Síða 1 af 1

Kísildalur á skilið hrós

Sent: Þri 20. Mar 2018 10:16
af g0tlife
Vildi bara hrósa þeim í Kísildal fyrir góða þjónustu. Var að velta fyrir mér að kaupa fartölvu og sendi þeim póst um fartölvu hjá þeim vs hjá OKBeint. Þeir svöruðu fljótt með góðar útskýringar og ég ákvað að taka fartölvuna sem var hjá þeim.

Ég senti til baka um 14:00 að ég ætlaði að koma milli 17:00 - 18:00 og taka tölvuna. Þegar ég kom til þeirra voru þeir að setja upp vélina fyrir mig þrátt fyrir að hafa enga tryggingu á því að ég myndi koma nema þessi eini tölvupóstur. Á meðan þeir kláruðu gat ég labbað um bakvið að spjalla við starfsmenn.

Gaman að sjá fyrirtæki sem treysta kúnanum og leyfa manni að vera frjáls að spjalla við þá svo lengi sem maður truflar ekki (auðvitað).

Legg til að allir prófi allavega einu sinni að versla við þá, líka ef þig langar í nördaráð um eitthvað þá er þetta rétti staðurinn.

Re: Kísildalur á skilið hrós

Sent: Þri 20. Mar 2018 10:42
af muslingur
;)

Re: Kísildalur á skilið hrós

Sent: Þri 20. Mar 2018 11:47
af vesi
Kísildalur er yfirleitt 1.stopp hjá mér í leit að einhverjum íhlutum og lausnum á vandamálum.

Bara fengið góða þjónustu og endurgreitt án vandkvæða, ekki þetta inneignarnótu drasl sem ísl-verslanir eru svo ástfangnir af.
Getur líka treyst því að þegar þú sendir einhvern þangað sem hefur ekki svo mikið vit á tölvum, að þá er ekki verið að reyna troða á viðkomandi einhverju drasli.

Re: Kísildalur á skilið hrós

Sent: Þri 20. Mar 2018 23:27
af MrIce
Eina slæma sem ég get sagt um Kísil er að það er ekkert kaffi í boði þar :P Annars bara góðir hlutir og ekkert rugl

Re: Kísildalur á skilið hrós

Sent: Þri 20. Mar 2018 23:34
af MatroX
Hef verslað einu sinni þar og lenti í smá galla með hlutinn sem ég keypti og eigandinn höndlaði það ekki betur en ég mun aldrei versla þarna aftur.. hef aldrei séð jafn mikin hroka frá starfsmanni tölvuverslunar áður, annars veit ég alveg að það er topp þjónusta og rosalega fínir starfsmenn á verkstæðinu hjá þeim en eigandinn á þessari verslun á 0 heima í svona starfi

Re: Kísildalur á skilið hrós

Sent: Mið 21. Mar 2018 10:53
af wICE_man
Sæll Matrox, ég er annar eigendanna/yfirmannana hjá Kísildal og vil byrja á að koma því að að mér þykir mjög leitt að þú hafir fengið slæma þjónustu og það af hendi okkar yfirmannana :oops: . Ég er mjög forvitinn með þetta mál, ef þú værir til í að senda mér PM með lýsingu á atvikinu þá væri ég þér inniega þakklátur. Maður á erfitt með að bæta sig þegar maður fær bara hrós svo að input-ið þitt væri ómetanlegt.

Kv.

Guðbjartur Nilsson
Framkvæmdastjóri Kísildals ehf.

Re: Kísildalur á skilið hrós

Sent: Fös 13. Apr 2018 15:31
af Fridvin
Get ekki sagt að það séu rosalega góð fyrstu kynni af þessari verslun hjá mér. Kanski munur ef maður mætir í verslunina.
Pantaði minni hjá þeim á aðfaranótt miðvikudags í síðustu viku og voru veikindi og fór pöntunin framhjá þeim sem er svosem skiljanlegt að geti komið upp. Ég fæ síðan hringingu núna á þriðjudaginn og var útskýrt seinkunina og beðist afsökunar og ég fékk sent email með upplýsingum til að millifæra og stóð þar að þetta færi í póst leið og væri búið að staðfesta þetta. Ég kláraði millifærsluna samstundis og lét þar með lyggja.

Í gær fór ég að gramslast fyrir því ekkert sendingarnúmer var komið og ekkert á leiðinni í póstinum og hafði þetta þá gleymst þannig ég hringdi í verslunina (rétt fyrir hádegi) og sagðist hann ætla senda þetta fljótlega þannig þetta kæmi í dag. Fékk sendingarnúmer hjá þeim í dag og athugaði uppá pósthús og þar sögðu þeir að það hefði verið farið svo seint með þetta að þetta kæmi ekki fyrr en eftir helgi.

Það leiðinlegasta við þetta er að það hafi ekki bara gleymst að senda þetta aftur þannig ég hefði getað fengið þetta endurgreitt og rúntað uppá Egilsstaði og keypt minni þar svo tölvan væri nothæf um helgina.

Re: Kísildalur á skilið hrós

Sent: Fös 13. Apr 2018 16:49
af Moldvarpan
Er sammála með netverslun Kísildals, þetta kerfi gengur brösulega.

Eingöngu hægt að greiða með kreditkorti. Flest kerfi bjóða uppá debetkort. Og tíminn þangað til maður fær eh svör er mjög langur.

En að mæta í verslunina er allt annað, hef upplifað það líka.

Re: Kísildalur á skilið hrós

Sent: Fös 13. Apr 2018 18:52
af Vilezhout
fáar verslanir sem komast með tærnar þar sem þeir hafa hælana í úrvinnslu vandamála

vinnufartölvan hjá konunni hrundi, þeir voru búnir að bilanagreina hana eftir tvo tíma og græjuðu nýja vél til að koma henni af stað aftur eftir lokun á föstudegi ásamt því að færa öll gögn o.s.f. yfir

Re: Kísildalur á skilið hrós

Sent: Lau 14. Apr 2018 14:51
af techseven
Ég mæli fyrst með Kísildal þegar fólk spyr mig hvar eigi að versla tölvudót...