Síða 1 af 3

Styðjum við árás vesturveldanna á Sýrland?

Sent: Lau 14. Apr 2018 19:15
af nidur
Mér finnst þetta svo bara rangt að ég verð að sjá hvort að ég sé sá eini.

Re: Styðjum við árás vesturveldanna á Sýrland?

Sent: Lau 14. Apr 2018 20:04
af AlexJones
Þannig að þér finnst rangt að refsa þeim sem nota efnavopn gegn almenningi?

Heimurinn er illur, það er ekki hægt að vera pacifisti. Ef þú stendur ekki upp gegn svona fjöldamorðingjum sem Assad er þá einn daginn mun koma að því að efnavopn verða hugsanlega notuð gegn þér og þínum.

Það er ömurlegt að rússar séu að reyna verja þetta, þeir eru sjálfir aðilar að þessum sáttmálum, og gefa greinilega skít í hann.

Re: Styðjum við árás vesturveldanna á Sýrland?

Sent: Lau 14. Apr 2018 20:14
af worghal
AlexJones skrifaði:Þannig að þér finnst rangt að refsa þeim sem nota efnavopn gegn almenningi?

Heimurinn er illur, það er ekki hægt að vera pacifisti. Ef þú stendur ekki upp gegn svona fjöldamorðingjum sem Assad er þá einn daginn mun koma að því að efnavopn verða hugsanlega notuð gegn þér og þínum.

Það er ömurlegt að rússar séu að reyna verja þetta, þeir eru sjálfir aðilar að þessum sáttmálum, og gefa greinilega skít í hann.

rússar hafa gefið skít í allt og alla síðustu 300 ár.

Re: Styðjum við árás vesturveldanna á Sýrland?

Sent: Lau 14. Apr 2018 20:31
af ZiRiuS
SÞ voru þarna í eftirliti og svo beitir Assad efnavopnum rétt hjá. Annaðhvort er verið að spila á okkur eins og litlar fiðlur eða Assad er einn mesti hálfviti allra tíma...



Tinfoil hats welcome.

Re: Styðjum við árás vesturveldanna á Sýrland?

Sent: Lau 14. Apr 2018 21:14
af nidur
Þarna er verið að gera árásir á ríki sem hefur verið stríðshrjáð í mörg ár af löndum sem áttu að vera að hjálpa?

Re: Styðjum við árás vesturveldanna á Sýrland?

Sent: Lau 14. Apr 2018 21:39
af urban
AlexJones skrifaði:Þannig að þér finnst rangt að refsa þeim sem nota efnavopn gegn almenningi?


Hverjar eru sannarnirnar fyrir því að efnavopn hafi verið notuð ?

Vegna þess að ég hef eiginlega bara séð það koma frá kananum og þeim sem að eru hliðhollir þeim.
Eru sannanirnar álíka góðar og grjöreyðingarvopnin í Írak um árið ?

Tek það fram, ég er ekkert endilega að efast um að það hafi verið gerðar efnavopnaárásir þarna, en ég er ekki tilbúin að trúa því heldur strax.

Re: Styðjum við árás vesturveldanna á Sýrland?

Sent: Lau 14. Apr 2018 22:02
af jonsig
Held að þeir hafi bara verið að sprengja upp sönnunargögn. Sama með þessa eiturefnaárás í London, eitthvað mikið loðið við það ef maður kynnir sér það.

Re: Styðjum við árás vesturveldanna á Sýrland?

Sent: Lau 14. Apr 2018 22:05
af AlexJones
Ég hef lesið að þessi Assad hafi notað efnavopn um 50 sinnum. Alþjóðastofnun um bann við efnavopnum hefur rannsakað fyrri efnavopnaárásir og niðurstaðan er sú að þetta eru efnavopn úr vopnabúri assad. Fyrir 4 árum samþykktu þeir að láta af efnavopnum, en freistnin greinilega of mikil.

Merkilegt nokk að menn hér skuli kokgleypa áróðri rússa um að þetta sé samsæri og það hafi engum efnavopnum verið beitt. Fjöldi fjölskyldna fundust dáin á heimilum sínum, köfnuð, vegna þessara efnavopna. Rússar eru snillingar í að búa til áróður, enda uppfinningarmenn kommúnismans, sem plagar enn nokkur jaðarsvæði, venezúela og n-kóreu.

Rússar spinna upp ótal margar lygar, því fleiri lygar því betra, snúa þér í svo marga hringi, og á endanum veistu ekki hvað snýr upp og niður.

Tökum hlutunum bara einsog þeir eru. Occams razor. Assad er fjöldamorðingi með efnavopn. Rússar halda hlífivæng yfir þessum fjöldamorðingja og nota áróður til að verja sína hagsmuni.

og alþjóðastofnun komst að þeirri niðurstöðu að efnavopnið notað í London væri rússneskt.

Re: Styðjum við árás vesturveldanna á Sýrland?

Sent: Lau 14. Apr 2018 22:22
af littli-Jake
Þetta ástand þarna er orðið svo flókið (búið að vera það lengi) að maður getur eiginlega ekki trúað neinum fregnum af því sem er að gerast.

Re: Styðjum við árás vesturveldanna á Sýrland?

Sent: Lau 14. Apr 2018 22:31
af jonfr1900
nidur skrifaði:Mér finnst þetta svo bara rangt að ég verð að sjá hvort að ég sé sá eini.


Þú ert einnig að kaupa áróður Rússa hrátt. Stjórnvöld í Sýrlandi hafa stundað svona efnavopnaárásir síðan 2012 (auk þess sem isis stóð í svona þegar þeir höfðu aðgang að svona vopnum). Svona efnavopnaárásir eru brot á alþjóðalögum (Genfarsáttmálanum) og teljast til stríðsglæpa. Ef að ríkisstjórn Assads fellur (sem mun gerast á endanum) þá verður hann kærður og dæmdur fyrir stríðsglæpi (eftir að ríkisstjórn Rússlands hrynur þegar Pútín deyr).

Það hefur verið rosalega mikið um áróður frá Rússlandi og Sýrlandi á ensku síðan efnavopnaárásin var gerð og jókst um helming síðan Bandaríkin, Bretland og Frakkland fóru í loftárásir á hernaðarmannvirki innan Sýrlands (sem voru að framleiða eða tóku þátt í framleiðslu) þar sem þessi efnavopn var að finna.

Ástæða þess að borgarastríðið í Sýrlandi hefur dregist svona lengi er vegna afskipta Rússa. Bandaríkin eru ekki að skipta sér að þessum átökum meira en að stunda loftárásir á valin skotmörk isis og annara slíkra hryðjuverkahópa. Það reyndar kom í verkahring Kúrda á endanum að ráða niðurlögum isis.

Síðan batnaði ástandið ekki þegar Tyrkland réðst inn í Sýrland sem er brot á fullveldi og landamærum Sýrlands (þrátt fyrir borgastyrjöldina sem er þar ríkjandi).

Re: Styðjum við árás vesturveldanna á Sýrland?

Sent: Lau 14. Apr 2018 22:36
af AlexJones
As the week progressed, Russian officials veered between insisting there had been no attack, that rebel groups had staged it and ultimately that the United Kingdom had planned it in a conspiracy with Syria's White Helmets volunteer rescue group.

https://edition.cnn.com/2018/04/14/midd ... index.html

Rússar benda í allar áttir, og þú veist ekkí hvaða átt þú átt að horfa í. Obfuscation er það sem rússar gera best. Búa til nógu mikið af rugli að þú ringlast og veist ekki hvort sannleikurinn sé réttur. Sjáðu bara einsog með matryoshka dúkkurnar, lag og lag af dúkkum sem þú opnar, einsog þú komist aldrei að kjarnanum. Þetta er þeirra þjóðareinkenni. Bull umvafið bulli.

Re: Styðjum við árás vesturveldanna á Sýrland?

Sent: Lau 14. Apr 2018 23:06
af KristinnK
Ég styð ekki þessa árás. Nokkur atriði:

1. Sumir segja ,,við verðum að gera eitthvað við þessum fjöldamorðingja Assad". Á sama hátt og við urðum að gera eitthvað við fjöldamorðingjunum Hussein, Mubarak og Gaddafi? Það eina sem kemur í staðinn fyrir þessa einræðisherra eru Íslamistar. Einræðisherrar eru slæmir, og hafa allir blóð á höndum sér, en þeir eru skömminni skárri en Íslamistar. Mikið þarf að breytast í þessum heimshluta til að lýðræði verði raunsætt þar.

2. Rússland bauð Vesturveldum að Assad yrði látinn víkja þegar árið 2012. Þessar sömu þjóðir, Bandaríkjamenn, Bretar og Frakkar höfnuðu tilboðinu, og það eitt sýnir að þetta mál snýst nákvæmlega 0% um ,,fjöldamorðingjann Assad". Þeir höfnuðu tilboðinu því á þeim tímapunkti leit út fyrir að uppreisnarsveitirnar sem voru studdar af Bandaríkjamönnum myndu sigra Assad, og gætu svo sett upp leppstjórn (e. puppet state) í þágu Vesturvelda. Svo kom eins og við öll vitum í ljós að ,,uppreisnarmennirnir" voru ekkert annað en (a) Kúrdar, sem hafa engan áhuga á því að stríða við Assad umfram það að ná sjálfræði yfir sín svæði og (b) Íslamistar. Þannig það gekk ekki upp sem skyldi.

3. Þetta snýst 100% um pólítísk áhrif. Assad er vinur Rússa, og gerir eitt mjög mikilvægt fyrir þá, en það er að koma í veg fyrir að gaspípur sé lagðar frá ríkjum við Persaflóa til Evrópu. Eins og staðan er í dag þarf Evrópa og Evrópusambandið bráðnauðsynlega á gasi frá Rússlandi að halda. Það gefur þeim annars vegar ákveðið taumhald yfir Evrópusambandið, og hins vegar vörn gegn algerri óvinveitni af þeirra hendi. Bandaríkjamenn vilja bæði meiri áhrif í Miðausturlöndum, og hins vegar að áhrif Rússa, bæði í Miðausturlöndum og í Evrópusambandinu séu sem minnst. Og eigum við núna að styðja stríðsrekstur sem miðar eingöngu að því að auka völd ákveðinna heimsvelda yfir önnur? Er þetta 19. eða 21. öldin?

Re: Styðjum við árás vesturveldanna á Sýrland?

Sent: Lau 14. Apr 2018 23:10
af nidur
Já, flott að gera árás á Sýrland af því að rússar framleiddu taugaeitur sem var notað á fyrrverandi njósnara sem lifði það af!!!

Það er bara nóg fyrir mig að sjá fréttaflutning búa til ástæður til að réttlæta þetta fyrir fólki. Það er ekkert af þessu í lagi.

Ég er ekki að kaupa neinn áróður, innrás tyrkja í Sýrland, samningar við Isis um að fá að hverfa í friði, Nato sátt við Tyrki, Góða fólkið sátt við að sprengja Sýrland, Dularfullar árásir í Sýrlandi sem enginn ber ábyrgð á?. Það eru bara allir sáttir.

Og um leið og helsta olíulind Sýrlands er að lenda aftur í höndum ríkisins þá fara allir að gera árásir á landið.

Ég er ekki að gagnrýna þá sem finnst þetta í lagi, mér finnst bara rangt að fólk/stjórnmálamenn geri ráð fyrir því að allir séu bara sammála.

Re: Styðjum við árás vesturveldanna á Sýrland?

Sent: Sun 15. Apr 2018 00:16
af g0tlife
Taka bara stóran part af afríku og öll miðausturlöndin og segja ''Þetta klúðraðist, byrjum aftur'' og strauja allt við jörðu.

Re: Styðjum við árás vesturveldanna á Sýrland?

Sent: Sun 15. Apr 2018 01:13
af Alfa
Ég græt næstum af hlátri að sjá userinn Alex Jones, en sá raunverulegi rugludallur segir í raun allt öfugt við það sem vaktar notandinn heldur fram.

Þetta er í raun frekar einfalt. í næstum 2 áratugi hafa USA haft plan að taka út flest öll lönd sem eru þeim ekki hliðholl í miðausturlöndum og koma fyrir sínum eigin einræðisherrum. Þið getið byrjað td að hlusta á General Westley Clark segja sögu sína hér. Takið eftir tímasetningunni. Eina sem USA tók ekki inn í dæmið er hvað Rússar eru hliðhollir Assad.

https://www.youtube.com/watch?v=9RC1Mepk_Sw

Og um leið og einhver fer út af sögunni á svokölluðum main stream media þá fær hann þessa meðferð

https://www.facebook.com/notowaruk/vide ... vAN_TCtaU4

Það besta sem allir gætu gert væri að hlusta EKKERT á fréttamiðla heldur frekar leita upplýsinga á netinu, frá fólk sem er actually á staðnum. En ekki scriptað af heilalausum sjónvarpsfréttamönnum sem þora ekki að hafa skoðun.

Re: Styðjum við árás vesturveldanna á Sýrland?

Sent: Sun 15. Apr 2018 02:18
af appel
Því miður er það svo að assad er sekur efnavopnamorðingi sem á heima í tukthúsi. Alþjóða stríðsglæpadómstóllinn bíður hans.

Re: Styðjum við árás vesturveldanna á Sýrland?

Sent: Sun 15. Apr 2018 02:48
af rbe

Re: Styðjum við árás vesturveldanna á Sýrland?

Sent: Sun 15. Apr 2018 04:01
af urban
AlexJones skrifaði:Ég hef lesið að þessi Assad hafi notað efnavopn um 50 sinnum. .....

Merkilegt nokk að menn hér skuli kokgleypa áróðri rússa.....


Merkilegt að menn skuli þá líka kokgleypa áróður usa manna....
Það er nefnilega akkurat málið.

við erum allir að lesa "fake news" það er bara eftir því hver er að öskra fake news....

Hver er raunvöruleikinn og hver er raunvöruleg ástæða fyrir innrás þarna hjá usa og co og hver er raunvöruleg ástæða fyrir því að Rússar verji þetta, það hefur bara einfaldlega ekki ennþá komið fram.

Þannig að bara því miður, ég held að engin okkar hafi réttar upplýsingar, þetta er allt bara spurning um hver tekst að selja þér áróðurinn sinn.
í mínu tilviki, ég neita bara að kaupa allan þennan áróður, veit ekki hvað er satt, ekkert frekar en t.d. þú og get þar að leiðandi ekki svarað spurningunni í topic.


AlexJones skrifaði: Assad er fjöldamorðingi með efnavopn


Eru sannarnirnar fyrir því jafngóðar og sannarnirnar fyrir árásinni á Írak ?
Semsagt, er jafn mikið til í þessum efnavopnum og gjöreyðingavopnunum hjá Hussein á sínum tíma....

Re: Styðjum við árás vesturveldanna á Sýrland?

Sent: Sun 15. Apr 2018 07:54
af Moldvarpan
Styð ég árás á Sýrland, nei.

Styð ég árás á vopnabúr og rannsóknarstofu, já.

Spurningin er, hvernig verður framhaldið.

Re: Styðjum við árás vesturveldanna á Sýrland?

Sent: Sun 15. Apr 2018 08:56
af Hjaltiatla
Erfitt að styðja þessa árás í ljósi þess að hún var framkvæmd áður en eftirlitsmenn frá Efnavopnastofnuninni í Haag (OPCW) komu til Douma og rannsaka fullyrðingar um beitingu efnavopna.

Re: Styðjum við árás vesturveldanna á Sýrland?

Sent: Sun 15. Apr 2018 11:42
af jonfr1900
urban skrifaði:
AlexJones skrifaði:Ég hef lesið að þessi Assad hafi notað efnavopn um 50 sinnum. .....

Merkilegt nokk að menn hér skuli kokgleypa áróðri rússa.....


Merkilegt að menn skuli þá líka kokgleypa áróður usa manna....
Það er nefnilega akkurat málið.

við erum allir að lesa "fake news" það er bara eftir því hver er að öskra fake news....

Hver er raunvöruleikinn og hver er raunvöruleg ástæða fyrir innrás þarna hjá usa og co og hver er raunvöruleg ástæða fyrir því að Rússar verji þetta, það hefur bara einfaldlega ekki ennþá komið fram.

Þannig að bara því miður, ég held að engin okkar hafi réttar upplýsingar, þetta er allt bara spurning um hver tekst að selja þér áróðurinn sinn.
í mínu tilviki, ég neita bara að kaupa allan þennan áróður, veit ekki hvað er satt, ekkert frekar en t.d. þú og get þar að leiðandi ekki svarað spurningunni í topic.


AlexJones skrifaði: Assad er fjöldamorðingi með efnavopn


Eru sannarnirnar fyrir því jafngóðar og sannarnirnar fyrir árásinni á Írak ?
Semsagt, er jafn mikið til í þessum efnavopnum og gjöreyðingavopnunum hjá Hussein á sínum tíma....


Samkvæmt Gefnarsáttmálanum frá árinu 1925 þá er notkun efnavopna bönnuð í stríði. Á því banni eru engar undantekningar. Sýrland hefur núna notað efnavopn í þessu stríði síðan árið 2012 með reglulegu millibili. Það hafa fleiri hópar notað efnavopn í þessu stríði og eru allir þeir hópar sem nota slík vopn stríðsglæpamenn.

Hérna er listi yfir þekktar árásir þar sem efnavopn voru notuð.

Bandaríkin eru ekki að dreifa neinum áróðri. Það er bara samsæriskenning sem á sér enga stoð í raunveruleikanum (og hefur verið notuð af Rússum undanfarið).

The Daily Beast fjallar um áhugaverða staðreynd sem hefur lítið verið fjallað um.
Russian Trolls Denied Syrian Gas Attack—Before It Happened - The Daily Beast.

Re: Styðjum við árás vesturveldanna á Sýrland?

Sent: Sun 15. Apr 2018 12:17
af urban
jonfr1900 skrifaði:

Bandaríkin eru ekki að dreifa neinum áróðri. Það er bara samsæriskenning sem á sér enga stoð í raunveruleikanum (og hefur verið notuð af Rússum undanfarið).


ok...
USA menn stunda engan áróður en rússar stunda áróður...

Trúiru þessu í alvöru ?
Trúir þú í alvöru að kaninn sé aldrei með áróður ?

Ég spyr síðan aftur, eru sannarnirnar jafn góður og gereyðingavopnin hjá írökum, vopnin sem að aldrei hafa fundist.

Einsog ég sagði, ég er ekkert að segja að það hafi ekki verið notið efnavopn þarna, ég er bara ekki tilbúin í að taka því alveg hráu frá Trump og félögum.

Re: Styðjum við árás vesturveldanna á Sýrland?

Sent: Sun 15. Apr 2018 12:29
af Alfa
Það er svo líklegt að nokkrum dögum eftir að Trump segir að Assad sé sama sem búin að vinna stríðið, allir þeir sem USA kalla repels en er í raun m.a. Al Nursra (lesist al qaeda) séu búnir í Sýrlandi, fer hámenntaður læknirinn menntaður í Evrópu að gasa sitt eigið fólk for fun. Come on getið þið verið vitlausari. Þetta gjörsamlega öskrar false flag á alla sem vilja opna augun.

Re: Styðjum við árás vesturveldanna á Sýrland?

Sent: Sun 15. Apr 2018 12:37
af ZiRiuS

Re: Styðjum við árás vesturveldanna á Sýrland?

Sent: Sun 15. Apr 2018 12:43
af jonsig
AlexJones skrifaði:
As the week progressed, Russian officials veered between insisting there had been no attack, that rebel groups had staged it and ultimately that the United Kingdom had planned it in a conspiracy with Syria's White Helmets volunteer rescue group.

https://edition.cnn.com/2018/04/14/midd ... index.html

Rússar benda í allar áttir, og þú veist ekkí hvaða átt þú átt að horfa í. Obfuscation er það sem rússar gera best. Búa til nógu mikið af rugli að þú ringlast og veist ekki hvort sannleikurinn sé réttur. Sjáðu bara einsog með matryoshka dúkkurnar, lag og lag af dúkkum sem þú opnar, einsog þú komist aldrei að kjarnanum. Þetta er þeirra þjóðareinkenni. Bull umvafið bulli.


Ég er ekki samsæris-nuttari mikill en held að þessi árás á skripal er hoax til að réttlæta þessar aðgerðir eða í einhverjum öðrum vafasömum tilgangi. Eða með að sprengja gasið geta UN ekki borið kennsl á það.

1.Engar myndir af þessum sjúklingum 2. Heyrist ekki múkk frá þeim. 3.Blaðamenn/ættingjar meiga ekki sjá feðginin. 4. Engin öryggisgæsla á spítalanum og skripal finnst ekki. 5. Feðginin verða send til BNA og skipta um útlit og skilríki. 6.Rússar höfðu næg tækifæri áður til að taka hann út.

Þegar litvenko heitnm var byrlað polon samsætu og lá dauðvona á spítala í UK þá voru tekin við hann daglega viðtöl og myndatökur algengar. Og ekki múkk heyrist frá neinum yfirvöldum.

Hvað í ósköpunum fær fólk til að trúa þessum svokölluðu "bandamönnum" okkar sem eru uppvísir hægri vinstri að lygum og blekkingum ?