Síða 1 af 1

Hvar er ódýrast að kaupa þrýstiloft á brúsa

Sent: Mán 26. Sep 2016 11:19
af flottur
Hvar er ódýrast að kaupa þrýstiloft á brúsa til að hreinsa tölvur?

Re: Hvar er ódýrast að kaupa þrýstiloft á brúsa

Sent: Mán 26. Sep 2016 19:36
af baldurgauti
Mæli með að kaupa litla loftpresssu þar sem það margborgar sig til lengri tíma en annars veit ég ekki hvar þú færð þrýstiloft :D

Re: Hvar er ódýrast að kaupa þrýstiloft á brúsa

Sent: Mán 26. Sep 2016 19:55
af asigurds

Re: Hvar er ódýrast að kaupa þrýstiloft á brúsa

Sent: Mán 26. Sep 2016 19:56
af Njall_L
baldurgauti skrifaði:Mæli með að kaupa litla loftpresssu þar sem það margborgar sig til lengri tíma en annars veit ég ekki hvar þú færð þrýstiloft :D


Hef verið að pæla í því að fá mér litla pressu heim, veistu um eitthvað sniðugt? Þessi þrýstiloftsbrúsar virka ekki neitt miðað við pressu

Re: Hvar er ódýrast að kaupa þrýstiloft á brúsa

Sent: Mán 26. Sep 2016 21:06
af Squinchy
Það er hægt að fá litlar pressur í bauhaus fyrir einhvern 15-20k held ég

Re: Hvar er ódýrast að kaupa þrýstiloft á brúsa

Sent: Mán 26. Sep 2016 22:21
af jonsig
Stærri iðnaðarpressurnar eiga það til að sprauta smá stimplaolíu með. Ég taldi með countera þetta með að kaupa pressu sem make-up artistar nota en hún er crap því hún hefur ekki forðageymir.

Re: Hvar er ódýrast að kaupa þrýstiloft á brúsa

Sent: Mán 26. Sep 2016 22:33
af yamms
asigurds skrifaði:Ég verslaði í tl síðast. http://tl.is/product/pc-clean-thrystiloft-a-brusa-400ml



Ódýrara í Kísildal :) og kannski ódýrara annarsstaðar, hef bara ekki tékkað.
http://kisildalur.is/?p=2&id=1914

Re: Hvar er ódýrast að kaupa þrýstiloft á brúsa

Sent: Mán 26. Sep 2016 22:58
af Squinchy
Smá svona til gamans
https://www.youtube.com/watch?v=qrKfaX1lCUM

Annars held ég að kútur á árs fresti sé klárlega málið vs pressu sem þarf að viðhalda, þarf einmitt að fara skipta út o hringjum í minni :(

Re: Hvar er ódýrast að kaupa þrýstiloft á brúsa

Sent: Þri 27. Sep 2016 00:26
af Maniax
Fékk mér eina svona á tæpar 14 þúsund krónur þegar það var afmælis tilboð í gangi hjá þeim

http://www.husa.is/netverslun/vorur/lof ... Loftpressa

virkar rosalega vel en er í háværari kantinum

Re: Hvar er ódýrast að kaupa þrýstiloft á brúsa

Sent: Þri 27. Sep 2016 00:46
af Hnykill
Hann er ekki að meina það. bara hvar hann fær háþrýstiloft í brúsa eins og wd40 til að blása ryki úr viftunum úr tölvunni sinni.. ekki að fokking háhreinsi þvo mótorhjólið sitt :)

Re: Hvar er ódýrast að kaupa þrýstiloft á brúsa

Sent: Þri 27. Sep 2016 07:49
af flottur
Hahahahahaha ég þakka góð svör strákar, gaman að rúlla yfir þetta svona í morgunsárið með kaffibolla í hönd.

Annars hef ég alveg pælt í að kaupa loftpresu svona litla og netta til að hafa í bílskúrnum, síðan tók ég rúnt um netið á tölvusíður og google.is og komast að því að þeir sem væru ódyrastir væru Kísildalur og nýherji :guy ótrúlegt en satt.

edit : kannski ég breyti titlinum í hvar fást ódýrustu loftpressurnar(án þess að vera drasl)?
þar sem mér findist fínt að geta verið með eina heima til að losna við ryk úr tölvunum.......þær eru alveg nokkrar hérna á heimilinu þannig að einn brúsi dugar skammt.

Re: Hvar er ódýrast að kaupa þrýstiloft á brúsa

Sent: Þri 27. Sep 2016 17:34
af baldurgauti
Njall_L skrifaði:
baldurgauti skrifaði:Mæli með að kaupa litla loftpresssu þar sem það margborgar sig til lengri tíma en annars veit ég ekki hvar þú færð þrýstiloft :D


Hef verið að pæla í því að fá mér litla pressu heim, veistu um eitthvað sniðugt? Þessi þrýstiloftsbrúsar virka ekki neitt miðað við pressu

Sá að þeir voru með svona í Bauhaus, Mjög mikið úrval, það var reyndar fyrir svolitlu síðan, hef ekki farið þangað nýlega en þú gætir prufað að athuga þar :)

Re: Hvar er ódýrast að kaupa þrýstiloft á brúsa

Sent: Þri 27. Sep 2016 20:53
af Frost
Ég er mjög mikið að hugsa um að kaupa mér svona https://www.amazon.com/ED500-DataVac-50 ... B001J4ZOAW

https://www.amazon.com/review/RONM23SIO ... 3&store=hi
M.v. þetta video þá virðist þessi græja svínvirka.

Re: Hvar er ódýrast að kaupa þrýstiloft á brúsa

Sent: Þri 27. Sep 2016 21:05
af Viggi
Læt mig nú bara ryksuguna duga. Fínt á borðtölvuna en veit ekki með allt draslið á sjónvarpsskenkinum :p

Re: Hvar er ódýrast að kaupa þrýstiloft á brúsa

Sent: Mið 28. Sep 2016 08:33
af svanur08
Kannski ég komi með eina spurningu, er í lagi að nota svona þrýstiloft úr brúsa á LCD/LED sjónvörp meðfram rammanum að framan? Svona ryk korn sem ég næ ekki með microfiber klút.

Re: Hvar er ódýrast að kaupa þrýstiloft á brúsa

Sent: Mið 28. Sep 2016 10:59
af Tbot
Frost skrifaði:Ég er mjög mikið að hugsa um að kaupa mér svona https://www.amazon.com/ED500-DataVac-50 ... B001J4ZOAW

https://www.amazon.com/review/RONM23SIO ... 3&store=hi
M.v. þetta video þá virðist þessi græja svínvirka.



120 volt (not for use in 220 or 230-volt current).
Þetta er 110V græja. Þannig að þú þarft spennubreyti.

Re: Hvar er ódýrast að kaupa þrýstiloft á brúsa

Sent: Mið 28. Sep 2016 11:45
af arons4
jonsig skrifaði:Stærri iðnaðarpressurnar eiga það til að sprauta smá stimplaolíu með. Ég taldi með countera þetta með að kaupa pressu sem make-up artistar nota en hún er crap því hún hefur ekki forðageymir.

Hún safnast yfirleitt fyrir í kútnum með tímanum og svo kemur hún með þegar sprautað er. Á flestum kútum er einfaldlega nóg að tappa af kútnum áður en hann er settur í gang með skrúfu sem er undir honum. Muna bara að tæma hann fyrst.

Annars er líka hægt að setja rakagildru á hann. Hún þarf þó að þola þrýstinginn á kútnum.
Mynd

Re: Hvar er ódýrast að kaupa þrýstiloft á brúsa

Sent: Mið 28. Sep 2016 15:22
af svanur08
Frost skrifaði:Ég er mjög mikið að hugsa um að kaupa mér svona https://www.amazon.com/ED500-DataVac-50 ... B001J4ZOAW

https://www.amazon.com/review/RONM23SIO ... 3&store=hi
M.v. þetta video þá virðist þessi græja svínvirka.


Þetta er snilldar græja!

En þessi virkar hér 220v-240v ---> https://www.amazon.co.uk/Metro-Vac-220- ... c+500-Watt

Re: Hvar er ódýrast að kaupa þrýstiloft á brúsa

Sent: Mið 28. Sep 2016 19:29
af tdog
jonsig skrifaði:Stærri iðnaðarpressurnar eiga það til að sprauta smá stimplaolíu með. Ég taldi með countera þetta með að kaupa pressu sem make-up artistar nota en hún er crap því hún hefur ekki forðageymir.


Þá seturu þurkhylki á úttakið á pressunni til að fá olíufrítt loft.

Re: Hvar er ódýrast að kaupa þrýstiloft á brúsa

Sent: Mið 28. Sep 2016 19:31
af jonsig
Eða fæ mér bara ultra sonic hreinsara, barasta alla leið.