Síða 1 af 1
RÚV í gegnum Plex?
Sent: Þri 10. Okt 2017 00:16
af Hannesinn
Svona af því að ég á fjölskyldumeðlimi í útlöndum og þetta vandamál kristallaðist yfir leiknum í kvöld... Er einhver leið til að streyma RÚV í gegnum plex hjá mér svo að blessaðir dönsku nýbúarnir geti nú horft á landsleiki og slíkt á RÚV?
Með fyrirfram þökkum.
Re: RÚV í gegnum Plex?
Sent: Þri 10. Okt 2017 00:23
af gnarr
Hafa þau prófað að horfa á oz.com í gegnum VPN?
Re: RÚV í gegnum Plex?
Sent: Þri 10. Okt 2017 00:29
af Hannesinn
Nei, og það er um meiriháttar tæknifötlun að ræða hérna.
Re: RÚV í gegnum Plex?
Sent: Þri 10. Okt 2017 02:15
af ZiRiuS
Nú veit ég ekki hvernig þetta útlandablokk hjá þeim virkar en geta þau sett stream tenglana í VLC?
Sá þetta hérna á spjallinu allavega:
Held að 1080p sé bara stream5, ekki viss en sá linkur virkaði á fös þegar ég prófaði fyrir leikinn.
Re: RÚV í gegnum Plex?
Sent: Þri 10. Okt 2017 09:34
af russi
Já það er hægt með setja upp smá forrit sem gerir streymið að proxy og er þá tekið í gegnum IPTV-pluginið.
Hér er Proxy hlutin
https://github.com/hauxir/istvproxySvo er pluginið sem þú þarft hér:
https://github.com/Cigaras/IPTV.bundleÞegar þú skoðar Channels.json hlutan af Proxy hlutanum, þá sérðu slóðina sem verður sent útaf. Setur hana inn sem stream í IPTV hlutan og málið ætti að vera leyst. Virkar fínt hjá mér og nokkrum öðrum sem ég veit af.
Re: RÚV í gegnum Plex?
Sent: Þri 10. Okt 2017 11:25
af zetor
russi skrifaði:Já það er hægt með setja upp smá forrit sem gerir streymið að proxy og er þá tekið í gegnum IPTV-pluginið.
Hér er Proxy hlutin
https://github.com/hauxir/istvproxySvo er pluginið sem þú þarft hér:
https://github.com/Cigaras/IPTV.bundleÞegar þú skoðar Channels.json hlutan af Proxy hlutanum, þá sérðu slóðina sem verður sent útaf. Setur hana inn sem stream í IPTV hlutan og málið ætti að vera leyst. Virkar fínt hjá mér og nokkrum öðrum sem ég veit af.
Hvað þarf maður að hafa til að setja svona upp? Windows eða Linux? Til að setja svona proxy upp.
Re: RÚV í gegnum Plex?
Sent: Þri 10. Okt 2017 11:45
af russi
Þetta er Pyhon með PIP, það á að virka með Windows hef bara ekki prófað það, setti bara upp litla Virtual Vél fyrir þetta. Sumir hafa notað t.d. Raspberry Pi í þetta með fínum árangri
Re: RÚV í gegnum Plex?
Sent: Þri 10. Okt 2017 11:52
af zetor
russi skrifaði:Þetta er Pyhon með PIP, það á að virka með Windows hef bara ekki prófað það, setti bara upp litla Virtual Vél fyrir þetta. Sumir hafa notað t.d. Raspberry Pi í þetta með fínum árangri
" Virtual vél " ??? getur þú bent mér á eða sagt mér í stuttu máli hvað væri heppilegast fyrir mig að gera.
Re: RÚV í gegnum Plex?
Sent: Þri 10. Okt 2017 12:14
af russi
Fáðu þér bara VirtualBox sem er frítt, settu á það Ubuntu-vél sem er frítt og gott community í kringum og því auðvelt að fá tips(mundu að hafa netkortið á virtual-vélinni stillt sem bridge svo hún verði virk á innranetinu þínu en ekki á neti innan virtualbox-forritins)
Þegar sú vél er tilbúin, gerðu þá Clone af henni í VirtualBox, þú gerir það af því þú ert að prófa þig áfram og gætir gert villur sem er erfit að bakka útúr, með þessu þá þarftu ekki að setja þetta upp aftur, ferð bara í Clonið(mundu samt að gera clone af því áður en þú byrjar)
Finnur leiðbeiningar hvernig á setja upp Pyhon og Pip á Ubuntuvélina, ferð svo eftir leiðbeiningum á Proxy síðunni og ert þá kominn með þetta í function
Re: RÚV í gegnum Plex?
Sent: Þri 10. Okt 2017 12:15
af Moldvarpan
Nýlega búið að spurja um þetta,
https://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=18&t=69772&p=658539&hilit=r%C3%BAv#p658539Playmo virðist vera með íslenskan dns, það ætti þá að duga til að sjá rúv.
Re: RÚV í gegnum Plex?
Sent: Þri 10. Okt 2017 13:40
af Aimar
Ég var i Edingbourg i sumar og þrufti að horfa a ruv. eg setti bara upp fritt dns forrit i iphone sima, Strímaði síðan rúv appið yfir í apple tv. gekk eins og í sögu.
Re: RÚV í gegnum Plex?
Sent: Þri 10. Okt 2017 20:03
af Squinchy
Það er hægt í gegnum plex ef þú ert með kort ég vélinni sem getur tengst loftneti, nýlega bætt við plex þessi fídus
Re: RÚV í gegnum Plex?
Sent: Þri 24. Okt 2017 01:13
af ZiRiuS
Er ekki til neinstaðar playlisti fyrir IPTV.bundle með íslensku stöðunum fyrir Plex? Er búinn að reyna að dunda mér við að edita playlist.m3u fælinn en ekkert virkar hjá mér.
Re: RÚV í gegnum Plex?
Sent: Þri 24. Okt 2017 11:05
af russi
Re: RÚV í gegnum Plex?
Sent: Þri 24. Okt 2017 13:56
af hfwf
Startrek.is hef ekki séð þetta url síðan á irc í dentid

Re: RÚV í gegnum Plex?
Sent: Þri 24. Okt 2017 14:06
af russi
hfwf skrifaði:Startrek.is hef ekki séð þetta url síðan á irc í dentid

Besti irc-bot sem ég hef átt... líka sá eini

Re: RÚV í gegnum Plex?
Sent: Þri 24. Okt 2017 17:41
af ZiRiuS
Snilld, svínvirkar, get stækkað listann út frá þessu. Takk

Re: RÚV í gegnum Plex?
Sent: Þri 24. Okt 2017 19:17
af russi
Svo er auðvitað skylda, ef það eru einhverjir opnir straumar sem þú ert að nota sem eru ekki þarna að senda þá á mann

Re: RÚV í gegnum Plex?
Sent: Þri 24. Okt 2017 20:44
af ZiRiuS
Já, er búinn að renna yfir listann sem þú sendir á mig í dag og ekkert af útvarpinu virðist virka. Er búinn að vera að skoða hvort linkarnir séu up to date en þótt ég setji þá up to date (eins og t.d. X-ið (
http://wms-1.visir.is/radio/orbXid/playlist.m3u8)) að þá vill þetta ekki spila hann. Er að skoða þetta hálf veikur og það er ekki sniðugt þegar þetta er að pirra mann

En ég fer klárlega í rásarleiðangur þegar ég er betri og fer að leiðast, skal deila þeim hér

Re: RÚV í gegnum Plex?
Sent: Þri 24. Okt 2017 22:42
af russi
á hvaða platformi ertu að spila þetta?
Linkarnir virkuðu allir í VLC þegar ég fór síðast í gegnum þá, sem eru nokkrar vikur.
Það virðist stundum skipta máli hvaða client maður er að nota í Plex
edit: gerði short test, Rás1 og Rás2 virkar í Andriod og iOS, ekki í web. X-ið virkaði bara í iOS hjá mér. Sverges Radio 1 virkaði í Andriod og iOS en ekki á web.
Veit að það er búið að vera bögg á server-side í Plex varðandi IPTV í smá tíma, hvort þetta tengist því veit ég ekki.
Re: RÚV í gegnum Plex?
Sent: Þri 24. Okt 2017 22:56
af ZiRiuS
Sko ég honestly veit ekki hvaða platform ég er að nota, er með Plex í gegnum Samsung store í sjónvarpinu mínu, sem er eitt af fyrstu "smart" sjónvörpum, held ég allavega, það er ekki einu sinni wireless

. En er það beisikklí ekki bara Android kerfi? En ég hef aðallega verið að prófa tenglana í Plex í tölvunni.