Síða 1 af 1

Óskgildi << Er ekki til fallegra orð yfir sama hlut?

Sent: Sun 15. Apr 2018 20:06
af jonsig
Hvað er hægt að nefna óskgildi annað en þetta viðurstyggilega orð ? Innsláttargildi, kjörgildi ? Set-gildi :) Einhverjar hugmyndir ? Þetta orð óskgildi þarf að hverfa úr Íslenskri tungu asap. Draumgildi XD það væri flottara því miður :lol:

Re: Óskgildi << Er ekki til fallegra orð yfir sama hlut?

Sent: Sun 15. Apr 2018 21:17
af Hjaltiatla
Er þá ekki gott að vera gamaldags og nota dönsku slettu, kalla þetta bara hmmm.. setpunkt. Þá þarftu ekkert að eiga við íslensku fræðin og felur þig á bakvið að vera gamaldags :)

Re: Óskgildi << Er ekki til fallegra orð yfir sama hlut?

Sent: Sun 15. Apr 2018 21:34
af frappsi
Í orðabanka íslenskrar málstöðvar er orðið kjörgildi gefið upp úr orðasafninu "Sjómennsku og vélfræðiorð". Lýsandi og fínt orð að mínu mati.
http://ordabanki.hi.is/wordbank/terminfo?idTerm=444481&mainlanguage=EN

Re: Óskgildi << Er ekki til fallegra orð yfir sama hlut?

Sent: Sun 15. Apr 2018 22:59
af Hizzman
Hjaltiatla skrifaði:Er þá ekki gott að vera gamaldags og nota dönsku slettu, kalla þetta bara hmmm.. setpunkt. Þá þarftu ekkert að eiga við íslensku fræðin og felur þig á bakvið að vera gamaldags :)



ætli danska orðið sé ekki 'ønskeværdi' ?

óskar-gildi er örlítið skárra en óskgildi,

óskgildi viðist einnig vera vafasamt málfræðilega, kjörgildi er alveg nothæft.

Re: Óskgildi << Er ekki til fallegra orð yfir sama hlut?

Sent: Mán 16. Apr 2018 00:17
af jonsig
Verst að sumum finnst gaman orðið að sletta þessu óskgildi í tæknilegar samræður til að virka eitthvað yfir 100 iQ.

En þetta orð er viðurstyggð, man ekki eftir öðru álíka.