Re: Raunveruleikinn hjá Svíum vegna flóttamanna
Sent: Mið 27. Sep 2017 09:17
rapport skrifaði:Hvað mundu barnabætur með barni vera á Íslandi ?
https://www.rsk.is/einstaklingar/reikni ... barnabota/
Sé ekki betur en að það yrði a.m.k. 6 milljónir með 16 börnum hjá tveim einstæðum mæðrum og einni í sambúð.
Tilgangur barnabóta: https://www.island.is/thjonusta/fjolsky ... rnabaetur/
Er það svo vitleysa að atvinnuleysisbótasjóður greiði meðlag þeirra sem eru á atvinnuleysisbótum?
Nei, að sjálfsögðu ekki. Það á ekki að hegna börnunum.
Á að útvega fólki í neyð félagslegt húsnæði ?
Já! að sjálfsögðu
Það er nú þannig að til að eiga rétt á atvinnuleysisbótum þarf maður að hafa verið í vinnu að mig minnir lágmark 1 ár samfleytt svo maður eigi rétt á fullum bótum.
Þegar ég last í gegnum þetta hjá féló þá var fyrsta greining á þann veg að "þeir sem ekki geta séð um sig sjálfir fjárhagslega eiga þeir að redda" (ekki alveg í þessum nákvæmu orðum en basically þetta).
Hinsvegar finnst mér að fólk geti drullast til að axla ábyrgð á barneignum sínum. alltaf vælandi yfir því hvað krakkar eru dýrir og þess háttar.... hættið að búa til fokkings 3+ börn (svosem ekki mikið hægt að gera ef maður fær þríbura og svoleiðis) en come on það er nógu andskoti margir á þessari plánetu.