldeyri? Fyrir utan að maður ruglast alltaf á þessum evrum þá fer svo mikið af klinki "til spillis". Er ekki best að vera bara með kort. Getur varla verið svo há færslu gjöld á þessu í dag....
i5 3570K - Gigabyte z77x - GTX 1070 OC - Crucial M4 128 GB - 16GB DDR3 - Toughpower XT 675W - BenQ GW2450HM - Antec-P180
-
- Vélbúnaðarníðingur
- Póstar: 348
- Skráði sig: Fös 22. Apr 2016 18:48
- Reputation: 44
- Staða: Ótengdur
Re: Greiðslur í útlöndum?
það er soldið riskí að vera bara með eitt kort, vertu með bakkupp, annað kort eða einhvern sem gæti lánað ef kort klikar af einhverri ástæðu. Ódýrast er að nota debetkort (frekar en kredit) til að taka út í hraðbönkum.
btw það er sko ekki ódýrt að kaupa seðla sem gjaldeyri, skoðið bara mun á kaup og sölu í seðlagengi bankanna.
enn ein góð ástæða til að hætta að halda úti þessari örmynt!!
btw það er sko ekki ódýrt að kaupa seðla sem gjaldeyri, skoðið bara mun á kaup og sölu í seðlagengi bankanna.
enn ein góð ástæða til að hætta að halda úti þessari örmynt!!
-
- Internetsérfræðingur
- Póstar: 4943
- Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
- Reputation: 169
- Staðsetning: >>
- Staða: Tengdur
Re: Greiðslur í útlöndum?
Alltaf góð regla að vera með pening sem myndi duga þér til að lifa af í 1-2 daga ef allt fer á versta veg. Til dæmis ef posakerfi og hraðbankar bila, þá ertu alls laus ef þú ert ekki með neinn gjaldeyri á þér. Geyma peninginn svo á mörgum stöðum. Smá í veski, smá í sokki, smá í tösku, smá á herbergi osfrv.
Svo að vera að minnsta kosti með tvö mismunandi kort, eitt kreditkort og eitt debitkort til dæmis.
Svo að vera að minnsta kosti með tvö mismunandi kort, eitt kreditkort og eitt debitkort til dæmis.
BenQ XL2720 144Hz † ASRock Z270 Pro4 † Intel i5-7600K @ 4Ghz † GTX 980Ti 6GB † G.Skill 16GB 2x8GB 2400Mhz † Cooler Master Silencio 352 + CX600 † Steelseries Apex M500 Cherry MX Blue † Steelseries Rival 300 † Noctua NF-S12A @ Cooler Master 212 Evo
Macbook Pro Touchbar 2016 15" Space Gray 256GB
Macbook Pro Touchbar 2016 15" Space Gray 256GB
-
- Stjórnandi
- Póstar: 3140
- Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
- Reputation: 222
- Staðsetning: Undir hægra megin
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Greiðslur í útlöndum?
Spurningunni er í rauninni bara hægt að svara á einn veg.
Nei það er ekki best að vera bara með kort og það tengist færslugjöldunum bara akkurat ekki neitt.
Reyndar mismunandi eftir því hvert þú ert að fara, en það má alls ekki reikna með því að geta notað kort jafn víða og hérna á klakanum.

Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !
-
- Stjórnandi
- Póstar: 13609
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Reputation: 948
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Tengdur
Re: Greiðslur í útlöndum?
Mér var ráðlagt í fyrra að nota alls ekki debetkort erlendis, bæði væri það miklu dýrara (millilanda færslugjöld) og óöruggara.
Ég var með tvö kreditkort, venjulegt Vísa frá Íslandsbanka og Platínu kort frá Arion. Fína Platínu kortið var alltaf að beila en ódýra kortið frá Íslandsbanka virkaði alltaf 100%.
Ég myndi taka með pening, amk 60k. fyrir hverja viku og svo tvö Vísakort frá sitthvorum bankanum. Við ferðumst fimm saman.

Debetkort er ódýrara í hraðbönkum og kreditkort ódýrari í verslunum (og öruggari, ég geri ráð fyrir að þar sé talað um að geta ógilt færslu?).GuðjónR skrifaði:Mér var ráðlagt í fyrra að nota alls ekki debetkort erlendis, bæði væri það miklu dýrara (millilanda færslugjöld) og óöruggara.
-
- Stjórnandi
- Póstar: 13609
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Reputation: 948
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Tengdur
Re: Greiðslur í útlöndum?
dori skrifaði:Debetkort er ódýrara í hraðbönkum og kreditkort ódýrari í verslunum (og öruggari, ég geri ráð fyrir að þar sé talað um að geta ógilt færslu?).GuðjónR skrifaði:Mér var ráðlagt í fyrra að nota alls ekki debetkort erlendis, bæði væri það miklu dýrara (millilanda færslugjöld) og óöruggara.
Já, að ógilda færslu.
Ég tek aldrei peninga út úr hraðbönkum með þessum kortum.
-
- Internetsérfræðingur
- Póstar: 4943
- Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
- Reputation: 169
- Staðsetning: >>
- Staða: Tengdur
Re: Greiðslur í útlöndum?
GuðjónR skrifaði:Mér var ráðlagt í fyrra að nota alls ekki debetkort erlendis
Það eru fáránlegar ráðleggingar. Það á alltaf að nota debitkort í hraðbönkum og kreditkort í verslunum, hvort sem það er hér á landi eða í útlöndum

Svo að sjálfsögðu að nota bara hraðbanka hjá viðurkenndum STÓRUM bönkum, helst í útibúum, ekki einhverjum 50 ára gömlum rykföllnum hraðbönkum inni í klámmyndabúðum.
BenQ XL2720 144Hz † ASRock Z270 Pro4 † Intel i5-7600K @ 4Ghz † GTX 980Ti 6GB † G.Skill 16GB 2x8GB 2400Mhz † Cooler Master Silencio 352 + CX600 † Steelseries Apex M500 Cherry MX Blue † Steelseries Rival 300 † Noctua NF-S12A @ Cooler Master 212 Evo
Macbook Pro Touchbar 2016 15" Space Gray 256GB
Macbook Pro Touchbar 2016 15" Space Gray 256GB
-
- vélbúnaðarpervert
- Póstar: 931
- Skráði sig: Þri 01. Nóv 2011 13:42
- Reputation: 149
- Staðsetning: Rvk
- Staða: Ótengdur
Re: Greiðslur í útlöndum?
Sallarólegur skrifaði:GuðjónR skrifaði:Mér var ráðlagt í fyrra að nota alls ekki debetkort erlendis
Það eru fáránlegar ráðleggingar. Það á alltaf að nota debitkort í hraðbönkum og kreditkort í verslunum, hvort sem það er hér á landi eða í útlöndum
Svo að sjálfsögðu að nota bara hraðbanka hjá viðurkenndum STÓRUM bönkum, helst í útibúum, ekki einhverjum 50 ára gömlum rykföllnum hraðbönkum inni í klámmyndabúðum.
Ertu að tala af eigin reynslu í þessu kommenti ????
-
- Internetsérfræðingur
- Póstar: 4943
- Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
- Reputation: 169
- Staðsetning: >>
- Staða: Tengdur
Re: Greiðslur í útlöndum?
Tbot skrifaði:Sallarólegur skrifaði:GuðjónR skrifaði:Mér var ráðlagt í fyrra að nota alls ekki debetkort erlendis
Það eru fáránlegar ráðleggingar. Það á alltaf að nota debitkort í hraðbönkum og kreditkort í verslunum, hvort sem það er hér á landi eða í útlöndum
Svo að sjálfsögðu að nota bara hraðbanka hjá viðurkenndum STÓRUM bönkum, helst í útibúum, ekki einhverjum 50 ára gömlum rykföllnum hraðbönkum inni í klámmyndabúðum.
Ertu að tala af eigin reynslu í þessu kommenti ????

BenQ XL2720 144Hz † ASRock Z270 Pro4 † Intel i5-7600K @ 4Ghz † GTX 980Ti 6GB † G.Skill 16GB 2x8GB 2400Mhz † Cooler Master Silencio 352 + CX600 † Steelseries Apex M500 Cherry MX Blue † Steelseries Rival 300 † Noctua NF-S12A @ Cooler Master 212 Evo
Macbook Pro Touchbar 2016 15" Space Gray 256GB
Macbook Pro Touchbar 2016 15" Space Gray 256GB
-
- Fiktari
- Póstar: 98
- Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
- Reputation: 3
- Staðsetning: Hvammstangi, Ísland
- Hafðu samband:
- Staða: Tengdur
Re: Greiðslur í útlöndum?
littli-Jake skrifaði:Er að fara út eftir nokkrar vikur og fór að spá. Er það þess virði að standa í að vera með gjaldeyri? Fyrir utan að maður ruglast alltaf á þessum evrum þá fer svo mikið af klinki "til spillis". Er ekki best að vera bara með kort. Getur varla verið svo há færslu gjöld á þessu í dag....
Ísland er hluti af Evrópska bankakerfinu. Öll kort sem virka á Íslandi eiga að virka innan ESB. Hvort sem það eru debit eða kreditkort. Það er menningarmunur á milli landa hversu mikið kort er notuð. Fáir nota kort til að borga fyrir hlutina í Þýskalandi sem dæmi. Flest allt er borgað með peningum og sumir staðir taka ekki einu sinni kort (bakarí sem dæmi).
-
Höfundur - Of mikill frítími
- Póstar: 1973
- Skráði sig: Sun 06. Sep 2009 18:19
- Reputation: 28
- Staðsetning: Árbærinn
- Staða: Ótengdur
Re: Greiðslur í útlöndum?
Mikið af góðum svörum. Hugsa að ég taki svona 50K með mér út og tvö kort
i5 3570K - Gigabyte z77x - GTX 1070 OC - Crucial M4 128 GB - 16GB DDR3 - Toughpower XT 675W - BenQ GW2450HM - Antec-P180
Re: Greiðslur í útlöndum?
Því miður er yfirleitt alltaf þörf á að hafa eitthvað reiðufé með sér. Það virka ekki alltaf öll kort í öllum búðum, og sumir staðir s.s. veitingastaðir taka ekki við kortum.
www.laptop.is
www.ferdaleit.is
www.ferdaleit.is