Síða 2 af 14

Re: Costco á Íslandi?.

Sent: Fim 09. Feb 2017 17:37
af Blackened
4800kr er ekki mikið árgjald finnst mér fyrir að "fá" að versla.. ég hef borgað talsvert hærra árgjald af VISA korti til að "fá" að versla líka og ekki kvartaði ég mikið eða aðrir sem ég þekki :)

Re: Costco á Íslandi?.

Sent: Fim 09. Feb 2017 17:42
af vesley
Tiger skrifaði:Þetta er ekki stílað inná bændur Guðjón minn, komdu bara úr sveitinni og vertu glaður :)

Held þetta sé bara af hinu góða. Það t.d. make-ar engan sens að það sé 40-50% ódýrara að flytja sjálfur inn 4stk dekk en kaupa þau af verstæði sem flytjur þau inn í gámavís.

Held að CostCo komi sterkt inn í svona vörum, þótt kannski mjólk og rúgbrauð verði ekki til að borga upp þessar 4800kr manns.

x2.

Ekki má gleyma að þegar það kemur að bensíni og matvörum þá er þetta nánast allt saman í eigu sömu tveggja fyrirtækjana í sitthvorum geiranum, hvort sem samkeppni sé mikil eða ekki mun þetta bókað hafa áhrif á eldsneytisverð, raftæki og aðra hluti.

Að bera saman Costco við Bauhaus er líka brandari í sjálfu sér þar sem Costco er ekki bara um það bil tífalt stærra fyrirtæki þá er það líka með sömu álagningu í verslunum sínum (8-10%) og er stefna þeirra að halda sér ekki nema í ca 2% hagnað sem ég get lofað að er umtalsvert lægra en aðrar verslanir eru með hér heima.
Eru þeir líka frægir fyrir að koma vel fram við sitt starfsfólk og vera með góð laun miðað við aðrar sambærilegar verslanir.

Re: Costco á Íslandi?.

Sent: Fim 09. Feb 2017 17:44
af GuðjónR
Blackened skrifaði:4800kr er ekki mikið árgjald finnst mér fyrir að "fá" að versla.. ég hef borgað talsvert hærra árgjald af VISA korti til að "fá" að versla líka og ekki kvartaði ég mikið eða aðrir sem ég þekki :)

Ég borga 0.- kr. fyrir MasterCard kortið mitt, það er veltutengt. Ef Borgun fær 3.5% af veltunni þá græða þeir líkega 120k+ á ári fyrir notkunina, ekki séns að ég fari að borga þeim aukalega fyrir að færa þeim þau viðskipti. Er nánast hættur að nota debet þar sem það var farið að kosta okkur um 15k á ári í færslugjöld.

Re: Costco á Íslandi?.

Sent: Fim 09. Feb 2017 18:15
af Blackened
GuðjónR skrifaði:

Blóðpeningar! og svo ætla þessir atvinnuglæpamenn í ríkisstjórn að tala um að "banna" reiðufé svo að þessir peningar sem að rúlla "frítt" á milli fólks séu úr sögunni og bankakerfið hagnist meira á færslugjöldunum.. jeij!

Ég HELD að ég borgi engin færslugjöld á Visa debet kortinu sem ég er með núna hjá norskum banka.. en ég reyndar er ekki 100% viss

Re: Costco á Íslandi?.

Sent: Fim 09. Feb 2017 18:41
af worghal
vill samt benda á það að ársgjaldið í usa eru 55$ eða um 6200 kr.

Re: Costco á Íslandi?.

Sent: Fim 09. Feb 2017 18:54
af hfwf
worghal skrifaði:vill samt benda á það að ársgjaldið í usa eru 55$ eða um 6200 kr.

Það er exclusive pakkinn.

Re: Costco á Íslandi?.

Sent: Fim 09. Feb 2017 18:59
af vesley
Blackened skrifaði:
GuðjónR skrifaði:
Blackened skrifaði:4800kr er ekki mikið árgjald finnst mér fyrir að "fá" að versla.. ég hef borgað talsvert hærra árgjald af VISA korti til að "fá" að versla líka og ekki kvartaði ég mikið eða aðrir sem ég þekki :)

Ég borga 0.- kr. fyrir MasterCard kortið mitt, það er veltutengt. Ef Borgun fær 3.5% af veltunni þá græða þeir líkega 120k+ á ári fyrir notkunina, ekki séns að ég fari að borga þeim aukalega fyrir að færa þeim þau viðskipti. Er nánast hættur að nota debet þar sem það var farið að kosta okkur um 15k á ári í færslugjöld.

Blóðpeningar! og svo ætla þessir atvinnuglæpamenn í ríkisstjórn að tala um að "banna" reiðufé svo að þessir peningar sem að rúlla "frítt" á milli fólks séu úr sögunni og bankakerfið hagnist meira á færslugjöldunum.. jeij!

Ég HELD að ég borgi engin færslugjöld á Visa debet kortinu sem ég er með núna hjá norskum banka.. en ég reyndar er ekki 100% viss

Ég elska hvað nánast engin umræða getur verið eingöngu um það sem verið var að ræða í upphafi.

Hægt væri að tala um uppskrift að lambalæri og einhver gæti dregið stjórnmál inn í það. \:D/

Re: Costco á Íslandi?.

Sent: Fim 09. Feb 2017 19:03
af emmi
Hvar skráir maður sig? Sé engan möguleika á costco.is.

Re: Costco á Íslandi?.

Sent: Fim 09. Feb 2017 19:08
af worghal
hfwf skrifaði:
worghal skrifaði:vill samt benda á það að ársgjaldið í usa eru 55$ eða um 6200 kr.

Það er exclusive pakkinn.

exclusive pakkinn er 110$ standard 55$ og svo 55$ uppfærslugjald.

Re: Costco á Íslandi?.

Sent: Fim 09. Feb 2017 19:42
af steinarsaem
worghal skrifaði:
steinarsaem skrifaði:Þeir eru líka með póstverslun, svona ef þú vilt spara þér aksturinn.

senda þeir þá 200L tunnur? :lol:

Pósturinn auglýsir að þeir fari létt með stórar sendingar.

Re: Costco á Íslandi?.

Sent: Fim 09. Feb 2017 22:51
af finnbogi0
ætli það sé tilviljun að Hagkaup sé að loka báðum verslunum í Kringlunni og svo í holtagörðum og verslunin í smáralind minnkuð um 50%

hmmmm

http://www.visir.is/stjornendur-og-innherjar-selja-bref-i-hogum/article/2016160828930

Re: Costco á Íslandi?.

Sent: Fim 09. Feb 2017 22:55
af Hizzman
finnbogi0 skrifaði:ætli það sé tilviljun að Hagkaup sé að loka báðum verslunum í Kringlunni og svo í holtagörðum og verslunin í smáralind minnkuð um 50%

hmmmm

http://www.visir.is/stjornendur-og-innherjar-selja-bref-i-hogum/article/2016160828930

NEI. það er ekki tilviljun, smásölubransinn er í panik þessa dagana!

Re: Costco á Íslandi?.

Sent: Fim 09. Feb 2017 23:21
af einarhr
Það er ekkert að því að borga 4800 kr í membership, þú spara þér það á 2 verslunarferðum ef þessi verslun hentar þér. Costco er ekki samkeppni við Bónus, heldur er Costco að bjóða gott verð í magnkaupum eins og Big Box og fleiri fyrirtæki eru að selja stórar einingar.

Re: Costco á Íslandi?.

Sent: Fös 10. Feb 2017 08:11
af blitz
emmi skrifaði:Hvar skráir maður sig? Sé engan möguleika á costco.is.

Ofarlega til hægri á costco.is.

Starfaði í kringum þennan bransa (matvörur) fyrir nokkrum árum og miðað við álagningu á hlutum sem maður sá þá held ég að það sé alveg óhætt að búast við því að nokkrir vöruflokkar munu lækka mikið í verði. Stundum er þetta auðvitað bundið við það að kaupa pakka (t.d. 4 stk) en sparnaðurinn getur auðveldlega numið 20-40% á einstaka hlutum.

Re: Costco á Íslandi?.

Sent: Fös 10. Feb 2017 09:19
af Urri
Ætli þetta muni hafa einhver áhrif á okkur vesælinana út á landi =/

Re: Costco á Íslandi?.

Sent: Fös 10. Feb 2017 15:12
af Jón Ragnar
Urri skrifaði:Ætli þetta muni hafa einhver áhrif á okkur vesælinana út á landi =/

Well Krónan og Bónus eru með sama verð útum allt (segja þeir)

Re: Costco á Íslandi?.

Sent: Fös 10. Feb 2017 16:22
af GuðjónR
Jón Ragnar skrifaði:
Urri skrifaði:Ætli þetta muni hafa einhver áhrif á okkur vesælinana út á landi =/

Well Krónan og Bónus eru með sama verð útum allt (segja þeir)

Er það ekki samáð? :megasmile

Re: Costco á Íslandi?.

Sent: Fös 10. Feb 2017 16:40
af vesley
GuðjónR skrifaði:
Jón Ragnar skrifaði:
Urri skrifaði:Ætli þetta muni hafa einhver áhrif á okkur vesælinana út á landi =/

Well Krónan og Bónus eru með sama verð útum allt (segja þeir)

Er það ekki samáð? :megasmile

Býst við að hann sé að tala um að allar Bónus verslanir séu með sama verð óháð staðsetningu og sama eigi við Krónuna. Ekki að þessar verslanir "per se" séu með eins verð. :)

Re: Costco á Íslandi?.

Sent: Fös 10. Feb 2017 17:56
af ZiRiuS
finnbogi0 skrifaði:ætli það sé tilviljun að Hagkaup sé að loka báðum verslunum í Kringlunni og svo í holtagörðum og verslunin í smáralind minnkuð um 50% ]

Hvar sérðu það? Eina sem ég fann var að efri hæðinni í Kringlunni verði lokað og H&M komi í staðin.

Re: Costco á Íslandi?.

Sent: Fös 10. Feb 2017 18:00
af hfwf
finnbogi0 skrifaði:ætli það sé tilviljun að Hagkaup sé að loka báðum verslunum í Kringlunni og svo í holtagörðum og verslunin í smáralind minnkuð um 50%

hmmmm

http://www.visir.is/stjornendur-og-innherjar-selja-bref-i-hogum/article/2016160828930

Hagkaup er bara að loka fatabúðinni á eftir hæð í kringlunni, Holtagörðum var lokað því þarna var einfaldlega bara allt of lítið að gera miðað við stærð.
Það er augljós samdráttur. En hagkaup er búið að vera skíta á sig í mörg ár, það sást bara með að skipta út fatadeildinni sinni fyrir F&F sem eru töluvert verri vara og dýrarai, en smella á því "sér"merki og halda að fólk falli frekar fyrir því.
Smáralind hef ég ekki hugmynd um, HAgkaup ræður engu, Kringlan og Smáralind ráða öllu.

Re: Costco á Íslandi?.

Sent: Mán 13. Feb 2017 08:57
af Jón Ragnar
vesley skrifaði:
GuðjónR skrifaði:
Jón Ragnar skrifaði:
Urri skrifaði:Ætli þetta muni hafa einhver áhrif á okkur vesælinana út á landi =/

Well Krónan og Bónus eru með sama verð útum allt (segja þeir)

Er það ekki samáð? :megasmile

Býst við að hann sé að tala um að allar Bónus verslanir séu með sama verð óháð staðsetningu og sama eigi við Krónuna. Ekki að þessar verslanir "per se" séu með eins verð. :)

Bingó :)

Costco mun hafa mjög góð áhrif á landið.

Hef það á tilfinningunni að þetta áfengisfrumvarp er í umferð núna aftur útaf þeim samt

Re: Costco á Íslandi?.

Sent: Mán 13. Feb 2017 09:24
af rapport
Ég sé Costco fyrst og fremst koma til landsins með réttan þankagang, rétt eins og IKEA gerir í stað þess að vera með litlar verslanir út um allt, að hafa eina risa stóra og leggja mikið í hana.

Það sem ég hefði áhyggjur af er að þarna skapist umferðahnútar ef umferð eykst mikið meira.

Samkeppni á matvöru- og bensínmarkaði hefur ekki verið hörðust í verði eða þjónustu, það hefur bara verið keppst um hver fær lóðir í nýjum hverfum og allir að reyna að troða sér út um allt.

Norðlingaholt, tvær bensínstöðvar engin matvöruverslun...

Ég veit ekki hvað það eru margar matvöruverslanir í Reykjavík í það heila en þær eru kannski nær því að vera eðlilegur fjöldi m.v. bensínstöðvarnar.

Re: Costco á Íslandi?.

Sent: Mið 15. Feb 2017 12:52
af Hjaltiatla
:klessa Boom :klessa

Heildsalar lækka verð vegna komu Costco!

Þetta er ágætis byrjun, Costco er ekki einu sinni ennþá búið að opna :happy

Re: Costco á Íslandi?.

Sent: Þri 21. Feb 2017 11:39
af rapport
Ég sé fyrir mér að Costco verði tölvuheildsala landsins og muni koma að mestu í stað Advania, OK og Nýherja...

costco.co.uk

Þarna eru tölvur á:

95Þ. - http://www.costco.co.uk/view/p/hp-envy- ... top-225624

130Þ. - http://www.costco.co.uk/view/p/hp-envy- ... ook-229679

Fínar fyrirtækjavélar, outspekka margt sem í útboði ríkisins

Það er svo spurning hvernig fer með viðgerðar og ábyrgðarþjónustu, sá aðili sem fær þann díl (efast um að Costco geri þetta sjálfir) sá aðili verður "golden".

Sérstaklega m.v. hvernig þetta virðist vera í "fyrirtækjageiranum" sbr. viewtopic.php?f=9&t=72185&p=643666#p643666

Re: Costco á Íslandi?.

Sent: Þri 21. Feb 2017 12:21
af pattzi
Ég ætla gerast meðlimur allavega vona að verðin verði góð :)

En ætli ég þurfi ekki að selja verðbréf sem ég á í Högum miðað við það sem maður les en það er svo sem engir hundraðþúsundkallar en samt ágætt að losa sig við það svo maður tapi engu við komu costo