Síða 1 af 2

Advania búið að loka versluninni

Sent: Fim 05. Apr 2018 20:20
af appel
Ég var smá gáttaður. Ég vildi nefnilega skoða vöru "in person" en það var ekki lengur hægt. Hvernig eiga menn að ákveða að kaupa eitthvað án þess að sjá það? Þeir bentu nefnilega á netverslunina!

Re: Advania búið að loka versluninni

Sent: Fim 05. Apr 2018 20:21
af Dúlli
Ha í alvöru ? eru þeir ekki lengur á höfðatorginu ?

Re: Advania búið að loka versluninni

Sent: Fim 05. Apr 2018 20:23
af appel
Nei, púff, all gone.

Re: Advania búið að loka versluninni

Sent: Fim 05. Apr 2018 20:33
af Dúlli
Jeminn, vá hvað það er asnarlegt ef maður myndi vilja prufa vöruna og skoða hana.

Mynd á netinu er bara ekki það sama og í persónu.

Re: Advania búið að loka versluninni

Sent: Fim 05. Apr 2018 20:34
af appel
Þá er hvergi hægt að skoða dýra Dell skjái in-person á Íslandi, til að meta myndgæði og hvaðeina með eigin augum.

Sé fyrir mér að sala á þeim skjáum hrapi á næstunni.

Re: Advania búið að loka versluninni

Sent: Fim 05. Apr 2018 21:55
af AntiTrust
Lokunin er tímabundin vegna breytinga.

Re: Advania búið að loka versluninni

Sent: Fim 05. Apr 2018 22:09
af appel
AntiTrust skrifaði:Lokunin er tímabundin vegna breytinga.

Ok.

Sé reyndar engar upplýsingar um þetta á vefsíðunni hjá þeim. Og þegar ég mætti var mér bara sagt "búið að loka versluninni, núna í dag nota allir vefverslun!" svona einsog það hafi verið framtíðin hjá þeim.

Re: Advania búið að loka versluninni

Sent: Fim 05. Apr 2018 23:50
af worghal
Alltaf velkominn í Origo ;)

Re: Advania búið að loka versluninni

Sent: Fös 06. Apr 2018 00:58
af ZiRiuS
Advania or i go to Origo (þetta er svo vont nafn...)

Re: Advania búið að loka versluninni

Sent: Fös 06. Apr 2018 09:00
af svingi
AntiTrust skrifaði:Lokunin er tímabundin vegna breytinga.

Ég man nefninlega eftir því að hafa séð tilkynningar frá Advania varðandi þetta en ég finn ekkert af þeim lengur, er þetta pottþétt tímabundið ?

Re: Advania búið að loka versluninni

Sent: Fös 06. Apr 2018 09:33
af hagur
svingi skrifaði:
AntiTrust skrifaði:Lokunin er tímabundin vegna breytinga.

Ég man nefninlega eftir því að hafa séð tilkynningar frá Advania varðandi þetta en ég finn ekkert af þeim lengur, er þetta pottþétt tímabundið ?

Já, það er verið að breyta öllu rýminu þarna niðri og verslunin mun opna aftur fljótlega, en þó í breyttri mynd frá því sem áður var.

Re: Advania búið að loka versluninni

Sent: Fös 06. Apr 2018 17:09
af afrika
ZiRiuS skrifaði:Advania or i go to Origo (þetta er svo vont nafn...)

Fyrst þegar ég las þetta þá las ég "orgio".. Gaman af lesblindu annars lagið :P Enda ein stór orgia af fyrirtækjum \:D/

Re: Advania búið að loka versluninni

Sent: Fös 06. Apr 2018 17:29
af GuðjónR
afrika skrifaði:
ZiRiuS skrifaði:Advania or i go to Origo (þetta er svo vont nafn...)

Fyrst þegar ég las þetta þá las ég "orgio".. Gaman af lesblindu annars lagið :P Enda ein stór orgia af fyrirtækjum \:D/

hahaha ég sá það líka, en það sem verra er að ég les alltaf Andvana í stað Advania.

Re: Advania búið að loka versluninni

Sent: Lau 07. Apr 2018 22:26
af KermitTheFrog
svingi skrifaði:
AntiTrust skrifaði:Lokunin er tímabundin vegna breytinga.

Ég man nefninlega eftir því að hafa séð tilkynningar frá Advania varðandi þetta en ég finn ekkert af þeim lengur, er þetta pottþétt tímabundið ?

Húsið sem Advania er í er allavega grútmyglað. Kannski er þetta einhver afleiðing þess.

Re: Advania búið að loka versluninni

Sent: Lau 07. Apr 2018 22:52
af appel
Dísus, hvað er með myglu ...

OR húsið ónýtt og fólk flúið
vodafone þurfti að flýja
íslandsbanki þurfti að flýja
etc.etc.
nú advania?

Re: Advania búið að loka versluninni

Sent: Sun 08. Apr 2018 00:09
af Manager1
Allt byggt á sem mestum hraða svo hægt sé að byggja næsta hús og græða meiri peninga og greinilega ekki vandað mikið til verka.

Ég þekki það svosem ekki en getur verið að öll þessi hús hafi verið byggð á árunum 2000-2007?

Re: Advania búið að loka versluninni

Sent: Sun 08. Apr 2018 00:19
af appel
Manager1 skrifaði:Allt byggt á sem mestum hraða svo hægt sé að byggja næsta hús og græða meiri peninga og greinilega ekki vandað mikið til verka.

Ég þekki það svosem ekki en getur verið að öll þessi hús hafi verið byggð á árunum 2000-2007?

Nei.

Allt eru þetta mun eldri hús. Advania húsið er hundgamalt, byggt líklega 1960. Kirkjusandshús íslandsbanka er líka hundgamalt. Vodafone húsið gamla var líka hundgamalt.

En ég rýni í eitt sameiginlegt og það er að öll þessi hús hafa nýlega verið klædd að utan.

Gæti verið að þessi klæðning geri það að verkum að raki finni ekki leið út og valdi þá myglu?

Ég veit um gamla sérfræðinga í byggingarmálum sem segja þessa hluti.
En í dag er 0 kr. veitt í rannsóknir hvað þetta varðar af hálfu hins opinbera, þannig að enginn veit hvers vegna mygla grasserar svona rosalega.

Ég helt að það vanti aðeins grunnhugsun um varmafræði hérna. Varmi ýtir í burtu raka. Ef þú lokar á út-gufun þá býrðu bara til gufuklefa.

Re: Advania búið að loka versluninni

Sent: Sun 08. Apr 2018 00:25
af Dúlli
appel skrifaði:

Þetta er allt vanhannað í dag, það er byrjað að klæða hús áður en það er klárað að reikna út um hvað eigi að fara og hvers konar efni.

OR húsið var hönnunar klúður og ekkert mál að rekja vandamálið alveg að hönnuði en vandamálið hér á landi er það að hönnuðir eru ekki ábyrgir og sjaldan byggingar stjórar, oftast dettur þessi ábyrgð niður á iðnmeistara sem koma hvergi nálægt því að hann eða velja efnið.

Iðnaðarmenn framkvæma eingöngu samkvæmt uppgefnum teikningum.

Byggingarferlið hér á landi er handónýtt.

Re: Advania búið að loka versluninni

Sent: Sun 08. Apr 2018 11:13
af GuðjónR
appel skrifaði:Dísus, hvað er með myglu ...

OR húsið ónýtt og fólk flúið
vodafone þurfti að flýja
íslandsbanki þurfti að flýja
etc.etc.
nú advania?

Það er tvennt sem orsakar, bæði séríslenskt.
Veðurfar og fúsk.

Re: Advania búið að loka versluninni

Sent: Sun 08. Apr 2018 14:18
af beatmaster
Ég þori næstum því að veðja stórum upphæðum að orsök þessara sprenginga sem hefur orðið í myglumálum er WiFi að kenna.

Re: Advania búið að loka versluninni

Sent: Fim 26. Júl 2018 16:15
af appel
AntiTrust skrifaði:Lokunin er tímabundin vegna breytinga.

Var búið að opna þessa verslun aftur? Ég get bara séð á vefnum hjá advania að þeir séu með verslun á akureyri en ekki í reykjavík!

Re: Advania búið að loka versluninni

Sent: Fim 26. Júl 2018 16:30
af brynjarbergs
Nei, versluninni var breytt í lítinn sýningarsal. :)

Re: Advania búið að loka versluninni

Sent: Fim 26. Júl 2018 17:10
af appel
brynjarbergs skrifaði:Nei, versluninni var breytt í lítinn sýningarsal. :)

Hvaða vörur eru þeir með í þessum litla sýningarsal?

Re: Advania búið að loka versluninni

Sent: Fim 26. Júl 2018 20:40
af brynjarbergs
Fartölvur og svo eru einhverjir upplýsingaskjáir/fundarskjáir :)

Re: Advania búið að loka versluninni

Sent: Fim 26. Júl 2018 22:48
af hagur
beatmaster skrifaði:Ég þori næstum því að veðja stórum upphæðum að orsök þessara sprenginga sem hefur orðið í myglumálum er WiFi að kenna.

:popeyed :-k