govt making download illegal

Allt utan efnis
Skjámynd

Höfundur
kizi86
Vaktari
Póstar: 2208
Skráði sig: Lau 26. Sep 2009 18:08
Reputation: 166
Staða: Ótengdur

govt making download illegal

Pósturaf kizi86 » Sun 18. Sep 2016 16:24

jæja nú ætlar okkar ástkæra ríkisstjórn að gera allt niðurhal á netinu ólöglegt nema það komi beint frá framleiðanda

http://www.althingi.is/altext/145/s/1667.html
Eftirfarandi breytingar verða á 11. gr. laganna:
a. Á eftir 1. málsl. 1. mgr. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Heimild til gerðar stafræns eintaks er þó bundin við einstakling sem hefur lögmæt umráð eða aðgang að uppruna­eintaki sem er dreift eða gert aðgengilegt með heimild rétthafa þess.

sem þýðir að t,d rippa lag af youtube verður glæpur, sækja þátt á torrent = glæpur , copera mynd af facebook og niðurhala henni glæpur..

hingað til hefur ekki neitt verið til í íslenskum lögum sem heitir ólöglegt niðurhal, hefur bara verið ólöglegt að DREIFA höfundarréttarvörðu efni en með þessari litlu setningu á að gera bragarbót á því máli. sem mun þýða að það verður GLÆPUR að hafa undir höndum harðan disk sem inniheldur höfundarréttar varið efni, bara það að vera með friends seriurnar á hdd hjá sér gæti kostað slatta í sekt eða jafnvel fangelsi allt að 2 árum...

hvað finnst ykkur um þetta?


ASRock B650E PG-ITX WiFi AMD Ryzen 9 7950X PowerColor "Red Devil" RX 7900 XTX 24GB G.Skill Trident Z5 RGB 32GB (2 x 16GB) DDR5-6000 stýrikerfi: wd black sn850x 2TB WD RED 4TB WD RED 4TB 65" LG B8 OLED TV


Dúlli
Vaktari
Póstar: 2149
Skráði sig: Mán 10. Des 2012 19:43
Reputation: 195
Staða: Ótengdur

Re: govt making download illegal

Pósturaf Dúlli » Sun 18. Sep 2016 16:37

Þetta er bara helvítis kjaftæði. Er þetta samt ekki bara tillaga ? það hafa komið svona áður en þær fara aldrei í gegn.

Hvenig ætla þeir að sanna það að maður sé að niðurhala án þess að viðurkenna brot á persónuverndar lögum og þess eru þeir varla að fara í random hús með leitar heimild um að fara inn á tölvu hjá manni.



Skjámynd

Baldurmar
FanBoy
Póstar: 784
Skráði sig: Þri 20. Jún 2006 12:07
Reputation: 136
Staða: Ótengdur

Re: govt making download illegal

Pósturaf Baldurmar » Sun 18. Sep 2016 18:24

Hvaða endemis rugl er þetta, föst prósentutala á TÖLVUR OG SÍMA !
4% á usb-lykla og SD-kort.
Er þetta fólk eitthvað sturlað ?


Gigabyte X570 - Ryzen 5900 @ 4.5ghz all core - 5ghz single core - 64gb TridentZ 3400mhz - GTX 1070 8gb

Skjámynd

Höfundur
kizi86
Vaktari
Póstar: 2208
Skráði sig: Lau 26. Sep 2009 18:08
Reputation: 166
Staða: Ótengdur

Re: govt making download illegal

Pósturaf kizi86 » Sun 18. Sep 2016 18:37

Baldurmar skrifaði:Hvaða endemis rugl er þetta, föst prósentutala á TÖLVUR OG SÍMA !
4% á usb-lykla og SD-kort.
Er þetta fólk eitthvað sturlað ?

jamm alveg yndislegt þegar ríkisstjórnin gerir ráð fyrir því að allir sínir þegnar séu að brjóta lög.


ASRock B650E PG-ITX WiFi AMD Ryzen 9 7950X PowerColor "Red Devil" RX 7900 XTX 24GB G.Skill Trident Z5 RGB 32GB (2 x 16GB) DDR5-6000 stýrikerfi: wd black sn850x 2TB WD RED 4TB WD RED 4TB 65" LG B8 OLED TV


gutti
Bara að hanga
Póstar: 1585
Skráði sig: Lau 19. Apr 2003 22:56
Reputation: 44
Staðsetning: REYKJAVIK
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: govt making download illegal

Pósturaf gutti » Sun 18. Sep 2016 19:33

meðan þeir brjóta af sér eins og venjilega er :thumbsd




codec
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 338
Skráði sig: Fös 07. Ágú 2009 12:53
Reputation: 17
Staða: Ótengdur

Re: govt making download illegal

Pósturaf codec » Sun 18. Sep 2016 19:39

Nei common þetta er ljóta ruglið.



Skjámynd

rattlehead
Ofur-Nörd
Póstar: 250
Skráði sig: Fös 02. Des 2011 11:01
Reputation: 6
Staða: Ótengdur

Re: govt making download illegal

Pósturaf rattlehead » Sun 18. Sep 2016 19:57

Hvernig á að fylgja þessu eftir. Ef að á að fylgjast með hverri einustu tölvu er ekki spurning um persónunjósnir. Hvernig og hver á að fylgja þessu eftir. Þetta er komið á grátt svæði ef að á að skikka fjarskiptafyrirtækin að gera slíkt. Veit ekki betur enn að hver torrent síðan á fætur annari er að hætta. Mun betra aðgengi á þjónustu á rafrænu efni er betra í dag enn fyrir nokkrum árum.



Skjámynd

depill
Stjórnandi
Póstar: 1548
Skráði sig: Mán 04. Júl 2005 17:09
Reputation: 215
Staðsetning: Reykjavík, Iceland
Staða: Ótengdur

Re: govt making download illegal

Pósturaf depill » Sun 18. Sep 2016 20:16

Sko, tökum ólöglega niðurhalið út fyrir sviga. Hér er verið að skýra orðalag, og þótt ég er ekki sammála að þá get ég skilið þessa skýringu.

Hins vegar þessi gjöld á tæki eru óþolandi. 1% á símtæki, 1% á fartölvur. ÓÞOLANDI, ég til dæmis nota Spotify, nota SkjáBíó, er áskrifandi af fjölmiðlum, fer jafnvel í Bíó. En það er bara teknir allir og settir undir sama hatt. Þar sem X skila ekki gjaldi til rétthafa, skulu allir bæta það upp fyrir rétthöfum.

Og það versta er að þetta er stjórnarfrumvarp og er frekar líklegt til að fara í gegn. Vonandi sleppur þetta ekki í gegn fyrir kosningar. Þurfa þeir b.t.w ekki að rjúfa þing 6 vikur fyrir kosningar ?

edit: og með usb lykla og sd kort, þetta er algjört grín. Ég hef keypt usb lykla og sd kort aldrei notað þá fyrir neitt ólöglegt.



Skjámynd

brain
vélbúnaðarpervert
Póstar: 976
Skráði sig: Lau 19. Apr 2014 10:11
Reputation: 134
Staða: Ótengdur

Re: govt making download illegal

Pósturaf brain » Sun 18. Sep 2016 21:10

depill skrifaði:Sko, tökum ólöglega niðurhalið út fyrir sviga. Hér er verið að skýra orðalag, og þótt ég er ekki sammála að þá get ég skilið þessa skýringu.

Hins vegar þessi gjöld á tæki eru óþolandi. 1% á símtæki, 1% á fartölvur. ÓÞOLANDI, ég til dæmis nota Spotify, nota SkjáBíó, er áskrifandi af fjölmiðlum, fer jafnvel í Bíó. En það er bara teknir allir og settir undir sama hatt. Þar sem X skila ekki gjaldi til rétthafa, skulu allir bæta það upp fyrir rétthöfum.

Og það versta er að þetta er stjórnarfrumvarp og er frekar líklegt til að fara í gegn. Vonandi sleppur þetta ekki í gegn fyrir kosningar. Þurfa þeir b.t.w ekki að rjúfa þing 6 vikur fyrir kosningar ?

edit: og með usb lykla og sd kort, þetta er algjört grín. Ég hef keypt usb lykla og sd kort aldrei notað þá fyrir neitt ólöglegt.


Það þarf að ekki að rjúfa þing þótt boðiað sé til kosninga, það er hægt að hafa þing alveg fram að kjördegi.



Skjámynd

depill
Stjórnandi
Póstar: 1548
Skráði sig: Mán 04. Júl 2005 17:09
Reputation: 215
Staðsetning: Reykjavík, Iceland
Staða: Ótengdur

Re: govt making download illegal

Pósturaf depill » Sun 18. Sep 2016 21:47

brain skrifaði:Það þarf að ekki að rjúfa þing þótt boðiað sé til kosninga, það er hægt að hafa þing alveg fram að kjördegi.


Grenj :(



Skjámynd

EOS
has spoken...
Póstar: 192
Skráði sig: Sun 12. Jún 2016 19:38
Reputation: 37
Staðsetning: Hafnarfjörður
Staða: Ótengdur

Re: govt making download illegal

Pósturaf EOS » Sun 18. Sep 2016 21:49

Þetta eru EES reglur og okkur ber að innleiða þetta, svo þið megið treysta á að þetta fari í gegn. Plús það að þetta er stjórnarfrumvarp. Ef þetta væri þingmannafrumvarp þá hefði ég engar áhyggjur.

Ísland, best í heimi!
HÚH!


:pjuke


Turn: Intel i5 6500 - ASRock Z170M Pro4S - 16gb Kingston DDR4 HyperX Black Fury 2666 - Samsung Evo 850 250gb - EVGA GTX970SSC 4gb - CoolerMaster Silencio 352 - EVGA 500B 80+ Bronze - Windows 10
Skjár: AOC 27" LED 144Hz
Annað: Trust GXT 285 - Corsair M65 Pro RGB


Dúlli
Vaktari
Póstar: 2149
Skráði sig: Mán 10. Des 2012 19:43
Reputation: 195
Staða: Ótengdur

Re: govt making download illegal

Pósturaf Dúlli » Sun 18. Sep 2016 22:00

Skiptir hugsa ég engu máli hvort þetta fer í gegn eða ekki, engan vegin hægt að sanna þetta án þess að þeir fari að njósna um fólk.

Símfyrirtæki eru búin að standa upp og neita að taka þátt í svona rugli. Til dæmis þegar átti að loka á deildu og hringdu, neitaði, vodafone og símin gerðu það líka held ég.

Þetta er tapað stríð hjá þessu liði, eingöngu gamlar rísaeðlur.



Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4965
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 869
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: govt making download illegal

Pósturaf jonsig » Sun 18. Sep 2016 22:42

Hálfvita lögfræðið liðið á bakvið þetta hefur haft vit á því að kalla USB lykil með hálfleiðaraminni :sleezyjoe

Gaman hvað Illugi gunnars er alltaf í ólinni hjá einhverjum lobbýistum.

2. EES-reglur.
Samkvæmt b-lið 2. mgr. 5. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2001/29/EB frá 22. maí 2001 um samræmingu tiltekinna þátta höfundaréttar og skyldra réttinda í upplýsingasamfélaginu (hér eftir nefnd tilskipunin) geta aðildarríkin kveðið á um undanþágur eða takmarkanir á réttinum til eftirgerðar sem mælt er fyrir um í 2. gr. tilskipunarinnar þegar um er að ræða eftirgerðir einstaklinga með hvers konar miðli til einkanota og í tilgangi sem er ekki viðskiptalegs eðlis, hvorki beint né óbeint, með því skilyrði að rétthafar höfundaréttar fái sanngjarnar bætur (e. fair compensation)

ákveða höfundar hvað sanngjarnar bætur séu ?



Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7063
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1005
Staða: Ótengdur

Re: govt making download illegal

Pósturaf rapport » Sun 18. Sep 2016 22:48

jonsig skrifaði:vinstra liðið á bakvið þetta eins og vanalega?
Hálfvita lögfræðið liðið á bakvið þetta hefur haft vit á því að kalla USB lykil með hálfleiðaraminni :sleezyjoe


Stjórnarfrumvarp = frá ríkisstjórn, ekki þingmönnum í minnihluta = hægriflokkarnir, ekki þeir vinstri.

En s.s. nú geta ISP ekki hýst afrit af síðum/efnisveitum innanlands til að spara útlandatraffík.

Óvissan sem fylgir þessu eru algjör.

Er það núna í höndum almennings að ákveða hvað er varið höfundarétti og hvað ekki því annars?

Þetta er virkilega fukked og stupid regluverk og fer augljóslega versnandi.



Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4965
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 869
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: govt making download illegal

Pósturaf jonsig » Sun 18. Sep 2016 22:53

Ég leiðrétti textan, maður er bara vanur allri andskotans vitleysunni frá vinstra liðinu (samspillingunni/vinstri-glónum).



Skjámynd

Lunesta
Gúrú
Póstar: 568
Skráði sig: Mán 30. Nóv 2009 16:16
Reputation: 13
Staða: Ótengdur

Re: govt making download illegal

Pósturaf Lunesta » Mán 19. Sep 2016 00:34

Þetta er svo mikil steypa.

ég án gríns á ekki til orð, þetta er bara svo mikil steypa.



Skjámynd

Urri
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 356
Skráði sig: Þri 21. Jún 2016 19:42
Reputation: 32
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: govt making download illegal

Pósturaf Urri » Mán 19. Sep 2016 09:10

Skil ég þetta rétt hjá ykkur að það er tekið auka gjald á búnað s.s. síma hdd usb lykla o.þ.h. til þess að borga höfundarréttarhöfum útaf því að það er verið að downloada og uploada "einhverju efni" ?


Fractal Design Define R5 Titanium // ASUS X99-A // Intel Core i7-5930K // ASUS GeForce STRIX GTX 980 Ti 6GB
HyperX Predator SSD 480GB M.2 PCIe // HyperX Predator 2400MHz 32GB (4x8GB)
EVGA SuperNOVA 1000 G2, 1000W PSU // Corsair Hydro H100i GTX

Skjámynd

reyniraron
Fiktari
Póstar: 93
Skráði sig: Þri 16. Jún 2015 17:59
Reputation: 17
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: govt making download illegal

Pósturaf reyniraron » Mán 19. Sep 2016 09:20

kizi86 skrifaði:hvað finnst ykkur um þetta?

:pjuke
Oj. Slæmt move.


Reynir Aron
Svona tölvukall

Skjámynd

Höfundur
kizi86
Vaktari
Póstar: 2208
Skráði sig: Lau 26. Sep 2009 18:08
Reputation: 166
Staða: Ótengdur

Re: govt making download illegal

Pósturaf kizi86 » Mán 19. Sep 2016 11:18

Urri skrifaði:Skil ég þetta rétt hjá ykkur að það er tekið auka gjald á búnað s.s. síma hdd usb lykla o.þ.h. til þess að borga höfundarréttarhöfum útaf því að það er verið að downloada og uploada "einhverju efni" ?

Jamm þetta er rétt skilið hjá þér...


ASRock B650E PG-ITX WiFi AMD Ryzen 9 7950X PowerColor "Red Devil" RX 7900 XTX 24GB G.Skill Trident Z5 RGB 32GB (2 x 16GB) DDR5-6000 stýrikerfi: wd black sn850x 2TB WD RED 4TB WD RED 4TB 65" LG B8 OLED TV

Skjámynd

Urri
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 356
Skráði sig: Þri 21. Jún 2016 19:42
Reputation: 32
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: govt making download illegal

Pósturaf Urri » Mán 19. Sep 2016 11:53

kizi86 skrifaði:
Urri skrifaði:Skil ég þetta rétt hjá ykkur að það er tekið auka gjald á búnað s.s. síma hdd usb lykla o.þ.h. til þess að borga höfundarréttarhöfum útaf því að það er verið að downloada og uploada "einhverju efni" ?

Jamm þetta er rétt skilið hjá þér...


Semsagt ef þeir setja þessi lög þá fellur þetta út ? því annars væri tvisvar verið að borga fyrir þetta?


Fractal Design Define R5 Titanium // ASUS X99-A // Intel Core i7-5930K // ASUS GeForce STRIX GTX 980 Ti 6GB
HyperX Predator SSD 480GB M.2 PCIe // HyperX Predator 2400MHz 32GB (4x8GB)
EVGA SuperNOVA 1000 G2, 1000W PSU // Corsair Hydro H100i GTX

Skjámynd

worghal
Kóngur
Póstar: 6300
Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
Reputation: 442
Staðsetning: fyrir aftan þig
Staða: Ótengdur

Re: govt making download illegal

Pósturaf worghal » Mán 19. Sep 2016 12:30

Urri skrifaði:
kizi86 skrifaði:
Urri skrifaði:Skil ég þetta rétt hjá ykkur að það er tekið auka gjald á búnað s.s. síma hdd usb lykla o.þ.h. til þess að borga höfundarréttarhöfum útaf því að það er verið að downloada og uploada "einhverju efni" ?

Jamm þetta er rétt skilið hjá þér...


Semsagt ef þeir setja þessi lög þá fellur þetta út ? því annars væri tvisvar verið að borga fyrir þetta?

einhvernveginn þurfa stef að borga þessa 90+ miljónir í leigu á ári á húsinu sem þau nota sem skrifstofu við laufásveg 40.

Einhverjir helstu bakhjarlar af þessum lagagjöfum hafa verið STEF, hræsnararnir sem þeir eru.
Í fyrra tóku þeir inn 624.297.377kr í flutningsréttar tekjur, upptökuréttartekjur og fleira.
af þessari upphæð rennur lítið sem ekkert til tónlistamanna.


CPU: Intel Core i7 12700KF MB: Gigabyte Z690 Gaming X GPU: EVGA RTX 3080 FTW3 ULTRA 12Gb RAM: Corsair Vengeance RGB Pro 2x16Gb 3600Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Topping DX7s - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Corsair 4000D Airflow


einarn
Gúrú
Póstar: 542
Skráði sig: Mán 15. Mar 2010 06:06
Reputation: 25
Staða: Ótengdur

Re: govt making download illegal

Pósturaf einarn » Mán 19. Sep 2016 13:14

Gamli harða disks skatturinn kominn aftur :)



Skjámynd

brain
vélbúnaðarpervert
Póstar: 976
Skráði sig: Lau 19. Apr 2014 10:11
Reputation: 134
Staða: Ótengdur

Re: govt making download illegal

Pósturaf brain » Mán 19. Sep 2016 15:47




Skjámynd

DJOli
Vaktari
Póstar: 2103
Skráði sig: Fim 24. Jún 2010 01:58
Reputation: 175
Staðsetning: Heima
Staða: Ótengdur

Re: govt making download illegal

Pósturaf DJOli » Mán 19. Sep 2016 23:16

Ég kom með heimskulegt comment áðan. Hér kemur ritskoðaða útgáfan:

Illugi er greinilega að gera gott fyrir STEF.

STEF er löglegt skv. menntamálaráðuneytinu.
Illugi er hjá Menntamálaráðuneytinu.

Skv. lögum má STEF innheimta $$$ fyrir notkun á tónlist, og það er nánast sama í hvaða formi sú notkun er, en miðað við gróða STEFs hef ég ekki séð einn einasta tónlistarmann verða moldríkan á STEFgjöldum. Hmm.


i7-11700KF|64gb(2x32gb)ddr4|1060-6gb|1tb Samsung 980 Pro nvme m.2|1tb Samsung 860 Evo sata ssd|Corsair HX1200|

Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4965
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 869
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: govt making download illegal

Pósturaf jonsig » Þri 20. Sep 2016 22:58

Illugi er líka fastur uppí borunni á orku energy, og er búinn að legga sitt af mörkum til að rústa skólakerfinu með allskonar rugli og vitleysu.