Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Allt utan efnis
Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16269
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1993
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Pósturaf GuðjónR » Mán 13. Mar 2017 11:47

worghal skrifaði:http://www.vb.is/frettir/kronan-byrjud-ad-veikjast/136385/

Hátt í 4% veiking á fyrsta klukkutímanum. Og höftin fara ekki fyrr en á morgun. Þetta verður harður skellur.

Skjámynd

kizi86
Vaktari
Póstar: 2208
Skráði sig: Lau 26. Sep 2009 18:08
Reputation: 166
Staða: Ótengdur

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Pósturaf kizi86 » Mán 13. Mar 2017 14:26

Moldvarpan skrifaði:Ég veit ekki hvort það séu fleirri en ég... en mér finnst magnað hversu margir þrífast á veikri krónu.

Það er eins og landið geti ekki gengið nema krónan sé veik... hverjir hagnast á því?

Getur eh rökstutt það afhverju betra er að hafa veika krónu en sterka?

því að okkar stærsti útflutningur er fiskur, ´hann er seldur í erlendum gjaldeyri, því veikari sem krónan er, því meira græða útgerðirnar, og allir aðrir tapa, en þar sem við skiptum ekki máli þá er þetta ok..

ASRock B650E PG-ITX WiFi AMD Ryzen 9 7950X PowerColor "Red Devil" RX 7900 XTX 24GB G.Skill Trident Z5 RGB 32GB (2 x 16GB) DDR5-6000 stýrikerfi: wd black sn850x 2TB WD RED 4TB WD RED 4TB 65" LG B8 OLED TV

Skjámynd

worghal
Kóngur
Póstar: 6300
Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
Reputation: 442
Staðsetning: fyrir aftan þig
Staða: Tengdur

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Pósturaf worghal » Mán 13. Mar 2017 14:30

kizi86 skrifaði:
Moldvarpan skrifaði:Ég veit ekki hvort það séu fleirri en ég... en mér finnst magnað hversu margir þrífast á veikri krónu.

Það er eins og landið geti ekki gengið nema krónan sé veik... hverjir hagnast á því?

Getur eh rökstutt það afhverju betra er að hafa veika krónu en sterka?

því að okkar stærsti útflutningur er fiskur, ´hann er seldur í erlendum gjaldeyri, því veikari sem krónan er, því meira græða útgerðirnar, og allir aðrir tapa, en þar sem við skiptum ekki máli þá er þetta ok..

Reyndar er túrisminn að gefa meira en útgerðir svo ekki gleyma að veik króna er góð fyrir túristana.

CPU: Intel Core i7 12700KF MB: Gigabyte Z690 Gaming X GPU: EVGA RTX 3080 FTW3 ULTRA 12Gb RAM: Corsair Vengeance RGB Pro 2x16Gb 3600Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Topping DX7s - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Corsair 4000D Airflow

vesley
Kóngur
Póstar: 4253
Skráði sig: Mán 08. Sep 2008 19:39
Reputation: 190
Staðsetning: við talvuna
Staða: Ótengdur

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Pósturaf vesley » Mán 13. Mar 2017 14:49

worghal skrifaði:
kizi86 skrifaði:
Moldvarpan skrifaði:Ég veit ekki hvort það séu fleirri en ég... en mér finnst magnað hversu margir þrífast á veikri krónu.

Það er eins og landið geti ekki gengið nema krónan sé veik... hverjir hagnast á því?

Getur eh rökstutt það afhverju betra er að hafa veika krónu en sterka?

því að okkar stærsti útflutningur er fiskur, ´hann er seldur í erlendum gjaldeyri, því veikari sem krónan er, því meira græða útgerðirnar, og allir aðrir tapa, en þar sem við skiptum ekki máli þá er þetta ok..

Reyndar er túrisminn að gefa meira en útgerðir svo ekki gleyma að veik króna er góð fyrir túristana.

Góð fyrir túrista, gott fyrir flugfélögin. Gott fyrir mörg mjög efnuð fyrirtækið hér á landi eins og CCP,Marel,Össur og mjög mörg önnur.

Svo má ekki gleyma að ýmiskonar fjárfestingarfélög (sem ekki endilega áttu einhvern hlut í hruninu) og önnur stór fyritæki fagna því að höftin séu farin svo þau geta farið að nota peningana sína annarsstaðar en hérlendis. Þá er ég að tala um fyrirtæki sem nota umtalsvert meira en 100 milljónir á mánuði í veltu.

Kemur mér líka alls ekki á óvart að krónan sé að lækka örlítið í dag,þetta er nú dagurinn áður en höftin fara og því eðlilegt að miklar hræringar séu á gengi og mörkuðum.

Skjámynd

kizi86
Vaktari
Póstar: 2208
Skráði sig: Lau 26. Sep 2009 18:08
Reputation: 166
Staða: Ótengdur

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Pósturaf kizi86 » Mán 13. Mar 2017 14:50

worghal skrifaði:
kizi86 skrifaði:
Moldvarpan skrifaði:Ég veit ekki hvort það séu fleirri en ég... en mér finnst magnað hversu margir þrífast á veikri krónu.

Það er eins og landið geti ekki gengið nema krónan sé veik... hverjir hagnast á því?

Getur eh rökstutt það afhverju betra er að hafa veika krónu en sterka?

því að okkar stærsti útflutningur er fiskur, ´hann er seldur í erlendum gjaldeyri, því veikari sem krónan er, því meira græða útgerðirnar, og allir aðrir tapa, en þar sem við skiptum ekki máli þá er þetta ok..

Reyndar er túrisminn að gefa meira en útgerðir svo ekki gleyma að veik króna er góð fyrir túristana.

enda var ég að tala um ÚTFLUTNING.. túrismi er ekki útflutningur per se, nema það sem útlendingarnir kaupa á uppsprengdu verði í lundabúðunum, túrismi er frekar innflutningur á fjármagni :P

ASRock B650E PG-ITX WiFi AMD Ryzen 9 7950X PowerColor "Red Devil" RX 7900 XTX 24GB G.Skill Trident Z5 RGB 32GB (2 x 16GB) DDR5-6000 stýrikerfi: wd black sn850x 2TB WD RED 4TB WD RED 4TB 65" LG B8 OLED TV

Hizzman
Geek
Póstar: 800
Skráði sig: Fös 22. Apr 2016 18:48
Reputation: 136
Staða: Ótengdur

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Pósturaf Hizzman » Mán 13. Mar 2017 15:38

Fjármagn er ekki vara, heldur andlag vöru. Etv má kalla túrisma útfluttning á minningum eða upplifunum.

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7066
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1005
Staða: Ótengdur

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Pósturaf rapport » Mán 13. Mar 2017 15:41

Ég held að allir séu sammála um að það sé gott að losna við höftin.

Það sem fólki finnst skrítið er að neyða aflandskrónu eiegendur í útboð og taka eingöngu tilboðum upp á 180kr pr. evru eða meira og segjast ætla að standa með orðum sínum.

Örfáaum mánuðum seinna þá selur seðlabankinn evrurnar sínar með 25% afslætti og ríkisstjórnin gengur bak orða sinna og spanderar um 20-40 milljörðum aukalega miðað við fyrri loforð OG svíkur orð sín gagnvart þeim sem seldu á útboðinu.

Gengisfallið sem mun fylgja verður til þess að kaupmáttur sem tilkominn er vegna launahækkana verður minni ef einhver.

Þetta er augljóst dæmi um óstjórn þar sem verið er að breyta einhverju handvirkt á loðnum forsendum til að ná fram árangri sem er einsin virði fyrir ríkið, bara fyrir einhverja auðmenn.

Ljótur leikur, virkilega ljótur leikur.

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7066
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1005
Staða: Ótengdur

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Pósturaf rapport » Mán 13. Mar 2017 15:43

Hizzman skrifaði:Fjármagn er ekki vara, heldur andlag vöru. Etv má kalla túrisma útfluttning á minningum eða upplifunum.

Nú, er verðgildi peninga (gjaldmiðla) ekki háð framboði og eftirpsurn eins og verð annara vara?

Þá er augljóslega hægt að "leigja" peninga gegn gjaldi sbr. vexti...

Held að peningar séu augljóslega "vara".

MrIce
Gúrú
Póstar: 587
Skráði sig: Þri 04. Des 2007 14:08
Reputation: 56
Staða: Ótengdur

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Pósturaf MrIce » Mán 13. Mar 2017 16:03

Moldvarpan skrifaði:Ég veit ekki hvort það séu fleirri en ég... en mér finnst magnað hversu margir þrífast á veikri krónu.

Það er eins og landið geti ekki gengið nema krónan sé veik... hverjir hagnast á því?

Getur eh rökstutt það afhverju betra er að hafa veika krónu en sterka?

Þá græða fyrirtæki sem selja út mikið meira heldur en ef krónan væri sterk, t.d. HB Grandi og fleyri fiskverkanir

-Need more computer stuff-

Hizzman
Geek
Póstar: 800
Skráði sig: Fös 22. Apr 2016 18:48
Reputation: 136
Staða: Ótengdur

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Pósturaf Hizzman » Mán 13. Mar 2017 16:10

Peningur er táknmynd verðmætis, nokkurskonar samningur um að einhverskonar eining sem einhver traustsverður aðili dreifir í takmörkuðu magni sé nothæfur til að mæla eitthvert verðmæti sem getur td verið hlutur eða þjónusta.

Peningar urðu til vegna óþæginda við vöruskipti. Það er eina ástæðan fyrir þeirra tilvist.

Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6774
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 935
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Pósturaf Viktor » Mán 13. Mar 2017 17:06

Moldvarpan skrifaði:Ég veit ekki hvort það séu fleirri en ég... en mér finnst magnað hversu margir þrífast á veikri krónu.

Það er eins og landið geti ekki gengið nema krónan sé veik... hverjir hagnast á því?

Getur eh rökstutt það afhverju betra er að hafa veika krónu en sterka?

Þetta snýst alls ekki um það hvort sé betra að krónan sé veik eða sterk.

Það er ömurlegt fyrir öll fyrirtæki og heimilin í landinu að búa við gjaldmiðil sem rokkar upp og niður eins og jójó. Það að krónan styrkist um 20% á nokkrum mánuðum hljómar kannski svakalega vel fyrir þá sem ætla að kaupa sér iPhone á næstunni - þá er þetta algerlega óþolandi ástand fyrir atvinnulífið.

Krónan þarf að vera stöðug svo það sé einhver möguleiki að Ísland geti verið ákjósanlegur staður fyrir atvinnulíf. Það er ömurlegt að geta aldrei gert áætlanir nema í nokkrar vikur fram í tímann.

Hvernig haldið þið að það sé að reka ferðaþjónustufyrirtæki sem hefur ekki hugmynd um hvað þau þurfi að rukka fyrir ferðir og gistingar í sumar svo að þau geti greitt laun?

I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things

Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB

Hizzman
Geek
Póstar: 800
Skráði sig: Fös 22. Apr 2016 18:48
Reputation: 136
Staða: Ótengdur

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Pósturaf Hizzman » Mán 13. Mar 2017 17:44

rapport skrifaði:
Hizzman skrifaði:Fjármagn er ekki vara, heldur andlag vöru. Etv má kalla túrisma útfluttning á minningum eða upplifunum.

Nú, er verðgildi peninga (gjaldmiðla) ekki háð framboði og eftirpsurn eins og verð annara vara?

Þá er augljóslega hægt að "leigja" peninga gegn gjaldi sbr. vexti...

Held að peningar séu augljóslega "vara".

það leigir engin peninga til að horfa á þá! peningar eru oftast leigðir til að geta haft afnot af einhverjum gæðum .

Það má færa rök fyrir því að peningar séu aðeins hugtak.

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7066
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1005
Staða: Ótengdur

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Pósturaf rapport » Mán 13. Mar 2017 18:18

Hizzman skrifaði:

Það leigir enginn neitt til að horfa á það, bílar, bækur, vidóspólur, router ofl. ofl.

Allt er þetta notað og þú ert ábyrgur fyrir leigðum hlut á meðan þú ert með hann í láni, hvort sem það er bíll, videóspóla eða peningar.

http://www.economicsonline.co.uk/Compet ... arket.html

Currencies are bought and sold, just like other commodities, in markets called foreign exchange markets.

Hizzman
Geek
Póstar: 800
Skráði sig: Fös 22. Apr 2016 18:48
Reputation: 136
Staða: Ótengdur

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Pósturaf Hizzman » Mán 13. Mar 2017 19:42

þessir 'foreign exchang markets' eru í raun veðmálamarkaðir. Það er verið að taka stöður (gjaldmiðill gegn gjaldmiðli) í von um að það
verði hreyfing sem skapar gróða.

Hér er annað dæmi um ekki-vöru á fjármálamarkaði:

https://en.wikipedia.org/wiki/Weather_derivative

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7066
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1005
Staða: Ótengdur

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Pósturaf rapport » Þri 14. Mar 2017 08:35

Hizzman skrifaði:þessir 'foreign exchang markets' eru í raun veðmálamarkaðir. Það er verið að taka stöður (gjaldmiðill gegn gjaldmiðli) í von um að það
verði hreyfing sem skapar gróða.

Hér er annað dæmi um ekki-vöru á fjármálamarkaði:

https://en.wikipedia.org/wiki/Weather_derivative

Nei, alls ekki.

T.d. Nýherji þarf að kaupa 250 tölvur frá Kína í gegnum aðila í Danmörku og hefur val um að borga reikninginn í evrum eða dollurum.

Nýherji fer á markaðinn og segir, ég er til í að kaupa X marga dollara eða Y margar evrur en fyrir sem minnst af krónum.

Þetta er ekki spámarkaður því ef Nýherji fær ekki þessa gjaldmiðla, þá getur hann ekki greitt fyrir vöruna.

Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16269
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1993
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Pósturaf GuðjónR » Þri 14. Mar 2017 10:19

Ekki gleyma því hvað peningar eru, peningar eru ekki verðmæti í sjálfu sér heldur ávísun á verðmæti.
En hvað er verðmæti? Það er tíminn okkar, orkan okkar.
Þess vegna er er það galið að krónunni sé leyft að sveiflast svona.
Verðmætin, þ.e. tímin er constant og ávísunin á að vera það líka.

Til dæmis fyrir hrun þá var algengt að gengisvísitalan væri á milli 110 og 120 en er 164 núna.
Og menn segja að gengið sé of hátt? Það er algjört kjaftæði, það á ekkert að leika sér með gengið. Það er verið að braska með tímann okkar. Pétur Blöndal heitinn sagði að rétt gengisvísitala væri 125, ég hugsa að hann hafi rétt fyrir sér. Best væri að festa gengið í 125. Ef þú færð 20% launahækkun og þeir skerða verðgildi krónunnar um 20% daginn eftir, hver er þá launahækkunin þín?

Tökum dæmi:
07.11.2005 Evra: 71.5 kr. Dollari: 60.5 kr. Sænsk króna: 7.4 kr. Yen: 0.5 kr.
17.11.2008 Evra 171.5 kr. Dollari: 135 kr. Sænsk króna: 17.2 kr. Yen: 1.3 kr.
13.03.2017 Evra 118.4 kr. Dollari: 111 kr. Sænsk króna: 12.4 kr. Yen: 0.96 kr.

Þið sjáið hvað þetta er galið er það ekki?
Ef gengið væri fast í 125 þá liti þetta svona út í dag: Evra 90 kr. Dollari: 70 kr. Sænsk króna: 9,5 kr. Yep 0.6 kr.
Á móti kæmi að við þyrftum ekki allar þessar launahækkanir, við þyrftum ekki að hafa verðtryggingu, við myndum fá lægri vexti.
Það að krónan fái að haga sér eins og jójó er rót vandans á Íslandi.

Skjámynd

Halli25
Bara að hanga
Póstar: 1577
Skráði sig: Fim 13. Sep 2007 12:42
Reputation: 67
Staðsetning: Hveragerði
Staða: Ótengdur

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Pósturaf Halli25 » Þri 14. Mar 2017 11:02

GuðjónR skrifaði:Ekki gleyma því hvað peningar eru, peningar eru ekki verðmæti í sjálfu sér heldur ávísun á verðmæti.
En hvað er verðmæti? Það er tíminn okkar, orkan okkar.
Þess vegna er er það galið að krónunni sé leyft að sveiflast svona.
Verðmætin, þ.e. tímin er constant og ávísunin á að vera það líka.

Til dæmis fyrir hrun þá var algengt að gengisvísitalan væri á milli 110 og 120 en er 164 núna.
Og menn segja að gengið sé of hátt? Það er algjört kjaftæði, það á ekkert að leika sér með gengið. Það er verið að braska með tímann okkar. Pétur Blöndal heitinn sagði að rétt gengisvísitala væri 125, ég hugsa að hann hafi rétt fyrir sér. Best væri að festa gengið í 125. Ef þú færð 20% launahækkun og þeir skerða verðgildi krónunnar um 20% daginn eftir, hver er þá launahækkunin þín?

Tökum dæmi:
07.11.2005 Evra: 71.5 kr. Dollari: 60.5 kr. Sænsk króna: 7.4 kr. Yen: 0.5 kr.
17.11.2008 Evra 171.5 kr. Dollari: 135 kr. Sænsk króna: 17.2 kr. Yen: 1.3 kr.
13.03.2017 Evra 118.4 kr. Dollari: 111 kr. Sænsk króna: 12.4 kr. Yen: 0.96 kr.

Þið sjáið hvað þetta er galið er það ekki?
Ef gengið væri fast í 125 þá liti þetta svona út í dag: Evra 90 kr. Dollari: 70 kr. Sænsk króna: 9,5 kr. Yep 0.6 kr.
Á móti kæmi að við þyrftum ekki allar þessar launahækkanir, við þyrftum ekki að hafa verðtryggingu, við myndum fá lægri vexti.
Það að krónan fái að haga sér eins og jójó er rót vandans á Íslandi.

Krónan er svo lítil að hún mun alltaf verða jójó svo eini möguleikinn er að við myndum kasta krónunni og taka upp erlendan gjaldmiðil en nei það er vont fyrir sjávarútveginn. Það er ekki hægt að lækka laun með erlendum gjaldmiðli þegar þarf einso og í dag. :fly

Starfsmaður @ IOD

Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16269
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1993
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Pósturaf GuðjónR » Þri 14. Mar 2017 11:19

Halli25 skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Ekki gleyma því hvað peningar eru, peningar eru ekki verðmæti í sjálfu sér heldur ávísun á verðmæti.
En hvað er verðmæti? Það er tíminn okkar, orkan okkar.
Þess vegna er er það galið að krónunni sé leyft að sveiflast svona.
Verðmætin, þ.e. tímin er constant og ávísunin á að vera það líka.

Til dæmis fyrir hrun þá var algengt að gengisvísitalan væri á milli 110 og 120 en er 164 núna.
Og menn segja að gengið sé of hátt? Það er algjört kjaftæði, það á ekkert að leika sér með gengið. Það er verið að braska með tímann okkar. Pétur Blöndal heitinn sagði að rétt gengisvísitala væri 125, ég hugsa að hann hafi rétt fyrir sér. Best væri að festa gengið í 125. Ef þú færð 20% launahækkun og þeir skerða verðgildi krónunnar um 20% daginn eftir, hver er þá launahækkunin þín?

Tökum dæmi:
07.11.2005 Evra: 71.5 kr. Dollari: 60.5 kr. Sænsk króna: 7.4 kr. Yen: 0.5 kr.
17.11.2008 Evra 171.5 kr. Dollari: 135 kr. Sænsk króna: 17.2 kr. Yen: 1.3 kr.
13.03.2017 Evra 118.4 kr. Dollari: 111 kr. Sænsk króna: 12.4 kr. Yen: 0.96 kr.

Þið sjáið hvað þetta er galið er það ekki?
Ef gengið væri fast í 125 þá liti þetta svona út í dag: Evra 90 kr. Dollari: 70 kr. Sænsk króna: 9,5 kr. Yep 0.6 kr.
Á móti kæmi að við þyrftum ekki allar þessar launahækkanir, við þyrftum ekki að hafa verðtryggingu, við myndum fá lægri vexti.
Það að krónan fái að haga sér eins og jójó er rót vandans á Íslandi.

Krónan er svo lítil að hún mun alltaf verða jójó svo eini möguleikinn er að við myndum kasta krónunni og taka upp erlendan gjaldmiðil en nei það er vont fyrir sjávarútveginn. Það er ekki hægt að lækka laun með erlendum gjaldmiðli þegar þarf einso og í dag. :fly

Akkúrat, við munum aldrei fá almenninlegan gjaldmiðil meðan hagsmunaöflin stjórna.
Það sem væri samt hægt að gera að festa gengið, en það er pólitísk ákvörðun og erfið þar sem peningaöflin stjórna öllu.

Hizzman
Geek
Póstar: 800
Skráði sig: Fös 22. Apr 2016 18:48
Reputation: 136
Staða: Ótengdur

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Pósturaf Hizzman » Þri 14. Mar 2017 12:29

Ísland getur alveg byrjað að nota td Evru einhliða, nú þegar eru nokkur smáríki sem nota Evru þannig, það er lítið mál.

Auðvitað fylgja því ný 'vandamál' að nota gjaldmiðil sem er ekki mögulegt að þeyta upp og niður!

Þau vandamál eru samt miklu vægari og ávinningurinn er gríðarlegur. Vaxtakostnaður lækkar um amk 50%, kostnaður fyrir meðalfjölskyldu af húsnæðisláni lækkar um etv 50 til 80þús

Skjámynd

Urri
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 356
Skráði sig: Þri 21. Jún 2016 19:42
Reputation: 32
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Pósturaf Urri » Þri 14. Mar 2017 12:32

Hizzman skrifaði:Ísland getur alveg byrjað að nota td Evru einhliða, nú þegar eru nokkur smáríki sem nota Evru þannig, það er lítið mál.

Auðvitað fylgja því ný 'vandamál' að nota gjaldmiðil sem er ekki mögulegt að þeyta upp og niður!

Þau vandamál eru samt miklu vægari og ávinningurinn er gríðarlegur. Vaxtakostnaður lækkar um amk 50%, kostnaður fyrir meðalfjölskyldu af húsnæðisláni lækkar um etv 50 til 80þús

Já en aumingja peningafólkið græðir svo lítið þá og þessir stjórnendur landsins.

Fractal Design Define R5 Titanium // ASUS X99-A // Intel Core i7-5930K // ASUS GeForce STRIX GTX 980 Ti 6GB
HyperX Predator SSD 480GB M.2 PCIe // HyperX Predator 2400MHz 32GB (4x8GB)
EVGA SuperNOVA 1000 G2, 1000W PSU // Corsair Hydro H100i GTX

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7066
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1005
Staða: Ótengdur

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Pósturaf rapport » Þri 14. Mar 2017 12:46

Hizzman skrifaði:Ísland getur alveg byrjað að nota td Evru einhliða, nú þegar eru nokkur smáríki sem nota Evru þannig, það er lítið mál.

Auðvitað fylgja því ný 'vandamál' að nota gjaldmiðil sem er ekki mögulegt að þeyta upp og niður!

Þau vandamál eru samt miklu vægari og ávinningurinn er gríðarlegur. Vaxtakostnaður lækkar um amk 50%, kostnaður fyrir meðalfjölskyldu af húsnæðisláni lækkar um etv 50 til 80þús

Ég held að meðalkostnaður fjölskyldu vegna húsnæðis lækki miklu meira.

Það var talað um að 40ára, 20 milljón kr. lán kræfist endurgreiðslu upp á c.a. 100 milljónir að meðaltali vegna vaxta og verðbóta.

Þar skipta verðbæturnar mestu máli því vextir reiknast ofaná þær og þar sem um jafngreiðslulán er að ræða þá verða til vaxtavextir af öllu sem lánin hækka umfram orginal höfuðstóll = þetta verður hirngavitleysa hækkana og það sem fólk greiðir til baka er rétt um 20% lánið sjálft en 80% vextir og verðbætur.

Þið getið rétt ímyndað ykkur hvað stöðugur gjaldmiðill mundi gera fyrir heimilin í landinu, þessi kostnaður mundi lækka um a.m.k. helming og 40 ára lán mundi í heildina kosta 60 milljónir, jafnvel minna.

Ég veit um fólk sem er með íbúlán frá 1997, eftirstöðvar nafnverðs eru 650þ. en lánið stendur í 3,7 milljónum og það þarf að greiða 40þ. á mánuði í afborganir. Þegar lánið var tekið þá var afbogunin pr. milljón um 5500kr.

Þannig að ef engin verðbólga hefði verið, þá væri þau að greiða um 3200 á mánuði en vegna verðbólgu, vaxta ofaná verðtrygginguna og vaxtavaxta þá þurfa þau að greið aum 11þ. pr. milljón og skulda enn 3,7 milljónir af láni sem var í upphafi upp á 4,5.

Nú eru íbúðalán miklu hærri, 10 sinnum hærri.

Þið getið ímyndað ykkur hvernig þetta verður eftir 30 ár héðan í frá.

Skjámynd

hagur
Besserwisser
Póstar: 3095
Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:11
Reputation: 443
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Pósturaf hagur » Þri 14. Mar 2017 12:56

rapport skrifaði:
Ég veit um fólk sem er með íbúlán frá 1997, eftirstöðvar nafnverðs eru 650þ. en lánið stendur í 3,7 milljónum og það þarf að greiða 40þ. á mánuði í afborganir. Þegar lánið var tekið þá var afbogunin pr. milljón um 5500kr.

Þið getið ímyndað ykkur hvernig þetta verður eftir 30 ár héðan í frá.

Ekki gleyma því að í janúar 1997 var launavísitalan 148,8 stig en núna í janúar árið 2017 er hún 592,4 stig. Eftir 30 ár verður launavísitalan eflaust líka búin að marfaldast enn frekar.

Það þýðir ekki bara að horfa á krónutölur í þessu sambandi. Í krónum talið hafa laun hækkað gríðarlega líka.

vesley
Kóngur
Póstar: 4253
Skráði sig: Mán 08. Sep 2008 19:39
Reputation: 190
Staðsetning: við talvuna
Staða: Ótengdur

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Pósturaf vesley » Þri 14. Mar 2017 13:56

hagur skrifaði:
rapport skrifaði:
Ég veit um fólk sem er með íbúlán frá 1997, eftirstöðvar nafnverðs eru 650þ. en lánið stendur í 3,7 milljónum og það þarf að greiða 40þ. á mánuði í afborganir. Þegar lánið var tekið þá var afbogunin pr. milljón um 5500kr.

Þið getið ímyndað ykkur hvernig þetta verður eftir 30 ár héðan í frá.

Ekki gleyma því að í janúar 1997 var launavísitalan 148,8 stig en núna í janúar árið 2017 er hún 592,4 stig. Eftir 30 ár verður launavísitalan eflaust líka búin að marfaldast enn frekar.

Það þýðir ekki bara að horfa á krónutölur í þessu sambandi. Í krónum talið hafa laun hækkað gríðarlega líka.

Fólk elskar að tala um krónutölur en pælir ekki í því að það er ekkert samhengi á milli.

Þetta er sambærilegt að kvarta yfir því að Janúar 1997 gastu keypt mjólkina á 10kall út í búð. (n.b. hef ekki hugmynd hvað hún kostaði þá)

Skjámynd

Nariur
Of mikill frítími
Póstar: 1823
Skráði sig: Sun 08. Jún 2008 01:18
Reputation: 179
Staða: Ótengdur

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Pósturaf Nariur » Þri 14. Mar 2017 14:22

Jæja, herra svartsýnn. Þetta var nú meiri skellurinn. Gengið er komið þangað sem það var fyrir mánuði síðan.
kronan.PNG
kronan.PNG (19.51 KiB) Skoðað 1030 sinnum

Ég þoli ekki alla þessa helvítis svartsýni sem virðist einkenna íslenskt samfélag. Það eru alltaf allir vælandi.

AMD Ryzen 9 5950X | Noctua NH-D15 | Nvidia Geforce RTX 3080Ti HOF | MSI MAG X570 Tomahawk | 32GB Corsair Vengeance RGB 3600MHz DDR4 | Corsair RM1000i | Samsung 950 Pro 512GB| Fractal Define R5 | LG CX 48" OLED

Skjámynd

CendenZ
Stjórnandi
Póstar: 2814
Skráði sig: Fös 04. Apr 2003 08:54
Reputation: 203
Staðsetning: Á þessu spjalli
Staða: Ótengdur

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Pósturaf CendenZ » Þri 14. Mar 2017 14:23

Það er ansi gott þetta svartsýnisspákaffi :-$ :-$ :lol: :lol: