Vantar ráð - Innheimta

Allt utan efnis

Höfundur
Mug
Nýliði
Póstar: 15
Skráði sig: Sun 13. Nóv 2016 13:05
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Vantar ráð - Innheimta

Pósturaf Mug » Sun 13. Nóv 2016 13:20

Sælir Vaktmenn og konur

Nú vantar mér smá ráð. Þessi þráður http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=9&t=69982 kveikti aðeins á forvitni minni þar sem ég því miður þurfti að nýta þessa ömurlegu þjónustu í smá tíma árið 2013 þegar ég lendi í tímabundnu atvinnuleysi.

Sagan er sem sagt þannig að ég kíkti á síðu eins þessara fyrirtækja og þar sá ég að þau segja að það sé tvö lán ógreidd.
Eftir að hafa haft samband við bankann en er engin virk krafa til staðar á bak við þessar kröfur og ekkert í annari innheimtu. Ég er ekki á vanskilaskrá vegna þess heldur. Ég taldi því að ég hafi hugsanlega greitt þetta í gegnum milliinnheimtufyrirtæki en þeir segja þessar kröfur hafa aldrei farið til þeirra. Ég get ekki séð betur en þessar kröfur séu á ekki færsluyfirliti hjá mér heldur.

Mín pæling er sem sagt sú að bíða fram í mars, þá eru komin fjögur ár frá gjalddaga og kasta þá fram "Lög um fyrning skulda og annarra kröfuréttinda
1905 nr. 14 20. október" http://www.althingi.is/lagas/124/1905014.html

Tel það ekki sniðugt að hafa samband við þau strax í þeirri von að þeim misfarist þetta.
Hefur vaktfólk einhver önnur ráð?
Síðast breytt af Mug á Mið 16. Nóv 2016 17:34, breytt samtals 1 sinni.



Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4930
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 861
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Vantar ráð - Innheimta

Pósturaf jonsig » Sun 13. Nóv 2016 14:48

Það fylgir ekkert hversu há upphæð þetta er og ef þetta er einhver summa þá eiga þeir eftir að ganga hart eftir þessu. Annars held ég að þetta séu 5ár sem tekur fyrir skuld að fyrnast.




Höfundur
Mug
Nýliði
Póstar: 15
Skráði sig: Sun 13. Nóv 2016 13:05
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Vantar ráð - Innheimta

Pósturaf Mug » Sun 13. Nóv 2016 14:56

Þetta er 115.þús

3. gr. Þessar kröfur fyrnast á 4 árum:
1. Kröfur út af sölu eða afhendingu á vörum eða lausafé, sem ekki er afhent sem fylgifé með fasteign, þó svo, að haldi skuldunautur áfram föstum viðskiptum við kaupmann, verksmið eða þvílíkan atvinnureka, og fái árlega viðskiptareikning, fyrnist ekki skuld, er hann kann í að vera við nýár hvert, hvort sem hún stafar frá viðskiptum síðasta árs eða ekki, meðan viðskiptum er haldið áfram óslitið, leigu á fasteign eða lausafé, veru, viðgerning eða aðhlynningu, flutning á mönnum eða munum, vinnu, og hvers konar starfa, sem í té er látinn; þó fyrnist ekki krafa hjús um kaupgjald, meðan það er samfellt áfram í sömu vist.




Psychobsy
Græningi
Póstar: 49
Skráði sig: Fös 22. Apr 2005 20:32
Reputation: 0
Staðsetning: Hafnarfjörður
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Vantar ráð - Innheimta

Pósturaf Psychobsy » Sun 13. Nóv 2016 15:17

Ég hef notað Netgiro tvisvar á árinu og líkar það bara vel, hef ekki látið á það reyna að borga ekki á eindaga en gæti trúað að dráttarvextir telji ansi hratt... en annars er þetta fínt keypti Samsung S7 og borgaði niður á 3 mánuðum minnir að lánkostnaður hafi verið um 8000 kr. og ekki kvarta ég yfir því...


Það sem ekki er bilað skal ekki laga!

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16258
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1983
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Vantar ráð - Innheimta

Pósturaf GuðjónR » Sun 13. Nóv 2016 15:19

Mug skrifaði:Nú vantar mér smá ráð. Þessi þráður http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=9&t=69982 kveikti aðeins á forvitni minni þar sem ég því miður þurfti að nýta þessa ömurlegu þjónustu í smá tíma árið 2013 þegar ég lendi í tímabundnu atvinnuleysi.

Mug skrifaði:Þetta er 115.þús

Þú ert þá væntanlega með vinnu núna? Hvernig væri þá að greiða skuldina? Ef þér finnst þetta óyfirstíganlegur hjallur, þá áttu eftir að segja eitthvað þegar þú tekur húsnæðislán og sérð það hækka um allt að 500k á mánuði.



Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4930
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 861
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Vantar ráð - Innheimta

Pósturaf jonsig » Sun 13. Nóv 2016 21:29

Þú þarft líka að hafa í huga að eigandi síðunnar/lögfræðipaddan hefur örugglega tvo rándýra í rekstri bíla að reka! Og örugglega 400fm hús sem þarf að greiða fasteignagjöld af ! Svo er ekki ódýrt að hafa krakkana sína í Ísakskóla og tónlistarnámi!




vesley
Kóngur
Póstar: 4253
Skráði sig: Mán 08. Sep 2008 19:39
Reputation: 190
Staðsetning: við talvuna
Staða: Ótengdur

Re: Vantar ráð - Innheimta

Pósturaf vesley » Sun 13. Nóv 2016 23:28

jonsig skrifaði:Þú þarft líka að hafa í huga að eigandi síðunnar/lögfræðipaddan hefur örugglega tvo rándýra í rekstri bíla að reka! Og örugglega 400fm hús sem þarf að greiða fasteignagjöld af ! Svo er ekki ódýrt að hafa krakkana sína í Ísakskóla og tónlistarnámi!



Sé ekki hvað það kemur því við hvernig sá lögfræðingur siðar sínu einkalífi varðandi þá skuld sem hann mun innheimta í sínu starfi.

Ef þú færð lánað og borgar ekki til baka hefur það afleiðingar, og yfirleitt verður það verra því lengur sem þú frestar því, einfalt.




Höfundur
Mug
Nýliði
Póstar: 15
Skráði sig: Sun 13. Nóv 2016 13:05
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Vantar ráð - Innheimta

Pósturaf Mug » Mán 14. Nóv 2016 11:25

Eftir að hafa haft samband við bankann en er engin virk krafa til staðar á bak við þessar kröfur og ekkert í annari innheimtu.


Vil minna á þennan texta í upphaflega póstinum. Þetta er hvergi í innheimtu



Skjámynd

Hrotti
Geek
Póstar: 810
Skráði sig: Mán 22. Mar 2010 20:05
Reputation: 126
Staðsetning: Reykjanesbær
Staða: Ótengdur

Re: Vantar ráð - Innheimta

Pósturaf Hrotti » Mán 14. Nóv 2016 11:48

Mug skrifaði:
Eftir að hafa haft samband við bankann en er engin virk krafa til staðar á bak við þessar kröfur og ekkert í annari innheimtu.


Vil minna á þennan texta í upphaflega póstinum. Þetta er hvergi í innheimtu



Það kæmi mér verulega á óvart ef það er ekki einhverskonar reminder sem að poppar upp hjá þeim rétt áður en þetta fyrnist.


Verðlöggur alltaf velkomnar.

Skjámynd

urban
Stjórnandi
Póstar: 3750
Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
Reputation: 471
Staðsetning: Undir hægra megin
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Vantar ráð - Innheimta

Pósturaf urban » Mán 14. Nóv 2016 14:29

Ef að þú ert ekki nú þegar inná vanskilaskrá þá dytti mér ekki til hugar að taka sénsinn á því að fara þangað fyrir 115 þús kall.

Myndi líklegast labba í bankan og taka yfirdrátt bara til þess að borga það.

Ég var fáviti peningalega séð þegar að ég var yngri og það er alveg klárlega 115 þús króna virði að sleppa við þetta.


Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !


Skúnkur
Græningi
Póstar: 37
Skráði sig: Fös 24. Feb 2012 19:51
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Re: Vantar ráð - Innheimta

Pósturaf Skúnkur » Mán 14. Nóv 2016 14:36

vesley skrifaði:
jonsig skrifaði:Þú þarft líka að hafa í huga að eigandi síðunnar/lögfræðipaddan hefur örugglega tvo rándýra í rekstri bíla að reka! Og örugglega 400fm hús sem þarf að greiða fasteignagjöld af ! Svo er ekki ódýrt að hafa krakkana sína í Ísakskóla og tónlistarnámi!



Sé ekki hvað það kemur því við hvernig sá lögfræðingur siðar sínu einkalífi varðandi þá skuld sem hann mun innheimta í sínu starfi.

Ef þú færð lánað og borgar ekki til baka hefur það afleiðingar, og yfirleitt verður það verra því lengur sem þú frestar því, einfalt.


Eigendum þessara fyrirtækja finnst allt í lagi að sleppa borga sínar eigin skuldir, fá sér bara nýjar kennitölur.
http://www.dv.is/frettir/2016/2/8/gamla ... ldthrota1/



Skjámynd

urban
Stjórnandi
Póstar: 3750
Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
Reputation: 471
Staðsetning: Undir hægra megin
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Vantar ráð - Innheimta

Pósturaf urban » Þri 15. Nóv 2016 22:21

Skúnkur skrifaði:
vesley skrifaði:
jonsig skrifaði:Þú þarft líka að hafa í huga að eigandi síðunnar/lögfræðipaddan hefur örugglega tvo rándýra í rekstri bíla að reka! Og örugglega 400fm hús sem þarf að greiða fasteignagjöld af ! Svo er ekki ódýrt að hafa krakkana sína í Ísakskóla og tónlistarnámi!



Sé ekki hvað það kemur því við hvernig sá lögfræðingur siðar sínu einkalífi varðandi þá skuld sem hann mun innheimta í sínu starfi.

Ef þú færð lánað og borgar ekki til baka hefur það afleiðingar, og yfirleitt verður það verra því lengur sem þú frestar því, einfalt.


Eigendum þessara fyrirtækja finnst allt í lagi að sleppa borga sínar eigin skuldir, fá sér bara nýjar kennitölur.
http://www.dv.is/frettir/2016/2/8/gamla ... ldthrota1/



Ef að OP getur það, þá mæli ég reyndar eindregið með því.
Þangað til það er hægt, þá mæli ég bara með því að borga skuldir sínar.


Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !

Skjámynd

pattzi
Bara að hanga
Póstar: 1503
Skráði sig: Þri 07. Des 2010 00:54
Reputation: 38
Staðsetning: Akranes
Staða: Ótengdur

Re: Vantar ráð - Innheimta

Pósturaf pattzi » Mið 16. Nóv 2016 19:34

Ég myndi semja strax allavega áður en þetta hækkar