Hýsing á eigin server

Allt utan efnis

Höfundur
BjarkiK
Nýliði
Póstar: 3
Skráði sig: Fim 10. Ágú 2017 00:22
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Hýsing á eigin server

Pósturaf BjarkiK » Þri 21. Nóv 2017 23:16

Eftir að hafa lagt allt mitt traust á 1984 í mörg ár er allt mitt búið að vera úti í heila viku. Póstur og fullt af vefjum undir fullt af lénum. Ég virðist vera í þessum 20% sem eru enn úti og óvíst að takist að bjarga. Og þótt það gerist þá hreysti ég ekki lengur multi-cluster serverum sem maður deilir með fullt af öðrum aðilum og eru afkastalitlir eftir því. Auk þess bjóða þeir ekki upp á jafn sjálfsagðan hlut og PostgreSQL gagnagrunn. Ég hef fulla samúð með þeim en hef því miður ekki efni á samúðinni. Ég verð að yfirgefa 1984.

Ég get hæglega sett upp vefþjón, póstþjón og gagnagrunn á eigin vél. DNS má svo redda með ýmsum hætti. Ég vil eiga serverinn sjálfur, ekki deila henni með neinum og hafa einn rótaraðgang að henni. En ég vil ekki hafa hana heima. Ég vil leigja hýsingu fyrir hana hjá aðila með öfluga tengingu út í heim sem geymir serverinn í kældu rými og annast örugga afritatöku því að mín vél getur lenti í hruni eins og aðrar.

Er einhver sem veitir svona þjónustu?

Kv. Bjarki



Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3605
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: Hýsing á eigin server

Pósturaf dori » Þri 21. Nóv 2017 23:45

Ég kann ekkert á þetta en geri ráð fyrir að það sé bara spurning um að hafa samband: http://www.datacentermap.com/iceland/reykjavik/




asgeirbjarnason
Ofur-Nörd
Póstar: 273
Skráði sig: Fim 28. Apr 2016 20:17
Reputation: 70
Staða: Ótengdur

Re: Hýsing á eigin server

Pósturaf asgeirbjarnason » Mið 22. Nóv 2017 00:50

Ætli Advania og Opin Kerfi séu ekki bestir í því. Advania er með gagnaverið Thor í Hafnarfirði og Opin Kerfi eru „prefered partner“ fyrir Verne úti í Keflavík (Verne beina manni til Opinna Kerfa ef maður er lítill kúnni eða vill hýsta nettengingu, annars skaffa þeir manni bara colocation plássið en ekki nettengingu). Hef líka komið í colocation salinn hjá Símanum og salinn sem Basis voru með fyrir samrunan fyrir nokkrum árum, en þau litu talsvert minna pro út en þessi tvö gagnaver. Það eru örugglega aðrir aðilar í þessu líka en hef bara persónulega reynslu af Advania og Opnum Kerfum.




Hizzman
FanBoy
Póstar: 794
Skráði sig: Fös 22. Apr 2016 18:48
Reputation: 135
Staða: Ótengdur

Re: Hýsing á eigin server

Pósturaf Hizzman » Mið 22. Nóv 2017 14:48

Það er næstum allt í boði, ef uppsett verð er borgað.
Síminn, Vodafone og fleiri, leigja út aðstöðu í tækjasölum en það kostar slatta.
Það þarf einnig að ganga í gegnum ferli varðandi físískan aðgang. Fá kort og kóða sem opnar.
Spurning hvort þeir leyfa einstaklingum sem eru ekki frá fyrirtæki að fara í salina.

Hvet þig til að gera alvöru athugun á því hvaða möguleikar eru til staðar og láta okkur vita, margir hér hafa áhuga má gera ráð fyrir.



Skjámynd

Hauxon
spjallið.is
Póstar: 405
Skráði sig: Fös 10. Júl 2009 12:32
Reputation: 119
Staða: Tengdur

Re: Hýsing á eigin server

Pósturaf Hauxon » Mið 22. Nóv 2017 15:46

Við (í Loftmyndum ehf.) höfum góða reynslu af Advania Open Cloud. Rekum 12 virtal ubuntu servera í cloud-inu hjá þeim. Bæði ódýrara en að leigja brotajárn beint og skalanlegra. Getur stækkað vélarnar, meira minni, fleiri cpu osfrv í skemmri tíma ef þú ert með einhvreja heavy vinnslu og svo skalað niður aftur þegar verkefnið er búið. Ágætis viðmót á þessu hjá þeim getur sett upp frá template (eða gert templae) eða ISO. Myndi aldrei kaupa járn aftur fyrir vefserver.



Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6773
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 934
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hýsing á eigin server

Pósturaf Viktor » Mið 22. Nóv 2017 16:30

Ég held einmitt að þetta geri það að verkum að 1984 verði lang öruggastir á Íslandi.

Það er allavega ein leið til að líta á þetta.


I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things


Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB


Hizzman
FanBoy
Póstar: 794
Skráði sig: Fös 22. Apr 2016 18:48
Reputation: 135
Staða: Ótengdur

Re: Hýsing á eigin server

Pósturaf Hizzman » Mið 22. Nóv 2017 16:36

er einhver hjá þessum?

https://www.digitalocean.com/

á smá inneign hjá þeim og ræsi stundum vél ef mig langar að prófa eitthvað eða fikta



Skjámynd

Hjaltiatla
Besserwisser
Póstar: 3090
Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
Reputation: 522
Staðsetning: ::1
Staða: Tengdur

Re: Hýsing á eigin server

Pósturaf Hjaltiatla » Mið 22. Nóv 2017 17:11

Þegar ég hafði samband beint við Verne í tölvupósti og spurja um hvað það kostaði að hýsa nokkra servera þá áframsendu þeir mig á Nýherja.

Var að spurjast fyrir um kostnað viið að hýsa 2X1U server-a og eitt 4U JBOD Storage box. Ætla ekki að gefa upp verðtilboðið sem ég fékk frá Nýherja en ég get listað nokkrum atriðum varðandi þjónustuna sem þeir veita.


Innifalið í hýsingunni er tenging við samnýtt Internet með einni löglegri IP tölu og 50GB erlendu niðurhali per tæki (alls 200GB). Einnig getum við boðið hýsta eldveggja þjónustu sem kæmi sem viðbótarþjónusta, ef þörf er á.

„Aðgangur með fylgd er veittur viðskiptavinum sem ekki eru að leigja heilan skáp á Nýherja. Slíkt aðgengi krefst eftirlits þjónustumanns Nýherja. Greitt er fyrir slíka þjónustu skv. gjaldskrá Nýherja fyrir útselda vinnu. Æskilegt er að bóka fylgd í hýsingarrými með tveggja vinnudaga fyrirvara, þegar því verður við komið.“

Varðandi nettenginguna þá er þetta samnýtt Internettenging sem við notum fyrir okkur sjálfa og viðskiptavini. Við erum tengdir með 10Gbps tengingum til þriggja fjarskiptabirgja – uplink portið sem þú færð er 1Gpbs.


Just do IT
  √

Skjámynd

emmi
Of mikill frítími
Póstar: 1876
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 10:15
Reputation: 63
Staðsetning: Reykjanesbær
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hýsing á eigin server

Pósturaf emmi » Mið 22. Nóv 2017 17:48

thordc.com. Svo myndi ég skoða líka að leigja server frá aðilum eins og online.net, hetzner.com, ovh.ie.




Höfundur
BjarkiK
Nýliði
Póstar: 3
Skráði sig: Fim 10. Ágú 2017 00:22
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Hýsing á eigin server

Pósturaf BjarkiK » Mið 22. Nóv 2017 22:49

Kannski það verði bara lendingin að vera með þetta heima á 1000Mb samabandi frá ljósleiðaranum úr því að maður hangir á fastri IP tölu meðan endabúanður er óbreyttur. Treysta því rafmagnið sé hæfilega stabílt og koma sér upp afritunarbúnaði sem lifir af áföll á servernum. Ég kaupi ekki tilboð um slices og sneiðar og hvað þetta er kallað. Ég hef verið að vinna á því sem RHÍ kallar öfluga sneið á ofurserver. Þessi helv. ofurserver er lengur að framkvæma einfaldar reikniaðgerðir en 20 ára gömul 486 tölva og ég er ekki að ýkja.
(Það er samt ekki út af RHÍ sem ég er að leita að nýjum stað. En eftir að sá mynd af stærðfærðidroppátinu í Pírataflokknum vera að fokka í hræunum hjá 1984 þá missti ég þá litlu von sem ég hafði á að endurheimta gögnin.)



Skjámynd

Hjaltiatla
Besserwisser
Póstar: 3090
Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
Reputation: 522
Staðsetning: ::1
Staða: Tengdur

Re: Hýsing á eigin server

Pósturaf Hjaltiatla » Mið 22. Nóv 2017 22:53

póstþjónn heima, það er ævintýri sem ég myndi ekki nenna sjálfur.


Just do IT
  √

Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6773
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 934
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hýsing á eigin server

Pósturaf Viktor » Fim 23. Nóv 2017 00:05

BjarkiK skrifaði:(Það er samt ekki út af RHÍ sem ég er að leita að nýjum stað. En eftir að sá mynd af stærðfærðidroppátinu í Pírataflokknum vera að fokka í hræunum hjá 1984 þá missti ég þá litlu von sem ég hafði á að endurheimta gögnin.)


Mynd


I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things


Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB


Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4168
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1301
Staða: Ótengdur

Re: Hýsing á eigin server

Pósturaf Klemmi » Fim 23. Nóv 2017 14:08

Hizzman skrifaði:er einhver hjá þessum?

https://www.digitalocean.com/

á smá inneign hjá þeim og ræsi stundum vél ef mig langar að prófa eitthvað eða fikta


Hýsi Ferðaleit.is þarna á Dropleti sem kostar $5 á mánuði, en ég átti $60 inneign. Hef ekki orðið var við neinn niðritíma nema það sem ég get sjálfum mér kennt um :)
Voru hins vegar að senda tilkynningu í gærkvöldi:
DigitalOcean skrifaði:We are currently performing an urgent software upgrade impacting a subset of FRA1 physical machines. In most scenarios, this upgrade occurs seamlessly, with no impact to Droplets, however we have identified that a very small number of upgrades require manual intervention and may result in a brief Droplet downtime.


Hef litlar áhyggjur yfir því, og þetta verð er erfitt að toppa.