Síða 1 af 1

Chromecast 2 á 4990

Sent: Mið 07. Sep 2016 13:25
af vatr9
Hópkaup er að selja Chromecast 2 á 4990, ef nógu margir kaupa.
https://www.hopkaup.is/google-chromecast-2

Mér datt í hug að setja þetta hingað inn ef einhvern langar í, það vantar nefnilega enn slatta upp á fjölda kaupenda svo þetta gangi.
Er búinn að panta sjálfur auðvitað :)

Re: Chromecast 2 á 4990

Sent: Mið 07. Sep 2016 13:31
af chaplin
If you don't have it, buy it. Eina sem ég hef að segja.

Re: Chromecast 2 á 4990

Sent: Mið 07. Sep 2016 15:20
af BrynjarD
Er þess virði að uppfæra ef maður á Chromecast 1 nú þegar?

Re: Chromecast 2 á 4990

Sent: Mið 07. Sep 2016 15:30
af vatr9
Sýnist það aðallega vera betri WiFi stuðningur sem ætti að hjálpa með feita Full HD strauma.
Útgáfa 2 styður AC staðalinn sem keyrir á 5GHz en þá þarf routerinn líka að styðja AC.

Re: Chromecast 2 á 4990

Sent: Mið 07. Sep 2016 15:32
af Daz
chaplin skrifaði:If you don't have it, buy it. Eina sem ég hef að segja.


Ef sjónvarpið mitt styður Netflix og Youtube og ég nota venjulega ekki aðrar aðferðir til að horfa á media, afhverju ætti ég að kaupa Chromecast? (Alvöru spurning, ég vil vera viss um að ég sé ekki að misskilja eitthvað).

Re: Chromecast 2 á 4990

Sent: Mið 07. Sep 2016 15:40
af lukkuláki
Kostar ekki nema 905 krónum meira í Elko.
http://www.elko.is/elko/is/vorur/aukahl ... etail=true

Re: Chromecast 2 á 4990

Sent: Mið 07. Sep 2016 15:48
af hfwf
Mitt chromecast 1 styður 1080 straum np, hinsvegar er Google að fara kynna nýtt chromecast sem styður4k strauma og fleira.

Re: Chromecast 2 á 4990

Sent: Mið 07. Sep 2016 15:51
af vatr9
lukkuláki skrifaði:Kostar ekki nema 905 krónum meira í Elko.
http://www.elko.is/elko/is/vorur/aukahl ... etail=true


Þá er það ný búið að lækka í Elko, það var á rúmar 6800.
Ætli þeir séu að lækka verðið fyrir næstu útgáfu

Re: Chromecast 2 á 4990

Sent: Mið 07. Sep 2016 15:54
af svanur08
Ekkert 4K?

Re: Chromecast 2 á 4990

Sent: Mið 07. Sep 2016 16:14
af hfwf
svanur08 skrifaði:Ekkert 4K?


The 4K Chromecast will do 4K and be called either the Chromecast Plus or Chromecast Ultra (makes sense - ultra HD). We aren't sure which.

Re: Chromecast 2 á 4990

Sent: Mið 07. Sep 2016 17:03
af chaplin
BrynjarD skrifaði:Er þess virði að uppfæra ef maður á Chromecast 1 nú þegar?


Ég fann engan mun til að segja alveg satt, kannski örlítið meira responsive, en annars mjög lítið held ég. Ég man að þegar ég átti Chromecast 1 þá gat ég ekki notað Netflix, en mig minnir að ég hafi lesið að Chromecast 1 eigi að styðja Netflix rétt eins og CC2.

Daz skrifaði:Ef sjónvarpið mitt styður Netflix og Youtube og ég nota venjulega ekki aðrar aðferðir til að horfa á media, afhverju ætti ég að kaupa Chromecast? (Alvöru spurning, ég vil vera viss um að ég sé ekki að misskilja eitthvað).

Ég nota mitt bara fyrir Netflix og til að spila það sem ekki er til á Netflix, nota ég Videostream til að spila efni úr tölvu í sjónvarp.