Finnur þyrlan síma án SIM korts?

Allt utan efnis

Höfundur
Hizzman
FanBoy
Póstar: 797
Skráði sig: Fös 22. Apr 2016 18:48
Reputation: 136
Staða: Ótengdur

Finnur þyrlan síma án SIM korts?

Pósturaf Hizzman » Þri 06. Des 2016 09:37

Virkar gamall Nokia sími sem öryggistæki? Er gagnlegt að taka með gamlan spjallsíma, fullhlaðinn en án SIM korts, sem bakkupp ef aðalsíminn týnist eða skemmist?

Skjámynd

hagur
Besserwisser
Póstar: 3095
Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:11
Reputation: 443
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Finnur þyrlan síma án SIM korts?

Pósturaf hagur » Þri 06. Des 2016 09:42

Hvernig var það, er hægt að hringja í neyðarnúmer úr síma þó að hann sé ekki með SIM kort? Ef svo er þá myndi ég ætla að hann sé "á networkinu" og þ.a.l. trackable. En ég veit svosem ekkert um þetta.

vesley
Kóngur
Póstar: 4253
Skráði sig: Mán 08. Sep 2008 19:39
Reputation: 190
Staðsetning: við talvuna
Staða: Ótengdur

Re: Finnur þyrlan síma án SIM korts?

Pósturaf vesley » Þri 06. Des 2016 09:56

hagur skrifaði:Hvernig var það, er hægt að hringja í neyðarnúmer úr síma þó að hann sé ekki með SIM kort? Ef svo er þá myndi ég ætla að hann sé "á networkinu" og þ.a.l. trackable. En ég veit svosem ekkert um þetta.

Miðað við það litla sem ég "googlaði" þá eru símar yfirleitt með getuna til þess að geta hringt í neyðarnúmer þó ekkert símkort sé í símanum, auðvelt á að vera að komast að því með því einfaldlega að kveikja á honum og ætti síminn að gefa upp hvort hann geti hringt í neyðarnúmer.

Risadvergur
Fiktari
Póstar: 80
Skráði sig: Mið 31. Ágú 2016 19:47
Reputation: 13
Staða: Ótengdur

Re: Finnur þyrlan síma án SIM korts?

Pósturaf Risadvergur » Þri 06. Des 2016 09:57

Já það er hægt að hringja í neyðarnúmer án korts. Fyrsta tilkynningin sem þú færð ef þú tekur kortið úr og kveikir á símanum.

Hvað varðar upphaflegu spurninguna, þá eru alveg örugglega til betri og öruggari samskiptamátar en gamlir símar. Sérstaklega fyrir fólk á fjöllum.

Hinsvegar ætti síminn að vera betri en ekkert.

Þess utan eru til fyrirbæri sem kallast GPS tæki. Sbr ef þú nærð sambandi við björgunaraðila geturðu látið þá vita NÁKVÆMLEGA hvar þú ert á þeim tímapunkti.

steinarorri
Gúrú
Póstar: 565
Skráði sig: Mán 25. Jan 2010 23:54
Reputation: 45
Staða: Ótengdur

Re: Finnur þyrlan síma án SIM korts?

Pósturaf steinarorri » Þri 06. Des 2016 10:06

Afhverju ekki að leigja neyðarsendi, 1200 kr/dag. 1200 kall á dag er ekki mikið, tala nú ekki um ef fólk er saman í hóp og getur sameinast um einn sendi.

http://safetravel.is/rent-a-plb/

Höfundur
Hizzman
FanBoy
Póstar: 797
Skráði sig: Fös 22. Apr 2016 18:48
Reputation: 136
Staða: Ótengdur

Re: Finnur þyrlan síma án SIM korts?

Pósturaf Hizzman » Þri 06. Des 2016 10:24

ég veit að það er mögulegt að hringja í 112 án SIM korts. spurningin er bara hvort þyrlan getur miðað SIMlausan síma út, ef ekkert samband er á svæðinu?

Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3605
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: Finnur þyrlan síma án SIM korts?

Pósturaf dori » Þri 06. Des 2016 10:31

Hizzman skrifaði:ég veit að það er mögulegt að hringja í 112 án SIM korts. spurningin er bara hvort þyrlan getur miðað SIMlausan síma út, ef ekkert samband er á svæðinu?

Ég held að sim kortið tengist þessu ekki neitt (síminn kemst inná net án þess og ætti þess vegna að finnast). Annars tek ég undir með öðrum hérna að þetta hljómar eins og afleit ráðstöfun sem "default öryggi". Frábært ef þú ert í vandræðum og bara gamli Nokia 5110 og ekkert símkort á staðnum en ekki eitthvað sem maður undirbýr sig með sem aðal öryggisbúnað.

Skjámynd

Urri
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 356
Skráði sig: Þri 21. Jún 2016 19:42
Reputation: 32
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Finnur þyrlan síma án SIM korts?

Pósturaf Urri » Þri 06. Des 2016 11:35

held að sim kortið sé einungis til að auðkenna notanda inná kerfi og fá aðgang að notkunen mér gæti skjátlast.

Fractal Design Define R5 Titanium // ASUS X99-A // Intel Core i7-5930K // ASUS GeForce STRIX GTX 980 Ti 6GB
HyperX Predator SSD 480GB M.2 PCIe // HyperX Predator 2400MHz 32GB (4x8GB)
EVGA SuperNOVA 1000 G2, 1000W PSU // Corsair Hydro H100i GTX

Höfundur
Hizzman
FanBoy
Póstar: 797
Skráði sig: Fös 22. Apr 2016 18:48
Reputation: 136
Staða: Ótengdur

Re: Finnur þyrlan síma án SIM korts?

Pósturaf Hizzman » Þri 06. Des 2016 13:01

dori skrifaði:
Hizzman skrifaði:ég veit að það er mögulegt að hringja í 112 án SIM korts. spurningin er bara hvort þyrlan getur miðað SIMlausan síma út, ef ekkert samband er á svæðinu?

Ég held að sim kortið tengist þessu ekki neitt (síminn kemst inná net án þess og ætti þess vegna að finnast). Annars tek ég undir með öðrum hérna að þetta hljómar eins og afleit ráðstöfun sem "default öryggi". Frábært ef þú ert í vandræðum og bara gamli Nokia 5110 og ekkert símkort á staðnum en ekki eitthvað sem maður undirbýr sig með sem aðal öryggisbúnað.

ef þú læsir FP sæirðu etv orðið 'bakkupp' :face

Skjámynd

hfwf
Vaktari
Póstar: 2018
Skráði sig: Sun 16. Okt 2011 20:29
Reputation: 78
Staða: Ótengdur

Re: Finnur þyrlan síma án SIM korts?

Pósturaf hfwf » Þri 06. Des 2016 14:06

Ef síminn nær sambandi við cellu, þá ætti að vera hægt að njörva niður hvar viðkomandi er miðað við drægni cellunnar, og augum notandans.
Og sími nær alltaf að hringja í 112/911 ef hann nær sambandi, ef ekekrt samband þá augljóslega ekkert samband til að hringja.

frr
has spoken...
Póstar: 186
Skráði sig: Þri 01. Ágú 2006 14:59
Reputation: 19
Staða: Ótengdur

Re: Finnur þyrlan síma án SIM korts?

Pósturaf frr » Þri 06. Des 2016 17:02

Gamli nokia síminn virkar ekki á nýrri úthlutuðum tíðnum eða samskiptamáta, eða á "langdrægu" gsm sambandi.
Betra væri að hafa snjallsíma til vara með a.m.k. 3G og gps. Sjá til þess að gpsið hafi nýlega skilað réttu miði, svo hann sé fljótur að miða aftur eftir að hann er ræstur.
Enn nýrri símar geta svo nýtt fleiri tungl til að miða.

Skjámynd

urban
Stjórnandi
Póstar: 3750
Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
Reputation: 471
Staðsetning: Undir hægra megin
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Finnur þyrlan síma án SIM korts?

Pósturaf urban » Þri 06. Des 2016 17:42

hfwf skrifaði:Ef síminn nær sambandi við cellu, þá ætti að vera hægt að njörva niður hvar viðkomandi er miðað við drægni cellunnar, og augum notandans.
Og sími nær alltaf að hringja í 112/911 ef hann nær sambandi, ef ekekrt samband þá augljóslega ekkert samband til að hringja.

frr skrifaði:Betra væri að hafa snjallsíma til vara með a.m.k. 3G og gps. Sjá til þess að gpsið hafi nýlega skilað réttu miði, svo hann sé fljótur að miða aftur eftir að hann er ræstur.
Enn nýrri símar geta svo nýtt fleiri tungl til að miða.

í þessu tilviki sem að er verið að spá í skiptir það svo sem minna máli.
Einfaldleg þar sem að gsm sellan er jú um borð í þyrlunni sjálfri og þeir miða hann út þannig.

Út frá því og að það sé klárlega hægt að hringja úr síma sem að hefur ekki SIM kort, þá myndi ég halda að það væri alltaf öruggara að hafa hann með en að sleppa því.
En einsog búið er að koma inná þá er þetta náttúrulega hugsað sem last resort þegar að annar sími er t.d. batteríislaus eða glataður.

Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !

Skjámynd

zedro
Stjórnandi
Póstar: 2766
Skráði sig: Fös 29. Okt 2004 21:29
Reputation: 123
Staðsetning: FL410
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Finnur þyrlan síma án SIM korts?

Pósturaf zedro » Þri 06. Des 2016 18:02

Smá off topic rant:

Ef fólk er tilbúið að kaupa vopn á hundruðir þúsunda, skotfæri, veiðifatnað, gervigæsir, flug útá land, veiðileyfi....

...en tímir svo ekki að kaupa PLB neyðarsendi á 30-50þ.kr. skil ég ekki :face

Kísildalur.is þar sem nördin versla

Höfundur
Hizzman
FanBoy
Póstar: 797
Skráði sig: Fös 22. Apr 2016 18:48
Reputation: 136
Staða: Ótengdur

Re: Finnur þyrlan síma án SIM korts?

Pósturaf Hizzman » Þri 06. Des 2016 18:58

urban skrifaði:
í þessu tilviki sem að er verið að spá í skiptir það svo sem minna máli.
Einfaldleg þar sem að gsm sellan er jú um borð í þyrlunni sjálfri og þeir miða hann út þannig.

Út frá því og að það sé klárlega hægt að hringja úr síma sem að hefur ekki SIM kort, þá myndi ég halda að það væri alltaf öruggara að hafa hann með en að sleppa því.
En einsog búið er að koma inná þá er þetta náttúrulega hugsað sem last resort þegar að annar sími er t.d. batteríislaus eða glataður.

LOKSINS kom einhver á þráðinn sem er ekki að spjalla með afturendanum!! =D>

Skjámynd

urban
Stjórnandi
Póstar: 3750
Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
Reputation: 471
Staðsetning: Undir hægra megin
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Finnur þyrlan síma án SIM korts?

Pósturaf urban » Þri 06. Des 2016 19:10

zedro skrifaði:Smá off topic rant:

Ef fólk er tilbúið að kaupa vopn á hundruðir þúsunda, skotfæri, veiðifatnað, gervigæsir, flug útá land, veiðileyfi....

...en tímir svo ekki að kaupa PLB neyðarsendi á 30-50þ.kr. skil ég ekki :face

Fólk getur verið að koma sér upp búnaði.

Nú er ég t.d. nýfarinn að hafa áhuga á stangveiði í á og er að koma mér upp búnaði í það hægt og rólega.
Ég veit það að ég er öruggastur í góðum og öflugum vöðlum og í góðum vöðlujakka.

Ég hef bara ekki efni á því að koma mér upp þeim búnaði í hvelli, því leita ég mér leiða til þess að vera þó eins öruggur og ég get.

Sem að OP virðist einmitt vera að gera með þessum pælingum hjá sér.

Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !

Skjámynd

zedro
Stjórnandi
Póstar: 2766
Skráði sig: Fös 29. Okt 2004 21:29
Reputation: 123
Staðsetning: FL410
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Finnur þyrlan síma án SIM korts?

Pósturaf zedro » Þri 06. Des 2016 20:04

urban skrifaði:
zedro skrifaði:Smá off topic rant:

Ef fólk er tilbúið að kaupa vopn á hundruðir þúsunda, skotfæri, veiðifatnað, gervigæsir, flug útá land, veiðileyfi....

...en tímir svo ekki að kaupa PLB neyðarsendi á 30-50þ.kr. skil ég ekki :face

Fólk getur verið að koma sér upp búnaði.

Nú er ég t.d. nýfarinn að hafa áhuga á stangveiði í á og er að koma mér upp búnaði í það hægt og rólega.
Ég veit það að ég er öruggastur í góðum og öflugum vöðlum og í góðum vöðlujakka.

Ég hef bara ekki efni á því að koma mér upp þeim búnaði í hvelli, því leita ég mér leiða til þess að vera þó eins öruggur og ég get.

Sem að OP virðist einmitt vera að gera með þessum pælingum hjá sér.

Það er eitt að keyra upp að á og veiða þar en að labba á hreindýr til dæmis.
Ef þú spyrð mig þá ætti PLB að vera það fyrsta sem þú kaupir í settið!
Ef þú hefur ekki efni á því ættirðu sennilega ekki að vera borga 100k í veiðileyfi.

Þetta er bara tossaskapur og "kemur ekki fyrir mig" hugsun! 30þ.kr. vs kostnaður af jarðaför því þú varst of nískur...

Kísildalur.is þar sem nördin versla

Skjámynd

urban
Stjórnandi
Póstar: 3750
Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
Reputation: 471
Staðsetning: Undir hægra megin
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Finnur þyrlan síma án SIM korts?

Pósturaf urban » Þri 06. Des 2016 21:39

zedro skrifaði:

Já það er heilmikill munur á því að fara í hreindýr og borga hundruði þúsunda, en það eru ekki allir á leið í hreindýr að borga hundruði þúsunda.

En það er ekkert mikill munur á því að keyra upp að á og fara að veiða eða keyra upp að heiði og fara að skjóta rjúpu.

Einsog ég sagði, menn geta verið að koma sér upp búnaði, þú segir að þetta væri eitt það fyrsta, ég myndi t.d. fyrr fá mér góðan galla áður en ég færi í neyðarsendinn, Einnig fengi ég mér fyrr gott gps tæki ásamt auðvitað að vera vel símaður.

OP er að hugsa út í öryggið, hann er að vita hvort að það sé ekki betra að vera með þetta eða ekki.

Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !

Höfundur
Hizzman
FanBoy
Póstar: 797
Skráði sig: Fös 22. Apr 2016 18:48
Reputation: 136
Staða: Ótengdur

Re: Finnur þyrlan síma án SIM korts?

Pósturaf Hizzman » Þri 06. Des 2016 22:29

Akkúrat! Spurningin er bara hvort gamli nokia síminn gæti bjargað manni ef allt er farið á versta veg. Á maður að taka hann með hlaðinn og pakkaðan í plastfilmu þó hann sé ekki með SIM kort? Eða hefur það engan tilgang vegna þess að það er ekkert SIM kort í honum? Er þetta flókin pæling?

Skjámynd

russi
FanBoy
Póstar: 731
Skráði sig: Mán 02. Maí 2011 01:28
Reputation: 176
Staðsetning: Terran Empire
Staða: Ótengdur

Re: Finnur þyrlan síma án SIM korts?

Pósturaf russi » Þri 06. Des 2016 22:38

IMEI númer símans er það sem skráist fyrst inná sellurnar áður en kort skráist inná kerfið, það gerir þér kleift að hringja í neyðarnúmer.
Ef þú ert með IMEI númerið á hreinu og getur gefið það upp til einhvers í fjölskyldu sem kemur því áfram ef þú ert það óheppinn að það þurfi að leita að þér, þá mun það hjálpa til og þrengja leitar hring væntanlega

frr
has spoken...
Póstar: 186
Skráði sig: Þri 01. Ágú 2006 14:59
Reputation: 19
Staða: Ótengdur

Re: Finnur þyrlan síma án SIM korts?

Pósturaf frr » Fim 08. Des 2016 14:24

Það sem flestir eru að meina, að e-ð nýrra en gamli nokia síminn sem backup, t.d. gamli, úrelti snjallsíminn, er alltaf betra.
Gamli Nokia síminn ætti að vera mjög neðarlega, þó víst sé hann skárri en ekkert.
Miðun með einni þyrlu er tímafrek, nema ef til eru upplýsingar um merkið frá öðrum stöðum.

Tbot
/dev/null
Póstar: 1476
Skráði sig: Þri 01. Nóv 2011 13:42
Reputation: 304
Staðsetning: Rvk
Staða: Ótengdur

Re: Finnur þyrlan síma án SIM korts?

Pósturaf Tbot » Fim 08. Des 2016 15:04

urban skrifaði:
zedro skrifaði:
urban skrifaði:
zedro skrifaði:Smá off topic rant:

Ef fólk er tilbúið að kaupa vopn á hundruðir þúsunda, skotfæri, veiðifatnað, gervigæsir, flug útá land, veiðileyfi....

...en tímir svo ekki að kaupa PLB neyðarsendi á 30-50þ.kr. skil ég ekki :face

Fólk getur verið að koma sér upp búnaði.

Nú er ég t.d. nýfarinn að hafa áhuga á stangveiði í á og er að koma mér upp búnaði í það hægt og rólega.
Ég veit það að ég er öruggastur í góðum og öflugum vöðlum og í góðum vöðlujakka.

Ég hef bara ekki efni á því að koma mér upp þeim búnaði í hvelli, því leita ég mér leiða til þess að vera þó eins öruggur og ég get.

Sem að OP virðist einmitt vera að gera með þessum pælingum hjá sér.

Það er eitt að keyra upp að á og veiða þar en að labba á hreindýr til dæmis.
Ef þú spyrð mig þá ætti PLB að vera það fyrsta sem þú kaupir í settið!
Ef þú hefur ekki efni á því ættirðu sennilega ekki að vera borga 100k í veiðileyfi.

Þetta er bara tossaskapur og "kemur ekki fyrir mig" hugsun! 30þ.kr. vs kostnaður af jarðaför því þú varst of nískur...

Já það er heilmikill munur á því að fara í hreindýr og borga hundruði þúsunda, en það eru ekki allir á leið í hreindýr að borga hundruði þúsunda.

En það er ekkert mikill munur á því að keyra upp að á og fara að veiða eða keyra upp að heiði og fara að skjóta rjúpu.

Einsog ég sagði, menn geta verið að koma sér upp búnaði, þú segir að þetta væri eitt það fyrsta, ég myndi t.d. fyrr fá mér góðan galla áður en ég færi í neyðarsendinn, Einnig fengi ég mér fyrr gott gps tæki ásamt auðvitað að vera vel símaður.

OP er að hugsa út í öryggið, hann er að vita hvort að það sé ekki betra að vera með þetta eða ekki.

Að fara að veiða í á er ansi ólíkt því að fara á fjöll til veiða. Ásamt því að árstíminn er mismunandi.

En þér finnst sjálfsagt að fjöldi fólks (100 til 200 manns) eyði bæði tíma og fjármunum í að leita að þér því þú týmdir ekki að fjárfesta í neyðarsendi. Sem sæi til þessi að það þyrfti "bara nokkra tugi" leitarmanna.

Skjámynd

urban
Stjórnandi
Póstar: 3750
Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
Reputation: 471
Staðsetning: Undir hægra megin
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Finnur þyrlan síma án SIM korts?

Pósturaf urban » Fim 08. Des 2016 16:25

Það að fara á veiðar með stöng, þarf alls ekki í fyrsta lagi að ég keyri bílnum mínum niður að á.

En hvar í ósköpunum tók ég fram að mér þætti í lagi að láta leita af mér ?

Ekki ákveða hvað ég er að segja, lestu bara það sem að ég skrifaði.

Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !

Tbot
/dev/null
Póstar: 1476
Skráði sig: Þri 01. Nóv 2011 13:42
Reputation: 304
Staðsetning: Rvk
Staða: Ótengdur

Re: Finnur þyrlan síma án SIM korts?

Pósturaf Tbot » Fim 08. Des 2016 18:53

urban skrifaði:Það að fara á veiðar með stöng, þarf alls ekki í fyrsta lagi að ég keyri bílnum mínum niður að á.

En hvar í ósköpunum tók ég fram að mér þætti í lagi að láta leita af mér ?

Ekki ákveða hvað ég er að segja, lestu bara það sem að ég skrifaði.

Þetta eru þín orð nákvæmlega:

Einsog ég sagði, menn geta verið að koma sér upp búnaði, þú segir að þetta væri eitt það fyrsta, ég myndi t.d. fyrr fá mér góðan galla áður en ég færi í neyðarsendinn, Einnig fengi ég mér fyrr gott gps tæki ásamt auðvitað að vera vel símaður.

OP er að hugsa út í öryggið, hann er að vita hvort að það sé ekki betra að vera með þetta eða ekki.

Ég les hvað þú skrifar og þar sem þú segir orðrétt að svona neyðartæki sé ekki fremst á lista þínum.

En þessi orð þín hljóma ansi líkt og játningar þeirra sem hefur þurft að leita að.
Þar sem þeim finnst þetta tæki ekki hafa þurft að vera í forgangi hjá þeim.

Skjámynd

urban
Stjórnandi
Póstar: 3750
Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
Reputation: 471
Staðsetning: Undir hægra megin
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Finnur þyrlan síma án SIM korts?

Pósturaf urban » Fim 08. Des 2016 20:28

Já og ég spyr þá aftur, hvar stendur þarna að mér þyki í lagi að leita af mér ?

Ég sagði að ég færi fyrr í góðan galla, þar sem að ég vill vera vel búin þegar að ég geng á fjöll.
Ég sagði líka að ég færi fyrr í góðan gps og góðan síma, þá veit ég hvar ég er og hvert ég er að fara.

Hvar í ósköpunum kemur fram í þessum texta að mér þyki allt í lagi að láta leita af mér ?
Hvernig í ósköpunum tekst þér að fá það útúr þessu ??

Hvernig getur það staðist, að ég fái mér ekki neyðarsendi áður en ég fæ mér góðan kuldagalla eða gps og síma saman sem merki með að mér þyki bara allt í lagi að láta hundruði manna leita af mér ?

Hvernig stennst það, að ég vilji vera vel búin teljist samþykki á það að mér þyki í lagi að láta leita af mér ?

Lestu bara það sem að ég skrifaði og náðu þér í lesskilning ef að þú skilur þetta ekki.
Ég sagði bara akkurat ekki neitt um það að mér þætti í lagi að láta leita af mér og gerðu mér bara greiða að ekki ákveða hvað ég skrifa þegar að það er nokkuð augljós fyrir framan þig.

Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !

Snorrmund
Of mikill frítími
Póstar: 1822
Skráði sig: Lau 04. Jan 2003 22:10
Reputation: 8
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Finnur þyrlan síma án SIM korts?

Pósturaf Snorrmund » Fim 08. Des 2016 23:55

Sæll. Við sendum þér hér með svar frá okkar sérfræðing í málinu. GSM leitarkerfi LHG getur staðsett síma þó hann hafi ekki SIM kort. Það takmarkar hins vegar möguleika áhafnarinnar að hafa samband við viðkomandi þar sem ekki er hægt að senda SMS skilaboð beint á símann og ekki er hægt að hringja til baka í hann ef samband rofnar. Símtalið þarf s.s. alltaf að hefjast í símtækinu. Og þeir símar sem við höfum skoðað eru þannig að ekki er hægt að senda SMS úr þeim nema með SIM korti.

Að auki er rétt að nefna að leit miðast að jafnaði við símanúmer þess týnda og kerfið er sett upp til að einbeita sér að honum sérstaklega. Þetta ferli lágmarkar áhrif leitar á aðra síma sem hugsanlega ná merki þyrlunnar og hjálpar áhöfninni við að greina týnda einstaklinginn frá öðrum sem varða ekki leitina.

Loks er vert að minnast á að leitarkerfið notast við 2G samband við símann. Það er því ástæða til að forðast að stilla síma með þeim hætti að þeir séu fastsettir á að nota aðeins 3G eða 4G (LTE) net sé ferðast utan alfaraleiðar.

Ég var einmitt að forvitnast með þetta eftir útkallið á egs um daginn. Hérna er svarið sem kom við minni fyrirspurn til LHG. Annars finnst mér reyndar neyðar sendir þó hann sé sniðugur kannski ekki nauðsynlegur samt. gps, sími vara rafhlöður og auðvitað átta vití og kunnátta á þetta allt saman er mun mikilvægari.