NOVA kaupir Símafélagið

Allt utan efnis
Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16269
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1992
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

NOVA kaupir Símafélagið

Pósturaf GuðjónR » Fös 01. Des 2017 13:26

Fékk eftirfarandi tölvupóst áðan frá NOVA:

Kæri viðskiptavinur,
Nova og Símafélagið hafa komist að samkomulagi um kaup Nova á Símafélaginu. Kaupin eru meðal annars gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins.
Hjá Símafélaginu starfa 19 starfsmenn sem hafa víðtaæka og sérhæfða þekkingu á sviði fjarskipta. Með sameinginu félaganna getur Nova boðið alla fjarskiptaþjónustu til fyrirtækja.
Við hlökkum til að kynna fyrir ykkur nýtt og öflugra fyrirtækjasvið og þjónustuframboð á nýjur ári.

Í dag fögnum við X (tíu) ára afmæli Nova. Við höfum átt góð og skemmtileg 10 ár á stærsta skemmtistað í heimi! Við höfum í gegnum árin fagnað fjölmörgum áföngum og sigrum en þá ber hæst að nefna að hafa náð þeim áfanga að verða stærsta farsímafyrirtækið á Íslandi. Stoltust erum við þó af því að hafa átt ánægðustu viðskiptavinina í farsímaþjónustu s.l 9 ár.

Í dag bjóðum við frábær afmælistilboð í öllum verslunum Nova og á nova.is, afslátt af farsímum og snjöllum jólagjöfum, endilega kíktu til okkar.

Ég vil nota tækifærið og þakka þér og þínu fyrirtæki fyrir samfylgdina, takk fyrir að vera í Nova.

Kær kveðja,
Liv

Kær kveðja / Best regards

Liv Bergþórsdóttir
Forstjóri




Hizzman
Geek
Póstar: 800
Skráði sig: Fös 22. Apr 2016 18:48
Reputation: 136
Staða: Ótengdur

Re: NOVA kaupir Símafélagið

Pósturaf Hizzman » Fös 01. Des 2017 15:03

hverjir eru eigendur Símafélagsins? Hefur eitthvað verið hvíslað um verð?



Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16269
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1992
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: NOVA kaupir Símafélagið

Pósturaf GuðjónR » Fös 01. Des 2017 15:13

Hizzman skrifaði:hverjir eru eigendur Símafélagsins? Hefur eitthvað verið hvíslað um verð?

Ekkert heyrt, en þetta er enn ein samþjöppunin á Íslenskum markaði.



Skjámynd

worghal
Kóngur
Póstar: 6300
Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
Reputation: 442
Staðsetning: fyrir aftan þig
Staða: Ótengdur

Re: NOVA kaupir Símafélagið

Pósturaf worghal » Fös 01. Des 2017 16:06

bara svo lengi sem hringdu verði ekki keypt af einum af þessum risum.


CPU: Intel Core i7 12700KF MB: Gigabyte Z690 Gaming X GPU: EVGA RTX 3080 FTW3 ULTRA 12Gb RAM: Corsair Vengeance RGB Pro 2x16Gb 3600Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Topping DX7s - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Corsair 4000D Airflow

Skjámynd

zedro
Stjórnandi
Póstar: 2766
Skráði sig: Fös 29. Okt 2004 21:29
Reputation: 123
Staðsetning: FL410
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: NOVA kaupir Símafélagið

Pósturaf zedro » Fös 01. Des 2017 20:15

Fékk þennan póst í dag!

Í dag, föstudaginn 1. desember, renna saman tvö öflug fyrirtæki á fjarskipta- og fjölmiðlamarkaði, Vodafone og 365. Saman mynda þau eitt öflugt fyrirtæki sem mun kappkosta að bjóða viðskiptavinum sínum fjölbreytt framboð vöru og þjónustu á sem bestum kjörum. Við ætlum að vanda til verka við sameiningu fyrirtækjanna og mun því ekkert breytast fyrst um sinn hjá viðskiptavinum beggja félaga.

Spennandi framtíð
Við teljum að samruninn skapi margvísleg tækifæri til framtíðar og ætlar fyrirtækið að blása til nýrrar sóknar. Gera má ráð fyrir alls konar áhugaverðum nýjungum og verða viðskiptavinir upplýstir sérstaklega í hvert sinn og það verður ávallt ákvörðun viðskiptavina hvort þeir vilji nýta sér þau tilboð.

Eitt öflugasta fyrirtæki landsins á sviði fjarskipta og fjölmiðlunar
Sameinað fyrirtæki verður eitt öflugasta fyrirtæki landsins á sviði fjarskipta, fjölmiðlunar og afþreyingar. Við höfum mikinn metnað til að gera vel við okkar viðskiptavini sem verða fyrstir til að njóta ávinningsins. Við hlökkum til ferðalagsins með þér.

Framtíðin er spennandi. Ertu til?


Kísildalur.is þar sem nördin versla

Skjámynd

Lexxinn
/dev/null
Póstar: 1450
Skráði sig: Sun 22. Nóv 2009 12:26
Reputation: 163
Staðsetning: Júpíter
Staða: Ótengdur

Re: NOVA kaupir Símafélagið

Pósturaf Lexxinn » Lau 02. Des 2017 01:03

zedro skrifaði:Fékk þennan póst í dag!

...
Spennandi framtíð
Við teljum að samruninn skapi margvísleg tækifæri til framtíðar og ætlar fyrirtækið að blása til nýrrar sóknar. Gera má ráð fyrir alls konar áhugaverðum nýjungum og verða viðskiptavinir upplýstir sérstaklega í hvert sinn og það verður ávallt ákvörðun viðskiptavina hvort þeir vilji nýta sér þau tilboð.
...


Spennandi og áhugavert :-k :-k



Skjámynd

urban
Stjórnandi
Póstar: 3750
Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
Reputation: 471
Staðsetning: Undir hægra megin
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: NOVA kaupir Símafélagið

Pósturaf urban » Lau 02. Des 2017 02:01

worghal skrifaði:bara svo lengi sem hringdu verði ekki keypt af einum af þessum risum.


Er Hringdu ekki eitt af þessum risum ?


Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !

Skjámynd

HalistaX
Vaktari
Póstar: 2534
Skráði sig: Fim 01. Júl 2010 13:16
Reputation: 379
Staðsetning: 800
Staða: Ótengdur

Re: NOVA kaupir Símafélagið

Pósturaf HalistaX » Lau 02. Des 2017 02:16

Wat? Nóva að kaupa Símafélagið á meðan 365 er að sameinast Vodafuck? Hvað er í gangi? Hvað næst? RÚV og KFC eða? Shit son!

EDIT: Eða er Nóva og Símfélagið annað hvort það sama og 355 og Vodafone eða? Er þetta það sama sem við erum að tala um?

Finnst ótrúlegt að það séu tveir stórir samrunar á sama tíma....


Hvaaa, ekki er ég eini skemmtilegi gaurinn hérna inná??? Heyrðu, nei! Ég fann annan! Meikiði að tala um eh tölvudrasl frekar? Mig langar meira að spá í því akkúrat núna.
Edrú síðan 4. Apríl 2021 - Still a Joker, even tho I'm sober...

Skjámynd

g0tlife
1+1=10
Póstar: 1166
Skráði sig: Mán 05. Nóv 2007 15:57
Reputation: 155
Staðsetning: Sit í fanginu hans Guðjóns
Staða: Ótengdur

Re: NOVA kaupir Símafélagið

Pósturaf g0tlife » Lau 02. Des 2017 02:46

HalistaX skrifaði:Wat? Nóva að kaupa Símafélagið á meðan 365 er að sameinast Vodafuck? Hvað er í gangi? Hvað næst? RÚV og KFC eða? Shit son!

EDIT: Eða er Nóva og Símfélagið annað hvort það sama og 355 og Vodafone eða? Er þetta það sama sem við erum að tala um?

Finnst ótrúlegt að það séu tveir stórir samrunar á sama tíma....



Það var reyndar vitað fyrir 2 mánuðum að 355 og Vodafone myndu sameinast.


Intel i9-10900KF // Nvidia RTX 3080 // 2x 1TB M.2 // 1TB Samsung 860 Evo // G.Skill 32GB Ripjaws V 3600MHz // ASRock Z490 Extreme4 // Samsung Odyssey G7 32''

My CPU's Hot But My Core Runs Cold

Skjámynd

HalistaX
Vaktari
Póstar: 2534
Skráði sig: Fim 01. Júl 2010 13:16
Reputation: 379
Staðsetning: 800
Staða: Ótengdur

Re: NOVA kaupir Símafélagið

Pósturaf HalistaX » Lau 02. Des 2017 03:01

g0tlife skrifaði:
HalistaX skrifaði:Wat? Nóva að kaupa Símafélagið á meðan 365 er að sameinast Vodafuck? Hvað er í gangi? Hvað næst? RÚV og KFC eða? Shit son!

EDIT: Eða er Nóva og Símfélagið annað hvort það sama og 355 og Vodafone eða? Er þetta það sama sem við erum að tala um?

Finnst ótrúlegt að það séu tveir stórir samrunar á sama tíma....



Það var reyndar vitað fyrir 2 mánuðum að 355 og Vodafone myndu sameinast.

Já ókei, ég vissi það ekki, takk fyrir þessar upplýsingar! :D


Hvaaa, ekki er ég eini skemmtilegi gaurinn hérna inná??? Heyrðu, nei! Ég fann annan! Meikiði að tala um eh tölvudrasl frekar? Mig langar meira að spá í því akkúrat núna.
Edrú síðan 4. Apríl 2021 - Still a Joker, even tho I'm sober...