Skilríki í Kringlubíó

Allt utan efnis
Skjámynd

Höfundur
Aron Flavio
Nörd
Póstar: 129
Skráði sig: Fös 01. Júl 2016 23:55
Reputation: 15
Staðsetning: 107 Rvk
Staða: Ótengdur

Skilríki í Kringlubíó

Pósturaf Aron Flavio » Sun 01. Okt 2017 12:19

Í gær ætlaði ég að fara á nýju 'It' myndina í bíó með nokkrum vinum og við afgreiðsluborðið vorum við beðin um skilríki.
Hingað til hef ég alltaf haldið það að aldurtakmörkin í bíóum á Íslandi væru frekar 'guidance' ef eitthvað og hef aldrei lent í þessu áður.

Hafiði einhverntímann þurft að nota skilríki til að fara á myndir eða er það bara eitthvað nýtt hjá Kringlunni?



Skjámynd

ChopTheDoggie
vélbúnaðarpervert
Póstar: 979
Skráði sig: Þri 15. Des 2015 01:27
Reputation: 105
Staðsetning: Höfuðborgarsvæðið
Staða: Ótengdur

Re: Skilríki í Kringlubíó

Pósturaf ChopTheDoggie » Sun 01. Okt 2017 12:32

Hef aldrei lent í þessu sjálfur, eða með vini mínum.
Gæti vert eitthvað nýtt bara?


Ryzen 7 5800X | ASRock B550M Steel Legend | Corsair 32GB (2x16) LPX 3200Mhz | RTX 3060ti | Seasonic Focus+ Gold | ATX Lancool II


Orri
Geek
Póstar: 894
Skráði sig: Fim 11. Okt 2007 17:17
Reputation: 80
Staða: Ótengdur

Re: Skilríki í Kringlubíó

Pósturaf Orri » Sun 01. Okt 2017 13:35

Ekkert nýtt, bara misvel fylgt eftir þessum reglum.

Mátt ekki fara á bannaðar myndir nema í fylgd með foreldrum/forráðamönnum.



Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6774
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 935
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Skilríki í Kringlubíó

Pósturaf Viktor » Sun 01. Okt 2017 14:04

http://www.sambio.is/Reglur

Starfsmenn kvikmyndahúsa hafa rétt á eftirfarandi:

Að óska eftir skilríkjum þess sem kaupir bíómiðann ef myndin er bönnuð börnum innan ákveðins aldurs eða til þess að staðfesta aldur ef um afslátt er að ræða.
Að neita að selja miða ef viðkomandi er undir þeim aldursmörkum sem myndin leyfir, sbr. það sem lög segja til um.
Að selja þeim ekki miða sem eru augljóslega ölvaðir, í vímu eða líklegir til að valda ónæði.
Að selja þeim ekki miða sem eru ekki nægilega vel klæddir eða ákaflega óþrifalegir og geta með því skemmt upplifun annarra gesta.
Að vísa þeim á dyr sem hafa truflað sýningar eða brotið reglur kvikmyndahússins án þess að endurgreiða þeim miðann. Við alvarlegustu aðstæður verður málum vísað til lögreglu.
Ef einhver reynir að svindla á starfsmönnum kvikmyndahússins má ógilda miðann og vísa viðkomandi úr húsinu.
Að neita að selja þeim miða sem hafa áður brotið reglur kvikmyndahússins eða reynt að svindla á starfsfólki þess á einhvern hátt.
Að leyfa hreyfihömluðu fólki í hjólastól að fylgjast með sýningum án þess að borga ef viðkomandi situr í hjólastólnum á ákveðnum stað í salnum. Sá sem fylgir viðkomandi verður að kaupa miða. ​


Lög um eftirlit með aðgangi barna að kvikmyndum og tölvuleikjum
2006 nr. 62 13. júní

https://www.althingi.is/lagas/nuna/2006062.html

2. gr. Aldursmörk og matsskylda.
Bannað er að sýna börnum undir lögræðisaldri ofbeldiskvikmyndir og -tölvuleiki, sem og kvikmyndir eða tölvuleiki sem ógna velferð þeirra. Bönnuð er sýning, sala og önnur dreifing á slíku efni til barna sem hafa ekki náð lögræðisaldri.


I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things


Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB


siggeir
Nýliði
Póstar: 24
Skráði sig: Mið 21. Ágú 2013 19:54
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Skilríki í Kringlubíó

Pósturaf siggeir » Sun 01. Okt 2017 22:14

Eina skiptið sem ég hef nokkurn tímann séð starfsmann kvikmyndahúss biðja um skilríki var í Kringlubíó. Fyrir svona 15 árum þegar við ætluðum að taka litla bróður vinar míns með á hryllingsmynd :)



Skjámynd

Danni V8
Of mikill frítími
Póstar: 1795
Skráði sig: Mán 23. Apr 2007 06:36
Reputation: 123
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Skilríki í Kringlubíó

Pósturaf Danni V8 » Mán 02. Okt 2017 01:35

Man þegar South Park myndin var frumsýnd í bíó og það varð nánast riot fyrir utan bíóið í Keflavík þegar þeir hleyptu ekki inn öllum krökkunum :p


Eða "man"... var meira svona rámar í... og þarf ekkert að vera að það var South Park bara minnir það haha


Asus ROG Strix Z390-F Gaming | Intel Core i5 9600K @ 4,7GHz | Crosshair H100i | Corsair Vengance 16GB | Asus ROG Strix RTX2060 | Corsair RM 650x