Síða 1 af 2

Bestu kaupin ykkar?

Sent: Lau 21. Okt 2017 15:30
af GullMoli
Sælir.

Hver eru bestu kaupin ykkar? Helst eitthvað raftæki en annars hvað sem er, jafnvel forrit/app/browser extension.

Eitthvað sem hefur reynst ykkur gífurlega vel, gefið ykkur ómælda ánægju, virkað betur en þið áttuð von á eða eruð bara einhverra hluta vegna virkilega ánægð/ir með.



Sjálfur myndi ég segja Bose QC35 heyrnartólin þar sem þau koma mér sífellt á óvart hvað varðar sound cancelling, bara það að hafa kveikt á þeim án tónlistar er gífurlega þægilegt.
Þar fast á eftir er iPhone'inn, þar sem hann hefur nánast komið í stað fartölvunnar minnar og er alltaf svo buttery smooth.

Hvað með ykkur? :-k

Re: Bestu kaupin ykkar?

Sent: Lau 21. Okt 2017 15:45
af einarhr
41 árs Marantz Imperial 6 hátalara sem ég fékk á 15 þúsund á bland :)
Samsung Galaxy S2 síminn minn sem ég skipti út fyrir S7 í ár
Sennheiser HD435 heyrnatól sem ég er sennilega búin að eiga í 10 ár eða meira. Fékk nýja púða og snúru í Pfaff fyrir ári og það var til á lager !
Edit: Thinpad T61 fartölva
Svo fullt af öðru dóti sem ég hef fengið í gjöf sem hefur enst mér í gengum lífið eins og td
Mitchell Veiðihjól, Svefnpoki ásamt gömla góða Jamo 2.1 kerfinu sem ég fékk i fermingargjöf fyrir 27 árum

Re: Bestu kaupin ykkar?

Sent: Lau 21. Okt 2017 16:36
af peturthorra
Sonos 1 hátalari unaður (það yndislegur að ég fékk mér annan), PlayStation 4 Pro, Optoma HD20 skjávarpi sem ég keypti 2010.

Re: Bestu kaupin ykkar?

Sent: Lau 21. Okt 2017 16:54
af Hjaltiatla
hp deskjet 3632 All in one prentari á 8500 kr úr Elko.

Virkar betur en ég hafði vonast. Er meira að segja að virka á Ubuntu 17.10 (driverless) en þarf reyndar að nota web broswerinn til að skanna á Ubuntu vélinni. Bæði ég og pabbi eigum svona prentara og erum báðir mjög sáttir.

Re: Bestu kaupin ykkar?

Sent: Lau 21. Okt 2017 17:09
af rbe
Electro Voice Sentry 100A Studio monitor . keyptir um 1988-89. ekki slegið feilpúst nánast í notkun á hverjum degi. (kostuðu morðfé á sínum tíma)
https://www.youtube.com/watch?v=mSVQF8Q9fo8 og hér ,
http://www.electrovoice.com/binary/Sent ... _Sheet.PDF

svo magnarinn við hátalarana Denon Pma-920 svipað gamalt stuff frá 1989 ? ekki hikstað í sömu notkun. er ekki að sjá dótið í dag endast svona ?
alveg þrusu sound úr þessu combo ?
þyrfti að fara rykhreinsa þegar ég sá inn i magnarann i þessu video ?
https://www.youtube.com/watch?v=Y7vQ73vTgjY

svo er ég með Sennheiser HD 250 það er https://pfaff.is/heyrnartol að þakka að þau eru enn í notkun. man ekki aldur á þeim.
eru á annari headfone spöng , þriðju snúru og öðrum svömpum ? voru out of "support" hjá pfaff.is fyrir svona 10árum ?
eru enn í notkun en sjaldan fékk mér auðvitað önnur í pfaff ?

Re: Bestu kaupin ykkar?

Sent: Lau 21. Okt 2017 17:14
af vesley
GullMoli skrifaði:

Sjálfur myndi ég segja Bose QC35 heyrnartólin þar sem þau koma mér sífellt á óvart hvað varðar sound cancelling, bara það að hafa kveikt á þeim án tónlistar er gífurlega þægilegt.
Þar fast á eftir er iPhone'inn, þar sem hann hefur nánast komið í stað fartölvunnar minnar og er alltaf svo buttery smooth.

Hvað með ykkur? :-k


Er sammála með Bose heyrnartólin, held þetta sé hagstæðasta fjárfesting sem ég mun hafa keypt mér enda sitja þau á hausnum á mér svo gott sem allan daginn við vinnu.

Á erfitt með að segja símann ekki vegna þess að hann sé slæmur, heldur það að ég er strax farinn að fá kláðann að kaupa nýrri kynslóðina (pixel 2)

Re: Bestu kaupin ykkar?

Sent: Lau 21. Okt 2017 17:37
af audiophile
Klipsch Promedia 2.1 tölvuhátalarar sem ég keypti árið 2002 og eru enn í fullu fjöri. Frábært sound í þeim.

Sony DAT tæki sem ég keypti 1996 og virkar fínt ennþá.

Af aðeins nýrra dóti þá gæti ég ekki verið ánægðari með Sony MDR1000X heyrnatólin mín.

Re: Bestu kaupin ykkar?

Sent: Lau 21. Okt 2017 18:00
af nidur
Bestu kaup
Íbúðin sem ég á og Hyundai Getz

Verstu kaup
HP utanáliggjandi skrifari 4x4x2x

Re: Bestu kaupin ykkar?

Sent: Lau 21. Okt 2017 18:18
af kizi86
verð að segja skjávarpinn sem ég keypti af aliexpress. 63þ hingað til landsins kominn með sendingarkostnaði og vaski.. jafn stór og geisladiskahulstur x ein tomma að þykkt. en outputar 1080 og er með innbyggðri android tölvu (sem btw supportar netflix í HD) quadcore 3gb ram 8gb storage.
besta við hann er svo að hann er með LED peru svo endalaus ending.. komin ca 2-3 ár síðan ég keypti varpann og hann er búinn að vera í notkun svona 8-20 tíma á dag, hvern einasta dag allan þennan tíma og ekkert vesen, ekkert buið að minnka birtan eða gulna eða neitt svoleiðis :)
rated 30.000 tímar á perunni svo ætti ekki að þurfa að pæla í því í bráð. kom algerlega í staðinn fyrir sjónvarp á þessu heimili, enda losuðum okkur við tellíið stuttu seinna.

Re: Bestu kaupin ykkar?

Sent: Lau 21. Okt 2017 18:39
af GuðjónR
Jura Impressa E85 eru mín bestu kaup fyrr og síðar, keypti vélina fyrir rúmum ellefu árum síðan og nota hana daglega.
Kaffið klikkar aldrei úr þessari vél, hef tekið hana með mér í sumarbústað.

Re: Bestu kaupin ykkar?

Sent: Lau 21. Okt 2017 19:05
af depill
Ja fyrir utan íbúðina er það örugglega tvennt

Saeco kaffivéln mín. Ég nota hana reyndar mest fyrir bara svarta kaffið mitt. Enn hún er ótrúlegur hittari hjá þeim vilja mjólkursull í sitt kaffi líka ( flóar og hellir því útí ).
Mynd

UniFi þráðlausa netið mitt
UniFi AP AC LR x2 ( fyrir hvora hæð )
UniFi Switch með 4x PoE
EdgeRouter Lite

Ég henti upp sama setupi hjá foreldrum mínum ( sem eru í mikið stærra en húsnæði en ég, en virkar ótrúlega vel ) og það sem er best við þetta setup er að þetta bara "virkar", remote controlled ( þannig ég get látið það uppfæra sig utan þess tíma sem það er í notkun.

Bara hvað ég hef losnað við mikinn hausverk út af eithvað virkar ekki ( yfirleitt var það endurræsing á routerum eða APs ) að allt sé rétt gengið frá ( sem ég gerði þegar ég setti þetta upp og vegghengdi ) gerir þetta svo mikið þess virði. UniFi fær 5/5 frá mér allavega :D

Re: Bestu kaupin ykkar?

Sent: Lau 21. Okt 2017 19:06
af elias14
yamaha rx v861 magnari fekk 16k
hh scott s196 hátalarar rare helt ég 40 ára fekk það frít! kemur óvart hvað þeir eru öflugir

og infinaty souround system stórir infinity mk 61.littlir infanity 11mkl . dali trio aw 10 bassabox flott i ekkta tónlist ekki þessar þvota vélar sem eru fastar i vindingu sem margir eru með i skotinu i billum sinum xD allt á 27k
:D

Re: Bestu kaupin ykkar?

Sent: Lau 21. Okt 2017 19:50
af Baldurmar
Jun-Air loftpressan mín.

Mögnuð 30 ára gömul tannlæknapressa sem fær að malla inn á vinnustofu konunnar. Fáránlega þægilegt í að þrífa tölvur og tæki.
Hljómar eins og ískkápur í þann stutta tíma sem hún er að fylla tankinn.

Re: Bestu kaupin ykkar?

Sent: Lau 21. Okt 2017 22:56
af worghal
þið sem talið um kaffivélarnar...
Ron Zacapa 23 ára eðal romm!
betra bragð fyrirfinnst ekki á þessari plánetu

Re: Bestu kaupin ykkar?

Sent: Lau 21. Okt 2017 23:24
af HalistaX
Sennheiser Game Zero heyrnatól!

15k á götuni fyrir meira en ári síðan!

Þarf ekki amp eða preamp eða whatever, þarf ekki hljóðkort og fæ samt alveg dúndur gæði! Gæði fyrir allann peninginn! :D

Re: Bestu kaupin ykkar?

Sent: Lau 21. Okt 2017 23:49
af Skari
Bose soundocka sem ég keypti í kringum 2008

Er enn að ná amk 4 tímum á rafhlöðunni eftir allan þennan tíma og soundið er frábært, plús að þetta var enn betra eftir að hafa tengt google audio við þetta

Re: Bestu kaupin ykkar?

Sent: Sun 22. Okt 2017 01:28
af jonsig
Weha skrúfjárnakit í costco :)

Re: Bestu kaupin ykkar?

Sent: Sun 22. Okt 2017 13:06
af JReykdal
Original Xbox. Keyrði XBMC í 12 ár.

Nintendo Wii. Enn í notkun eftir 11 ár.

Heimabíómagnarinn (Yamaha) er orðinn 16 ára.

Re: Bestu kaupin ykkar?

Sent: Sun 22. Okt 2017 13:13
af Hakuna
HTC Vive, aldrei skemmt mér jafn vel í tölvuleikjum :)

Re: Bestu kaupin ykkar?

Sent: Sun 22. Okt 2017 13:46
af Viggi
Segi það sama með vive. Neydist til að kapa mér nýtt tv í vor og fékk mér 55" curved samsung sjónvarp og er helvíti sáttur með það. Hélt samt að fleirri en ég hefði gaman af vive græjunni en fæ a' hafa það alveg út af fyrir mig :baby

Re: Bestu kaupin ykkar?

Sent: Sun 22. Okt 2017 14:07
af lifeformes
Onkyo A-7 einn af mögnurunum mínum, hann er jafn gamall mèr og hann ferr með mèr í gröfina.
Frábær hljómur úr honum

Re: Bestu kaupin ykkar?

Sent: Sun 22. Okt 2017 17:29
af elight82
JBL Creature II hátalarar sem ég keypti fyrir meira en 10 árum. Frábært sánd úr þessu.

Re: Bestu kaupin ykkar?

Sent: Sun 22. Okt 2017 17:46
af shawks
Sinclair Spectrum ZX 48K, keypt 1983. Lærði Basic og assembly og hef verið hooked síðan. :)

Re: Bestu kaupin ykkar?

Sent: Sun 22. Okt 2017 18:50
af urban
Ég held að bestu kaupin mín hafi verið flugmiðar.

Ferðalagið mitt í sumar og önnur ferðalög í gegnum tíðina :)

Re: Bestu kaupin ykkar?

Sent: Sun 22. Okt 2017 18:54
af kizi86
langar að nefna bestu gjöfina sem ég hef fengið, Atari 520ST með utanáliggjandi hörðum disk, tveim stýripinnum, mús og heeeeeeelling af leikjum með.

fékk hana að gjöf frá afa mínum rétt áður en hann dó. held mikið upp á þessa vél, set hana reglulega í samband og tek einn og einn leik.

var framleidd 1985 og er enn í fullu fjöri.