Xovius skrifaði:Mig hryllir við þessu viðhorfi.
Ferðu á bílasölur og röflar yfir verði á bílum sem þér þykir hátt, en hefur engan áhuga á að kaupa? Af hverju tíðkast þetta hvergi annarsstaðar? Auðvitað styð ég ekki það að fólk reyni að svína á öðrum, ég sagði það aldrei. Það sem ég er bara að reyna að segja (og enginn virðist að pikka upp) að tilgangurinn helgar ekki meðalið, að í langflestum tilfellum sem verðlöggur tjá sig, fer þráðurinn út um þúfur og skilur allt eftir í rjúkandi rúst. Þetta er alltaf þessi spurning um hver hefur rétt fyrir sér, og þá sérstaklega hversu oft hefur verðlöggan rangt fyrir sér?
Mig hryllir við því að óviðkomandi aðilar séu að röfla og skammast í verðlagningu á vörum sem þeir ætluðu sér aldrei að kaupa hvorteðer, og sérstaklega þegar þeim skjátlast. Þetta getur verið svo loðið, er t.d. sanngjarnt að ætlast til þess að maður sem kaupir vöru hjá vönduðum íslenskum endursöluaðila með góða ábyrgðarþjónustu, keppi í verði við mann sem keypti sambærilega vöru erlendis og smyglaði í gegnum toll og borgaði engan virðisauka? T.d. núna þegar betri NVIDIA kortin hafa hækkað í verði vegna vöruskorts og mikillar eftirspurnar, er þá hægt að setja þá kröfu að seljandi á notuðu slíku korti selji á „gamla“ gangverðinu? Er viðkomandi ekki frjálst að ákveða þá krónutölu sem hann sættir sig við, til að selja hlutinn? Hvar liggja mörkin? Hver hefur rétt fyrir sér og hver hefur rangt? Í mínum huga er eðlilegast að hætta þessum afskiptum, og sérstaklega þegar þeir eru ekki einusinni sjálfir á höttunum eftir þessari vöru sem þeir eru að skammast yfir.
Ef við tökum þetta svo á hinn bóginn, ef ég er einn um þetta að vaða í rugli, og ef rétt eigi að vera rétt, þá legg ég til að verðlöggur stofni félag, „Félag Íslenskra Verðlögga“ og þið komið ykkur saman um ásættanleg gangverð að ykkar mati og birtið lista fyrir alla að sjá, og segið svo fólki að framfylgja þeim verðum sem ykkur þykja ásættanleg ellegar verði brenndir á báli.
Xovius skrifaði:Sökin liggur ekki hjá fórnarlambi svikanna. Ef þú sæir einhvern ræna veski af ömmu þinni niðrí bæ, myndirðu þá bara yppa öxlum og segja "það er henni einni að kenna, ekki okkar sem sátum hjá og horfðum á."
Þessi samlíking er ekki svaraverð, hún er svo léleg og efnislega röng.
Erlendis er þetta nefnt "Thread crapping", þegar fólk kemur inn og tjáir sig um verðlagningu þegar það hefur engan áhuga á að kaupa hvorteðer. Tek nokkur dæmi af síðum sem ég nota reglulega:
anandtech.com
Except as noted, thread crapping will not be tolerated. If you are not interested in buying or selling, or you have nothing positive to say, STAY OUT OF THE THREAD! If you think the asking price is too high, or you want to make a lowball offer, contact the seller via email or PM.
hardforum.com
(18) No THREAD CRAPPING. It is rude and will not be tolerated. If you have an issue with the price, the seller or the conditions of the sale, contact the seller directly, do not post it in the thread.
fredmiranda.com
Can I post my concerns regarding the seller's price on a listing price?
If you don't agree with an item's price, or if you know a place where the same item is being sold for less, do NOT interfere or post your opinion/prices on the thread in question. The seller may not know what the "politically correct" price. Members posting prices or being hostile to the seller's threads will be warned or even have their accounts locked.