Costco á Íslandi?.

Allt utan efnis
Skjámynd

KermitTheFrog
Kóngur
Póstar: 4273
Skráði sig: Mán 07. Júl 2008 23:32
Reputation: 67
Staða: Ótengdur

Re: Costco á Íslandi?.

Pósturaf KermitTheFrog » Fim 01. Jún 2017 13:28

Nú er ég bara leikmaður, en ég hef séð þessa setningu oft í sambandi við þetta mál:

Þar sem Costco er ekki með markaðsráðandi stöðu hér á landi getur fyrirtækið gert þetta [selt vörur undir kostnaðarverði].

Hvað felst í því að hafa markaðsráðandi stöðu? Ef vinsældir Costco halda svona áfram, munu þeir öðlast markaðsráðandi stöðu? Þá gætu þeir ekki lengur boðið svona fáránleg verð. Eða geta Costco aldrei náð markaðsráðandi stöðu hérlendis?

Gislinn
FanBoy
Póstar: 769
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 01:07
Reputation: 50
Staða: Ótengdur

Re: Costco á Íslandi?.

Pósturaf Gislinn » Fim 01. Jún 2017 14:02

KermitTheFrog skrifaði:Nú er ég bara leikmaður, en ég hef séð þessa setningu oft í sambandi við þetta mál:

Þar sem Costco er ekki með markaðsráðandi stöðu hér á landi getur fyrirtækið gert þetta [selt vörur undir kostnaðarverði].

Hvað felst í því að hafa markaðsráðandi stöðu? Ef vinsældir Costco halda svona áfram, munu þeir öðlast markaðsráðandi stöðu? Þá gætu þeir ekki lengur boðið svona fáránleg verð. Eða geta Costco aldrei náð markaðsráðandi stöðu hérlendis?

Costco getur orðið í markaðsráðandi stöðu. Svo ég fái nú lánaða setningu úr meistararitgerð Guðbjargar Benjamínsdóttur (Misnotkun á markaðsráðandi stöðu í formi sértækrar verðlækkunar, Júní 2008).

Guðbjörg Benjamínsdóttir skrifaði: Markaðsráðandi staða er skilgreind í II. kafla samkeppnislaga nr. 44/2005, nánar tiltekið í ákvæði 4. tölul. 1. mgr. 4. gr. Samkvæmt því er fyrirtæki markaðsráðandi þegar það hefur þann efnahagslega styrkleika að geta hindrað virka samkeppni á þeim markaði sem máli skiptir og getur að verulegu leyti starfað án tillits til keppinauta, viðskiptavina og neytenda.

Þar sem Costco hefur verið hér stutt eru þeir með litla markaðshlutdeild og því ná þeir ekki markaðsráðandistöðu fyrr en eftir einhvern tíma.

common sense is not so common.

frappsi
Nörd
Póstar: 143
Skráði sig: Lau 08. Jún 2013 16:11
Reputation: 40
Staða: Ótengdur

Re: Costco á Íslandi?.

Pósturaf frappsi » Fim 01. Jún 2017 18:32

Sallarólegur skrifaði:
GuðjónR skrifaði:
Tiger skrifaði:Hagar voru ekki lengi að sína sitt rétta andlit....

http://www.vb.is/frettir/taka-vorur-ur-hillum/138521/

Ef þeir geta ekki beitt neytendum ofbeldi þá gera þeir það við framleiðendur.
Ofbeldi og yfirgangur er það sem rekur þessa mafíur áfram.
Vona að Wallmart og Target eigi eftir að bætast í hópinn og veita þessum siðblindingjum náðarhöggin.

Amen. Vona að sem flestir sjái í gegnum þetta rugl hjá þeim.

http://nutiminn.is/forstjori-haga-sakar ... -og-bonus/

Hef nú heyrt ýmsa hluti um samskipti Haga / Bónuss og heildsala sem ríma við þetta í gegnum tíðina. Held að málið sé að loksins sagði einhver frá þessu í fjölmiðlum frekar en að það sé verið að ljúga upp á litla saklausa grísinn.

Er það t.d. rétt að Holtakjúklingur hefur ekki verið í Bónus síðan Costco opnaði (Costco selur Holtakjúkling)? Hann hefur verið til hjá þeim í gegnum árin...

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16267
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1991
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Costco á Íslandi?.

Pósturaf GuðjónR » Fim 01. Jún 2017 18:37

frappsi skrifaði:

Það útskýrir af hverju það er bara Bónuskjúklingur í Bónus núna, konan var að versla fyrir nokkrum dögum og spurði af hverjui það væri bara Bónuskjúklingur og starfsmaðurinn varð hvummsa, nú vitum við af hverju.

Skjámynd

Revenant
</Snillingur>
Póstar: 1031
Skráði sig: Fim 24. Jún 2004 12:36
Reputation: 132
Staða: Ótengdur

Re: Costco á Íslandi?.

Pósturaf Revenant » Fim 01. Jún 2017 19:22

Smá pæing hjá ykkur sem hafa verslað í Costco, eru vörurnar merktar á íslensku?
T.d. eru hreinlætisvörur með íslenskum límmiða eða bara enski textinn?

Ég spyr því eitt af því sem innlend verslun hefur gagnrýnt er að þau þurfi að endurmerkja vörur sem þau kaupa til landsins (og þar með auka kostnaður).
Eða eru þeir bara að selja vörur sem þurfa ekki endurmerkingu?

Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6774
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 935
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Costco á Íslandi?.

Pósturaf Viktor » Fim 01. Jún 2017 19:24

Revenant skrifaði:Smá pæing hjá ykkur sem hafa verslað í Costco, eru vörurnar merktar á íslensku?
T.d. eru hreinlætisvörur með íslenskum límmiða eða bara enski textinn?

Ég spyr því eitt af því sem innlend verslun hefur gagnrýnt er að þau þurfi að endurmerkja vörur sem þau kaupa til landsins (og þar með auka kostnaður).
Eða eru þeir bara að selja vörur sem þurfa ekki endurmerkingu?

Vörur þurfa að vera með merkingu á íslensku eða ensku eða einhverju norðurlandamáli :)
Þær eru merktar á ensku.

Ég hef aldrei séð sjampóbrúsa með íslenskum merkingum.

Er þá ekki bara verið að tala um hættulegar vörur? Með svona appelsínugulu X-i á og VARÚÐ?

I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things

Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB

Skjámynd

MeanGreen
Fiktari
Póstar: 68
Skráði sig: Sun 05. Okt 2008 17:46
Reputation: 8
Staða: Ótengdur

Re: Costco á Íslandi?.

Pósturaf MeanGreen » Fim 01. Jún 2017 20:17

GuðjónR skrifaði:
Það útskýrir af hverju það er bara Bónuskjúklingur í Bónus núna, konan var að versla fyrir nokkrum dögum og spurði af hverju það væri bara Bónuskjúklingur og starfsmaðurinn varð hvumsa, nú vitum við af hverju.

Það er ekki út af því Bónus er að beita Holta "ofbeldi". Hver er verðmunurinn á Holtakjúkling í Costco og Bónuskjúkling? Veit einhver það?

Afar ólíklegt að venjulegur starfsmaður viti af hverju það er bara Bónuskjúklingur í Bónus. Getur prufað að spyrja verslunarstjóra eða yfirmanninn á kæli.

Skjámynd

KermitTheFrog
Kóngur
Póstar: 4273
Skráði sig: Mán 07. Júl 2008 23:32
Reputation: 67
Staða: Ótengdur

Re: Costco á Íslandi?.

Pósturaf KermitTheFrog » Fim 01. Jún 2017 21:52

Sallarólegur skrifaði:
Revenant skrifaði:Smá pæing hjá ykkur sem hafa verslað í Costco, eru vörurnar merktar á íslensku?
T.d. eru hreinlætisvörur með íslenskum límmiða eða bara enski textinn?

Ég spyr því eitt af því sem innlend verslun hefur gagnrýnt er að þau þurfi að endurmerkja vörur sem þau kaupa til landsins (og þar með auka kostnaður).
Eða eru þeir bara að selja vörur sem þurfa ekki endurmerkingu?

Vörur þurfa að vera með merkingu á íslensku eða ensku eða einhverju norðurlandamáli :)
Þær eru merktar á ensku.

Ég hef aldrei séð sjampóbrúsa með íslenskum merkingum.

Er þá ekki bara verið að tala um hættulegar vörur? Með svona appelsínugulu X-i á og VARÚÐ?

Oftar en ekki hefur held ég vantað einhverjar upplýsingar á umbúðirnar sem er krafist hérlendis held ég. Það er allavega mjög random hvar maður sér svona miða.

Skjámynd

Steini B
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 368
Skráði sig: Mið 02. Feb 2011 21:59
Reputation: 12
Staðsetning: í bjórbaði
Staða: Ótengdur

Re: Costco á Íslandi?.

Pósturaf Steini B » Fim 01. Jún 2017 22:12

Revenant skrifaði:Smá pæing hjá ykkur sem hafa verslað í Costco, eru vörurnar merktar á íslensku?
T.d. eru hreinlætisvörur með íslenskum límmiða eða bara enski textinn?

Ég spyr því eitt af því sem innlend verslun hefur gagnrýnt er að þau þurfi að endurmerkja vörur sem þau kaupa til landsins (og þar með auka kostnaður).
Eða eru þeir bara að selja vörur sem þurfa ekki endurmerkingu?

Ég keypti pakkningu af Red Bull og það var límmiði á henni sem var á íslensku...

Cikster
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 399
Skráði sig: Lau 11. Mar 2006 13:02
Reputation: 16
Staða: Ótengdur

Re: Costco á Íslandi?.

Pósturaf Cikster » Fim 01. Jún 2017 23:19

Steini B skrifaði:
Revenant skrifaði:Smá pæing hjá ykkur sem hafa verslað í Costco, eru vörurnar merktar á íslensku?
T.d. eru hreinlætisvörur með íslenskum límmiða eða bara enski textinn?

Ég spyr því eitt af því sem innlend verslun hefur gagnrýnt er að þau þurfi að endurmerkja vörur sem þau kaupa til landsins (og þar með auka kostnaður).
Eða eru þeir bara að selja vörur sem þurfa ekki endurmerkingu?

Ég keypti pakkningu af Red Bull og það var límmiði á henni sem var á íslensku...

Matvörur eru undir eftirliti MAST og þær sem koma frá bandaríkjunum standast ekki þær kröfur sem eru hér á landi varðandi merkingar. Kostur hefur lent oft í þeim þar sem þeir taka vörurnar frá bandaríkjunum. Costco er undir bresku keðjunni þannig að merkingar á þeim ættu að mestu leiti að vera löglegar hér þar sem EU reglurnar gilda líka í bretlandi. Ef þeir hinsvegar mundu flytja einhverja matvöru beint frá bandaríkjunum þyrfti að stickera þær alveg eins og Kostur hefur þurft að gera.

Varðandi aðrar vörur sýnist mér að Umhverfisstofnun eigi að hafa eftirlit með hættulegu efnunum og Neytendastofa sé með flest annað (ásamt reyndar að "e" merktar meðaltals þyngdar vörur standist þá staðla held ég).

Skjámynd

Skaz
Nörd
Póstar: 111
Skráði sig: Lau 14. Sep 2013 01:48
Reputation: 12
Staða: Ótengdur

Re: Costco á Íslandi?.

Pósturaf Skaz » Fim 01. Jún 2017 23:39

GuðjónR skrifaði:
frappsi skrifaði:
Sallarólegur skrifaði:
GuðjónR skrifaði:
Tiger skrifaði:Hagar voru ekki lengi að sína sitt rétta andlit....

http://www.vb.is/frettir/taka-vorur-ur-hillum/138521/

Ef þeir geta ekki beitt neytendum ofbeldi þá gera þeir það við framleiðendur.
Ofbeldi og yfirgangur er það sem rekur þessa mafíur áfram.
Vona að Wallmart og Target eigi eftir að bætast í hópinn og veita þessum siðblindingjum náðarhöggin.

Amen. Vona að sem flestir sjái í gegnum þetta rugl hjá þeim.

http://nutiminn.is/forstjori-haga-sakar ... -og-bonus/

Hef nú heyrt ýmsa hluti um samskipti Haga / Bónuss og heildsala sem ríma við þetta í gegnum tíðina. Held að málið sé að loksins sagði einhver frá þessu í fjölmiðlum frekar en að það sé verið að ljúga upp á litla saklausa grísinn.

Er það t.d. rétt að Holtakjúklingur hefur ekki verið í Bónus síðan Costco opnaði (Costco selur Holtakjúkling)? Hann hefur verið til hjá þeim í gegnum árin...

Það útskýrir af hverju það er bara Bónuskjúklingur í Bónus núna, konan var að versla fyrir nokkrum dögum og spurði af hverjui það væri bara Bónuskjúklingur og starfsmaðurinn varð hvummsa, nú vitum við af hverju.

Reyndar er orðið svolítið síðan Högum og Reykjagarði (Holtakjúklingur) lenti saman og Bónus henti öllu frá þeim út úr verslunum sínum. Við erum að tala um 2-3 mánuði síðan þetta gerðist. Skilst að það hafi verið ansi margir samverkandi þættir, verð, þjónusta og afgreiðsla á sendingum.

Held að Costco hafi ekki stjórnað þessu heldur að þetta hafi legið lengi í loftinu að Hagar myndu snúa sér alfarið að Matfugli sem birgja í þessum vörum.

Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5487
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1012
Staða: Ótengdur

Re: Costco á Íslandi?.

Pósturaf appel » Fös 02. Jún 2017 03:50

Hvað er markaðsráðandi staða?

Er það þegar Hagar geta hótað innlendum matarframeiðlanda?
Eða er það þegar annað stærsta matvöruverslunarfyrirtæki heims getur hótað?

Ég held að íslendingar fatti ekki að þetta "goes both ways".

*-*

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16267
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1991
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Costco á Íslandi?.

Pósturaf GuðjónR » Fös 02. Jún 2017 09:17

Velta Costco fer fram úr Bónus fyrstu dagana, Bónus er með 32 verslanir um land allt þarf af 20 á höfuðborgarsvæðinu á sama tíma er Costco með eina verslun í Garðabæ. Samkvæmt tölum Meniga var kortavelta Costco 32% meðan allar veslanir Bónus til samans náðu 28% af heildar dagvöruveltu.

http://www.visir.is/g/2017170609818/vel ... -en-bonuss

Það er ekkert skrítið þó fórstjóri Haga sé að fara á límingunum þessa dagana, það er ekki spurning hvort heldur hvenær Costco fjölgar verslunum og það er líka viðbúið að aðrar keðjur taki eftir því sem er að gerast hérna og þegar það gerist þá grunar mig nú að dagar Haga á dagvörumarkaði séu taldir.

Vaktari
Ofur-Nörd
Póstar: 231
Skráði sig: Lau 08. Des 2012 21:05
Reputation: 12
Staða: Ótengdur

Re: Costco á Íslandi?.

Pósturaf Vaktari » Fös 02. Jún 2017 09:34

GuðjónR skrifaði:Velta Costco fer fram úr Bónus fyrstu dagana, Bónus er með 32 verslanir um land allt þarf af 20 á höfuðborgarsvæðinu á sama tíma er Costco með eina verslun í Garðabæ. Samkvæmt tölum Meniga var kortavelta Costco 32% meðan allar veslanir Bónus til samans náðu 28% af heildar dagvöruveltu.

http://www.visir.is/g/2017170609818/vel ... -en-bonuss

Það er ekkert skrítið þó fórstjóri Haga sé að fara á límingunum þessa dagana, það er ekki spurning hvort heldur hvenær Costco fjölgar verslunum og það er líka viðbúið að aðrar keðjur taki eftir því sem er að gerast hérna og þegar það gerist þá grunar mig nú að dagar Haga á dagvörumarkaði séu taldir.

Þetta mun eflaust líka hafa áhrif á Festi sem á víst (kaupás) krónuna og allt það sem fellur undir það dæmi skulum ekki einblína bara á haga en já RIP kaupás og hagar.
Gaman að sjá hvað allir eru ánægðir með costco á ennþá eftir að skella mér og skoða þetta allt saman.

AMD Ryzen7 7700X AM5 | 2x16 GB G.Skill Flare X5 6000MHz DDR5 | Asrock A620M Pro RS Wifi uATX AM5 |Palit Geforce RTX 4070Ti Gamerock Premium 12GB | Be Quiet 850W |DeepCool AS500 |

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16267
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1991
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Costco á Íslandi?.

Pósturaf GuðjónR » Fös 02. Jún 2017 11:06

Vaktari skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Velta Costco fer fram úr Bónus fyrstu dagana, Bónus er með 32 verslanir um land allt þarf af 20 á höfuðborgarsvæðinu á sama tíma er Costco með eina verslun í Garðabæ. Samkvæmt tölum Meniga var kortavelta Costco 32% meðan allar veslanir Bónus til samans náðu 28% af heildar dagvöruveltu.

http://www.visir.is/g/2017170609818/vel ... -en-bonuss

Það er ekkert skrítið þó fórstjóri Haga sé að fara á límingunum þessa dagana, það er ekki spurning hvort heldur hvenær Costco fjölgar verslunum og það er líka viðbúið að aðrar keðjur taki eftir því sem er að gerast hérna og þegar það gerist þá grunar mig nú að dagar Haga á dagvörumarkaði séu taldir.

Þetta mun eflaust líka hafa áhrif á Festi sem á víst (kaupás) krónuna og allt það sem fellur undir það dæmi skulum ekki einblína bara á haga en já RIP kaupás og hagar.
Gaman að sjá hvað allir eru ánægðir með costco á ennþá eftir að skella mér og skoða þetta allt saman.

True, nennti ekki að minnast á Festi/Kaupás, en þeir bera ekkert meiri virðingu fyrir viðskiptavinum sínum en Hagar.

Ég fer oft í Krónuna og Bónus í Mosó, það er eiginlega ekki hægt að fara í þessar verslanir seinnipart föstudags svo mikil er örtröðin en föstudaginn fyrir sléttri viku í mesta Costco æðinu þá fór ég bæði í Bónus og Krónuna seinnipartinn og búðirnar væru næstum tómar. Hef aldrei séð þetta gerast áður.

pepsico
Bannaður
Póstar: 714
Skráði sig: Mán 20. Apr 2015 17:30
Reputation: 174
Staða: Ótengdur

Re: Costco á Íslandi?.

Pósturaf pepsico » Fös 02. Jún 2017 11:27

GuðjónR skrifaði:það er ekki spurning hvort heldur hvenær Costco fjölgar verslunum og

Það er ekki að fara að gerast.
Ef þú skoðar hlutfallið milli fólksfjölda og vöruhúsa annars staðar úti í heimi sérðu að við
hérna 200-300 þúsund í nánd við þetta vöruhús erum nú þegar langt yfir eðlilegu hlutfalli.
Meira að segja í stærstu "Costco fylkjunum" eru færri en 1 vöruhús/300 þúsund einstaklinga og í
langflestum fylkjum er hlutfallið mun lægra. Ef við förum út fyrir Bandaríkin er þetta ennþá skýrara.
Hinum megin við Atlantshafið eru tuttugu og átta vöruhús fyrir 65 miljón Breta.
Í Asíu gengur Costco best í Suður-Kóreu, Japan og Taívan en þar eru samt bara ellefu vöruhús fyrir 51 miljón
Kóreubúa, tuttugu og fimm vöruhús fyrir 125 miljón Japani og þrettán vöruhús fyrir 23 miljón Taívani.

kjarrig
Ofur-Nörd
Póstar: 273
Skráði sig: Sun 08. Ágú 2010 10:30
Reputation: 7
Staða: Ótengdur

Re: Costco á Íslandi?.

Pósturaf kjarrig » Fös 02. Jún 2017 11:35

GuðjónR skrifaði:Velta Costco fer fram úr Bónus fyrstu dagana, Bónus er með 32 verslanir um land allt þarf af 20 á höfuðborgarsvæðinu á sama tíma er Costco með eina verslun í Garðabæ. Samkvæmt tölum Meniga var kortavelta Costco 32% meðan allar veslanir Bónus til samans náðu 28% af heildar dagvöruveltu.

http://www.visir.is/g/2017170609818/vel ... -en-bonuss

Það er ekkert skrítið þó fórstjóri Haga sé að fara á límingunum þessa dagana, það er ekki spurning hvort heldur hvenær Costco fjölgar verslunum og það er líka viðbúið að aðrar keðjur taki eftir því sem er að gerast hérna og þegar það gerist þá grunar mig nú að dagar Haga á dagvörumarkaði séu taldir.

Það vantar í þetta, og kemur fram í greininni fyrir þá sem nenna að lesa hana, og það er að það er ekki hægt að bera saman veltu hjá Bónus og Costco, Bónus er ekki að selja sjónvörp, ísskápa eða þess háttar vörur sem eru dýrar og auka þ.a.l. veltu Costco.

Skjámynd

KermitTheFrog
Kóngur
Póstar: 4273
Skráði sig: Mán 07. Júl 2008 23:32
Reputation: 67
Staða: Ótengdur

Re: Costco á Íslandi?.

Pósturaf KermitTheFrog » Fös 02. Jún 2017 12:49

kjarrig skrifaði:

En það er bara svo hentugt að vitna bara í það sem hjálpar þínum málsstað.

Skjámynd

hfwf
Vaktari
Póstar: 2018
Skráði sig: Sun 16. Okt 2011 20:29
Reputation: 78
Staða: Ótengdur

Re: Costco á Íslandi?.

Pósturaf hfwf » Fös 02. Jún 2017 12:54

kjarrig skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Velta Costco fer fram úr Bónus fyrstu dagana, Bónus er með 32 verslanir um land allt þarf af 20 á höfuðborgarsvæðinu á sama tíma er Costco með eina verslun í Garðabæ. Samkvæmt tölum Meniga var kortavelta Costco 32% meðan allar veslanir Bónus til samans náðu 28% af heildar dagvöruveltu.

http://www.visir.is/g/2017170609818/vel ... -en-bonuss

Það er ekkert skrítið þó fórstjóri Haga sé að fara á límingunum þessa dagana, það er ekki spurning hvort heldur hvenær Costco fjölgar verslunum og það er líka viðbúið að aðrar keðjur taki eftir því sem er að gerast hérna og þegar það gerist þá grunar mig nú að dagar Haga á dagvörumarkaði séu taldir.

Það vantar í þetta, og kemur fram í greininni fyrir þá sem nenna að lesa hana, og það er að það er ekki hægt að bera saman veltu hjá Bónus og Costco, Bónus er ekki að selja sjónvörp, ísskápa eða þess háttar vörur sem eru dýrar og auka þ.a.l. veltu Costco.

Bónus seldi sjónvörp hér um árið.
Stórefast að fólk sé líka að labba inn í Costco hér heima og verla demantshring á 17m, allavega ekki á næstu misserum.
Hafa líklega ekki selt ísskápa enn sem komið er útaf samkomulagi við hina risana :) #samsæriskenningarout.

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16267
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1991
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Costco á Íslandi?.

Pósturaf GuðjónR » Fös 02. Jún 2017 13:26

pepsico skrifaði:
GuðjónR skrifaði:það er ekki spurning hvort heldur hvenær Costco fjölgar verslunum og

Það er ekki að fara að gerast.
Ef þú skoðar hlutfallið milli fólksfjölda og vöruhúsa annars staðar úti í heimi sérðu að við
hérna 200-300 þúsund í nánd við þetta vöruhús erum nú þegar langt yfir eðlilegu hlutfalli.

Já vertu ekki svo viss, þú verður að átta þig á einu að þrátt fyrir að vera undir meðaltalinu sem þú nefnir þá gerðist eitthvað við opnunina sem eigendur og stjórnendur Costco sem er næststærsta smásölukeðjan í heimi óraði ekki fyrir og hafa aldrei séð áður. Þetta var langstærsta verslunar opnun í sögu fyrirtækisins. Og hvergi annarsstaðar heftur hátt í 20% þjóðar keypt sér aðgangskort fyri opnun og aldrei hefur þurft aðstoð frá björgunarsveitum í "crowd control".

Af hverju gerist þetta hérna en hvergi annarsstaðar? Jú af því að annarsstaðar, t.d. í US þá er samkeppni, fólk hefur val og þar verður þú undir ef þú stendur þig ekki, hérna er fákeppni þar sem tveir risar ráða öllu. Það er lítið mál fyrir þá að ákveða, "nú skulum við blóðmjólka fólkið, hækkum allt og verum með dýrasta matarverð í Evrópu" ....
Hvað eigum við að gera? Eigum við að gera eins og Danir keyra til Þýskalands? Eða Litháar að keyra til Póllands? Kannski taka lestina til Færeyja?
Nei við getum ekki gert neitt annað en sætt okkur við þetta eða flutt í burtu. Þangað til núna, núna fáum við VAL í fyrsta sinn og þjóðin er að VELJA!
Við veljum að láta ekki pína okkur lengur, við snúum baki við kvalara okkar og fögnum því að fá samkeppni í fyrsta sinn. Og ég er 1000% viss að þetta er bara byrjunin á einhverju meira og betra.

Cikster
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 399
Skráði sig: Lau 11. Mar 2006 13:02
Reputation: 16
Staða: Ótengdur

Re: Costco á Íslandi?.

Pósturaf Cikster » Fös 02. Jún 2017 13:31

Skaz skrifaði:
GuðjónR skrifaði:
frappsi skrifaði:
Sallarólegur skrifaði:
GuðjónR skrifaði:
Tiger skrifaði:Hagar voru ekki lengi að sína sitt rétta andlit....

http://www.vb.is/frettir/taka-vorur-ur-hillum/138521/

Ef þeir geta ekki beitt neytendum ofbeldi þá gera þeir það við framleiðendur.
Ofbeldi og yfirgangur er það sem rekur þessa mafíur áfram.
Vona að Wallmart og Target eigi eftir að bætast í hópinn og veita þessum siðblindingjum náðarhöggin.

Amen. Vona að sem flestir sjái í gegnum þetta rugl hjá þeim.

http://nutiminn.is/forstjori-haga-sakar ... -og-bonus/

Hef nú heyrt ýmsa hluti um samskipti Haga / Bónuss og heildsala sem ríma við þetta í gegnum tíðina. Held að málið sé að loksins sagði einhver frá þessu í fjölmiðlum frekar en að það sé verið að ljúga upp á litla saklausa grísinn.

Er það t.d. rétt að Holtakjúklingur hefur ekki verið í Bónus síðan Costco opnaði (Costco selur Holtakjúkling)? Hann hefur verið til hjá þeim í gegnum árin...

Það útskýrir af hverju það er bara Bónuskjúklingur í Bónus núna, konan var að versla fyrir nokkrum dögum og spurði af hverjui það væri bara Bónuskjúklingur og starfsmaðurinn varð hvummsa, nú vitum við af hverju.

Reyndar er orðið svolítið síðan Högum og Reykjagarði (Holtakjúklingur) lenti saman og Bónus henti öllu frá þeim út úr verslunum sínum. Við erum að tala um 2-3 mánuði síðan þetta gerðist. Skilst að það hafi verið ansi margir samverkandi þættir, verð, þjónusta og afgreiðsla á sendingum.

Held að Costco hafi ekki stjórnað þessu heldur að þetta hafi legið lengi í loftinu að Hagar myndu snúa sér alfarið að Matfugli sem birgja í þessum vörum.

Ég held nú að það hafi fátt legið í loftinu með Haga. Hef hinsvegar heyrt að þegar Costco ákváðu að opna hér hafi þeir beðið um tilboð frá framleiðendum þar sem þeir miðuðu við að taka bara einn framleiðanda inn en ekki eins og hefur verið að flestar búðir hafa verið með frá öllum/flestum framleiðendum. Bónus hafi síðan farið í samskonar "útboð" sem mótspil við "útboðinu" hjá Costco.

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16267
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1991
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Costco á Íslandi?.

Pósturaf GuðjónR » Fös 02. Jún 2017 15:38

Skjámynd

KermitTheFrog
Kóngur
Póstar: 4273
Skráði sig: Mán 07. Júl 2008 23:32
Reputation: 67
Staða: Ótengdur

Re: Costco á Íslandi?.

Pósturaf KermitTheFrog » Þri 06. Jún 2017 09:12

GuðjónR skrifaði:Og hvergi annarsstaðar heftur hátt í 20% þjóðar keypt sér aðgangskort fyri opnun

Það er afþví að Costco hefur aldrei opnað í landi með 300 þúsund íbúa. Þetta eru fáránleg rök.

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16267
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1991
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Costco á Íslandi?.

Pósturaf GuðjónR » Þri 06. Jún 2017 13:39

KermitTheFrog skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Og hvergi annarsstaðar heftur hátt í 20% þjóðar keypt sér aðgangskort fyri opnun

Það er afþví að Costco hefur aldrei opnað í landi með 300 þúsund íbúa. Þetta eru fáránleg rök.

Alls ekki, á öllu höfuðborgarsvæðinu búa um 200 þúsund manns, frá ungbörnum til gamalmenna, þetta jafgildir að 1/4 sé með aðgangskort. Heldurðu að viðtökurnar hefðu orðið svona geggjaðar ef ástandið hefði verið eðlilegt og samkeppni eðlileg?
Ég var að koma úr Bónus, keypti Rice Krispies á 329 kr, það er ekki langt síðan ég var að borga hátt í 800 kr. fyrir þennan sama pakka!

Svona var umhorfs kl. 10 í gærmorgun annan í hvítassunnu, heldurðu að þetta sé bara af því að við erum 300 þúsund íbúar?:
Viðhengi
Costco.jpg
Costco.jpg (617.22 KiB) Skoðað 2058 sinnum

Skjámynd

KermitTheFrog
Kóngur
Póstar: 4273
Skráði sig: Mán 07. Júl 2008 23:32
Reputation: 67
Staða: Ótengdur

Re: Costco á Íslandi?.

Pósturaf KermitTheFrog » Þri 06. Jún 2017 13:56

GuðjónR skrifaði:
KermitTheFrog skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Og hvergi annarsstaðar heftur hátt í 20% þjóðar keypt sér aðgangskort fyri opnun

Það er afþví að Costco hefur aldrei opnað í landi með 300 þúsund íbúa. Þetta eru fáránleg rök.

Alls ekki, á öllu höfuðborgarsvæðinu búa um 200 þúsund manns, frá ungbörnum til gamalmenna, þetta jafgildir að 1/4 sé með aðgangskort. Heldurðu að viðtökurnar hefðu orðið svona geggjaðar ef ástandið hefði verið eðlilegt og samkeppni eðlileg?
Ég var að koma úr Bónus, keypti Rice Krispies á 329 kr, það er ekki langt síðan ég var að borga hátt í 800 kr. fyrir þennan sama pakka!

Svona var umhorfs kl. 10 í gærmorgun annan í hvítassunnu, heldurðu að þetta sé bara af því að við erum 300 þúsund íbúar?:

Alls ekki það sem ég var að meina. Að nota x hluti þjóðar í samanburði Íslands og annarra landa er fáránlegt.

Koma Costco til Íslands er ekkert nema snilld, bæði fyrir fólk sem fer í Costco og verslar, og fyrir hina sem það meikar ekki alveg sens að versla í Costco.

Ég veit ekki hvað þetta vöruhús er hannað til að þjónusta marga, en mér finnst hæpið að þeir fari að fjölga vöruhúsum. Það verður ekki svona röð þarna endalaust. Var ekki líka lokað á sunnudaginn? :-"