Síða 1 af 1

Star Wars: The Last Jedi - SPOILER !

Sent: Fim 14. Des 2017 23:08
af g0tlife
EKKI LESA EF ÞÚ VILLT EKKI FÁ SPOILER ÚR MYNDINNI
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-

Okey hvað var í gangi með þessa mynd ? Ég hef aldrei verið jafn vonsvikinn ... Star Wars TPM er bara gull meðavið þessa. Þetta er orðið svona Marvel bíómynd.

Talandi um nokkur atriði í myndinni. Fannst það fáranlega kjánalegt að myndin fjallaði um það að þeir væru að elta skip í geimnum ... HALLÓ ! Gátu þeir ekki bara gefið aðeins í, þeir eru með hvað 4 - 6 skip + 1 HUGE. Var þetta virkilega það besta sem þeir gátu fundið upp á.

Allt tengdt Luke á þessari eyju tók svo langan tíma og maður vissi að hann myndi hjálpa henni in the end og það var engin spenna við þetta. Frekar boring eftir 15 min af ''Plís komdu Luke'' svo með þessa hesta á einhverri ríka manns plánetu til að finna Mexíkana sem þau svo óvart rekast á ? Þetta lookaði eins og eitthvað side quest í tölvuleik.

Gaman að segja frá því að á IMDB sýna seinustu 100 reviews um myndina að EINN hefur gefið henni 7 stjörnur mest megnið um 2 - 4. Þannig ég skil ekki alveg afhverju hún er með 8,2 þarna inn á.

Svo voru brandararnir í lokinn ornir aðeins of .. Afhverju eru þeir líka að nota sömu hugmyndir, staði í þessum nýju myndum ? Er svona rosalega flókið að finna upp á einhverju nýju ?

Hef ekkert eigilega út á leikarana að segja nema þau eru flest mjög ung. Þetta handrit er bara brandari og skömm

Disney er við það að drepa Star Wars ! Ég er virkilega ósáttur með þessa mynd og mun eflaust aldrei horfa á hana aftur

Re: Star Wars: The Last Jedi - SPOILER !

Sent: Fim 14. Des 2017 23:47
af Sydney
Ekki gleyma því að ljóshraða árekstur er greinilega sjúklega OP. Miðað við að cruiserinn gat tekið út stóra skipið hans Snoke's þá ætti einn X-Wing að vera nóg til þess að taka niður star destroyer með því að klessa á hann á ljóshraða.

Af hverju voru þeir að ráðast á death star með fullt af skipum í gömlu myndunum? Bara senda eitt temmilega stórt skipt beint í gegn á ljóshraða.

Re: Star Wars: The Last Jedi - SPOILER !

Sent: Fös 15. Des 2017 00:21
af russi
Er sammála ykkur með vonbrigðin, fannst hún á köflum barnalegri en margar aðrar SW myndir. Sérstaklega þetta með hestana, fannst samt gaman að þau fóru á bar og það var ekki sóðabar eins og í öll önnur skipti sem er farið á bar, heldur svona ríkisbubbaplebbastöff.

Svo þarna í lokin, afhverju var Rey allt í einu komin um borð í Fálkan? Það var bara núll útskýrt.

Húmorinn var samt á köflum ágætur, Hux/Hugs atriðið minnti mig á Robot Chicken. Þó þessi mynd hafi ekki verið endurgerð á Empire Strikes Back þá var þemað það sama, rebels á flóta, jedi-lærlingur að finna sig í draumkenndum atriðum með sig sem spegilmynd.

Annað líka, myndin svaraði nánast öllum spurningum úr Force Awakens en skildi engar spurningar eftir, fannst það súrt því fyrir vikið eru litlar vangaveltur eftir um persónurnar fyrir næstu mynd.

Gæti alveg trúað því að þegar uppi er staðið að þetta yrði lakasta SW myndin.

Re: Star Wars: The Last Jedi - SPOILER !

Sent: Lau 16. Des 2017 12:07
af g0tlife
Okey núna er aðeins runnin af mér reiðin svo ég ætla deila fleiri pælingum sem ég hef.

Snoke .. Það var verið að tísa hann í fyrstu myndinni um að þetta væri einhver nýr mega Sith lord en svo deyr hann bara á svo rugl hátt og við vitum EKKERT hvaðan hann kemur eða hvernig hann komst til valda. Mér finnst það frekar leiðinlegt.

Fleiri aðal persónur .. Mér finnst þeir vera henda mörgum nýjum persónum inn kannski til að gera svona ''gang'' eins og var í fyrstu myndunum en það er eiginlega bara að stela showinu frá þeim sem við kynntumst í Force Awakes. Smá ruglandi, komið smá svona Game of Thrones fýlingur ? Nýjir koma, nýjir deyja ?

Varðandi Leia .. Í myndinni voru tvo góð atriði fyrir hana til að deyja með tign. En þeir berjast við að halda henni á lífi í myndinni.
Nr.1: Þá þegar brúin var sprengd og hún fór út í geim var flott en þetta að hún lifir af í geimnum með the force sem aldrei hefur verið gert áður og hún aldrei fengið ''alvöru'' force þjálfun fannst mér frekar kjánalegt.
Nr.2: Þá hefði hún átt að taka skipið í endann

Allir treilerar og posters voru frekar blekkjandi upp á hvernig Luke kom fram í myndinni. Hann notaði þetta fræga geislasverð sitt í hvað 20 sek ?
Fannst leiðinlegt hvernig þeir eiginlega drápu og gerðu fan fav af Star Wars heiminum leiðinlega og ó spennandi í lokinn. Hefði verið betra að hann hefði bara verið en þá í útlegð eða látið hann í lokinn senda annað skilaboð til allra í geimnum og sjá hvernig ''neistinn'' myndi kvikna aftur. Þetta var frekar mikill bömmer.

Varðandi Kylo Ren og Rey. Afhverju Kylo svona rosalega valdalaus gegn Rey ? Hann er búinn að vera sem krakki í þjálfun og er með þetta fræga blóð í sér en samt ræður hann ekkert við einhverja stelpu sem var að finna máttinn like 15 min ago. Fannst það gera lítið úr Kylo Ren og lætur mig ekkert hafa ''áhyggjur eða spennu'' þegar þau mætast aftur.
Eins og Darth Vader hafði aldrei eigilega ráðið við Luke, eða Anakin náð að ráða við Darth Maul í TPM sem krakki.

Segja má að þessi mynd þjónaði þannig engum tilgangi því það eina sem hún gerði fjallaði um flótta rebels á lengsta og kjánalegasta hátt. Snoke deyr sem við vissum hvort sem er ekkert um. Luke verður leiðinlegur og deyr með smá comeback í lokinn ofan á steini. Kylo Ren er en þá glataður og mun aldrei ná að sigra Rey. Leia dó ekki og mun vera algjört klúður að reyna redda því í næstu mynd.

Directorinn Rian Johnson hefur greinilega engan áhuga á Star Wars og George Lucas er eflaust að sjá eftir hlutum núna.

Re: Star Wars: The Last Jedi - SPOILER !

Sent: Lau 16. Des 2017 18:31
af HalistaX
Lalalalalala , er a myndini right now...

Vildi bara segja hvað ég er að hata það að þeir komu aftur með þennann "Maz" karakter... Litlu, ljótu, CGI geimveruna þarna... Þessa appelsínugulu or whatever.... Það var líklega það eina sem ég gat ekki með síðustu mynd.... Jesús, it chaps my ass!!

Re: Star Wars: The Last Jedi - SPOILER !

Sent: Lau 16. Des 2017 19:00
af HalistaX
Ég er ekkett ástfanginn sko, veðrur hún betri eftir hlé rða?

Þessi appelsínuguli cum dumpster er samr alveg beyond böggandi. Það má segja að "Maz" hafi eyðilaggt myndina fyrir mér!

Ég er bara ekki að detta inní þetta, kannski því ég er ekki á sýru eins og hinir 3 sem ég fór með.... ÞAÐ væri hellað!!!

Re: Star Wars: The Last Jedi - SPOILER !

Sent: Lau 16. Des 2017 20:17
af agnarkb
Ekki ertu að segja mér að þú sért að leika þér í símanum Á MEÐAN MYNDIN ER Í GANGI?!

Re: Star Wars: The Last Jedi - SPOILER !

Sent: Sun 17. Des 2017 02:35
af HalistaX
agnarkb skrifaði:Ekki ertu að segja mér að þú sért að leika þér í símanum Á MEÐAN MYNDIN ER Í GANGI?!

Hahahahahahahahaha FEITANN!

Sorry með mig samt... Ég var bara ekki að digga þetta shit.

Fór 2014 í hellað geðrof inní bíósal og síðan þá hefur bíó bara verið "out of my comfort zone"... Var bara boðið í bíó og sagði: "Já, fuck it, why not?" þvi ég hélt ég væri kominn yfir þetta 2014 dæmi... En svo var víst ekki og síminn var það eina sem comfort'aði mig...

Sorrymemmig... Special needs kid here... ](*,)

Re: Star Wars: The Last Jedi - SPOILER !

Sent: Fös 22. Des 2017 00:40
af appel
Þetta var ekki nægilega góð mynd.

Hún átti ekki mörg sérstök moment.

Mér fannst fyrri myndin, force awakens, skárri, harrison ford bar þá mynd á herðum sér.

Núna sér maður afhverju hinir leikararnir fengu aldrei nein önnur hlutverk framar, þeir bera ekki neitt.

Aukaleikararnir vita ekkert hvað þeir eru að gera.

Svo hin nýja aðalkarakterinn, er svolítið bara einsog munaðarlaust barn ýkt pirruð út í heiminn.

Re: Star Wars: The Last Jedi - SPOILER !

Sent: Fös 22. Des 2017 00:59
af emil40
þetta var fín ræma.

Re: Star Wars: The Last Jedi - SPOILER !

Sent: Fös 22. Des 2017 12:40
af Minuz1
Fannst hún bara allt í lagi.
Er miklu meira hrifinn af rebels teiknimyndunum og star wars bókunum(búinn með um 40 bækur)

Re: Star Wars: The Last Jedi - SPOILER !

Sent: Fös 22. Des 2017 20:39
af Viktor
Er ekki mikið star wars fan en fannst þessi mynd frekar fín bara. Ekkert leiðinleg, engin stórmynd samt.

Re: Star Wars: The Last Jedi - SPOILER !

Sent: Lau 23. Des 2017 00:29
af g0tlife

Re: Star Wars: The Last Jedi - SPOILER !

Sent: Sun 24. Des 2017 10:26
af Gislinn
Nokkrar pælingar sem fóru í gegnum hugann hjá mér þegar ég horfði á þetta var m.a.:
- Er þyngdarafl í geiminum í sprengjuflauga atriðinu í byrjun? (sprengjurnar detta og starfsfólkið líka). Er í alvöru besta hönnunin sú að vera með 1 takka á einhverri fjarstýringu til að sleppa sprengjunum?
- Þegar kellan ákveður að vera eftir í cruisernum til að stýra eftir að allir flýja, er í alvöru ekki hægt að setja bara á sjálfstýringu?
- Þar sem þau eru í geimnum þá ættu eldsneytislausu skipin ekki að hægja á sér, það var bara virkilega stupid. Þar sem cruiserinn var að ferðast aðeins hraðar en skipið hans Snoke, þá hefði verið skynsamlegast að gefa bara í botn í smástund og geyma svo restina af eldsneytinu því skipið ætti ekki að hægja á sér þar sem það er engin mótstaða í geiminum.
- Afhverju fórnuðu þeir öllum þessum flaugum í byrjun ef þeir hefðu bara getað hyperdrive-að í gegnum skipið hvort sem er.

Þetta er bara eðlisfræðivillurnar í þessari mynd, það er svo margt til viðbótar sem er enn verra. Shit hvað þetta var léleg mynd.

Re: Star Wars: The Last Jedi - SPOILER !

Sent: Sun 24. Des 2017 14:05
af GuðjónR
Strákar og stelpur, ég get stytt þennan þráð í eina setningu;
"Fór í bíó í gær að sjá Star Wars og skemmti mér ekkert, hún var svo óraunveruleg".

Ps.
....ekki búast við reality show þegar þið farið á Star Wars eða aðrar SiFi myndir. :happy

Re: Star Wars: The Last Jedi - SPOILER !

Sent: Sun 24. Des 2017 17:15
af Nariur
Gott SciFi byggist á því að maður kaupir nokkur frávik frá reglum raunveruleikans og heimurinn heldur sig svo við þær.

Re: Star Wars: The Last Jedi - SPOILER !

Sent: Sun 24. Des 2017 22:36
af Henjo
Gislinn skrifaði:Nokkrar pælingar sem fóru í gegnum hugann hjá mér þegar ég horfði á þetta var m.a.:
- Er þyngdarafl í geiminum í sprengjuflauga atriðinu í byrjun? (sprengjurnar detta og starfsfólkið líka). Er í alvöru besta hönnunin sú að vera með 1 takka á einhverri fjarstýringu til að sleppa sprengjunum?
- Þegar kellan ákveður að vera eftir í cruisernum til að stýra eftir að allir flýja, er í alvöru ekki hægt að setja bara á sjálfstýringu?
- Þar sem þau eru í geimnum þá ættu eldsneytislausu skipin ekki að hægja á sér, það var bara virkilega stupid. Þar sem cruiserinn var að ferðast aðeins hraðar en skipið hans Snoke, þá hefði verið skynsamlegast að gefa bara í botn í smástund og geyma svo restina af eldsneytinu því skipið ætti ekki að hægja á sér þar sem það er engin mótstaða í geiminum.
- Afhverju fórnuðu þeir öllum þessum flaugum í byrjun ef þeir hefðu bara getað hyperdrive-að í gegnum skipið hvort sem er.

Þetta er bara eðlisfræðivillurnar í þessari mynd, það er svo margt til viðbótar sem er enn verra. Shit hvað þetta var léleg mynd.

Enda er Star Wars, og hefur alltaf verið fantasía (mikið meira en nokkurn tíman Scifi eins og fólk vill oft meina)

Held að það myndi passa mjög illa við Star Wars heiminn að vera introuduca concept eins og hlutir hægja ekki á sér í geimnum blabla, og líka hvar endar þar? Er ekki líka stupid að það sé hægt að fara milli stjörnukerfa á sub-light speed hraða? Er ekki stupid að liggur við allar pláneturnar hafa nákvæmlega sömu skilyrði og jörðin (loft, þyndarafl, veðurfar.. ) Er ekki stupid að fólk getið farið á nýjar plánetur og co-existað við nýjar og mismundandi bakteríur og svona? Er ekki stupid að fólk býr yfir mætti sem leyfir þeim að hreyfa hluti án þess að snerta þá? er ekki stupid að uppreisnarhópur með nokkur tugi skipa geti átt eitthvernmöguleika á hernaðarveldi sem spannar heila vetrabraut? Er ekki stupid að...

Er nokkuð viss um að 97% að fólki átti sig ekki á að hlutir ferðast óhrindaðir í geimnum og hægja ekki á sér. Þetta er fantasía, það eru öðruvísi reglur í þessum heimi for storytelling sake. Fólk sem heldur í alvörunni að myndin væri betri ef kvikmyndagerðliðið myndi fara eftir þessum reglum veit ekki hvað það er að tala um.

Re: Star Wars: The Last Jedi - SPOILER !

Sent: Mán 25. Des 2017 15:34
af g0tlife
Henjo skrifaði:

Stór munur á milli kjánalegs SciFi og raunverulegt SciFi (Látinn halda það án efa, eins og gömlu myndirnar)

Sérð gæja á hesti hoppa yfir heila brú og skjóta 20 manns í hausinn og lenda hinum meiginn alveg okey og hesturinn hlær. Erum vön að sjá þetta

Hugsaðu svo sama atriði þar sem risaeðla er á þessum hesti. Hvort heldiru að fengi betri viðtökur áhorfenda ?

Re: Star Wars: The Last Jedi - SPOILER !

Sent: Mán 25. Des 2017 21:33
af Gislinn
Henjo skrifaði:Enda er Star Wars, og hefur alltaf verið fantasía (mikið meira en nokkurn tíman Scifi eins og fólk vill oft meina)

Held að það myndi passa mjög illa við Star Wars heiminn að vera introuduca concept eins og hlutir hægja ekki á sér í geimnum blabla, og líka hvar endar þar? Er ekki líka stupid að það sé hægt að fara milli stjörnukerfa á sub-light speed hraða? Er ekki stupid að liggur við allar pláneturnar hafa nákvæmlega sömu skilyrði og jörðin (loft, þyndarafl, veðurfar.. ) Er ekki stupid að fólk getið farið á nýjar plánetur og co-existað við nýjar og mismundandi bakteríur og svona? Er ekki stupid að fólk býr yfir mætti sem leyfir þeim að hreyfa hluti án þess að snerta þá? er ekki stupid að uppreisnarhópur með nokkur tugi skipa geti átt eitthvernmöguleika á hernaðarveldi sem spannar heila vetrabraut? Er ekki stupid að...

Er nokkuð viss um að 97% að fólki átti sig ekki á að hlutir ferðast óhrindaðir í geimnum og hægja ekki á sér. Þetta er fantasía, það eru öðruvísi reglur í þessum heimi for storytelling sake. Fólk sem heldur í alvörunni að myndin væri betri ef kvikmyndagerðliðið myndi fara eftir þessum reglum veit ekki hvað það er að tala um.

Engin að biðja um að allt sé 100% raunverulegt í Star Wars, það er samt takmarkað hversu stupid hlutirnir geta orðið fyrir minn smekk. Ég held því ekki fram að myndin væri betri með þessum atriðum inni, í raun held ég að hún væri sennilegast lélegri, allavega meira boring. Handritið er gallað í upphafi þar sem það byggir á þessum fáranlegu villum.

Re: Star Wars: The Last Jedi - SPOILER !

Sent: Þri 26. Des 2017 17:05
af svanur08
Fannst myndin 100 sinnum betri en ég átti von á, Luke var svo cool í myndinni. :happy

Re: Star Wars: The Last Jedi - SPOILER !

Sent: Þri 26. Des 2017 17:22
af Hjaltiatla
Mynd