Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Allt utan efnis

bigggan
spjallið.is
Póstar: 452
Skráði sig: Fim 05. Maí 2011 17:43
Reputation: 34
Staða: Ótengdur

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Pósturaf bigggan » Þri 14. Mar 2017 14:38

En hefur kröfuhafarnir byrjað að flytja peningunum úr landi? Ef þau sjá hag í að bíða eftir frekari gengisstyrking þá mun þau gera það.

Skjámynd

CendenZ
Stjórnandi
Póstar: 2811
Skráði sig: Fös 04. Apr 2003 08:54
Reputation: 196
Staðsetning: Á þessu spjalli
Staða: Ótengdur

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Pósturaf CendenZ » Þri 14. Mar 2017 14:49

bigggan skrifaði:En hefur kröfuhafarnir byrjað að flytja peningunum úr landi? Ef þau sjá hag í að bíða eftir frekari gengisstyrking þá mun þau gera það.

Á meðan ávöxtun á eigið fé er svona gífurleg sjá þeir engan hag í að flytja það erlendis og fá lægri ávöxtun. Eins og staðan er í dag eru þeir að sjá hellings ávöxtun sem engin getur raunverulega séð endann fyrir. Þeir eiga hluti í tryggingafyrirtækjum, bönkum, ferðaþjónustu, framleiðslufyrirtækjum, etc..

Það er langt þangað til þeir sjá hag í að flytja farminn í burt, og það verður í landi í uppsveiflu, aukna,,verðbólgu" og með háa innvexti. Eins og staðan er í dag eru það sárafá lönd.

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7055
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1002
Staða: Ótengdur

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Pósturaf rapport » Þri 14. Mar 2017 15:00

hagur skrifaði:
rapport skrifaði:
Ég veit um fólk sem er með íbúlán frá 1997, eftirstöðvar nafnverðs eru 650þ. en lánið stendur í 3,7 milljónum og það þarf að greiða 40þ. á mánuði í afborganir. Þegar lánið var tekið þá var afbogunin pr. milljón um 5500kr.

Þið getið ímyndað ykkur hvernig þetta verður eftir 30 ár héðan í frá.

Ekki gleyma því að í janúar 1997 var launavísitalan 148,8 stig en núna í janúar árið 2017 er hún 592,4 stig. Eftir 30 ár verður launavísitalan eflaust líka búin að marfaldast enn frekar.

Það þýðir ekki bara að horfa á krónutölur í þessu sambandi. Í krónum talið hafa laun hækkað gríðarlega líka.

Ég skil þetta alltsaman, en þetta gerist ekki jöfnum höndum, verðlag fer til helvítis 365 daga ársins en launahækkanir gerast árlega.

Að vísa í vísitölurnar sýnir bara að það er endalaust verið að hræra í sömu drullunni og ekki verið að laga neitt ástand, því við þurfum stöðugleika umfram allt annað.

Fasteiganverð hefur næstum 7-9 faldast síðan 1997 og er ekkií neinu samræmi við laun eða verðlag, það er mæling sem þú gleymir líka.

Íbúðin sem þetta lán var tekið út á 1997 kostaði 5,3 milljónir og var um 85fm á Njálsgötu 92, fasteignamatið er komið í 29,3 og eignir á Njálsgötu eru að seljast á c.a. 120% af fasteignamati 2017.

Ég man að ásett var 5,7 og svo var prúttað.

timarit.is - reyndi að finna hana í gömlum fasteignablöðum en nennti ekki meira, man ekki hvenær við keyptum, en við fluttum inn um sumarið í lok maí.

vesley
Kóngur
Póstar: 4253
Skráði sig: Mán 08. Sep 2008 19:39
Reputation: 190
Staðsetning: við talvuna
Staða: Ótengdur

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Pósturaf vesley » Þri 14. Mar 2017 15:21

@Rapport.

Það spilar líka inn í að eftirspurn eftir íbúðum í dag er sú mesta í sögu landsins. Allar íbúðir sem eru í byggingu og verða tilbúnar næstu 6.ár duga ekki einu sinni til að svara eftirspurn.

Og á sama tíma sér maður fólk kvarta yfir því að "kranavísitalan" í borginni sé alltof há og það sé verið að byggja alltof mikið. :roll:

Skjámynd

urban
Stjórnandi
Póstar: 3750
Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
Reputation: 471
Staðsetning: Undir hægra megin
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Pósturaf urban » Þri 14. Mar 2017 15:27

rapport skrifaði:Ég veit um fólk sem er með íbúlán frá 1997, eftirstöðvar nafnverðs eru 650þ. en lánið stendur í 3,7 milljónum og það þarf að greiða 40þ. á mánuði í afborganir. Þegar lánið var tekið þá var afbogunin pr. milljón um 5500kr.

Þannig að ef engin verðbólga hefði verið, þá væri þau að greiða um 3200 á mánuði en vegna verðbólgu, vaxta ofaná verðtrygginguna og vaxtavaxta þá þurfa þau að greið aum 11þ. pr. milljón og skulda enn 3,7 milljónir af láni sem var í upphafi upp á 4,5.

Nú eru íbúðalán miklu hærri, 10 sinnum hærri.

Þið getið ímyndað ykkur hvernig þetta verður eftir 30 ár héðan í frá.

Ég ætla rétt að vona að það sé verið að skuldbreyta þessu, alveg óþarfi að halda þessu áfram, það eru miklu hagstæðari lán í dag til þess að borga niður þetta lán.

Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !

Hizzman
FanBoy
Póstar: 798
Skráði sig: Fös 22. Apr 2016 18:48
Reputation: 136
Staða: Ótengdur

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Pósturaf Hizzman » Þri 14. Mar 2017 15:47

vesley skrifaði:@Rapport.

Það spilar líka inn í að eftirspurn eftir íbúðum í dag er sú mesta í sögu landsins. Allar íbúðir sem eru í byggingu og verða tilbúnar næstu 6.ár duga ekki einu sinni til að svara eftirspurn.

Og á sama tíma sér maður fólk kvarta yfir því að "kranavísitalan" í borginni sé alltof há og það sé verið að byggja alltof mikið. :roll:

Eru þessir kranar að byggja það húsnæði sem sárasti skorturinn er á?

Eru þeir að byggja ódýrar 1. íbúðir fyrir ungt fólk?

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7055
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1002
Staða: Ótengdur

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Pósturaf rapport » Þri 14. Mar 2017 16:08

urban skrifaði:
rapport skrifaði:Ég veit um fólk sem er með íbúlán frá 1997, eftirstöðvar nafnverðs eru 650þ. en lánið stendur í 3,7 milljónum og það þarf að greiða 40þ. á mánuði í afborganir. Þegar lánið var tekið þá var afbogunin pr. milljón um 5500kr.

Þannig að ef engin verðbólga hefði verið, þá væri þau að greiða um 3200 á mánuði en vegna verðbólgu, vaxta ofaná verðtrygginguna og vaxtavaxta þá þurfa þau að greið aum 11þ. pr. milljón og skulda enn 3,7 milljónir af láni sem var í upphafi upp á 4,5.

Nú eru íbúðalán miklu hærri, 10 sinnum hærri.

Þið getið ímyndað ykkur hvernig þetta verður eftir 30 ár héðan í frá.

Ég ætla rétt að vona að það sé verið að skuldbreyta þessu, alveg óþarfi að halda þessu áfram, það eru miklu hagstæðari lán í dag til þess að borga niður þetta lán.

https://www.lsr.is/lan/lanareiknivel/

Það er hægt að ná þessu niður í 37þ. á mánuði og færu hækkandi en eins og það er hjá þeim í dag, þá eru það 40þ. og færi lækkandi ef verðbólga helst undir meðaltali seinustu 30 ára.

En já, þá ertu með lægri vaxtaprósentu "nafnvexti" á láninu, en værir ekki að greiða það niður jafn hratt = meiri áhætta í sjálfu sér.

Ef þetta væru mín lán þá mundi ég alls ekki endurfjármagna.

Yfirtók sjálfur lán frá 1990 og 1991 þegar ég keypti mína fyrstu eign, fólk hnussaði yfir vöxtunum en fattar ekki að algjörlega óháð lánstíma, þá borgar sig alltaf að losna undan sem flestum greiðslum = því eldra lán því betra.

Mynd

Þessi mynd sýnir hverig afborgarnir skiptast í "vaxtagreiðslu" og "niðurgreiðsla af höfuðstól" en án allrar verðbólgu.

Hvort viltu eiga skulda 3,7 milljónir í 10 ár á nýju láni og byrja kúrvuna upp á nýtt þar sem allt fer í vexti eða skulda 3,7 milljónir og hver afborgun er skv. seinustu tveim súlunum?

Sérstaklega þegar þú býrð á landi þar sem er verðtrygging.

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7055
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1002
Staða: Ótengdur

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Pósturaf rapport » Þri 14. Mar 2017 16:13

vesley skrifaði:@Rapport.

Það spilar líka inn í að eftirspurn eftir íbúðum í dag er sú mesta í sögu landsins. Allar íbúðir sem eru í byggingu og verða tilbúnar næstu 6.ár duga ekki einu sinni til að svara eftirspurn.

Og á sama tíma sér maður fólk kvarta yfir því að "kranavísitalan" í borginni sé alltof há og það sé verið að byggja alltof mikið. :roll:

Það er svona, ég a.m.k. las í markaðinn að það væri kominn tími til að hætta hjá LSH og fara vinna hjá Húsasmiðjunni. Nú fær maður að láta ljós sitt skína á öðrum vettvangi.

Skjámynd

depill
Stjórnandi
Póstar: 1547
Skráði sig: Mán 04. Júl 2005 17:09
Reputation: 215
Staðsetning: Reykjavík, Iceland
Staða: Ótengdur

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Pósturaf depill » Þri 14. Mar 2017 16:28

rapport skrifaði:
vesley skrifaði:@Rapport.

Það spilar líka inn í að eftirspurn eftir íbúðum í dag er sú mesta í sögu landsins. Allar íbúðir sem eru í byggingu og verða tilbúnar næstu 6.ár duga ekki einu sinni til að svara eftirspurn.

Og á sama tíma sér maður fólk kvarta yfir því að "kranavísitalan" í borginni sé alltof há og það sé verið að byggja alltof mikið. :roll:

Það er svona, ég a.m.k. las í markaðinn að það væri kominn tími til að hætta hjá LSH og fara vinna hjá Húsasmiðjunni. Nú fær maður að láta ljós sitt skína á öðrum vettvangi.

Forvitninn drepur mig. Ertu að fara í it tengt líka hjá huso?

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7055
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1002
Staða: Ótengdur

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Pósturaf rapport » Þri 14. Mar 2017 16:38

depill skrifaði:

Neibbs, birgðastjórnun.

Hizzman
FanBoy
Póstar: 798
Skráði sig: Fös 22. Apr 2016 18:48
Reputation: 136
Staða: Ótengdur

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Pósturaf Hizzman » Þri 14. Mar 2017 17:48

rapport skrifaði:
urban skrifaði:
rapport skrifaði:Ég veit um fólk sem er með íbúlán frá 1997, eftirstöðvar nafnverðs eru 650þ. en lánið stendur í 3,7 milljónum og það þarf að greiða 40þ. á mánuði í afborganir. Þegar lánið var tekið þá var afbogunin pr. milljón um 5500kr.

Þannig að ef engin verðbólga hefði verið, þá væri þau að greiða um 3200 á mánuði en vegna verðbólgu, vaxta ofaná verðtrygginguna og vaxtavaxta þá þurfa þau að greið aum 11þ. pr. milljón og skulda enn 3,7 milljónir af láni sem var í upphafi upp á 4,5.

Nú eru íbúðalán miklu hærri, 10 sinnum hærri.

Þið getið ímyndað ykkur hvernig þetta verður eftir 30 ár héðan í frá.

Ég ætla rétt að vona að það sé verið að skuldbreyta þessu, alveg óþarfi að halda þessu áfram, það eru miklu hagstæðari lán í dag til þess að borga niður þetta lán.

https://www.lsr.is/lan/lanareiknivel/

Það er hægt að ná þessu niður í 37þ. á mánuði og færu hækkandi en eins og það er hjá þeim í dag, þá eru það 40þ. og færi lækkandi ef verðbólga helst undir meðaltali seinustu 30 ára.

En já, þá ertu með lægri vaxtaprósentu "nafnvexti" á láninu, en værir ekki að greiða það niður jafn hratt = meiri áhætta í sjálfu sér.

Ef þetta væru mín lán þá mundi ég alls ekki endurfjármagna.

Yfirtók sjálfur lán frá 1990 og 1991 þegar ég keypti mína fyrstu eign, fólk hnussaði yfir vöxtunum en fattar ekki að algjörlega óháð lánstíma, þá borgar sig alltaf að losna undan sem flestum greiðslum = því eldra lán því betra.

Mynd

Þessi mynd sýnir hverig afborgarnir skiptast í "vaxtagreiðslu" og "niðurgreiðsla af höfuðstól" en án allrar verðbólgu.

Hvort viltu eiga skulda 3,7 milljónir í 10 ár á nýju láni og byrja kúrvuna upp á nýtt þar sem allt fer í vexti eða skulda 3,7 milljónir og hver afborgun er skv. seinustu tveim súlunum?

Sérstaklega þegar þú býrð á landi þar sem er verðtrygging.

vandamálið við verðtryggu lánin er að þau eru jafngreiðslulán - möo: um hver mánaðarmót er greiddur ákveðin partur af verðtryggðum höfuðstólnum plús áfallnir vextir mánaðarins sem er að ljúka.

ef þú ert með 40 ára lán ertu að greiða 1/480 part af höfuðstólnum (verðtryggðum) í hverjum mánuði + vextina fyrir mánuðinn

það er augljóst að parturinn sem er vextir er mest í upphafi og lækkar svo. Þetta finnst mörgum samt undarlegt.

Það er einnig undarlegt að margir lántakendur leiða hjá sér þá staðreynd verðtryggð lán má alltaf GREIÐA HRAÐAR NIÐUR en planið segir til um!

PS: ok ekki jafngreiðslulán (rangt orð) - lýsingin á greiðslum er samt rétt?
Síðast breytt af Hizzman á Þri 14. Mar 2017 18:35, breytt samtals 1 sinni.

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7055
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1002
Staða: Ótengdur

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Pósturaf rapport » Þri 14. Mar 2017 17:59

Hizzman skrifaði:vandamálið við verðtryggu lánin er að þau eru jafngreiðslulán - möo: um hver mánaðarmót er greiddur ákveðin partur af verðtryggðum höfuðstólnum plús áfallnir vextir mánaðarins sem er að ljúka.

ef þú ert með 40 ára lán ertu að greiða 1/480 part af höfuðstólnum (verðtryggðum) í hverjum mánuði + vextina fyrir mánuðinn

það er augljóst að parturinn sem er vextir er mest í upphafi og lækkar svo. Þetta finnst mörgum samt undarlegt.

Það er einnig undarlegt að margir lántakendur leiða hjá sér þá staðreynd verðtryggð lán má alltaf GREIÐA HRAÐAR NIÐUR en planið segir til um!

Þetta er ekki rétt hjá þér.

Jafngreiðslulán er ekki uppá jafnar afborganir af höfuðstól heldur "jafnar greiðslur".

Ef það væri engin verðbólga þá væri greiðslan alltaf sú sama út lánstímabilið en í upphafi fer greiðslan að mestu í vexti en í lokin þá meira í afborganir

sjá af vef ils.is fyrir 35 ára lán (er víst hámarkið í dag)

Mynd

Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4170
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1303
Staða: Ótengdur

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Pósturaf Klemmi » Þri 14. Mar 2017 18:30

Mér finnst að það ætti í raun að vera skylda fyrir þá sem eru að taka sitt fyrsta fasteignalán að sitja námskeið, kvöldstund eða svo, um lán og lánamöguleika.
Hvað verðtrygging sé, hvernig hún virki og hvaða áhrif hún geti haft, hver munurinn sé á láni með jöfnum afborgunum og jöfnum greiðslum, og síðast en ekki síst einmitt hvað hver króna sem þú greiðir aukalega inn á lánið snemma lánstímans sparar þér margar krónur út lánstímann.

Líkt og fram kom í Civilization:
Capture.PNG
Capture.PNG (94.25 KiB) Skoðað 1448 sinnum

Skjámynd

pattzi
Bara að hanga
Póstar: 1503
Skráði sig: Þri 07. Des 2010 00:54
Reputation: 38
Staðsetning: Akranes
Staða: Ótengdur

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Pósturaf pattzi » Þri 14. Mar 2017 18:54

Væri bara best ef þeir myndu bjóða óverðtryggð til 40-45 ára væri sniðugast en bara 20 ár

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7055
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1002
Staða: Ótengdur

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Pósturaf rapport » Þri 14. Mar 2017 19:23

pattzi skrifaði:Væri bara best ef þeir myndu bjóða óverðtryggð til 40-45 ára væri sniðugast en bara 20 ár

Þegar um er að ræða fasteignakaup, þá á veðið eingöngu að vera í fasteigninni, ekki fjárhagslegri framtíð lántaka s.s. það á ekki að vera hægt að gera fólk gjaldþrota ef það skilar eigninni.

Í UK er i boði að fá 10 ára kúlulán þar sem þú greirðir bara vexti og eftir 10 ár þá endurfjármagnar þú eða selur eignina, ef hún hefur hækkað í verði þá er það þinn gróði.

Hvað er ósanngjanrt við það?

Skjámynd

nidur
/dev/null
Póstar: 1361
Skráði sig: Fim 18. Ágú 2011 16:50
Reputation: 192
Staðsetning: In the forest
Staða: Ótengdur

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Pósturaf nidur » Þri 14. Mar 2017 21:39

Ég keypti mér smá evrur... Er á leiðinni út í sumar...

Og ég borga niður verðtryggða lánið mitt...

Og ég vill halda áfram með krónur á íslandi, en það mætti kannski reyna að hafa hana stabilli eða tengja við erlendan gjaldmiðil til að stýra.

Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6774
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 935
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Pósturaf Viktor » Mið 15. Mar 2017 10:29

IMG_0215.PNG
IMG_0215.PNG (191.66 KiB) Skoðað 1244 sinnum

Jæja dómsdagsmenn, krónan er aftur byrjuð að styrkjast... þetta ástand er óþolandi.

I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things

Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB

Skjámynd

Nariur
Of mikill frítími
Póstar: 1820
Skráði sig: Sun 08. Jún 2008 01:18
Reputation: 177
Staða: Ótengdur

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Pósturaf Nariur » Mið 15. Mar 2017 11:25

Við sveltum. Þetta er ólíðandi. :guy

AMD Ryzen 9 5950X | Noctua NH-D15 | Nvidia Geforce RTX 3080Ti HOF | MSI MAG X570 Tomahawk | 32GB Corsair Vengeance RGB 3600MHz DDR4 | Corsair RM1000i | Samsung 950 Pro 512GB| Fractal Define R5 | LG CX 48" OLED

Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16266
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1987
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Pósturaf GuðjónR » Mið 15. Mar 2017 11:26

Sallarólegur skrifaði:IMG_0215.PNG

Jæja dómsdagsmenn, krónan er aftur byrjuð að styrkjast... þetta ástand er óþolandi.

Sem betur fer segi ég nú bara, viltu fá hrun á krónunni með tilheyrandi hækkunum á vörum og þjónustu sem fer svo út í verðlagið og hækkar öll lán sem endar svo með vaxtahækkun Seðlabankans og í kjölfarið uppsögn kjarasamninga og vitleysu?

Og þeir sem hafa áhyggjur af því að þetta hafi áhrif á ferðaþjónustuna þá var fjölgun ferðamanna um 75% í janúar miðað við sama tíma í fyrra og um 47.3% í febrúar, þrátt fyrir styrkingu krónunnar. Það væri flott að fá dollarann aftur í 60 kr. og evru í 70. Mér er fjandans sama um útgerðina.

Skjámynd

urban
Stjórnandi
Póstar: 3750
Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
Reputation: 471
Staðsetning: Undir hægra megin
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Pósturaf urban » Mið 15. Mar 2017 12:00

Þér er kannski fjandans sama um útgerðina, en mér sem íslending er það ekki.
Hjálpar auðvitað til við að ég vinn vinnu sem að er tengd henni.

Það væri bara ekkert rosalega flott að fá krónuna aftur svona sterka, enda sést best á hvurslags innistæður voru fyrir því þegar að hún var það síðast.

Það er ekkert eðlilegt að þessi örgjaldmiðill eigi að teljast svona sterkur þegar að aðrir gjaldmiðlar eru ekki að styrkjast.

Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !

Skjámynd

Nariur
Of mikill frítími
Póstar: 1820
Skráði sig: Sun 08. Jún 2008 01:18
Reputation: 177
Staða: Ótengdur

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Pósturaf Nariur » Mið 15. Mar 2017 12:17

urban skrifaði:Þér er kannski fjandans sama um útgerðina, en mér sem íslending er það ekki.
Hjálpar auðvitað til við að ég vinn vinnu sem að er tengd henni.

Það væri bara ekkert rosalega flott að fá krónuna aftur svona sterka, enda sést best á hvurslags innistæður voru fyrir því þegar að hún var það síðast.

Það er ekkert eðlilegt að þessi örgjaldmiðill eigi að teljast svona sterkur þegar að aðrir gjaldmiðlar eru ekki að styrkjast.

Það er túrisminn, ekki lántaka eins og síðast. Í þetta skipti er innistæða fyrir styrkingunni.

AMD Ryzen 9 5950X | Noctua NH-D15 | Nvidia Geforce RTX 3080Ti HOF | MSI MAG X570 Tomahawk | 32GB Corsair Vengeance RGB 3600MHz DDR4 | Corsair RM1000i | Samsung 950 Pro 512GB| Fractal Define R5 | LG CX 48" OLED

Skjámynd

urban
Stjórnandi
Póstar: 3750
Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
Reputation: 471
Staðsetning: Undir hægra megin
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Pósturaf urban » Mið 15. Mar 2017 12:25

Nariur skrifaði:
urban skrifaði:Þér er kannski fjandans sama um útgerðina, en mér sem íslending er það ekki.
Hjálpar auðvitað til við að ég vinn vinnu sem að er tengd henni.

Það væri bara ekkert rosalega flott að fá krónuna aftur svona sterka, enda sést best á hvurslags innistæður voru fyrir því þegar að hún var það síðast.

Það er ekkert eðlilegt að þessi örgjaldmiðill eigi að teljast svona sterkur þegar að aðrir gjaldmiðlar eru ekki að styrkjast.

Það er túrisminn, ekki lántaka eins og síðast. Í þetta skipti er innistæða fyrir styrkingunni.

Já og túristinn telst vera útflutnings grein (eða öllu heldur grein sem að kemur með gjaldeyri til landsins)

Hann hættir að hluta að koma hingað þegar að krónan er of sterk, það er bara svo einfalt.
Því sterkari sem krónan er því dýrara fyrir þá að koma hingað.

Sterk króna er alls ekki góð fyrir túristann frekar en aðrar greinar sem að koma gjaldeyri til landsins.

Þetta að hann sé að aukast ennþá, er eðlilegt, hann stoppar ekki á núll einni, en pantanir geta dregist saman vegna verðlags, það verði bara of dýrt að komast hingað.

Það má jú ekki gleyma að langflestir ferðalangar panta með nokkurra mánaðarfyrirvara (ég t.d. ákvað í des að ég verð í belgíu júnú/júlí)
Ef að krónan myndi halda áfram að styrkjast þá er það frábært fyrir mig, sem að er jú að fara erlendis að nota aðra mynnt.

Það er ekkert frábært fyrir útlendinginn sem að er á leiðinni hingað aftur á móti.

Ég hef aftur á móti hætt við ferðalög erlendis þegar að krónan er of veik, einfaldlega vegna þess að það var orðið of dýrt að lifa erlendis þá.
Það þarf ekkert að segja mér að aðrir hugsi ekki um það nákvæmlega sama þegar að þeir eru á leið til íslands.

Of sterk króna hjálpar bara akkurat engum.
Of veik króna hjálpar heldur engum.
En flöktið á henni er það al versta við þetta allt saman.

Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !

vesley
Kóngur
Póstar: 4253
Skráði sig: Mán 08. Sep 2008 19:39
Reputation: 190
Staðsetning: við talvuna
Staða: Ótengdur

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Pósturaf vesley » Mið 15. Mar 2017 12:35

@Urban

Það er einmitt það sem fólk áttar sig oft ekki á að hvort hún sé veik eða sterk er ekki aðal vandamálið, heldur er það einmitt sveiflan á henni sem skemmir fyrir öllum, veikir launahækkanir og truflar inn/útflutning.

Ef gengið myndi haldast stöðugt í akkúrat þeirri stöðu sem það er núna út þetta ár myndum við sjá mikinn hag í því. Alveg eins ef gengið væri veikara/sterkara og yrði stöðugt.

Edit:

Svo spilar auðvitað inn í að skuldir ríkissjóðs hafa lækkað umtalsvert síðastliðin 2 ár og hafa skuldir heimila og fyrirtækja lækkað líka nokkur ár í röð. Spilar þetta allt inn í að ef eitthvað stórt fall kemur er ólíklegt að það verði sambærilegt 2008 þegar það var eðlilegt að skuldsetja sig langt um fram eigin greiðslugetu.

Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16266
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1987
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Pósturaf GuðjónR » Mið 15. Mar 2017 12:56

urban skrifaði:Þér er kannski fjandans sama um útgerðina, en mér sem íslending er það ekki.
Hjálpar auðvitað til við að ég vinn vinnu sem að er tengd henni.

Það væri bara ekkert rosalega flott að fá krónuna aftur svona sterka, enda sést best á hvurslags innistæður voru fyrir því þegar að hún var það síðast.

Það er ekkert eðlilegt að þessi örgjaldmiðill eigi að teljast svona sterkur þegar að aðrir gjaldmiðlar eru ekki að styrkjast.

Krónan er ekkert sterk og hefur ekki verið sterk í hátt í hundrað ár.
Þegar krónan okkar var kynnt fyrst þá var hún á sama gengi og danska krónan, þ.e. fékkst eina danska krónu fyrir eina íslenska, þegar verst lét þurftir þú að blæða 22 íslenskum krónum til að kaupa eina danska, þetta hefur aðeins lagast núna þarftu "bara" 16 íslenskar krónur í verkið.
Algjört rangnefni að tala um íslenska krónu sem sterkan gjaldmiðil.
Ástæða þess að við erum ekki með fastgengi, eða krónuna bundna við aðra gjalmiðla eða með annan gjalmiðil er útgerðin.
Sægreifarnir eru vanir að fá sínar gengisfellingar til þess að auka tekjur sínar og það á kostnað allra hinna.

Ágæt lesning fyrir þá sem halda því fram að krónan sé sterkur gjaldmiðill, já eða OF sterkur. :D
http://www.mbl.is/vidskipti/frettir/201 ... 5_prosent/

Hizzman
FanBoy
Póstar: 798
Skráði sig: Fös 22. Apr 2016 18:48
Reputation: 136
Staða: Ótengdur

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Pósturaf Hizzman » Mið 15. Mar 2017 13:04

Þú gleymir að 2 núllum var kastað. Sú danska kostar núna 1600 upprunalegar krónur!