Síða 3 af 5

Re: Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga

Sent: Fim 01. Mar 2018 18:33
af arons4
Svo eru þetta víst ekki stolni búnaðurinn úr reykjanesbæ eftir allt saman.

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2018 ... nbrotunum/

Re: Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga

Sent: Fös 02. Mar 2018 09:39
af olihar
arons4 skrifaði:Svo eru þetta víst ekki stolni búnaðurinn úr reykjanesbæ eftir allt saman.

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2018 ... nbrotunum/

Takk löggimann og MBL fyrir að benda á hvert á að fara til þess að stela mining búnaði....

Re: Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga

Sent: Fös 02. Mar 2018 09:48
af Maniax
olihar skrifaði:
arons4 skrifaði:Svo eru þetta víst ekki stolni búnaðurinn úr reykjanesbæ eftir allt saman.

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2018 ... nbrotunum/

Takk löggimann og MBL fyrir að benda á hvert á að fara til þess að stela mining búnaði....

Klassa fréttamennska hjá MBL og Vísir, Væri ekki hægt að láta þá borga brúsann ef eitthvað kemur fyrir?

Re: Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga

Sent: Fös 02. Mar 2018 10:55
af Televisionary
Ég get sett mynd af seðlabankanum það er ekki þar með sagt að þú þurfir að fara þangað inn.

Öryggið þarna er á ábyrgð eigendanna. Er það ekki? Það er ekki bannað að taka myndir þarna.

olihar skrifaði:
arons4 skrifaði:Svo eru þetta víst ekki stolni búnaðurinn úr reykjanesbæ eftir allt saman.

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2018 ... nbrotunum/

Takk löggimann og MBL fyrir að benda á hvert á að fara til þess að stela mining búnaði....

Re: Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga

Sent: Fös 02. Mar 2018 11:00
af HalistaX
Þetta er samt svo mikið inside job, strákar, að það er ekki fyndið....

Re: Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga

Sent: Fös 02. Mar 2018 12:19
af urban
olihar skrifaði:
arons4 skrifaði:Svo eru þetta víst ekki stolni búnaðurinn úr reykjanesbæ eftir allt saman.

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2018 ... nbrotunum/

Takk löggimann og MBL fyrir að benda á hvert á að fara til þess að stela mining búnaði....

Langt síðan að við eyjamenn vissum að það væri miningbúnaður þarna, það er ekki ennþá búið að stela honum...

Þar að auki eru vestmannaeyjar sjálfsagt vitlausasti staður sem að þú myndir reyna að stela einhverju í gámavís, þú kemur því bara í burtu í gegnum höfnina og það er mjög auðvelt að fylgjast með þeim ferðum.

Re: Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga

Sent: Fös 02. Mar 2018 13:36
af Hizzman
urban skrifaði:

Búa Rússarnir etv í gámunum?, amk góður hiti og lítil hætta á þjófnaði. En afhverju voru þeir handteknir? Var sérsveitin með? Eða Smári Mc??

Re: Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga

Sent: Lau 10. Mar 2018 13:10
af flottur

Re: Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga

Sent: Lau 10. Mar 2018 13:39
af benderinn333

þetta er einhver jólasveinn

"so they are new?

Yap
They are in Latvia, i can get them in one week without prepay :D "

Re: Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga

Sent: Þri 17. Apr 2018 09:56
af jonfr1900
Það eru sviptingar í þessu máli núna.

Lögregla lýsir eftir strokufanga (Rúv.is)

Re: Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga

Sent: Þri 17. Apr 2018 11:49
af appel
jonfr1900 skrifaði:Það eru sviptingar í þessu máli núna.

Lögregla lýsir eftir strokufanga (Rúv.is)

Pantaði hann sér bara leigubíl og keypti flugmiða á netinu? meira "gæsluvarðahaldið" það.

Re: Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga

Sent: Þri 17. Apr 2018 15:39
af jonfr1900
appel skrifaði:
jonfr1900 skrifaði:Það eru sviptingar í þessu máli núna.

Lögregla lýsir eftir strokufanga (Rúv.is)

Pantaði hann sér bara leigubíl og keypti flugmiða á netinu? meira "gæsluvarðahaldið" það.

Hann var fluttur í opið fangelsi. Þetta mál er núna að fara til Europol og síðan Interpol ef til þess kemur.

Fór úr landi á fölsuðum skilríkjum (Rúv.is)

Re: Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga

Sent: Þri 17. Apr 2018 16:29
af DJOli

Re: Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga

Sent: Þri 17. Apr 2018 16:35
af jonfr1900
DJOli skrifaði:Kominn til Svíþjóðar.
http://www.visir.is/g/2018180418964/sin ... svithjodar

Hann getur farið þaðan hvert sem er. Það er ekki vegabréfaeftirlit inn í mörg ríki ef fólk er að koma frá Svíþjóð. Það er vegabréfaeftirlit inn í Þýskaland frá Austurríki og inn í Danmörku frá Þýskalandi en ekkert vegabréfaeftirlit inn í Þýskaland frá Danmörku. Það er þó vegabréfaeftirlit inn í Frakkland frá öllum ríkjum (vegna hryðjuverkaógnar).

Það er þó góðar líkur á því að hann finnist fljótlega. Nema einhver sé að hjálpa honum í Svíþjóð. Það verður hinsvegar seint sagt að þetta bæti stöðu hans í þessu máli og refsing hans verður örugglega þyngd talsvert þegar dæmt verður í þessu máli vegna þessa flótta.

Re: Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga

Sent: Þri 17. Apr 2018 17:15
af slapi
jonfr1900 skrifaði:

Hmm skrítið það er alltaf vegabréfaeftirlit þegar ég kem inn í Þýskaland frá Danmörku , annars gæti hann bara geymt sig í Svíþjóð það er ekkert verið að fara að finna hann þar svosem

Re: Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga

Sent: Þri 17. Apr 2018 17:16
af DJOli
Ef hann var ekki búinn að játa sekt sína í máli þessu þá er hún allavega komin fram núna, svört á hvítu. Saklaus maður flýr ekki land. Sekur maður gerir það.

Re: Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga

Sent: Þri 17. Apr 2018 18:08
af g0tlife
DJOli skrifaði:Ef hann var ekki búinn að játa sekt sína í máli þessu þá er hún allavega komin fram núna, svört á hvítu. Saklaus maður flýr ekki land. Sekur maður gerir það.

haha þannig að ef þú ert dæmdur saklaus þá ertu ekki að fara flýja ? Ohh dem ég var dæmdur í fangelsi og gerði ekkert. Best að taka þetta á mig !

Svona staðhæfingar virka aldrei, en samt sem áður grunar mig að hann sé sekur og hann stoppaði einungis stutta stund í svíþjóð og brunaði þar út úr landi. Má segja að hann náði að vera á ''undan öldunni'' sem segir manni það að hann er ekki heimskur eða með gott lið á bak við sig

Re: Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga

Sent: Þri 17. Apr 2018 18:25
af appel
DJOli skrifaði:Ef hann var ekki búinn að játa sekt sína í máli þessu þá er hún allavega komin fram núna, svört á hvítu. Saklaus maður flýr ekki land. Sekur maður gerir það.

Ekki endilega. Kannski saknaði hann bara frelsisins. En þó má svo sem komast að þeirri ályktun, en það er ekkert annað en ályktun, ekki sönnun.

Ætli hann sé ekki á leiðinni til Rússlands?

Re: Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga

Sent: Þri 17. Apr 2018 19:35
af Tbot
Sama hvað hægt er að segja. Þá er þetta lýsandi dæmi um fangelsiskerfið á Íslandi.

Síðast þegar ég vissi þá þýddi gæsluvarðhald það að menn séu lokaðir inni og tryggt að þeir séu það. Geti ekki valsað um eftir því sem þeim sýnist í opnu fangelsi.

Svo til að gera þetta enn skemmtilegra þá kemur fangelsismálastjóri og segir að það sé allt morandi af símum í fangelsum.
Síðast þegar ég vissi þá er til búnaður sem getur blokkað þessi tíðnisvið, þannig að símar virka ekki.
En að sjálfsögðu væri það brot á réttindum fanga að nota slíkan búnað.

Held að það fari að vera einfaldara að loka inni fórnarlömbin og tilvonandi fórnarlömb, svo það sé ekki alltaf verið að freista krimmana.

Re: Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga

Sent: Þri 17. Apr 2018 21:04
af Stuffz
þetta er allt með ráðum gert, the GiRLS instölluðu sendiflögu undir skinnið á honum við læknisskoðun og leyfðu honum svo að sleppa, hann ætti að koma þeim á sporið hvar búnaðurinn er falinn.. erlendis :P

Annars svona í aðeins minna gríni, Þetta voru mögulega erlendir aðilar sem hafa gert þetta áður annarsstaðar sem skipulögðu þetta og fundu eitthverja local expendable blávita, kannski vissi hann meira en þeir héldu og hótaði að segja frá svo honum var hjálpað að fara úr landi en svo hvað?

hmm minni kostnaðurfyrir skattborgarana við uppihald á meðan, og meira stress fyrir kauða þar til hann næst.

Re: Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga

Sent: Mið 18. Apr 2018 14:17
af Raskolnikov
Alveg kostulega íslenskt að maður í "gæsluvarðhaldi" fyrir óupplýstan stórþjófnað sé haldið í opnu fangelsi út í sveit og geti flúið land í rólegheitum með sömu flugvél og forsætisráðherra. Meiri háttar aulaskapur af hálfu fangelsisyfirvalda og lögreglu.

Re: Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga

Sent: Mið 18. Apr 2018 14:40
af appel
"Ekki ástæða til að ætla að hann myndi flýja"

Halló halló. Gæjinn neitar að segja neitt um yfir 200 milljóna rán, þýfið líklega komið úr landi. Gæjinn hefur mikla hagsmuni að komast úr landi og komast yfir þessa upphæð.

Re: Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga

Sent: Mið 18. Apr 2018 14:57
af pepsico
Vil minna á að samfélagslegi ágóðinn af því að koma fram við fólk eins og manneskjur og brjóta það ekki niður í ómannúðlegum stofnunum og réttarferlum er vægast sagt meiri en sá skaði að óofbeldisfullur glæpamaður sleppi úr gæsluvarðhaldi.

Re: Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga

Sent: Mið 18. Apr 2018 15:03
af siggibk
pepsico skrifaði:Vil minna á að samfélagslegi ágóðinn af því að koma fram við fólk eins og manneskjur og brjóta það ekki niður í ómannúðlegum stofnunum og réttarferlum er vægast sagt meiri en sá skaði að óofbeldisfullur glæpamaður sleppi úr gæsluvarðhaldi.

Hvað ertu að segja ? Var brotið á þessum manni og var hann á ómannúðlegri stofnun ?

Veit ekki betur en að hann slapp akkúrat af því þetta var mannúðlegt og engin gæsla, og þessi maður er ekki að hjálpa málstaðnum með því að flýja land.

Re: Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga

Sent: Mið 18. Apr 2018 15:37
af ZiRiuS
Í rafmagnshjólastólinn með hann!