Síða 1 af 4

Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Sent: Sun 12. Mar 2017 20:22
af GuðjónR
Þá ætla snillingarnir að kippa höftunum af án þess að hafa hugmynd um hvað gerist, þeir "vona" að krónan hrynji en ef "vel tekst til" þá mun almenningur ekki verða ílla úti. Kommon, nýlega var talað um að Ísland væri dýrasta land í heimi, ástæðan er m.a. sveiflurnar á krónunni, þegar gengið fellur þá hækkar allt, svo styrkist gengið en ekkert lækkar, svo fellur gengið aftur og þá hækkar allt...svona endurtekur þetta sig aftur og afur og við endum sem dýrasta land í heimi.

Ég spái því að krónan hrynji um amk. 30% ... ef þið eruð að spá í að kaupa ykkur dót að utan þá er tækifærið núna því eftir nokkra daga verður 10-30% dýrara að versla að utan.

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Sent: Sun 12. Mar 2017 20:23
af Televisionary
Ég ligg á bæn að þetta gerist sem fyrst og verði sem mest.

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Sent: Sun 12. Mar 2017 20:24
af GuðjónR
Televisionary skrifaði:Ég ligg á bæn að þetta gerist sem fyrst og verði sem mest.

WTF! u crazy! :wtf

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Sent: Sun 12. Mar 2017 20:27
af Televisionary
Launin eru í öðrum gjaldmiðli hjá mér.

GuðjónR skrifaði:
Televisionary skrifaði:Ég ligg á bæn að þetta gerist sem fyrst og verði sem mest.

WTF! u crazy! :wtf

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Sent: Sun 12. Mar 2017 20:35
af Hjaltiatla
Persónulega finnst mér þetta jákvætt, eyðir ákveðinni óvissu sem er búin að vera til staðar. BTW ég myndi persónulega frekar kaupa mér erlendan gjaldmiðil ef ég væri hræddur um að krónan falli í verði.

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Sent: Sun 12. Mar 2017 20:45
af GuðjónR
Hjaltiatla skrifaði:Persónulega finnst mér þetta jákvætt, eyðir ákveðinni óvissu sem er búin að vera til staðar. BTW ég myndi persónulega frekar kaupa mér erlendan gjaldmiðil ef ég væri hræddur um að krónan falli í verði.

Já, óvissu er eytt. Það vantar samt sviðsmyndir af því hvað gæti gerst, verst finnst mér afslátturinn sem aflandskrónueigendurnir fengu, í fyrra voru menn að leysa út á gengi í kringum 200 en núna 137.5.
Ef ég ætti pening þá myndi ég ekki hika að kaupa gjaldeyri.

En svo nær krónan jafnvægi aftur, bara miklar líkur á snarpri dýfu.

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Sent: Sun 12. Mar 2017 20:53
af Hjaltiatla
GuðjónR skrifaði:Já, óvissu er eytt. Það vantar samt sviðsmyndir af því hvað gæti gerst, verst finnst mér afslátturinn sem aflandskrónueigendurnir fengu, í fyrra voru menn að leysa út á gengi í kringum 200 en núna 137.5.
Ef ég ætti pening þá myndi ég ekki hika að kaupa gjaldeyri.

En svo nær krónan jafnvægi aftur, bara miklar líkur á snarpri dýfu.


Er þetta ekki bara basic hugsunarháttur hjá þessum aðilum sem áttu þessar aflandskrónur.Hugsuðu eflaust við töpum ekki neinu meðan við seljum ekki þegar krónan var sem veikust og biðu bara pollrólegir (ekki allir sem geta þetta btw). En það eru samt 50 % eftir af aflandskrónum og eigendur þeirra eiga eftir að þurfa að taka ákvörðun á næstu 2 vikum hvort þeir ætli að kaupa á uppsettu verði seðlabankans eða bíða áfram með að leysa þær út í evrum. Væri eflaust skynsamlegt að fylgjast með þeim fréttum ef maður á mikið af ISK og maður má ekki við miklum sveiflum á gengi krónunnar.

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Sent: Sun 12. Mar 2017 20:55
af vesley
Þú talar eins og þeir ættu að vita hvað gerist þegar höftin fara. Það er bara ekki hægt að vita það.
Eina sem allir vita er að þessi höft þurfa að fara og er alltaf afleiðingar af því alveg eins og afleiðingarnar vegna haftana eru ekki öll frábær.

Seðlabankinn er nú undanfarin ár búinn að undirbúa sig undir að losa höftin með að safna hundruðum milljarða í gjaldeyrisforða

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Sent: Sun 12. Mar 2017 21:00
af GuðjónR
vesley skrifaði:Þú talar eins og þeir ættu að vita hvað gerist þegar höftin fara. Það er bara ekki hægt að vita það.
Eina sem allir vita er að þessi höft þurfa að fara og er alltaf afleiðingar af því alveg eins og afleiðingarnar vegna haftana eru ekki öll frábær.

Seðlabankinn er nú undanfarin ár búinn að undirbúa sig undir að losa höftin með að safna hundruðum milljarða í gjaldeyrisforða

Það er rétt, Seðlabankinn er búinn að safna yfir 800 milljörðum og er með belti og axlarbönd. Það hefði samt mátt setja upp sviðsmyndir hvað gæti gerst og útskýra, þetta er svolítið ..."jæja strákar tökum höftin og sjáum hvað gerist, .... en þetta REDDAST er þaggi?" :)

Það verður fínt fyrir útflutninginn og þá sem eru í ferðaþjónustunni ef gengið hrynur, ekki svo gott fyrir almenning.

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Sent: Sun 12. Mar 2017 21:19
af kjartanbj
Það er heldur ekki gott að ferðaþjónustan myndi hrynja með áframhaldandi sterkri krónu, ég vill frekar halda vinnunni minni ásamt þeim þúsundum sem vinna við ferðaþjónustu, með svona sterka krónu eins og er núna þá hættir fólk að koma útaf því að það er svo dýrt fyrir það

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Sent: Sun 12. Mar 2017 21:27
af GuðjónR
kjartanbj skrifaði:Það er heldur ekki gott að ferðaþjónustan myndi hrynja með áframhaldandi sterkri krónu, ég vill frekar halda vinnunni minni ásamt þeim þúsundum sem vinna við ferðaþjónustu, með svona sterka krónu eins og er núna þá hættir fólk að koma útaf því að það er svo dýrt fyrir það


Ferðaþjónustan mun ekki hrynja vegna gengis krónunnar, það mun hrynja af öðrum ástæðum. :twisted:
Í raun væri miklu betra að fá færri ferðamenn sem borga meira.

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Sent: Sun 12. Mar 2017 21:29
af rapport
Svona er ég að upplifa Ísland - https://en.wikipedia.org/wiki/The_Theor ... sure_Class

Allir að eyða um efni fram, sérstaklega fólkið sem gerði það fyrir seinasta hrun.

Fólk er að henda hlutunum sínum bara til að búa til pláss fyrir nýja = sóun, sóun og sóun.

Þetta er ástæðan fyrir að pabbar og mömmur eru öll með iPhone7 því þau vildu ekki nota sexuna sína fyrst að sjöan var komin.

Og þá eru komnir 10 ára krakkar með sexur og þá skapast pressa á aðra krakka og aðra foreldra...

Fólk sem vill vera skynsamt er oft litið hornauga og börnin þeirra verða pirruð því þau halda að þau séu að missa af einhverju.

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Sent: Sun 12. Mar 2017 21:40
af Zpand3x
Þeir geta ekki tapað á þessu (þ.e. Bjarni og co.). Annað hvort helst krónan sterk og þeim verður fagnað af lýðnum, eða krónan fellur og þá fagna útflutnings / útgerðarfyrirtækin.

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Sent: Sun 12. Mar 2017 21:46
af rapport

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Sent: Sun 12. Mar 2017 21:47
af Hjaltiatla
Vonandi Viðreisn standi við stóru orðin og leyfi okkur þjóðinni að kjósa um aðild að ESB. Virðist vera eini raunverulegi möguleikinn á að fá stöðugan gjaldmiðil. Ég held að enginn sé að halda því fram að krónan sé eitthvað frábær þótt gengið hennar hafi hækkað núna uppá síðkastið.

Bara lóga XD og við fáum að kjósa um aðild að ESB :twisted:

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Sent: Sun 12. Mar 2017 22:27
af mind
GuðjónR skrifaði:Þá ætla snillingarnir að kippa höftunum af án þess að hafa hugmynd um hvað gerist, þeir "vona" að krónan hrynji en ef "vel tekst til" þá mun almenningur ekki verða ílla úti. Kommon, nýlega var talað um að Ísland væri dýrasta land í heimi, ástæðan er m.a. sveiflurnar á krónunni, þegar gengið fellur þá hækkar allt, svo styrkist gengið en ekkert lækkar, svo fellur gengið aftur og þá hækkar allt...svona endurtekur þetta sig aftur og afur og við endum sem dýrasta land í heimi.

Ég spái því að krónan hrynji um amk. 30% ... ef þið eruð að spá í að kaupa ykkur dót að utan þá er tækifærið núna því eftir nokkra daga verður 10-30% dýrara að versla að utan.


Þegar ráðgjafinn ætlar sér ekki nýta sín eigin ráð, ekki viss um gæði þeirra.

Eflaust vilja margir meina þeir viti hvað muni gerast, en mér finnst meira koma til manneskju sem þorir að segja "ég/við vitum það ekki" þegar hluturinn er í eðli sínu augljósalega gott sem óútreiknanlegur, hvort sem er viðkomandi er seðlabankastjóri eða annar.

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Sent: Sun 12. Mar 2017 22:39
af rbe
Það var mikið að þetta hafta bull er búið.
er búinn að bíða í mörg ár að geta fjárfest erlendis. ekkert gaman að kaupa og selja til skiptis alltaf í sömu fyrirtækjunum endalaust hér heima.?
(er öryrki)
nú geta lífeyrissjóðirnir farið að gambla á fullu með peningana okkar.

það er fáránlegt að geta ekki gert það sem maður vill þegar peningarnir flæða úr vösunum manns. rúmdýnan er löngu sprungin.

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Sent: Sun 12. Mar 2017 23:12
af Danni V8
Er að fara út eftir 2 vikur, held að það sé best að kaupa gjaldmiðil á morgun frekar en bíða þangað til rétt áður en ég fer!!

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Sent: Sun 12. Mar 2017 23:41
af rapport
rbe skrifaði:Það var mikið að þetta hafta bull er búið.
er búinn að bíða í mörg ár að geta fjárfest erlendis. ekkert gaman að kaupa og selja til skiptis alltaf í sömu fyrirtækjunum endalaust hér heima.?
(er öryrki)
nú geta lífeyrissjóðirnir farið að gambla á fullu með peningana okkar.

það er fáránlegt að geta ekki gert það sem maður vill þegar peningarnir flæða úr vösunum manns. rúmdýnan er löngu sprungin.


Jahá...

Þú hefur þá nýtt þér heimildina upp á 100 milljónir og átt svona svakalegan afgang í dýnunni?

http://www.sedlabanki.is/gjaldeyrismal/spurt-og-svarad/ skrifaði:Heimilt er að kaupa erlendan gjaldeyri hjá fjármálafyrirtæki hér á landi og flytja þann erlenda gjaldeyri á milli landa vegna fjárfestinga í verðbréfum, hlutdeildarskírteinum verðbréfa- og fjárfestingarsjóða, peningamarkaðsskjölum, öðrum framseljanlegum fjármálagerningum, peningakröfum og öðrum sambærilegum kröfuréttindum í erlendum gjaldeyri að samanlögðu jafnvirði allt að 100.000.000 kr. fyrir hvern aðila. Seðlabanka Íslands ber að endurskoða framangreint fjárhæðarmark fyrir 1. júlí 2017.

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Sent: Sun 12. Mar 2017 23:43
af rapport
Afnám hafta var ekki aðalatriðið í þessu, það vara bara bein fyrir almenning. Aðal málið var að þeir greiddu fáránlega hátt verð fyrir aflandskrónurnar og alveg í mótsögn við það sem þeir höfðu sagst ætla að gera.

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Sent: Mán 13. Mar 2017 02:56
af ZiRiuS
Og ég sem ætlaði að fara að kaupa mér bíl :(

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Sent: Mán 13. Mar 2017 10:04
af Hizzman
Hjaltiatla skrifaði:Vonandi Viðreisn standi við stóru orðin og leyfi okkur þjóðinni að kjósa um aðild að ESB. Virðist vera eini raunverulegi möguleikinn á að fá stöðugan gjaldmiðil. Ég held að enginn sé að halda því fram að krónan sé eitthvað frábær þótt gengið hennar hafi hækkað núna uppá síðkastið.

Bara lóga XD og við fáum að kjósa um aðild að ESB :twisted:



ALVEG RÉTT! Það sem hefur gerst síðustu vikur (styrking krónunnar) sannar algjörlega að þetta tal stjórnmálamanna um að nú verði tekin upp ábyrg hagstjórn er innantómt blaður!

Hin Íslenska Pólitík er bara krónisk fyllibytta! - Þennslufylleríin eru of skemmtileg til að það sé mögulegt að sleppa þeim..

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Sent: Mán 13. Mar 2017 10:21
af Hjaltiatla
Hizzman skrifaði:ALVEG RÉTT! Það sem hefur gerst síðustu vikur (styrking krónunnar) sannar algjörlega að þetta tal stjórnmálamanna um að nú verði tekin upp ábyrg hagstjórn er innantómt blaður!

Hin Íslenska Pólitík er bara krónisk fyllibytta! - Þennslufylleríin eru of skemmtileg til að það sé mögulegt að sleppa þeim..


Jebb lóga ránfuglinum og litlu pabba stráka skoffínunum í Garðabænum.


Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Sent: Mán 13. Mar 2017 11:04
af worghal

Re: Afnám hafta og yfirvofandi hrun krónunnar

Sent: Mán 13. Mar 2017 11:44
af Moldvarpan
Ég veit ekki hvort það séu fleirri en ég... en mér finnst magnað hversu margir þrífast á veikri krónu.

Það er eins og landið geti ekki gengið nema krónan sé veik... hverjir hagnast á því?

Getur eh rökstutt það afhverju betra er að hafa veika krónu en sterka?