Síða 1 af 1

Bluetooth/handfrjáls búnaður í bíl KOMIÐ

Sent: Fim 08. Feb 2018 22:16
af ColdIce
Sælir.
Er með eldri bíl og myndi gjarnan vilja hafa möguleikann á að svara símtölum og tala gegnum sendinn sem sendir þráðlaust í útvarpið og viðkomandi í símanum heyrist gegnum hátalara bílsins. Sýnist vera hægt að fá fm bluetooth sendi sem gerir þetta en til að vera viss um að fá græju sem hefur almennilegan mic svo fólk heyri í mér án þess að andlitið fari ofan í kveikjaratengið :p getur einhver mælt með slíku tæki útfrá eigin reynslu?

Takk!

Edit: https://www.heimkaup.is/handfrjals-bunadur-i-bil
Er kannski að leita að þessu? Það væri samt ekki verra ef græjan bíður upp á að senda tónlist úr símanum yfir á einhverja fm tíðni

Edit 2: BOSS Audio BV9370B Double Din, Touchscreen, Bluetooth, MP3/USB/SD AM/FM Car Stereo, 6.5 Inch Digital LCD Monitor, Wireless Remote (NO CD/DVD) https://www.amazon.com/dp/B01FC3SUL0/re ... FAbR8BG8AM

Fæ ég svona hér á landi á kristilegu verði?

Re: Bluetooth/handfrjáls búnaður í bíl

Sent: Fim 08. Feb 2018 23:31
af methylman
https://ht.is/product/4x50w-biltaeki-bluetooth svona ? Ekki kaupa útvarpstæki gert fyrir USA ég er með JVC tæki sem tengist með BT í símann og spilar af honum og rýfur svo þegar síminn hringir, mic. límdur á hurðarpóstinn bílstjóramegin virkar flott. BTV þetta Heimkaup dæmi er algjört .....

https://www.amazon.de/JVC-KD-R871BT-Aut ... c+bt+radio

Re: Bluetooth/handfrjáls búnaður í bíl KOMIÐ

Sent: Mán 07. Maí 2018 19:56
af Kona66
Ertu búin að finna eitthvað sem virkar vel ColdIce ? Ég er líka að leita að svona fyrir eldri bíl.

Re: Bluetooth/handfrjáls búnaður í bíl KOMIÐ

Sent: Mán 07. Maí 2018 20:45
af ColdIce
Kona66 skrifaði:Ertu búin að finna eitthvað sem virkar vel ColdIce ? Ég er líka að leita að svona fyrir eldri bíl.

Ég endaði í þessum
https://elko.is/konig-fm-sendir-me-bluetooth

Virkar mjög fínt en er samt farinn að skoða snertiskjá-tæki :p