Síða 1 af 4

Dr. Gunni ósáttur með Tölvutækni..

Sent: Lau 12. Ágú 2017 12:35
af GullMoli
Sá þetta rétt áðan:
http://nutiminn.is/dr-gunni-osattur-og- ... a-hausinn/

Tónlistarmaðurinn og neytendafrömuðurinn Gunnar Lárus Hjálmarsson, Dr. Gunni, er afar ósáttur við tölvufyrirtækið Tölvutækni og krefst þess að fá nýja fartölvu af gerðinni Lenovo Yoga frá fyrirtækinu. Hann ætlar sér að skila tölvunni milli 11 og 12 í dag í beinni útsendingu á Facebook.

Gunnar skrifaði opið bréf til fyrirtækisins sem hann birti á Facebook í gær þar sem hann rekur söguna tölvunnar og krefst úrbóta. „Ég kem því til ykkar á morgun laugardag um kl 12 með þessa ónýtu tölvu sem þið rukkuðuð 99.900 kr fyrir. Í stað hennar fæ ég samskonar tölvu að fullu uppsetta. Munu þá ekki verða fleiri eftirmálar út af þessu máli að minni hálfu,“ segir Gunnar.

"Ef þið ætlið hins vegar að vera með einhvern skæting og senda tölvuna í enn eina gagnslausa 2ja vikna yfirhalningu þá eruði jafnvel enn vitlausari en þið hafið þegar sýnt fram á að vera."

Forsaga málsins er sú að tengdapabbi Gunnars keypti umrædda Lenovo tölvu hjá Tölvutækni. Tölvan bilaði skömmu seinna og þegar hann leitaði til fyrirtækisins fékk hann slæma þjónustu að sögn Gunna sem varð til þess að hann strunsaði út og skellti hurðum.

Hann kom tölvunni til Gunnars sem hafði notað hana í eina viku þegar hún gaf upp öndina og hætti að virka. Það ætlar Gunnar ekki að sætta sig við. Hann segir þó í samtali við Nútímann að hann ætli sér ekki að vera með nein læti.

„Ég er ekki að fara að mæta og öskra og skella hurðum. Ég vil bara fá nýja tölvu. Annaðhvort verður þetta mál leyst eða þetta fyrirtæki fer á hausinn,“ segir hann.

Nútíminn mun fylgjast grannt með gangi mála í dag.



Hann fer svo uppí Tölvutækni, á laugardegi, þegar einungis einn helgarstarfsmaður er við og ætlast til þess að hann sé búinn að kynna sér málið og lesa Facebook skilaboð sem send voru á fyrirtækið á miðnætti daginn áður.

Hér má sjá þetta pínlega video: https://www.facebook.com/drgunni/videos ... 242886318/

Djöfull varð ég pirraður út í þennan mann, nýta sér "frægð" sína og taka þennan afgreiðslumann upp í beinni og nota það sem pressutól til þess að fá sínu framgengt, fussa svo yfir því að fólk sé í fríi #-o

Re: Dr. Gunni ósáttur með Tölvutækni..

Sent: Lau 12. Ágú 2017 12:43
af snakkop
Ég svo samála heldur að hann fær eitthvern forgang þessi vitleysingur

Re: Dr. Gunni ósáttur með Tölvutækni..

Sent: Lau 12. Ágú 2017 12:47
af agnarkb
Og svo ef maður kaupir sér Lenovo fartölvu, sérstaklega Yoga, þá máttu búast við veseni.

Re: Dr. Gunni ósáttur með Tölvutækni..

Sent: Lau 12. Ágú 2017 12:58
af Tish
Vá! Að doktorinn skuli leggjast á svona lágt plan. Í fyrsta lagi er tölvan send til Nýherja í viðgerð og í öðru lagi er laugardagur. Flestar tölvubúðir eru lokaðar um helgar. Mér finnst starfsmaðurinn standa sig mjög vel og ég myndi sko ekki sætta mig við það að vera tekinn upp live. Ég myndi vísa honum út ef hann myndi ekki slökkva á upptökunni.

Re: Dr. Gunni ósáttur með Tölvutækni..

Sent: Lau 12. Ágú 2017 13:01
af vesi
Er dr,gunni- að fara gefa út plötu,, Ömurlegt move.

Re: Dr. Gunni ósáttur með Tölvutækni..

Sent: Lau 12. Ágú 2017 13:04
af rapport
Ég sé ekki videoið en þarna tapaði Dr. Gunni öllum sínum rokkstigum.

Re: Dr. Gunni ósáttur með Tölvutækni..

Sent: Lau 12. Ágú 2017 13:08
af Moldvarpan
Vá hvað þetta er lame

Re: Dr. Gunni ósáttur með Tölvutækni..

Sent: Lau 12. Ágú 2017 13:19
af GuðjónR
Ég get ekki séð þennan FB link.

En maður á aldrei að vera með skæting, ég hef oft orðið pirraður út af allskonar hlutum en ég hef aldrei látið það bitna á starfsfólki fyrirtækja og aldrei misnotað Vaktina til þess að fá mínu framgengt, enda er mín reynsla sú að yfirvegun og kurteysi er miklu árangursríkari aðferð þegar maður þarf úrlausn svona mála.

Þetta nýjasta innlegg hans á FB segir eiginlega allt sem segja þarf, heldur maðurinn að Pétur sé að vakta FB síðuna hans til þess eins að hringja í hann eftir kvöldmat á laugardegi? :face

Re: Dr. Gunni ósáttur með Tölvutækni..

Sent: Lau 12. Ágú 2017 13:27
af Black
Þetta er mesta cringe sem ég hef séð.
Forsaga málsins er sú að tengdapabbi Gunnars keypti umrædda Lenovo tölvu hjá Tölvutækni. Tölvan bilaði skömmu seinna og þegar hann leitaði til fyrirtækisins fékk hann slæma þjónustu að sögn Gunna sem varð til þess að hann strunsaði út og skellti hurðum.


Þarna geri ég ráð fyrir að hann hafi farið með vélina 2mánuðum eftir að hann keypti hana og ætlast til að fá nýja í hendurnar ánþess að láta verkstæðið skoða hana og meta hvað væri að henni. "skellti hurðum" því hefur væntanlega fylgt dónaskapur og frekja.

Finnst líka lélegt að hann sé að gera lítið úr starfsmanninum " þú ert bara starfsmaður á plani" (rólegur Georg)

þvílíkur bjáni.

Re: Dr. Gunni ósáttur með Tölvutækni..

Sent: Lau 12. Ágú 2017 13:31
af GullMoli
Já videoið er ekki lengur aðgengilegt almenningi sýnist mér.

Hef sömuleiðis misst allt álit á þessum manni, fáránleg framkoma.

Re: Dr. Gunni ósáttur með Tölvutækni..

Sent: Lau 12. Ágú 2017 15:58
af chaplin
Þvílíkur bjáni.

Gaman að skoða vegginn hans, https://www.facebook.com/drgunni

Mest "lækuðu" kommentin.

Ingi: "Þú hlýtur að vera með einhvað slappt grín í gangi? Ég er orðlaus yfir þessari framkomu hjá þér Gunni."
Gunni: ekkert svar

Jón K.: "Þó tölvan sé kannski drasl þá ber honum ekki að vera í vinnunni allan sólahringinn alla daga Gunnar - stundum eiga menn frí. Eðlilegra kannski að miða viðbrögð fyritækisins við hefðbundna vinnuviku. Þetta er nú bara búð."
Gunni: ekkert svar

Hafsteinn: "Helvíti mikil tilætlunarsemi hjà þér að halda þessu uppi á laugardegi. Þú ert að breytast í freka leiðinlega neytandann sem enginn nennir að þjónusta"
Gunni: ekkert svar

Eyjo: "Þú ert í ruglinu með þetta mál doktor"
Gunni: "Uh. Nei."

Hann virðist vera alveg veruleikafirrtur.

Re: Dr. Gunni ósáttur með Tölvutækni..

Sent: Lau 12. Ágú 2017 16:56
af agnarkb

Re: Dr. Gunni ósáttur með Tölvutækni..

Sent: Lau 12. Ágú 2017 17:01
af Tish
agnarkb skrifaði:http://nutiminn.is/dr-gunni-faer-fartolvuna-endurgreidda-vonandi-verdur-thetta-til-thess-ad-thjonustan-batni/


Orðlaus. Frekjan og yfirgangurinn í þessum manni.

Re: Dr. Gunni ósáttur með Tölvutækni..

Sent: Lau 12. Ágú 2017 17:09
af chaplin
Gunnar segist í samtali við Nútímann vera sáttur við niðurstöðuna en ítrekar að hann ætli ekki að versla aftur við Tölvutækni.


Tölvutækni leysa málið með að endurgreiða tölvuna sem hann átti engan rétt á, og hann ætlar ekki að versla við þá aftur. Frekja og yfirgangur sigraði þarna, en stærsti sigur Tölvutæknis er að þurfa aldrei aftur að eiga við þennan mann, ómetanlegt?

„Vonandi verður þetta til þess að þjónustan batni, þó ég efist reyndar um það,“ segir Dr.Gunni.


Þessi maður á rosalega bágt, frekjan á sér engin takmörk.

Eftir að hafa fengið fréttirnar fór hann beinustu leið í Tölvutek og keypti sér glænýja fartölvu af gerðinni Acer.


Rip Tölvutek, Gunni mun setja ykkur á hausinn ef þegar tölvan bilar.

Re: Dr. Gunni ósáttur með Tölvutækni..

Sent: Lau 12. Ágú 2017 17:17
af Tish
Hann er allavegana búinn að sverta mannorðið sitt fyrir 99 þúsund krónur

Re: Dr. Gunni ósáttur með Tölvutækni..

Sent: Lau 12. Ágú 2017 17:27
af Squinchy
Virkilega hallærislegt

Re: Dr. Gunni ósáttur með Tölvutækni..

Sent: Lau 12. Ágú 2017 17:47
af flottur
Mér finnst þetta vera frekar einhliða frásögn frá manni sem ég er hvorki vinur, né followa ne hef áhuga á að fylgjast með.

Hvar er þetta opna bréf?
finn það hvergi.

En með svona nýjar tölvur, fara þær ekki þá beint til nýherja í viðgerð?

Re: Dr. Gunni ósáttur með Tölvutækni..

Sent: Lau 12. Ágú 2017 17:50
af rbe
þarna fór álit mitt á dr.gunna alveg á haugana

er það ekki rétt að þú átt rétt á nýrri vöru ef ekki er hægt að laga hana eftir 3ja skipti, var allavega þannig með s3 símann minn.
er ekki einhver góðhjartaður hér sem nennir að strauja þessa blessuðu tölvu hans dr.gunna með hreinu iso af win 10 ? eða linux til að sjá hvort þetta sé hardware issue ?
hann kann það pottþétt ekki , kann bara að rífa kjaft og vera með stæla.
ætli hann kunni nokkuð á tölvu yfir höfuð. þyrfti að vera til os fyrir óvita, þar sem engu er hægt að breyta (símar eru það nánast)

Re: Dr. Gunni ósáttur með Tölvutækni..

Sent: Lau 12. Ágú 2017 17:53
af flottur
rbe skrifaði:þarna fór álit mitt á dr.gunna alveg á haugana

er það ekki rétt að þú átt rétt á nýrri vöru ef ekki er hægt að laga hana eftir 3ja skipti, var allavega þannig með s3 símann minn.
er ekki einhver góðhjartaður hér sem nennir að strauja þessa blessuðu tölvu hans dr.gunna með hreiunu iso af win 10 ? eða linux til að sjá hvort þetta sé hardware issue ?
hann kann það pottþétt ekki , kann bara að rífa kjaft og vera með stæla.
ætli hann kunni nokkuð á tölvu yfir höfuð.


Átti þetta ekki að vera tengdapabbi hans sem átti þessa tölvu, miða við hvað Gunni er gamall þá hlýtur tengdapabbi hans að vera um 100 ára þannig að hann ætti bara að halda sig við desktop og horfa á RÚV.

Enn annars ferð þetta alveg helvíti mikið í taugarnar á mér að svona opinbert fífl noti "frægð" sína til að skíta út fyrirtæki.

Re: Dr. Gunni ósáttur með Tölvutækni..

Sent: Lau 12. Ágú 2017 17:57
af Moldvarpan
Fyndið að skoða svo facebook síðuna hans.

Þar kemur fram að hann er sjálfur VERSLUNARSTJÓRI í Fjallakofanum.

Og efst inná þeirri síðu er review frá kúnna;
"Ömurleg þjónusta. Keypti "Solonet" um daginn og spurði sérstaklega út í það hvort ég gæti skilað þessu og fengið peninginn aftur þar sem það væri alls ekki víst að ég þyrfti á því að halda. Svo í dag kem ég og ætla að skila þá er mér sagt að ég geti bara fengið inneignarnótu."

Þetta er nú meira fíflið.

Re: Dr. Gunni ósáttur með Tölvutækni..

Sent: Lau 12. Ágú 2017 18:02
af flottur
Moldvarpan skrifaði:Fyndið að skoða svo facebook síðuna hans.

Þar kemur fram að hann er sjálfur VERSLUNARSTJÓRI í Fjallakofanum.

Og efst inná þeirri síðu er review frá kúnna;
"Ömurleg þjónusta. Keypti "Solonet" um daginn og spurði sérstaklega út í það hvort ég gæti skilað þessu og fengið peninginn aftur þar sem það væri alls ekki víst að ég þyrfti á því að halda. Svo í dag kem ég og ætla að skila þá er mér sagt að ég geti bara fengið inneignarnótu."

Þetta er nú meira fíflið.


Eins og ég segi, ég væri til í að fá frásögn einhverja frá tölvutækni áður en ég dæmi um svona mál.

Re: Dr. Gunni ósáttur með Tölvutækni..

Sent: Lau 12. Ágú 2017 18:35
af Moldvarpan
Hagar þú þér svona í búðum flottur?

Re: Dr. Gunni ósáttur með Tölvutækni..

Sent: Lau 12. Ágú 2017 19:08
af beggi90
Gat ekki séð neinar upplýsingar varðandi hvernig tölvan átti að vera biluð/ónýt í skrifum hans né afhverju hann átti rétt á nýrri annað en:

Dr Gunni skrifaði: Ef þið ætlið hins vegar að vera með einhvern skæting og senda tölvuna í enn eina gagnslausa 2ja vikna yfirhalningu þá eruði jafnvel enn vitlausari en þið hafið þegar sýnt fram á að vera.


Hve margar gagnslausar yfirhalningar hafa verið?
Hvernig var bilanalýsing kúnna?

Dr Gunni skrifaði:...Hann kom tölvunni til Gunnars sem hafði notað hana í eina viku þegar hún gaf upp öndina og hætti að virka.

Langar rosalega að vita hvað þetta þýðir hjá honum, hæg eða neitar að kveikja á sér?
Ég skil þetta sem hún kveiki ekki á sér, get ekki trúað að það sé erfitt á fá slíkt ábyrgðarmál í gegn.
En hvaða tæknimaður hefur ekki fengið stórfurðulega og kolranga bilanalýsingu.

En fyrir utan það er aðferð hans að nota live facebook og fjölmiðla til að þvinga ábyrgðarmáli í gegn ömurleg.
Ég er a.m.k búinn að lesa allt sem ég kemst í á facebook hjá honum og eitthverja 2 linka á nútímanum og ég get ekkert annað séð en djöfulsins dónaskap og tilætlunarsemi.

Re: Dr. Gunni ósáttur með Tölvutækni..

Sent: Lau 12. Ágú 2017 19:27
af Hjaltiatla
Hann keypti sér Acer tölvu :lol:
Öfunda ekki Tölvutek á því að hann þurfi að koma með vélina annað slagið.

Re: Dr. Gunni ósáttur með Tölvutækni..

Sent: Lau 12. Ágú 2017 19:44
af hagur
Úff. Hélt að hann væri á aðeins hærra plani en þetta. Skora á einhvern að mæta með eitthvað drasl keypt í Fjallakofanum og heimta endurgreiðslu, live á Facebook. Leyfa honum að smakka á eigin meðali.