Skrítin frétt

Allt utan efnis
Skjámynd

Höfundur
rapport
Kóngur
Póstar: 7058
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1004
Staða: Tengdur

Skrítin frétt

Pósturaf rapport » Fim 05. Apr 2018 12:30

hugb...JPG
hugb...JPG (83.88 KiB) Skoðað 2013 sinnum


Persónulega þá finnst mér ótrúlegt, jafnvel vítavert ef að slökkviliðsmenn eru lagðir í hættu vegna einhvers veraldlegs inn í svona stórbruna.



Skjámynd

urban
Stjórnandi
Póstar: 3750
Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
Reputation: 471
Staðsetning: Undir hægra megin
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Skrítin frétt

Pósturaf urban » Fim 05. Apr 2018 12:50

En nú eru slökkviliðsmenn svo gott að segja alltaf í hættu við að reyna að bjarga einhverju veraldlegu.

Ef að þeir ættu ekki að vera það, þá myndu þeir bara horfa á þetta brenna og halda fólki í burtu.

En vissulega er þetta mjög furðulegt atvik.


Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !

Skjámynd

Hauxon
spjallið.is
Póstar: 408
Skráði sig: Fös 10. Júl 2009 12:32
Reputation: 119
Staða: Ótengdur

Re: Skrítin frétt

Pósturaf Hauxon » Fim 05. Apr 2018 13:06

Ætli hann hafi verið að reyna að koma í veg fyrir að hugbúnaðurinn færi út á skýið? :P



Skjámynd

Höfundur
rapport
Kóngur
Póstar: 7058
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1004
Staða: Tengdur

Re: Skrítin frétt

Pósturaf rapport » Fim 05. Apr 2018 14:12

urban skrifaði:En nú eru slökkviliðsmenn svo gott að segja alltaf í hættu við að reyna að bjarga einhverju veraldlegu.

Ef að þeir ættu ekki að vera það, þá myndu þeir bara horfa á þetta brenna og halda fólki í burtu.

En vissulega er þetta mjög furðulegt atvik.


Auðvitað eru þeir að bjarga einhverju veraldlegu en við þessar aðstæður eða aðstæður sem eru örlítið vafasamar, þá frekar að leyfa hlutum að brenna en að hætta heilsu, heilbrigði eða lífi þeirra.

Ef þeir hefðu farið þarna inn til að reyna bjarga einhverjum, þá mundi ég ekki vera kvabba.



Skjámynd

Henjo
Gúrú
Póstar: 526
Skráði sig: Mán 15. Júl 2013 03:44
Reputation: 175
Staða: Ótengdur

Re: Skrítin frétt

Pósturaf Henjo » Fim 05. Apr 2018 14:17

urban skrifaði:En nú eru slökkviliðsmenn svo gott að segja alltaf í hættu við að reyna að bjarga einhverju veraldlegu.

Ef að þeir ættu ekki að vera það, þá myndu þeir bara horfa á þetta brenna og halda fólki í burtu.

En vissulega er þetta mjög furðulegt atvik.


Heldurðu í alvöruni að starf slökkviliðsmanns fellst í því að reyna hætta lífi sínu að bjarga eitthverju drasli? Eða er ég að miskilja þig?



Skjámynd

ZiRiuS
Of mikill frítími
Póstar: 1798
Skráði sig: Þri 08. Nóv 2005 15:19
Reputation: 387
Staðsetning: Við tölvuna
Staða: Ótengdur

Re: Skrítin frétt

Pósturaf ZiRiuS » Fim 05. Apr 2018 19:02

Strákar, slökkviliðsmenn eru ekki einhver heilalaus dýr sko. Aðstæður hafa verið metnar og talið "óhætt" (alltaf einhver hætta) að sækja þennan hugbúnað. Við vitum ekkert hvernig aðstæðurnar voru á þessum tíma né hvað hann var að sækja...



Turn: Cooler Master Mastercase H500M Móðurborð: Asus ROG Maximus XI Hero
CPU: Intel Core i9-9900K 3.6GHz (Coffee Lake) GPU: EVGA GeForce RTX 2080 Super FTW3 Ultra Gaming
RAM: Corsair Vengeance LPX 32GB (4x8GB) DDR4 PC4-28800C18 3600MHz Quad Channel Kit
PSU: Corsair AX850 Titanium 80 Plus Titanium Modular SSD: Samsung 970 PRO 512GB M.2 2280 PCI-e 3.0 x4 NVMe


arons4
vélbúnaðarpervert
Póstar: 938
Skráði sig: Mið 27. Apr 2011 20:40
Reputation: 126
Staða: Ótengdur

Re: Skrítin frétt

Pósturaf arons4 » Fim 05. Apr 2018 19:15

Að fréttum rúv að skiljast voru þeir sennilega að sækja myndavélaserverinn.



Skjámynd

g0tlife
1+1=10
Póstar: 1165
Skráði sig: Mán 05. Nóv 2007 15:57
Reputation: 154
Staðsetning: Sit í fanginu hans Guðjóns
Staða: Ótengdur

Re: Skrítin frétt

Pósturaf g0tlife » Fim 05. Apr 2018 19:39

Þetta er ekki bíómynd sem þeir storma inn og allir bara guuuuuð. Þetta hefur verið metið og þeir fengið go-ið um að þetta myndi sleppa.


Intel i9-10900KF // Nvidia RTX 3080 // 2x 1TB M.2 // 1TB Samsung 860 Evo // G.Skill 32GB Ripjaws V 3600MHz // ASRock Z490 Extreme4 // Samsung Odyssey G7 32''

My CPU's Hot But My Core Runs Cold

Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6774
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 935
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Skrítin frétt

Pósturaf Viktor » Fim 05. Apr 2018 20:55

Létt að vera vitur eftir á.

Gaman að sjá alla breytast í sérfræðinga í svona málum.


I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things


Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB

Skjámynd

urban
Stjórnandi
Póstar: 3750
Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
Reputation: 471
Staðsetning: Undir hægra megin
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Skrítin frétt

Pósturaf urban » Fim 05. Apr 2018 21:41

Henjo skrifaði:
urban skrifaði:En nú eru slökkviliðsmenn svo gott að segja alltaf í hættu við að reyna að bjarga einhverju veraldlegu.

Ef að þeir ættu ekki að vera það, þá myndu þeir bara horfa á þetta brenna og halda fólki í burtu.

En vissulega er þetta mjög furðulegt atvik.


Heldurðu í alvöruni að starf slökkviliðsmanns fellst í því að reyna hætta lífi sínu að bjarga eitthverju drasli? Eða er ég að miskilja þig?


Nú, þú ert að misskilja, ég sagði aldrei að starf slökkviliðsmanns fælist í því að reyna að hætta lífi sínu.

En það er nú bara svo einfalt að eldur er stórhættulegur og aðstæður slökkvimanna eru stórhættulegar.

Ef að þeir ættu ekki að leggja sig í neina hættu við að bjarga veraldlegum eignum, þá myndu þeir hætta alltaf um leið og á hreinu væri að það væri engin manneskja í hættu.

Ég er aftur á móti á engan hátt að segja að menn leggi sig í hættu viljandi og hugsi ekkert út í hætturnar.


Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !

Skjámynd

brain
vélbúnaðarpervert
Póstar: 976
Skráði sig: Lau 19. Apr 2014 10:11
Reputation: 134
Staða: Ótengdur

Re: Skrítin frétt

Pósturaf brain » Fim 05. Apr 2018 22:47

arons4 skrifaði:Að fréttum rúv að skiljast voru þeir sennilega að sækja myndavélaserverinn.



Akkúrat !



Skjámynd

PikNik
has spoken...
Póstar: 191
Skráði sig: Mið 29. Sep 2010 17:11
Reputation: 15
Staða: Ótengdur

Re: Skrítin frétt

Pósturaf PikNik » Fim 05. Apr 2018 23:36

Faðir minn er slökkviliðsmaður til 25 ára og var einn af þeim fyrstu á vettvang í dag og hann var að skríða heim fyrir einhverjum 20 mínútum. Mér er alltaf mjög illa við svona, vitandi það að pabbi minn gæti verið inní einhverju brennandi húsi að bjarga einhverjum eða einhverju. Það sem maðurinn var að bera þegar hann féll var einhverskonar hugbúnaður, og ég skal lofa ykkur því að það sem hann var að sækja skipti miklu máli. Eins og þið kanski sáuð í dag þá fóru reykkafarar inní húsið að framanverðu, hjá IceWear með slöngur og annan búnað til að kanna aðstæður. Eins og ég þekki Jón Viðar slökkviliðsstjóra, meiri ljúfmenni og meistara finnuru varla í þessum heimi, þá treysti ég öllu sem hann gerir og treysti þeim ákvörðunum sem hann tekur. Þegar þakið fór að síga þá stigu reykkafararnir út og mennirnir sem voru uppá þaki komu niður á körfuni. Svo þegar þeir fara í kjaraviðræður er allt skotið niður og ekkert gert og lög sett á þá. Ég vill að þið takið ykkur nokkrar mínútur og horfið á þetta myndband :) Takk fyrir að lesa.




Skjámynd

PikNik
has spoken...
Póstar: 191
Skráði sig: Mið 29. Sep 2010 17:11
Reputation: 15
Staða: Ótengdur

Re: Skrítin frétt

Pósturaf PikNik » Fös 06. Apr 2018 19:03

Svo vill ég aðeins fá ða hrósa nokkrum aðilum. Eins og þið vitið þá var hrikalega mikill fjöldi sem var mættur þarna til að aðstoða. Allir lausir menn á Höfuðborgarsvæðinu, menn frá Suðurnesjum, Selfossi, RVK og KEF Flugvöllur og fl. En eitthvað verður að halda þeim gangandi.. Sómi sem gerir samlokurnar kom með tugi samloka, SS kom með helling af snikkers og nammi, Hamborgarabúllan kom með 100 hamborgara rétt um hádegi og setti í rútuna, allt óumbeðið. Þessir aðilar eiga miklar þakkir skilið.