Var að versla mér spanhelluborð og þekki svo lítið inn á þau en á svona óhljóð að heyrast ?
Re: Spanhelluborð - Á að heyrast svona hljóð ?
Sent: Mán 14. Nóv 2016 19:46
af hagur
Já.
Re: Spanhelluborð - Á að heyrast svona hljóð ?
Sent: Mán 14. Nóv 2016 19:48
af Dúlli
hagur skrifaði:Já.
Allveg svona hrikalega mikið ? hef nefnilega aldrei verið með span helluborð áður, bjóð við smá hljóði en ekki allveg svona mikið.
En ef maður fer í dýrari tæki ? minkar þetta eithvað ?
og er þetta hljóð alltaf svona stöðugt ?
Re: Spanhelluborð - Á að heyrast svona hljóð ?
Sent: Mán 14. Nóv 2016 19:53
af hagur
Ég hef svosem ekki reynslu af mörgum spanhelluborðum en það er a.m.k eðlilegt að það heyrist svona humm í þeim þegar þau eru að hita. Því meira afl, því háværara humm. Kannski að "fínni" og dýrari borð séu lágværari, ég bara þekki það ekki.
Re: Spanhelluborð - Á að heyrast svona hljóð ?
Sent: Mán 14. Nóv 2016 19:55
af brain
Er ekki rétt að þú ert með allar 4 á hæstu stillingu ?
Er með frekar gott borð og það heyrist í því þegar allt er sett á fullt. En ekki með 2 í notkun.
Re: Spanhelluborð - Á að heyrast svona hljóð ?
Sent: Mán 14. Nóv 2016 20:00
af Dúlli
brain skrifaði:Er ekki rétt að þú ert með allar 4 á hæstu stillingu ?
Er með frekar gott borð og það heyrist í því þegar allt er sett á fullt. En ekki með 2 í notkun.
Var bara að prufa þarna hvort hljóðið myndi samstillast, en setti allar helurnar á 3 af 9 stiga hita. Veit ekki einu sinni hvað það er.
Vissi að það áttu að koma eithver læti en brá frekar mikið þegar þetta var svona hátt, svo er ég núna að reyna að sjóða egg og þetta síður, svo stopar, síður aftur og stopar aftur.
Spyr sá sem veit ekki Annars hvað er enska orðið yfir spanhelluborð ?
En svo er þetta ekki ódýrasta helluborðið, var eithver 50þ
Re: Spanhelluborð - Á að heyrast svona hljóð ?
Sent: Mán 14. Nóv 2016 20:02
af hagur
Þegar þú ert með á lágum hita, þá hummar það smá og þagnar svo, hummar, þagnar o.sv.frv. það er normal.
Googlaðu bara "induction cooktop sounds".
Re: Spanhelluborð - Á að heyrast svona hljóð ?
Sent: Mán 14. Nóv 2016 20:30
af Dúlli
hagur skrifaði:Þegar þú ert með á lágum hita, þá hummar það smá og þagnar svo, hummar, þagnar o.sv.frv. það er normal.
Googlaðu bara "induction cooktop sounds".
Akkurat, en svo magnast hávaðinn með hverju þrepi og þegar ég kveiki á annari hellu á koma en flerir svona humm hljóð.
Athuga með þetta
Re: Spanhelluborð - Á að heyrast svona hljóð ?
Sent: Mán 14. Nóv 2016 21:04
af jonsig
þú ættir að athuga pottana hjá þér, fullt af þykjustu span pottum. Steypujárn,kopar pottar virka best eða pottar með lagskiptan botn. Allt annað býður uppá vesen og hávaða. Með að hækka í græjunni eykur hávaðan sem er fyrir og alveg eðlilegt.
Þetta virkar bara eins og spennir, með að setja pottinn ofaná lokaru kjarnanum og spennatapið sér um að sjóða pulsurnar.
Re: Spanhelluborð - Á að heyrast svona hljóð ?
Sent: Mán 14. Nóv 2016 21:07
af Dúlli
jonsig skrifaði:þú ættir að athuga pottana hjá þér, fullt af þykjustu span pottum. Steypujárn,kopar pottar virka best eða pottar með lagskiptan botn. Allt annað býður uppá vesen og hávaða. Með að hækka í græjunni eykur hávaðan sem er fyrir og alveg eðlilegt.
Þetta virkar bara eins og spennir, með að setja pottinn ofaná lokaru kjarnanum og spennatapið sér um að sjóða pulsurnar.
Það var nefnilega keypt nýja potta, en veit ekki allveg hversu mikið maður eigi að henda í þetta, veskið er orðið dáldið létt.
Re: Spanhelluborð - Á að heyrast svona hljóð ?
Sent: Mán 14. Nóv 2016 21:14
af jonsig
Þetta þurfa að vera vandaðir pottar, svo má líka reyna að RMA þetta bara. Svo ef maður vill finna út ef EMF drepur mann þá er spanhella góð leið til að prófa það, fyrir utan dirty electricity sem getur lekið til baka inní tengilinn hjá þér og útvarpast með vírunum í veggjunum hjá þér.
Þessvegna ætla ég að halda mig við gömlu góðu eldavélarhellurnar ,í trássi við vilja konunnar:)
Re: Spanhelluborð - Á að heyrast svona hljóð ?
Sent: Mán 14. Nóv 2016 21:34
af Hnykill
hehe k.. þurrkaðu vatnið á milli hellu og potts. dude.. þetta er vatn milli hellu og potts að blása út og "springa"
En ef þú ert að byrja að búa. fáðu þér þá ekki pönnur eða potta með þunnunm botni. því hann bara svignar og verður til leiðinda. pönnu með þungum botn. endist. 8x betur eða þetta ikea dót
Re: Spanhelluborð - Á að heyrast svona hljóð ?
Sent: Mán 14. Nóv 2016 21:37
af Dúlli
Akkurat, virðist vera að þetta sé standard.
Hnykill skrifaði:hehe k.. þurrkaðu vatnið á milli hellu og potts. dude.. þetta er vatn milli hellu og potts að blása út og "springa"
En ef þú ert að byrja að búa. fáðu þér þá ekki pönnur eða potta með þunnunm botni. því hann bara svignar og verður til leiðinda. pönnu með þungum botn. endist. 8x betur eða þetta ikea dót
Ni, er að klára að skipta um allt eldhúsið, allt nýtt. Það var bara verslað eithvern pakka úr húsasmiðjunni, næstu dyr við IKEA hehehe. En þá sættir maður sig við hljóðið gæti vel verið að það eru ekki meiri gæði í þessum pottum en þetta.
Re: Spanhelluborð - Á að heyrast svona hljóð ?
Sent: Mán 14. Nóv 2016 23:18
af dori
Ég er með Siemens spanhelluborð og það heyrist ekki svona hátt hljóð. En jú. Svona "humm" hljóð sem hækkar svo eftir því sem maður hækkar í hellunum.
Annars ekki hafa áhyggjur af pottunum. Annað hvort virka þeir á spanhellu eða ekki. Og ef þú ert í vafa þá er gott að taka með sér lítinn segul til að prófa pottana. Ef segull festist á botninum þá virka þeir á spanhellu.
Re: Spanhelluborð - Á að heyrast svona hljóð ?
Sent: Þri 15. Nóv 2016 00:40
af Black
Hjá mér heyrsti bara smá humm, erum með mjög vandaða potta Þegar græjann er sett á Power þá koma svona smellir og læti eins og hjá þér.
Re: Spanhelluborð - Á að heyrast svona hljóð ?
Sent: Þri 15. Nóv 2016 07:51
af Dúlli
Black skrifaði:Hjá mér heyrsti bara smá humm, erum með mjög vandaða potta Þegar græjann er sett á Power þá koma svona smellir og læti eins og hjá þér.
Það er nefnilega það, þetta er á lágum hita hjá mér. Veit ekki hvort maður eigi að nenna að gera eithvað í þessu.
Re: Spanhelluborð - Á að heyrast svona hljóð ?
Sent: Þri 15. Nóv 2016 09:05
af GuðjónR
Ég hef átt þrjú spanborð og eldað á tveim til viðbótar og aldrei heyrt svona hávaða. Eðlilegt að það sé smá "humm" hljóð á mismunandi stillingum en þetta er eitthvað skrítið verð ég að segja.