Síða 1 af 2

Hvern langar EKKI í ? !

Sent: Þri 10. Apr 2018 20:58
af brain
Nú styttist í HM

Gilbert úrsmiður kynnti HM úrið sitt í dag.

https://www.jswatch.com/world-cup-mmxviii

Hvern langar ekki í þetta úr !!

Mynd

Re: Hverjum langar EKKI í ? !

Sent: Þri 10. Apr 2018 21:08
af GuðjónR
Fallegt...

Re: Hverjum langar EKKI í ? !

Sent: Þri 10. Apr 2018 21:08
af Nitruz
Nei takk... þetta er einns og ósmekkleg blanda af krakka og karla úri.
Mynd
+
Mynd

Re: Hverjum langar EKKI í ? !

Sent: Þri 10. Apr 2018 21:18
af Viggi
Það er klukka á símanum mínum

Re: Hverjum langar EKKI í ? !

Sent: Þri 10. Apr 2018 21:29
af ZiRiuS
Ég er handalaus

Re: Hverjum langar EKKI í ? !

Sent: Þri 10. Apr 2018 21:40
af hagur
* Hvern langar ekki í ....

Kv,
Málfræðilögreglan

Re: Hverjum langar EKKI í ? !

Sent: Þri 10. Apr 2018 21:41
af appel
Sjálfsagt fínt úr, ég bara löngu hættur að bera úr, á ekkert úr, var með það síðast reglulega í 1. ári í framhaldsskóla, svo komu farsímar!

Re: Hverjum langar EKKI í ? !

Sent: Þri 10. Apr 2018 21:47
af Baraoli
Rosa fallegt úr!
Gillbert er nátturlega með þetta eins og alltaf!

Re: Hverjum langar EKKI í ? !

Sent: Þri 10. Apr 2018 22:22
af brain
Viggi skrifaði:Það er klukka á símanum mínum


Svona klassa úr eru ekki bara til að nota sem klukku.

Þetta er skartgripur.

Re: Hverjum langar EKKI í ? !

Sent: Þri 10. Apr 2018 22:40
af Tóti
Flott en hvað kostar það ?

Re: Hverjum langar EKKI í ? !

Sent: Þri 10. Apr 2018 22:49
af gufan
370-400 þús ... fer víst eftir hvering ól þú velur

Re: Hverjum langar EKKI í ? !

Sent: Þri 10. Apr 2018 22:51
af vesi
Hef alldrey verið einhver úra-maður, né þurft eithvað sérstaklega á þeim að halda eftir að símarnir komu.. en shit hvað mig langar í þetta úr maður!!

Re: Hverjum langar EKKI í ? !

Sent: Þri 10. Apr 2018 22:58
af Viggi
brain skrifaði:
Viggi skrifaði:Það er klukka á símanum mínum


Svona klassa úr eru ekki bara til að nota sem klukku.

Þetta er skartgripur.
Enginn sérlegur punt karl. Þetta er öllu skemtilegra :P


https://www.cube.eu/en/2018/bikes/mount ... grey-2018/

Re: Hverjum langar EKKI í ? !

Sent: Mið 11. Apr 2018 13:21
af Nariur
Mér finnst þetta úr eiginlega bara alls ekki flott.

Re: Hverjum langar EKKI í ? !

Sent: Mið 11. Apr 2018 13:29
af methylman
Alveg ómögulegt úr, engin markamínúta á því ;-)

Re: Hverjum langar EKKI í ? !

Sent: Mið 11. Apr 2018 13:44
af appel
'R' í 'WORLD CUP' snýr öfugt.

Re: Hverjum langar EKKI í ? !

Sent: Mið 11. Apr 2018 13:55
af littli-Jake
appel skrifaði:'R' í 'WORLD CUP' snýr öfugt.


Copy right

Re: Hverjum langar EKKI í ? !

Sent: Mið 11. Apr 2018 14:12
af methylman
littli-Jake skrifaði:
appel skrifaði:'R' í 'WORLD CUP' snýr öfugt.


Copy right


Og tilvísun í það HVAR keppnin er haldin en þetta öfuga R https://en.wikipedia.org/wiki/Ya_(Cyrillic) er YA hljóð svo þetta er ekki alveg rétt hefði átt að vera P en það bara gengur ekki upp ;-)

Re: Hverjum langar EKKI í ? !

Sent: Mið 11. Apr 2018 16:19
af Mossi__
Er skífan með Comic Sans?!

Re: Hvern langar EKKI í ? !

Sent: Mið 11. Apr 2018 17:01
af GuðjónR
Veit einhver hvað gripurinn kostar?
Finnst úrið verða flottara og flottara því oftar sem ég sé það.

Re: Hvern langar EKKI í ? !

Sent: Mið 11. Apr 2018 18:02
af brain
Heyrði á K100 í gær að þetta úr er svipað og EM úrið, um 360-370 þús

Re: Hvern langar EKKI í ? !

Sent: Mið 11. Apr 2018 18:03
af GuðjónR
brain skrifaði:Heyrði á K100 í gær að þetta úr er svipað og EM úrið, um 360-370 þús

:shock: :shock: :shock:

Re: Hvern langar EKKI í ? !

Sent: Mið 11. Apr 2018 18:16
af zedro
Hver þarf að borga leigu!

Ekkert slæmt úr en er einhver ákveðin Chrono í þessu úri eða þarf ég að rugla klukkunni ef ég vill nota skífuna til að fylgjast með leiknum? :catgotmyballs

Re: Hvern langar EKKI í ? !

Sent: Mið 11. Apr 2018 18:21
af AntiTrust
Úff, ekki fallegt. Tölustafirnir of stórir og í smeðjulegu fonti og þetta hvíta og bláa litaþema veldur því að mér finnst ég bara vera að horfa á hitamæli með leðuról.

Re: Hvern langar EKKI í ? !

Sent: Mið 11. Apr 2018 19:13
af g0tlife
Fýla svona þunn úr, er ekki mikið fyrir stór en þessir litir eru ekki alveg að gera sig fyrir mig.