Tölvutímarit - vantar ráðleggingar

Allt utan efnis

Höfundur
aja
Nýliði
Póstar: 1
Skráði sig: Fös 22. Des 2017 09:36
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Tölvutímarit - vantar ráðleggingar

Pósturaf aja » Fös 22. Des 2017 09:59

Datt í hug að sniðugt væri að gefa stelpu sem er að fara í háskólanám í tölvunarfræðum í USA, áskrift af góðu tölvutímariti í jólagjöf. Hvað segið þið um það og hvaða tímarit ætti það að vera? Áhugasvið og nám hjá henni hefur fram að þessu reyndar snúist um kvikmyndagerð og spurning hvort einhverjir snertifletir gætu verið á þessu tvennu...?