Síða 1 af 1

Þegar fullvaxta fólk lætur Homer Simpson hljóma gáfulega [Facepalm]

Sent: Mið 01. Nóv 2017 15:25
af Risadvergur
Datt í hug að stofna til safnþráðar yfir afspyrnu bjánalegar athugasemdir. Einu skilyrðin eru að þau komi frá fullorðnu fólki og að það sé virkilega að meina það sem það segir. Persónur þurfa ekki að vera nafngreindar frekar en fólk vill.

X er gagn­rýn­in á þá kyn­fræðslu sem hún fékk í skóla. Sjálf varð X ólétt 18 ára en hún seg­ist að sjálf­sögðu hafa vitað hvernig börn­in yrðu til en hún vissi ekki hvað ætti sér stað í lík­ama kvenna við getnað.

„Þegar ég var í grunn­skóla og í kyn­fræðslu þá var ekk­ert farið í gegn­um það. Það var alltaf svona passaðu þig að verða ekki ólétt og notaðu smokk­inn,“ seg­ir X um kyn­fræðsluna. „Ég varð ólétt 18 ára án þess að vita hvað egg­los væri yfir höfuð. Af hverju átti ég að vita það? Þetta er ekki kennt,“ seg­ir X.


:face :face

Re: Þegar fullvaxta fólk lætur Homer Simpson hljóma gáfulega [Facepalm]

Sent: Mið 01. Nóv 2017 16:11
af slapi
Ég skil ekki pointið eða hvað er heimskulegt?
Ég vissi ekkert hvað egglos væri fyrr en konan mín varð ólétt þá ég 20ára

Re: Þegar fullvaxta fólk lætur Homer Simpson hljóma gáfulega [Facepalm]

Sent: Mið 01. Nóv 2017 16:14
af Moldvarpan
Ég held að ég verði að facepalma facepalmarann :face :face :face

Re: Þegar fullvaxta fólk lætur Homer Simpson hljóma gáfulega [Facepalm]

Sent: Mið 01. Nóv 2017 18:23
af rbe
takk takk Risadvergur.
ég er voða mikið í því að skoða og gagnrýna galla og hegðun annara en mína eign ? þessa dagana, aðallega hjá ættingum og á fés t.d
það sést í mílu fjarlægð hvernig fólki líður á fés sumir senda inn jákvætt frá eigin lífi en aðrir moka framlengja neikvæðni, rætninni úr fréttamiðlum yfir á fés.
mér vitanlega er enginn fullkominn, allra síst ég sjálfur.
ég vona að hvert einasta ummæli mitt lendi hér á vaktinni lendi á þessum þræði . á það sko skilið ?
hugsa alltof lítið áður en ég skrifa . hvatvís.
og menn sem hafa gert allt rétt leiðrétti það. verra ef þeir kynnast mér á eftir að taka mjög langan tíma ?

Re: Þegar fullvaxta fólk lætur Homer Simpson hljóma gáfulega [Facepalm]

Sent: Mið 01. Nóv 2017 19:25
af Henjo
Risadvergur skrifaði:Datt í hug að stofna til safnþráðar yfir afspyrnu bjánalegar athugasemdir. Einu skilyrðin eru að þau komi frá fullorðnu fólki og að það sé virkilega að meina það sem það segir. Persónur þurfa ekki að vera nafngreindar frekar en fólk vill.

X er gagn­rýn­in á þá kyn­fræðslu sem hún fékk í skóla. Sjálf varð X ólétt 18 ára en hún seg­ist að sjálf­sögðu hafa vitað hvernig börn­in yrðu til en hún vissi ekki hvað ætti sér stað í lík­ama kvenna við getnað.

„Þegar ég var í grunn­skóla og í kyn­fræðslu þá var ekk­ert farið í gegn­um það. Það var alltaf svona passaðu þig að verða ekki ólétt og notaðu smokk­inn,“ seg­ir X um kyn­fræðsluna. „Ég varð ólétt 18 ára án þess að vita hvað egg­los væri yfir höfuð. Af hverju átti ég að vita það? Þetta er ekki kennt,“ seg­ir X.


:face :face

Re: Þegar fullvaxta fólk lætur Homer Simpson hljóma gáfulega [Facepalm]

Sent: Fim 02. Nóv 2017 09:54
af nidur
Það eru sumir sem facepalma þegar fullorðnir liverpool fans tala um að vinna deildina. :)