Genki Instruments á Indiegogo

Allt utan efnis
Skjámynd

Höfundur
KermitTheFrog
Kóngur
Póstar: 4273
Skráði sig: Mán 07. Júl 2008 23:32
Reputation: 67
Staða: Ótengdur

Genki Instruments á Indiegogo

Pósturaf KermitTheFrog » Þri 06. Mar 2018 13:56

Sælir vaktarar, mig langar aðeins að misnota aðstöðu mína hér og vekja athygli á hópfjármögnunarherferð sem fyrirtækið mitt, Genki Instruments, var að setja í loftið í morgun. Þar erum við að safna fjármagni til að koma fyrstu vöru okkar á markað. Varan, sem við köllum Wave, er það sem kalla má wearable MIDI controller og gerir tónlistarfólki kleift að nota handahreyfingar við sköpun og flutning stafrænnar tónlistar.

Þessi vara er búin að vera í þróun hér á Íslandi í þrjú ár og er þetta því stór stund fyrir okkur. Endilega kíkið á Indiegogo síðuna okkar og kynnið ykkur hvað þessi græja getur gert. Hver veit, kannski er þetta eitthvað fyrir ykkur :)

Sorry ef þetta er of mikið self-promotion spamm. Mig langaði bara að deila þessu með ykkur!