Síða 5 af 5

Re: Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga

Sent: Fim 26. Apr 2018 10:21
af MrIce
worghal skrifaði:
rapport skrifaði:
jonfr1900 skrifaði: Hver man ekki þegar það átti að gera tölvu eins thevikingbay gaursins upptæka og þegar gaurinn tók upp símann héldu þeir að hann ætlaði að setja í gang sprengju í tölvunni sinni til að fela slóðina. ](*,) ](*,) ](*,) ](*,)



Ahh good memories.... Löggan er svo taugaveikluð að hún væri líklegst hrædd við eigin skugga ef hann væri tæknivæddur :face \:D/

Re: Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga

Sent: Fim 26. Apr 2018 10:37
af GuðjónR
worghal skrifaði:Hver man ekki þegar það átti að gera tölvu eins thevikingbay gaursins upptæka og þegar gaurinn tók upp símann héldu þeir að hann ætlaði að setja í gang sprengju í tölvunni sinni til að fela slóðina. ](*,) ](*,) ](*,) ](*,)
hahahahaha really?

Re: Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga

Sent: Fim 26. Apr 2018 11:55
af Hizzman
jonfr1900 skrifaði:Hálfvitaskapur lögreglunnar á Suðurnesjum er slíkur að þeir eiga aldrei eftir að finna þennan búnað sem var stolið nema þeim verði sagt hvar þessi stolni tölvubúnaður er niðurkominn. Síðan er hérna komin skaðabótakrafa upp á skemmdan búnað uppá að minnsta kosti 100 milljónir ef ekki meira sem lögreglan á suðurnesjum þarf að borga. Þar sem þetta er fullkomlega réttmæt krafa hjá eigendum þessa tölvubúnaðar sem var skemmdur.

Setti tvo í farbann í Eyjum og skemmdu 20 tölvur við húsleit (Vísir.is)


er þessi lögreglustjóri á Suðurnesjum ekki eitthvað úti á túni stundum? voru þetta ekki hans menn sem brutust inn í gáminn og ollu skaða?

Re: Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga

Sent: Fim 26. Apr 2018 12:45
af jonfr1900
Samkvæmt fréttum þá var það lögreglan sem braust inn í einn gáminn og skemmdi kælikerfið í leiðinni. Þetta gerði lögreglan án þess að hafa heimild til þess að fara inn í gáminn samkvæmt sömu fréttum á vísir og í Fréttablaðinu.

Re: Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga

Sent: Fim 26. Apr 2018 12:51
af worghal
jonfr1900 skrifaði:Samkvæmt fréttum þá var það lögreglan sem braust inn í einn gáminn og skemmdi kælikerfið í leiðinni. Þetta gerði lögreglan án þess að hafa heimild til þess að fara inn í gáminn samkvæmt sömu fréttum á vísir og í Fréttablaðinu.

ég hreynlega skil ekki af hverju það þurfti að brjóta allt upp, var ekki hægt að fá einhverja lásaþjónustu til að opna þetta varlega?
hvað ef þetta hefði svo verið búnaðurinn sem var verið að leita að, væri það þá bara "good news and bad news, góðu fréttirnar eru að við fundum búnaðinn, vondu fréttirnar eru að við eyðilögðum hann"

Re: Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga

Sent: Fim 26. Apr 2018 13:15
af Televisionary
Hljómar eins og að lögeglan fari svolítið yfir strikið í þessu öllu saman. Ef að gæsluvarðhaldið var útrunnið á Sindra var þá þessi innköllun á vegabréfinu hans ólögleg sem og þessi handtaka í Hollandi einnig? Ef að hann hefur tæknilega verið frjáls maður get ég ekki séð að þetta standist fyrir dómsstólum en ég er ekki löglærður.

Gæti verið að það séu vanhæfir embættismenn hér á ferð? Það verður gaman að fylgjast með þessu þegar þetta kemur fyrir dómsstóla. Óháð sekt eða sakleysi Sindra þá vil ég engan vegin vita af embættismönnum sem ætla að halda fólki í varðhaldi án þess að búið sé að vinna pappírsvinnuna. Ef að gæsluvarðhaldið verður framlengt sólarhring síðar þá eiga menn að ganga lausir fram að því.

Re: Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga

Sent: Fim 26. Apr 2018 13:37
af DJOli
Treysti allavega á það að lögreglan á Íslandi klúðri þessu eins og svo mörgu öðru. Ef ekki lögreglan, þá réttarkerfið.

Re: Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga

Sent: Fim 26. Apr 2018 15:08
af rapport
En hefur það komið fram hver er eigandi búnaðarins?

Er það ekki advania sem kærir innbrotið en áttu þeir búnaðinn?

Re: Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga

Sent: Mið 02. Maí 2018 14:25
af DJOli

Re: Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga

Sent: Fim 03. Maí 2018 08:59
af lukkuláki
"Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga"

DV sagði 20 milljónir en aðrir fjölmiðlar segja að þetta séu rúmar 200 milljónir.
Ég held að 200 milljónir sé réttara en 20
Bara 600 stk góð skjákort kosta alveg 80-90 milljónir.

http://www.dv.is/frettir/2017/12/16/tol ... pplysinga/
http://www.visir.is/g/2018180329302/lof ... tolvubunad
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2018 ... vubunadar/
http://www.visir.is/g/2018180229744

Re: Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga

Sent: Fim 03. Maí 2018 10:53
af wICE_man
Ef við gerum ráð fyrir að þetta séu GTX 1060 6GB kort þá eru 600 kort ca. 30 milljón krónur, ef þau eru GTX 1070 þá eru þetta ca. 45 milljónir og ef þetta eru GTX 1080Ti þá erum við að tala um rétt um 80 millur.

20 milljónir virðist vera frekar lág tala en 200 milljónir er of há tala. Ég hef samt oftar heyrt hana nefnda.

Re: Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga

Sent: Fim 03. Maí 2018 11:25
af lukkuláki
wICE_man skrifaði:Ef við gerum ráð fyrir að þetta séu GTX 1060 6GB kort þá eru 600 kort ca. 30 milljón krónur, ef þau eru GTX 1070 þá eru þetta ca. 45 milljónir og ef þetta eru GTX 1080Ti þá erum við að tala um rétt um 80 millur.

20 milljónir virðist vera frekar lág tala en 200 milljónir er of há tala. Ég hef samt oftar heyrt hana nefnda.


... og þetta voru ekki bara skjákort.
600 skjá­kort, 100 afl­gjafar, 100 móður­borð, 100 minniskubbar og 100 ör­gjörvar.

Re: Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga

Sent: Fim 03. Maí 2018 12:05
af einarhr
lukkuláki skrifaði:
wICE_man skrifaði:Ef við gerum ráð fyrir að þetta séu GTX 1060 6GB kort þá eru 600 kort ca. 30 milljón krónur, ef þau eru GTX 1070 þá eru þetta ca. 45 milljónir og ef þetta eru GTX 1080Ti þá erum við að tala um rétt um 80 millur.

20 milljónir virðist vera frekar lág tala en 200 milljónir er of há tala. Ég hef samt oftar heyrt hana nefnda.


... og þetta voru ekki bara skjákort.
600 skjá­kort, 100 afl­gjafar, 100 móður­borð, 100 minniskubbar og 100 ör­gjörvar.


í fyrsta innbrotinu af þremur var búnaði fyri 20 miljónir stolið skv bæði MBL og DV og líklega þess vegna er þessi þráður með þennan titil.

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2017 ... _milljona/