Logo gerð

Allt utan efnis

Höfundur
Dúlli
Vaktari
Póstar: 2149
Skráði sig: Mán 10. Des 2012 19:43
Reputation: 195
Staða: Ótengdur

Logo gerð

Pósturaf Dúlli » Mán 31. Júl 2017 13:57

Er eithver hér sem tekur að sér logo gerð eða mælir með eithverjum sem kostar ekki handlegg ?




sibbsibb
has spoken...
Póstar: 157
Skráði sig: Mið 15. Ágú 2007 12:51
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Logo gerð

Pósturaf sibbsibb » Mán 31. Júl 2017 14:00

Ef þig vantar fagmann (sem rukkar þó eins og fagmaður) mæli ég með Auglýsingastofunni Jökulá
annars bara fiverr.com ;)



Skjámynd

emmi
Of mikill frítími
Póstar: 1876
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 10:15
Reputation: 63
Staðsetning: Reykjanesbær
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Logo gerð

Pósturaf emmi » Mán 31. Júl 2017 14:07

Ég hef notað þennan, mjög góður.

https://www.fiverr.com/srinivaskorai/do ... 563d66854d




Orri
Geek
Póstar: 891
Skráði sig: Fim 11. Okt 2007 17:17
Reputation: 73
Staða: Ótengdur

Re: Logo gerð

Pósturaf Orri » Mán 31. Júl 2017 16:42

Sem hönnuður þá er ég ekki hrifinn af síðum eins og fiverr, en getur vissulega dottið niður á ágætis hluti þarna.

Annars gildir það sama um hönnun eins og svo margt annað, you get what you pay for.

@emmi: Miðað við verkin sem þessi sýnir á fiverr, þá myndi ég segja að 'mjög góður' sé full djúpt í árinna tekið. Að því sögðu er hönnun vissulega mjög huglæg :)



Skjámynd

emmi
Of mikill frítími
Póstar: 1876
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 10:15
Reputation: 63
Staðsetning: Reykjanesbær
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Logo gerð

Pósturaf emmi » Mán 31. Júl 2017 17:42

Mjög góð fyrir peninginn allavega fyrir þá sem hafa ekki tugi þúsunda á milli handanna fyrir svona.




Höfundur
Dúlli
Vaktari
Póstar: 2149
Skráði sig: Mán 10. Des 2012 19:43
Reputation: 195
Staða: Ótengdur

Re: Logo gerð

Pósturaf Dúlli » Mán 31. Júl 2017 22:57

Í Raun vantar mig eithvað einfalt, er ekkert að eltast við næsta nike merki, bara eithvað sem hentar mér.

Ætla að athuga með þetta fiverr.

Hvernig virkar svona síða ? eru margir hönnuðir ? Hvernig er með ábyrgð ef lítið hentar manni ? sem er boðið fram.




Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4168
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1301
Staða: Ótengdur

Re: Logo gerð

Pósturaf Klemmi » Þri 01. Ágú 2017 00:43

Það eru hundruðir hönnuða á Fiverr.

Almennt er lágmarksgjald $5 + svo þóknun til Fiverr (endar þá í ~ $6,5).
Innifalið er oftast 1-2 logo með einhverjum revisions.

Hef keypt 3 logo í gegnum Fiverr og alltaf verið sáttur. Þetta hafa bara verið hobby verkefni, svo kröfurnar voru ekki svakalegar. Ég hef valið þá sem hafa boðið upp á vector file með ódýrasta giginu, svo ég geti auðveldlega gert breytingar á litum og letri ef ég vil :)
Varðandi ábyrgð.... þá ef þú ert ekki sáttur, þá mæli ég nú bara með því að sætta þig við að þú tapaðir einhverjum smápeningum.

En ef þetta er eitthvað fyrirtæki sem þú ert að setja í gang og stefnir á mikla markaðssetningu, þá getur það margborgað sig að fá einhvern færan í að útbúa logo fyrir þig.
Viðhengi
laptop.is.png
laptop.is.png (33.63 KiB) Skoðað 1416 sinnum
facebook cover.png
facebook cover.png (29.42 KiB) Skoðað 1416 sinnum



Skjámynd

olihar
spjallið.is
Póstar: 420
Skráði sig: Mán 13. Ágú 2007 13:23
Reputation: 85
Staða: Ótengdur

Re: Logo gerð

Pósturaf olihar » Þri 01. Ágú 2017 09:52

Klemmi skrifaði:Það eru hundruðir hönnuða á Fiverr.

Almennt er lágmarksgjald $5 + svo þóknun til Fiverr (endar þá í ~ $6,5).
Innifalið er oftast 1-2 logo með einhverjum revisions.

Hef keypt 3 logo í gegnum Fiverr og alltaf verið sáttur. Þetta hafa bara verið hobby verkefni, svo kröfurnar voru ekki svakalegar. Ég hef valið þá sem hafa boðið upp á vector file með ódýrasta giginu, svo ég geti auðveldlega gert breytingar á litum og letri ef ég vil :)
Varðandi ábyrgð.... þá ef þú ert ekki sáttur, þá mæli ég nú bara með því að sætta þig við að þú tapaðir einhverjum smápeningum.

En ef þetta er eitthvað fyrirtæki sem þú ert að setja í gang og stefnir á mikla markaðssetningu, þá getur það margborgað sig að fá einhvern færan í að útbúa logo fyrir þig.



Þessi 2 logo eru t.d. alveg svakalega góð dæmi um "You get what you pay for"



Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6773
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 934
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Logo gerð

Pósturaf Viktor » Þri 01. Ágú 2017 10:09

Klemmi skrifaði:Hef keypt 3 logo í gegnum Fiverr og alltaf verið sáttur. Þetta hafa bara verið hobby verkefni, svo kröfurnar voru ekki svakalegar. Ég hef valið þá sem hafa boðið upp á vector file með ódýrasta giginu, svo ég geti auðveldlega gert breytingar á litum og letri ef ég vil :)

mynd 1

mynd 2


#-o


I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things


Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB


Tesy
</Snillingur>
Póstar: 1075
Skráði sig: Mán 08. Feb 2010 01:20
Reputation: 12
Staðsetning: 108 Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Logo gerð

Pósturaf Tesy » Þri 01. Ágú 2017 10:25

Myndi frekar reyna að gera eitthvað sjálfur heldur en að nota fiverr ef þetta er bara hobby verkefni, allt voða out of date hjá þeim - miðað við það sem ég hef séð. Klárlega að sleppa algjörlega svona þjónustum ef þú ert að fara í alvöru dæmi og finna þér einhvern reyndan sem getur gert þetta fyrir þig.




Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4168
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1301
Staða: Ótengdur

Re: Logo gerð

Pósturaf Klemmi » Þri 01. Ágú 2017 10:27

olihar skrifaði:Þessi 2 logo eru t.d. alveg svakalega góð dæmi um "You get what you pay for"


Enda sett inn sem slík, svo hann átti sig á því hverju hann má búast við frá ódýrustu giggunum á Fiverr :)

Dugir líkt og ég sagði fyrir hobby verkefni.



Skjámynd

depill
Stjórnandi
Póstar: 1547
Skráði sig: Mán 04. Júl 2005 17:09
Reputation: 215
Staðsetning: Reykjavík, Iceland
Staða: Ótengdur

Re: Logo gerð

Pósturaf depill » Þri 01. Ágú 2017 10:40

Ekki það að fiverr er komið með fiverrPro, sem tengist eiginlega ekkert þessum $5 dollurum þar sem þú ert kominn með greinilega mjög fína hönnuðu á svona "reasonable" pening - $600 - $800 dollara.

En þá má líka spá í þessum íslensku. Enn þar er alveg eins og með þessa erlendu, þeir eru jafn mismunandi og þeir eru margir og þeir sem eru orðnir góðir, eru líkar yfirleitt aðeins dýrari.




Höfundur
Dúlli
Vaktari
Póstar: 2149
Skráði sig: Mán 10. Des 2012 19:43
Reputation: 195
Staða: Ótengdur

Re: Logo gerð

Pósturaf Dúlli » Þri 01. Ágú 2017 12:49

hvernig er svo best að sjá hvort logoið sé síðan ekki stolið eða þess háttar.

Annað en að nota Google Image Search. Þetta er ekki hobby verkefni en heldur ekki marg miljarða verkefni.




sibbsibb
has spoken...
Póstar: 157
Skráði sig: Mið 15. Ágú 2007 12:51
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Logo gerð

Pósturaf sibbsibb » Þri 01. Ágú 2017 14:47

Ég hef nefnilega fengið fín logo frá Fiverr. Ákvað að gamni að panta logo fyrir verkefni sem ég var með í gangi bara til að sjá hvað kæmi úr því, félagi minn pantaði frá öðrum fyrir sama verkefni og fékk hræðilegt logo... svo vandaðu bara valið á fiverr þá. Þú gætir þurft að kaupa af nokkrum gaurum til að fá eitthvað sem þú ert sáttur við svo þetta gæti endað hærra en 5$ sko.



Skjámynd

kiddi
Stjórnandi
Póstar: 1198
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 03:55
Reputation: 255
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Logo gerð

Pósturaf kiddi » Þri 01. Ágú 2017 15:43

Lógó eru svo brjálæðislega huglæg að það er ekki nokkur leið að treysta því að fá gott lógó fyrir í raun hvaða upphæð sem er. Eina vitið er að finna hönnuð sem hannar í þeim stíl sem þú ert hrifinn af, og ganga út frá því. Ekki ráða hönnuð t.d. sem er vanur að nota marga liti og teikna flókin merki, til að koma með eitthvað einfalt í einum litatón og öfugt :) Ég hef sjálfur hannað þónokkuð af merkjum fyrir mörg stór fyrirtæki sem eru ansi sýnileg í dag, en þessi verkefni geta verið ansi strembin / vanþakklát þegar budgetið er lágt og því er ég ekkert að bjóða mig fram :)

Færustu merkjamenn heims búa stundum til á annan tug merkja þegar hönnunarferlið er í gangi, enda er verðmiðinn oft í sjö tölustöfum þegar upp er staðið með þessi allra stærstu merki.