Aldi með áhuga á Íslandi

Allt utan efnis
Skjámynd

Höfundur
Hjaltiatla
Besserwisser
Póstar: 3100
Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
Reputation: 525
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Aldi með áhuga á Íslandi

Pósturaf Hjaltiatla » Sun 13. Ágú 2017 12:15

Frétt á Visir.is um málið!

Eru vaktarar með einhverja skoðun á málinu ?


Just do IT
  √

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16263
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1986
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Aldi með áhuga á Íslandi

Pósturaf GuðjónR » Sun 13. Ágú 2017 13:19

Innkoma Costco vekur heimsathygli, Hagar/Kaupás hafa komist upp okur og kúgun allt of lengi.
Bónus og Krónan eru með sömu verð á ótrúlega mörgum hlutum, yfirleitt er samt Bónus einni krónu ódýrari eins og t.d. með mjólk, rjóma, kaffirjóma, nesquik svo eitthvað sé nefnt, svona álíka og sumar bensínstöðvar eru alltaf 10-20 aurum undir þeim næsta. Kannski ekki samráð en örugglega þegjandi samkomulag.

Svo eru þessar svokölluðu lágvöruverslanir ekkert lágvöruverslanir lengur, þegar þú átt allar búðirnar frá þeim ódýustu til þeirra dýrustu og ert með megnið af innflutningi á þinni könnu líka þá er mjög auðvelt að okra á "lágvöruversluninni" þú bara hækkar þær dýru ennþá meira. Og til þess að réttlæta lága framlegð þá selurðu sjálfum þér aðföngin dýrt og heildsalan þín græðir þá bara meira meðan búðin græðir minna. Tveir vasar en sömu buxurnar.

Það væri frábært að fá Aldi hingað, ég mun ekki gráta það þó Bónus og Krónan hverfi af markaði innan einhverra X ára.



Skjámynd

Höfundur
Hjaltiatla
Besserwisser
Póstar: 3100
Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
Reputation: 525
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Aldi með áhuga á Íslandi

Pósturaf Hjaltiatla » Sun 13. Ágú 2017 13:21

GuðjónR skrifaði:Það væri frábært að fá Aldi hingað, ég mun ekki gráta það þó Bónus og Krónan hverfi af markaði innan einhverra X ára.


Ætli Aldi endi ekki líka í Garðabæ :megasmile


Just do IT
  √

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16263
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1986
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Aldi með áhuga á Íslandi

Pósturaf GuðjónR » Sun 13. Ágú 2017 13:22

Hjaltiatla skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Það væri frábært að fá Aldi hingað, ég mun ekki gráta það þó Bónus og Krónan hverfi af markaði innan einhverra X ára.


Ætli Aldi endi ekki líka í Garðabæ :megasmile

Hehehehe þá flyt ég í Garðabæinn. :)




mainman
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 369
Skráði sig: Sun 08. Jan 2006 15:40
Reputation: 64
Staða: Ótengdur

Re: Aldi með áhuga á Íslandi

Pósturaf mainman » Sun 13. Ágú 2017 16:33

Fyndna er að fyrst stóð til hjá Costco að setja upp verslunina við korputorg en hann reiðhjóla Hjálmar vildi ekki gefa þeim leyfi til að opna bensínstöð þar svo þess vegna opnuðu þeir í garðabæ.
Enn eitt frábært framtakið hjá þessum mannhálfvita.
Getið bara reynt að gera ykkur grein fyrir hvað Reykjavíkurborg verður af miklum fjármunum við þetta....



Skjámynd

Höfundur
Hjaltiatla
Besserwisser
Póstar: 3100
Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
Reputation: 525
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Aldi með áhuga á Íslandi

Pósturaf Hjaltiatla » Sun 13. Ágú 2017 16:46

mainman skrifaði:Fyndna er að fyrst stóð til hjá Costco að setja upp verslunina við korputorg en hann reiðhjóla Hjálmar vildi ekki gefa þeim leyfi til að opna bensínstöð þar svo þess vegna opnuðu þeir í garðabæ.
Enn eitt frábært framtakið hjá þessum mannhálfvita.
Getið bara reynt að gera ykkur grein fyrir hvað Reykjavíkurborg verður af miklum fjármunum við þetta....

Ef það er rétt þá fær hann eflaust ekki mörg stig frá reiðhjólagenginu, ekki einu sinni í boði að taka strætó Í Costco frá RVK (nema að labba einhverjar vegalengdir).


Just do IT
  √

Skjámynd

g0tlife
1+1=10
Póstar: 1164
Skráði sig: Mán 05. Nóv 2007 15:57
Reputation: 154
Staðsetning: Sit í fanginu hans Guðjóns
Staða: Ótengdur

Re: Aldi með áhuga á Íslandi

Pósturaf g0tlife » Mán 14. Ágú 2017 04:41

Bara góðar fréttir ! Eitt fyndið það er verið að væla yfir þessum íslenskum jarðaberjum og hvað þau seljast ekki og kenna smá costco um. Síðan þessi frétt kom hef ég farið 2x í krónuna og ekki sá ég íslensk jarðaber til sölu. Merkilegast við þetta allt að jarðaber sem eru flutt inn séu ódýrari eins og t.d. klakapoki frá Noregi var ódýrari heldur en klakapoki frá Íslandi. Þarf svo mikið að fara hræra upp í þessum markaði


Intel i9-10900KF // Nvidia RTX 3080 // 2x 1TB M.2 // 1TB Samsung 860 Evo // G.Skill 32GB Ripjaws V 3600MHz // ASRock Z490 Extreme4 // Samsung Odyssey G7 32''

My CPU's Hot But My Core Runs Cold

Skjámynd

jericho
FanBoy
Póstar: 787
Skráði sig: Mið 21. Jan 2004 14:23
Reputation: 136
Staða: Ótengdur

Re: Aldi með áhuga á Íslandi

Pósturaf jericho » Mán 14. Ágú 2017 07:15

mainman skrifaði:Fyndna er að fyrst stóð til hjá Costco að setja upp verslunina við korputorg en hann reiðhjóla Hjálmar vildi ekki gefa þeim leyfi til að opna bensínstöð þar svo þess vegna opnuðu þeir í garðabæ.
Enn eitt frábært framtakið hjá þessum mannhálfvita.
Getið bara reynt að gera ykkur grein fyrir hvað Reykjavíkurborg verður af miklum fjármunum við þetta....


Hvaða heimildir hefur þú fyrir þessu? Ég man ekki eftir að hafa lesið um þetta, en ákvað að googla aðeins og fann reyndar að umhverfis- og skipulagsráð, þar sem Hjálmar er formaður, gaf leyfi fyrir því að reisa orkusölustöð. Þetta er í hrópandi ósamræmi við það sem þú vilt meina.





5600x | DH-15 | RTX 3070 FE | MSI B550m Pro-VDH | Samsung Evo 970 1TB | Corsair LPX 2x8GB | Seasonic Prime Fanless 600W | Fractal Meshify C | Asus ROG Swift PG279Q


Televisionary
Tölvutryllir
Póstar: 657
Skráði sig: Þri 17. Feb 2009 15:26
Reputation: 109
Staða: Tengdur

Re: Aldi með áhuga á Íslandi

Pósturaf Televisionary » Mán 14. Ágú 2017 09:17

Ertu með einhverjar skriflegar heimildir sem þú getur vitnað í?
mainman skrifaði:Fyndna er að fyrst stóð til hjá Costco að setja upp verslunina við korputorg en hann reiðhjóla Hjálmar vildi ekki gefa þeim leyfi til að opna bensínstöð þar svo þess vegna opnuðu þeir í garðabæ.
Enn eitt frábært framtakið hjá þessum mannhálfvita.
Getið bara reynt að gera ykkur grein fyrir hvað Reykjavíkurborg verður af miklum fjármunum við þetta....



Skjámynd

KermitTheFrog
Kóngur
Póstar: 4273
Skráði sig: Mán 07. Júl 2008 23:32
Reputation: 67
Staða: Ótengdur

Re: Aldi með áhuga á Íslandi

Pósturaf KermitTheFrog » Mán 14. Ágú 2017 09:32

Hjaltiatla skrifaði:Ef það er rétt þá fær hann eflaust ekki mörg stig frá reiðhjólagenginu, ekki einu sinni í boði að taka strætó Í Costco frá RVK (nema að labba einhverjar vegalengdir).


Strætó 21 fer úr Mjódd og beint upp í Kauptún (innan við 200m labb frá Costco). Það eru fleiri fleiri strætóar sem ganga inn í Mjódd alls staðar úr Reykjavík.

Myndi segja að það væri alveg í boði að taka Strætó í Costco frá RVK.



Skjámynd

Höfundur
Hjaltiatla
Besserwisser
Póstar: 3100
Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
Reputation: 525
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Aldi með áhuga á Íslandi

Pósturaf Hjaltiatla » Mán 14. Ágú 2017 09:48

KermitTheFrog skrifaði:
Hjaltiatla skrifaði:Ef það er rétt þá fær hann eflaust ekki mörg stig frá reiðhjólagenginu, ekki einu sinni í boði að taka strætó Í Costco frá RVK (nema að labba einhverjar vegalengdir).


Strætó 21 fer úr Mjódd og beint upp í Kauptún (innan við 200m labb frá Costco). Það eru fleiri fleiri strætóar sem ganga inn í Mjódd alls staðar úr Reykjavík.

Myndi segja að það væri alveg í boði að taka Strætó í Costco frá RVK.



Ahhh.. ok vissi það ekki. Gat ekki flett þessu upp á straeto.is t.d þegar ég valdi Hlemm sem brottfarastað.

Gott að vita af þessu.


Just do IT
  √

Skjámynd

Pandemic
Stjórnandi
Póstar: 3755
Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
Reputation: 121
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Aldi með áhuga á Íslandi

Pósturaf Pandemic » Mán 14. Ágú 2017 10:07

mainman skrifaði:Fyndna er að fyrst stóð til hjá Costco að setja upp verslunina við korputorg en hann reiðhjóla Hjálmar vildi ekki gefa þeim leyfi til að opna bensínstöð þar svo þess vegna opnuðu þeir í garðabæ.
Enn eitt frábært framtakið hjá þessum mannhálfvita.
Getið bara reynt að gera ykkur grein fyrir hvað Reykjavíkurborg verður af miklum fjármunum við þetta....


Þetta blinda hatur á meirihluta Reykjavíkur er hálf kómískt. Costco gat valið bæði Reykjavík og Garðabæ samkvæmt fréttum. Það er frekar augljóst val að velja núverandi staðsetningu miðað við t.d Korputorg. Byggingarnar í Korputorgi eru t.d ekki hentugar starfseminni og það er meira flæði af umferð uppí Kauptún og svo gerir Ikea þetta að one-stop-shopping fyrir landsbyggðina.
Svo er líka ekkert skrítið að það séu settar takmarkanir á bensínstöðvar þegar þú finnur hvergi þéttara net af þeim í hinum þróaða heimi heldur en hér í borginni. Það eru allavegana 7 bensínstöðvar nálægt korputorgi.



Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6774
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 935
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Aldi með áhuga á Íslandi

Pósturaf Viktor » Mán 14. Ágú 2017 10:31

Pandemic skrifaði:
mainman skrifaði:Fyndna er að fyrst stóð til hjá Costco að setja upp verslunina við korputorg en hann reiðhjóla Hjálmar vildi ekki gefa þeim leyfi til að opna bensínstöð þar svo þess vegna opnuðu þeir í garðabæ.
Enn eitt frábært framtakið hjá þessum mannhálfvita.
Getið bara reynt að gera ykkur grein fyrir hvað Reykjavíkurborg verður af miklum fjármunum við þetta....


Þetta blinda hatur á meirihluta Reykjavíkur er hálf kómískt. Costco gat valið bæði Reykjavík og Garðabæ samkvæmt fréttum. Það er frekar augljóst val að velja núverandi staðsetningu miðað við t.d Korputorg. Byggingarnar í Korputorgi eru t.d ekki hentugar starfseminni og það er meira flæði af umferð uppí Kauptún og svo gerir Ikea þetta að one-stop-shopping fyrir landsbyggðina.
Svo er líka ekkert skrítið að það séu settar takmarkanir á bensínstöðvar þegar þú finnur hvergi þéttara net af þeim í hinum þróaða heimi heldur en hér í borginni. Það eru allavegana 7 bensínstöðvar nálægt korputorgi.


Eins og talað út úr mínu hjarta. Það er eins og það sé í tísku að vera á móti borgarstjórninni, fólk finnur þessu allt til foráttu og bullar bara út í loftið til að styðja við málflutning sinn.


I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things


Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB

Skjámynd

Jón Ragnar
vélbúnaðarpervert
Póstar: 975
Skráði sig: Lau 06. Des 2008 12:28
Reputation: 173
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Aldi með áhuga á Íslandi

Pósturaf Jón Ragnar » Mán 14. Ágú 2017 11:24

Málið með Korputorg, er að ÍSAM eru búnir að eigna sér það allt, Eru að bola öllu út þar.

Held að borgin hafi ekkert haft um það að segja



CCNA Collaboration
CCNA Voice
CCNA Video

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16263
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1986
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Aldi með áhuga á Íslandi

Pósturaf GuðjónR » Mán 14. Ágú 2017 11:26

Jón Ragnar skrifaði:Málið með Korputorg, er að ÍSAM eru búnir að eigna sér það allt, Eru að bola öllu út þar.

Held að borgin hafi ekkert haft um það að segja


Og þar með á að breyta þessi flotta svæði í iðnaðarhverfi.




vesley
Kóngur
Póstar: 4253
Skráði sig: Mán 08. Sep 2008 19:39
Reputation: 190
Staðsetning: við talvuna
Staða: Ótengdur

Re: Aldi með áhuga á Íslandi

Pósturaf vesley » Mán 14. Ágú 2017 12:02

Jón Ragnar skrifaði:Málið með Korputorg, er að ÍSAM eru búnir að eigna sér það allt, Eru að bola öllu út þar.

Held að borgin hafi ekkert haft um það að segja


Var ekki bónus að fara í hart varðandi það? Varðandi að forkaupsréttur á húsinu var ekki virtur.



Skjámynd

jericho
FanBoy
Póstar: 787
Skráði sig: Mið 21. Jan 2004 14:23
Reputation: 136
Staða: Ótengdur

Re: Aldi með áhuga á Íslandi

Pósturaf jericho » Mán 14. Ágú 2017 12:46

Jón Ragnar skrifaði:Málið með Korputorg, er að ÍSAM eru búnir að eigna sér það allt, Eru að bola öllu út þar.

Held að borgin hafi ekkert haft um það að segja


Kom ÍSAM ekki inn í myndina eftir að Costco hafði ákveðið að fara í Garðabæ?



5600x | DH-15 | RTX 3070 FE | MSI B550m Pro-VDH | Samsung Evo 970 1TB | Corsair LPX 2x8GB | Seasonic Prime Fanless 600W | Fractal Meshify C | Asus ROG Swift PG279Q

Skjámynd

Jón Ragnar
vélbúnaðarpervert
Póstar: 975
Skráði sig: Lau 06. Des 2008 12:28
Reputation: 173
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Aldi með áhuga á Íslandi

Pósturaf Jón Ragnar » Mán 14. Ágú 2017 12:51

jericho skrifaði:
Jón Ragnar skrifaði:Málið með Korputorg, er að ÍSAM eru búnir að eigna sér það allt, Eru að bola öllu út þar.

Held að borgin hafi ekkert haft um það að segja


Kom ÍSAM ekki inn í myndina eftir að Costco hafði ákveðið að fara í Garðabæ?



Þekki það ekki nógu vel.

Held að þetta hafi verið i gangi lengi :)



CCNA Collaboration
CCNA Voice
CCNA Video