Raunveruleiki Íslendinga vegna hælisleitenda

Allt utan efnis

KristinnK
Gúrú
Póstar: 552
Skráði sig: Sun 03. Apr 2011 00:28
Reputation: 74
Staða: Ótengdur

Re: Raunveruleiki Íslendinga vegna hælisleitenda

Pósturaf KristinnK » Mið 28. Feb 2018 22:40

jonfr1900 skrifaði:Útlendingar eru ekki nema 10,6% af íslensku þjóðinni. Það þýðir að 89,4% af þeim sem búa á Íslandi eru íslendingar (tölur hérna).

Þú segir ,,ekki nema", en mér finnst persónulega yfir 10 prósent vera ansi stór hluti.

Intel Core i7-4770 | 2x8GB DDR3 | 1TB Sata SSD | AMD Radeon RX 580

jonfr1900
Vaktari
Póstar: 2403
Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
Reputation: 282
Staðsetning: Ísland (Danmörk, 2024)
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Raunveruleiki Íslendinga vegna hælisleitenda

Pósturaf jonfr1900 » Mið 28. Feb 2018 23:20

KristinnK skrifaði:
jonfr1900 skrifaði:Útlendingar eru ekki nema 10,6% af íslensku þjóðinni. Það þýðir að 89,4% af þeim sem búa á Íslandi eru íslendingar (tölur hérna).

Þú segir ,,ekki nema", en mér finnst persónulega yfir 10 prósent vera ansi stór hluti.

Nei. Þetta er afskaplega fátt fólk. Þetta er álíka margir og búa í Kópavogi.

Skjámynd

DJOli
Vaktari
Póstar: 2103
Skráði sig: Fim 24. Jún 2010 01:58
Reputation: 175
Staðsetning: Heima
Staða: Ótengdur

Re: Raunveruleiki Íslendinga vegna hælisleitenda

Pósturaf DJOli » Fim 01. Mar 2018 01:46

Ég get svo svarið að ég sá einhversstaðar ritað að innflytjendur á Íslandi væru um 40.000 talsins.

i7-11700KF|64gb(2x32gb)ddr4|1060-6gb|1tb Samsung 980 Pro nvme m.2|1tb Samsung 860 Evo sata ssd|Corsair HX1200|

rbe
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 347
Skráði sig: Fös 06. Des 2013 00:11
Reputation: 73
Staða: Ótengdur

Re: Raunveruleiki Íslendinga vegna hælisleitenda

Pósturaf rbe » Fim 01. Mar 2018 02:13

er búið að þrífa i arnarholti ?

KristinnK
Gúrú
Póstar: 552
Skráði sig: Sun 03. Apr 2011 00:28
Reputation: 74
Staða: Ótengdur

Re: Raunveruleiki Íslendinga vegna hælisleitenda

Pósturaf KristinnK » Fim 01. Mar 2018 08:16

jonfr1900 skrifaði:Nei. Þetta er afskaplega fátt fólk. Þetta er álíka margir og búa í Kópavogi.

Aftur þá finnst mér það óskaplega (nánast óhugnanlega) mikið af fólki sem eru ekki Íslendingar að það sé á við alla íbúa Kópavogs.

Hafðu svo í huga að þetta eru bara þeir sem hafa erlent ríkisfang. Það eru svo örugglega jafn margir til viðbótar sem eru innflytjendur (hvort sem er af fyrstu, annarri eða þriðju kynslóð) en hafa íslenskt ríkisfang.

Intel Core i7-4770 | 2x8GB DDR3 | 1TB Sata SSD | AMD Radeon RX 580

Frussi
Tölvutryllir
Póstar: 601
Skráði sig: Lau 26. Ágú 2006 19:45
Reputation: 124
Staða: Ótengdur

Re: Raunveruleiki Íslendinga vegna hælisleitenda

Pósturaf Frussi » Fim 01. Mar 2018 08:44

Ég missi svolítið trúna á vökturum í hvert skipti sem ég opna þennan þráð :(

Ryzen 7 3700x // X470 Aorus Gaming // RTX3070 Aorus Master // 48 GB 3200MHz // 32" G5 165hz

Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16267
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1987
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: Raunveruleiki Íslendinga vegna hælisleitenda

Pósturaf GuðjónR » Fim 01. Mar 2018 12:14

jonfr1900 skrifaði:
GuðjónR skrifaði:
rapport skrifaði:Fólk sem sannarlega þarf hæli á að fá hæli en fólk sem flytur til landsins og fremur glæpi, það á að vísa því úr landi eftir að það tekur út sína refsingu.

Þó ég sé virkilega hlynntur því að innflytjendum sé gert auðveldara um vik að flytja til landsins og að við hjálpum flóttafólkií meira mæli þá þýðir það ekki að ég sé á móti því að það séu settar strangar kröfur um áframhaldandi landvistarleyfi og ríkisborgararétt.

Bingo!
Þetta er akkúrat kjarni málsins! Hátt í 100% svokallaðra hælisleitenda eru ekki flóttamenn og þeir taka pláss frá þeim sem raunverulega þurfa á hjálpinni að halda!

methylman skrifaði:"Góða fólkið" er hérna ennþá hefur ekki farið neitt, kannski er það tilbúið að leggja í púkkið aftur ef Vaktin verður fyrir ófyrirleitnum árasum á tjáningarfrelsið :-)

Góður! ég sagði þetta nú bara til þess að sjá hversu margir myndu rétta upp hönd! :)
Hef ekkert fyrir mér að innbrot í Garðabæ tenginsgt hælisleitendum, finnst reyndar líklegra að það tengist glæpamönnum frá austur evrópu.

En þið eruð öll góð! Hvaða skoðun sem þið hafið á málunum. :happy

Þetta er rangt hjá þér. Þar sem skilgreiningin á flóttamanni er fest í lögum.

Þetta er reyndar rétt hjá mér:

Þegar einstaklingur sækir um hæli utan eigin ríkis er hann fyrst skilgreindur sem hælisleitandi af stjórnvöldum í viðkomandi landi. Með umsókn um hæli er viðkomandi að biðja um viðurkenningu á stöðu sinni sem flóttamaður. Ef stjórnvöld fallast á réttmæti umsóknar um hæli fær viðkomandi viðurkenningu á stöðu sinni sem flóttamaður í skilningi flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna frá 1951 og viðauka hans frá 1967. Við það öðlast hann ákveðin réttindi sem tilgreind eru í flóttamannasamningnum.

http://www.flotti.org/againstallodds/fa ... ee_IS.html

Þetta þýðir að flestir þeir sem koma hingað sem "hælisleitendur" frá öruggum löndum og fá synjun og eru sendir heim til sín aftur eru ekki flóttamenn. Það að flýja fátækt í Makedóníu gerir viðkomandi ekki að flóttamanni heldur hælisleitanda.

Ég er farinn að halda að fólk sé viljandi að rugla saman flóttamanni og hælisleitanda til þess eins að snúa út úr umræðunni, af hverju? Veit ekki.

jonfr1900
Vaktari
Póstar: 2403
Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
Reputation: 282
Staðsetning: Ísland (Danmörk, 2024)
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Raunveruleiki Íslendinga vegna hælisleitenda

Pósturaf jonfr1900 » Fim 01. Mar 2018 12:27

Vandamálið hérna er að stjórnvöld í mörgum ríkjum eru ekkert annað en glæpamenn og mundu aldrei samþykkja slíka skilgreiningu á fólki sem flýr þaðan. Síðan þegar viðkomandi er vísað til síns heimaríkis þá er sá einstaklingur einfaldlega myrtur af glæpamönnum sem oftast starfa fyrir viðkomandi ríkisstjórn. Það eru kominn nokkur slík dæmi varðandi fólk sem var vísað aftur til Afganistan frá ríkjum Evrópu á undanförnum mánuðum.

Tbot
/dev/null
Póstar: 1476
Skráði sig: Þri 01. Nóv 2011 13:42
Reputation: 304
Staðsetning: Rvk
Staða: Ótengdur

Re: Raunveruleiki Íslendinga vegna hælisleitenda

Pósturaf Tbot » Mán 11. Jún 2018 09:13

Fleiri og fleiri fréttir frá svíum.
Og þetta er meira segja kona sem er ættuð frá Tyrklandi sem bendir á þetta.

http://pressan.dv.is/pressan/2018/06/11 ... ilda-ekki/
upphafsgrein: https://www.aftonbladet.se/nyheter/samh ... -har/promo

Svo fáum við mikla spekinga eins og rapport, sem segja að þetta verði/er ekki svona hjá okkur. Því miður er þróunin svipuð hjá öllum ríkjum og stefnir öll í eina átt.

Pólitíski rétttrúnaðurinn er byrjaður að víkja í skandinavíu, en lifir því miður aðeins of góðu lífi hér enn.

Skjámynd

Hauxon
spjallið.is
Póstar: 408
Skráði sig: Fös 10. Júl 2009 12:32
Reputation: 119
Staða: Ótengdur

Re: Raunveruleiki Íslendinga vegna hælisleitenda

Pósturaf Hauxon » Mán 11. Jún 2018 09:52

Tbot skrifaði:Fleiri og fleiri fréttir frá svíum.

Ertu með einhver sérstök hverfi í huga? Músliminn í Melahverfinu sást víst um daginn að banka rykið af teppinu sínu. Þá sáust múslimar á KFC í Mosó um daginn, þeir keyptu ekki kokteilsósu. Einn brúnn maður sást bóna 2002 módel af Benz við Arnarbakka, líklega múslimi.

Svakalegt ástand og ekki spurning um að við þurfum að bregðast HART við!

Tbot
/dev/null
Póstar: 1476
Skráði sig: Þri 01. Nóv 2011 13:42
Reputation: 304
Staðsetning: Rvk
Staða: Ótengdur

Re: Raunveruleiki Íslendinga vegna hælisleitenda

Pósturaf Tbot » Mán 11. Jún 2018 10:14

Hauxon skrifaði:

Spurning hvort þetta er grín eða hæðni.

Hvort heldur sem er, þá er þetta dæmigert viðmót þar sem ekki á að ræða hlutina, heldur reyna að láta þá hverfa -> pólitísk rétthugsun.

Því miður er þetta sem er að gerast í Svíþjóð enn eitt dæmið um stjórnlausan innflutning á fólki, engin samlögun að lögum og reglum þess lands.

Fyrst allt var svona vont í landinu sem þau koma frá, hvers vegna að koma á þeim sömu reglum og venjum sem viðkomandi var að "flýja frá".

Stóra spurningin sem Hauxon og aðrir rétttrúnaðar aðilar, hafa ekki og munu ekki geta svarað.

Skjámynd

Hauxon
spjallið.is
Póstar: 408
Skráði sig: Fös 10. Júl 2009 12:32
Reputation: 119
Staða: Ótengdur

Re: Raunveruleiki Íslendinga vegna hælisleitenda

Pósturaf Hauxon » Mán 11. Jún 2018 11:17

Þetta var bæði grín og hæðni.

Það er bara svo langur vegur á milli Svíþjóðar og Íslands. Þar erum við að tala um vandamál sem hafa verið að byggjast upp í áratugi þar sem svíar (og aðrar norðurlandaþjóðir) hafa verið mun duglegri að taka við flóttamönnum en við hér heima og ekki alltaf tekist nógu vel upp með aðlögun. Alveg sjálfsagt að horfa á og læra en engin ástæða til að búa til einhver vandamál. Öndum með nefinu segi ég bara. ;)

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7058
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1004
Staða: Tengdur

Re: Raunveruleiki Íslendinga vegna hælisleitenda

Pósturaf rapport » Mán 11. Jún 2018 16:42

:guy

If I could be a Superhero,
I'd be Immigration Dude
I'd send all the foreigners back to their homes
For eating up all of our food
For taking our welfare and best jobs to boot
Like landscaping, dishwashing, picking our fruit
I'd pass lots of laws to get rid of their brood
Because I would be Immigration Dude

https://www.youtube.com/watch?v=0skVXv-FVZw

Tbot
/dev/null
Póstar: 1476
Skráði sig: Þri 01. Nóv 2011 13:42
Reputation: 304
Staðsetning: Rvk
Staða: Ótengdur

Re: Raunveruleiki Íslendinga vegna hælisleitenda

Pósturaf Tbot » Þri 16. Okt 2018 10:17

Jæja, hvað var að koma upp úr kafinu.

Reykjanesbær fær 7.500 kr á dag fyrir hvern "hælisleitanda" og 11,5 milljóna eingreiðslu vegna sama einstaklings.
Þá er hægt að reikna beinan kostnað sem leggst á ríkið, fyrir utan annað sem leggst til.

Svo þvaðrið í rapport og hans fylgifiskum að hælisleitendur kosti ekkert fellur um sjálft sig.

Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4170
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1303
Staða: Ótengdur

Re: Raunveruleiki Íslendinga vegna hælisleitenda

Pósturaf Klemmi » Þri 16. Okt 2018 10:42

Tbot skrifaði:Svo þvaðrið í rapport og hans fylgifiskum að hælisleitendur kosti ekkert fellur um sjálft sig.

Hvað heldurðu að þú skapir mikið af tekjum fyrir ríkissjóð og sveitarfélög með öllum þínum skatttekjum í gegnum ævina?

Hverfur sá peningur bara í eitthvað svarthol hjá fyrrverandi hælisleitendum, ef þeir fá möguleikann á því að vinna fyrir sér og sínum?

netkaffi
</Snillingur>
Póstar: 1007
Skráði sig: Þri 25. Apr 2017 17:21
Reputation: 78
Staða: Ótengdur

Re: Raunveruleiki Íslendinga vegna hælisleitenda

Pósturaf netkaffi » Þri 16. Okt 2018 10:57

nidur skrifaði:En þegar sirka 15% af fólki í landinu (fólk af erlendum uppruna) er að lenda jafn oft í fréttum og 85% þá má alveg tala um það og kannski finna ástæðu þess.

Nelgt.

Tbot
/dev/null
Póstar: 1476
Skráði sig: Þri 01. Nóv 2011 13:42
Reputation: 304
Staðsetning: Rvk
Staða: Ótengdur

Re: Raunveruleiki Íslendinga vegna hælisleitenda

Pósturaf Tbot » Þri 16. Okt 2018 11:03

Klemmi skrifaði:
Tbot skrifaði:Svo þvaðrið í rapport og hans fylgifiskum að hælisleitendur kosti ekkert fellur um sjálft sig.

Hvað heldurðu að þú skapir mikið af tekjum fyrir ríkissjóð og sveitarfélög með öllum þínum skatttekjum í gegnum ævina?

Hverfur sá peningur bara í eitthvað svarthol hjá fyrrverandi hælisleitendum, ef þeir fá möguleikann á því að vinna fyrir sér og sínum?

Þeir tekjur eru meiri en margann grunar, því fyrirtækið sem þú vinnur hjá er líka skattlagt.
Þú hugsar bara um skattinn sem er tekinn beint af þínum launum, en öll vara og þjónusta er með ýmis gjöld sem fara til ríkis og sveitarfélaga. Síðan eru fyrirtækin sem þú kaupir vöruna hjá líka skattlögð.
s.s. vsk, tollar og olíugjald.
Svo niðurstaðan er trúlega 50-60% af launum fara til ríkis og sveitarfélaga, jafnvel hærra.

Því miður já.

Blákaldur raunveruleiki norðurlandanna er sá að atvinnuþáttaka innflytjenda er um 50% eða undir.

Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4170
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1303
Staða: Ótengdur

Re: Raunveruleiki Íslendinga vegna hælisleitenda

Pósturaf Klemmi » Þri 16. Okt 2018 11:35

Tbot skrifaði:Þeir tekjur eru meiri en margann grunar, því fyrirtækið sem þú vinnur hjá er líka skattlagt.

Þannig að meirihlutinn af laununum skila sér á endanum til ríkis og sveitafélaga.
Blákaldur raunveruleikinn er sú að atvinnuþátttaka innflytjenda 2017 í ríkjum Evrópusambandsins var 67%, en 73% hjá innfæddum.
Heimild

Þetta er vissulega mjög einfölduð tölfræði, en ég get ekki séð í fljótu bragði hvernig innflytjendur eru að kosta okkur pening. Innflytjendur ERU íslenski hagvöxturinn.

Tbot
/dev/null
Póstar: 1476
Skráði sig: Þri 01. Nóv 2011 13:42
Reputation: 304
Staðsetning: Rvk
Staða: Ótengdur

Re: Raunveruleiki Íslendinga vegna hælisleitenda

Pósturaf Tbot » Þri 16. Okt 2018 15:00

Það er ansi mikill munur á því hvort verið er að tala um hælisleitendur eða innflytjendur t.d. frá USa, GB eða DK.

"ég get ekki séð í fljótu bragði hvernig innflytjendur eru að kosta okkur pening"

Mikið hlýtur þinn atvinnurekandi að vera ánægður að geta borgað þér í "peanuts" því þú berð illa skynbragð á peninga

Á einu ári fær Reykjanesbær frá ríkinu nærri 15 milljónir fyrir hvern "hælisleitanda". Þetta er peningur beint úr ríkiskassanum sem fer þá ekki í heilbrigðiskerfið. Þannig að þetta er beinn kostnaður fyrir skattgreiðendur.

Vona að þú vitir að skattgreiðendur eru almenningur og fyrirtæki þessa lands.

Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4170
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1303
Staða: Ótengdur

Re: Raunveruleiki Íslendinga vegna hælisleitenda

Pósturaf Klemmi » Þri 16. Okt 2018 15:12

Tbot skrifaði:Það er ansi mikill munur á því hvort verið er að tala um hælisleitendur eða innflytjendur t.d. frá USa, GB eða DK.

Það ert þú sem að talar um innflytjendur og hælisleitendur í sömu málsgreinunum, og staðhæfir um tölfræðilegar staðreyndir án nokkura heimilda.

Tbot skrifaði:"ég get ekki séð í fljótu bragði hvernig innflytjendur eru að kosta okkur pening"

Á einu ári fær Reykjanesbær frá ríkinu nærri 15 milljónir fyrir hvern "hælisleitanda". Þetta er peningur beint úr ríkiskassanum sem fer þá ekki í heilbrigðiskerfið. Þannig að þetta er beinn kostnaður fyrir skattgreiðendur.

Vona að þú vitir að skattgreiðendur eru almenningur og fyrirtæki þessa lands.

Hefðbundinn innflytjandi kemur hingað til að vinna, og byrjar því almennt strax að greiða fyrir sig sjálfur.

Hælisleitendur kosta okkur peninga til að byrja með, en það gera börn líka. Hins vegar ætti það ekki að taka nema í mesta lagi nokkur ár að gera hælisleitanda að virkum og skattgreiðandi þjóðfélagsþegn, á meðan það tekur almennt 20+ ár fyrir börn.

Þessir einstaklingar, ef rétt er haldið á spöðunum, verða einmitt skattgreiðendur þessa lands.

Einnig er skv. tölunum sem þú settir fram áðan er þetta nær 14 milljónum en 15 milljónum, og það á bara við um fyrsta árið, þar sem um eingreiðslu er að ræða. Svo ég vitni áfram í þínar tölur, þá ættu árin á eftir að vera nær 2,7 milljónum.

Tbot skrifaði:Mikið hlýtur þinn atvinnurekandi að vera ánægður að geta borgað þér í "peanuts" því þú berð illa skynbragð á peninga

Já þú þekkir mig svo vel, ég hef enga tilfinningu fyrir peningum, kann ekki að fara með þá og er á hræðilegum launum :cry:

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7058
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1004
Staða: Tengdur

Re: Raunveruleiki Íslendinga vegna hælisleitenda

Pósturaf rapport » Þri 16. Okt 2018 16:28

Hvað hafa hælisleitendur stofnað mörg fyrirtæki og skapað tækifæri fyrir Íslendinga til að vinna og/eða aðra hælisleitendur/innflytjendur?

Fyrir utan það auðvitað að auðga íslenska menningu?

- Byggingageirinn
- Pósturinn
- Mandi
- Ali Baba
- Geo Silica
- Vöruhús Eimskipa/Samskipa/Bakkinn
- Landspítalinn, umönnun og ýmislegt

Held að fólk átti sig ekki á hvað við þurfum mikið á þessu fólki að halda.

Skjámynd

worghal
Kóngur
Póstar: 6298
Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
Reputation: 440
Staðsetning: fyrir aftan þig
Staða: Ótengdur

Re: Raunveruleiki Íslendinga vegna hælisleitenda

Pósturaf worghal » Þri 16. Okt 2018 18:55

rapport skrifaði:Hvað hafa hælisleitendur stofnað mörg fyrirtæki og skapað tækifæri fyrir Íslendinga til að vinna og/eða aðra hælisleitendur/innflytjendur?

Fyrir utan það auðvitað að auðga íslenska menningu?

- Byggingageirinn
- Pósturinn
- Mandi
- Ali Baba
- Geo Silica
- Vöruhús Eimskipa/Samskipa/Bakkinn
- Landspítalinn, umönnun og ýmislegt

Held að fólk átti sig ekki á hvað við þurfum mikið á þessu fólki að halda.

Mandi er guðsgjöf!
Hressir gæjar með geggjaðann mat! :D

CPU: Intel Core i7 12700KF MB: Gigabyte Z690 Gaming X GPU: EVGA RTX 3080 FTW3 ULTRA 12Gb RAM: Corsair Vengeance RGB Pro 2x16Gb 3600Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Topping DX7s - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Corsair 4000D Airflow

Tbot
/dev/null
Póstar: 1476
Skráði sig: Þri 01. Nóv 2011 13:42
Reputation: 304
Staðsetning: Rvk
Staða: Ótengdur

Re: Raunveruleiki Íslendinga vegna hælisleitenda

Pósturaf Tbot » Lau 24. Nóv 2018 00:52

Góð grein í jyllans posten, og ótrúlegt en satt ekki eftir innfæddan Dana. Nú verður erfitt fyrir PC liðið, en látum sjá.

https://jyllands-posten.dk/debat/kronik ... gge-syrien
Fahmy Almajid
forfatter og tidl. integrationskonsulent og tolk, Rødovre

Hizzman
FanBoy
Póstar: 798
Skráði sig: Fös 22. Apr 2016 18:48
Reputation: 136
Staða: Ótengdur

Re: Raunveruleiki Íslendinga vegna hælisleitenda

Pósturaf Hizzman » Lau 24. Nóv 2018 20:20

Tbot skrifaði:Góð grein í jyllans posten, og ótrúlegt en satt ekki eftir innfæddan Dana. Nú verður erfitt fyrir PC liðið, en látum sjá.

https://jyllands-posten.dk/debat/kronik ... gge-syrien
Fahmy Almajid
forfatter og tidl. integrationskonsulent og tolk, Rødovre

http://www.fahmy.dk/

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7058
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1004
Staða: Tengdur

Re: Raunveruleiki Íslendinga vegna hælisleitenda

Pósturaf rapport » Þri 27. Jún 2023 09:55

Úr öðrum þræði sem ég vil ekki stela í þessa umræðu.

Tbot skrifaði:
rapport skrifaði:
Tbot skrifaði:
rapport skrifaði:5 manns sem köfuðu sér til ánægju og yndisauka og þekktu áhættuna... floti björgunarskipa.

Skip með hundruðir flóttamanna að flýja stríð og reyna að öðlast betra líf... hundsað algjörlega.

Skammarlegt, vægast sagt.

Flýja stríð, hvaða stríð?
Síðast þegar ég vissi þá var stríð í Frakklandi 1940-45.
Þannig að þeir sem eru að reyna að komast yfir Ermasund eru ekki að flýja stríð.

https://www.ruv.is/frettir/erlent/2023- ... -sem-forst

Já... þetta var á Miðjarðarhafi ekki á Ermasundi.

Það eru búnir að farast tugir ef ekki hundruðir fólks á hverju ári við að fara yfir miðjarðarhafið og fæstir koma frá Sýrlandi.
Til að einfalda þetta þá er ekkert stríð í gangi í Sýrlandi eða Afganistan.

Til að benda einn hlut til viðbótar þá er ekkert stríð í gangi í Venesúela, þó rapport og hans vinir í úrskurðarnefnd útlendingamál haldi slíku fram.

Ástandið í Venesúela er skelfilegt og það hefur verið staðfest af yfirvöldum hér.

Gríðarlega hátt hlutfall flóttafólks frá Venesúela er komið út á vinnumarkaðinn og er bara virkilega duglegt.

Án þess að vera 100% þá held ég að í blokkinni hjá mér búi systkini frá Venesúela með aldraðri móður sinni og þvílíkur dugnaður í þeim og áræðni.

Nú þarf Ísland að fara að byggja húsnæði í stórum stíl.
Það er búið að breyta byggingareglugerð til að gera byggingar umhverfisvænni og ódýrari, t.d. leyfa umhverfisvænni steypu.

Til að við geum drifið þessa uppbyggingarþörf þá þarf að vera nægt vinnuafl í landinu og því þarf fólk inn í landið, líka fyrir ferðaþjónustuna.

Að hrekja fólk frá landinu hjálpar ekkert.